Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1993, Síða 10
INNVW 90 INNON
MÁNUDAGUR 17. MAÍ1993
[10-
i FYRRA V«R ÞAD
RADIUS
Útlönd
Nýtt hneyksli innan bresku konungsfl ölskyldunnar:
NÚ ER ÞAÐ
SEM SLÆR
í GEGN
DAVIÐ ÞÓR
JÓNSSON
OGJAKOB
BJARNAR
GRETARSSON
ALLA VIRKA DAGA FRÁ 9-1 2
AÐALSTÖÐIN
Filippus elskar
ekki Elísabetu
Elísabet II., drottning Breta, og eiginmaður hennar, Filippus hertogi af Edin-
borg, sjást hér saman á hinni konunglegu Windsor hestasýningu. Á milli
þeirra stendur lífvörður. Breska pressan heldur því nú fram að engin ást
hafi ríkt í hjónbandi þeirra síðustu 45 árin. Símamynd Reuter
Einkalífi Elísabetar II. Breta-
drottningar var slegið upp á forsíð-
um bresku slúðurblaðanna í gær
þegar Sunday Mirror hélt því fram
að drottningin væri búin að búa í
algjörlega ástlausu hjónabandi með
Filippusi drottningarmanni í 45 ár.
Með frétt sinni gekk Sunday Mirr-
or skrefi lengra en hingað til hefur
verið leyfilegt. Birti blaðið kafla úr
nýrri bók um drottninguna en þar
er því haldið fram að skyldan en
ekki ástin hafi haldið hjónabandi
þeirra saman í öll þessi ár. Filippusi
er lýst sem manni með reikandi augu
en drottningin er sögð hafa tilbeðið
eiginmann sinn frá 13 ára aldri.
Einnig kemur fram í bókinni að hún
sé rpjög einmana og eigi í mesta basli
með að standast álagið af hinum kon-
unglegu skyldum.
Samkvæmt heimildum Sunday
Mirror hefur hjónaband Ehsabetar
og Filippusar aðeins enst þetta lengi
vegna þess að þaö var aldrei um það
að ræða að þau gætu skilið.
Ekki er langt síðan að því var hald-
ið fram í bresku pressunni að breska
leyniþjónustan hefði hlerað samtöl
Díönu prinsessu og Karls ríkisarfa.
Stjómvöld í Bretlandi hafa vísað
shkum ásökunum á bug og telja þær
hlægilegar.
Aðalkeppinautur Sunday Mirror,
News of the World, heldur því fram
að upplýsingarnar um hjónaband
drottningar séu lygi ein og að höf-
undur bókarinnar, lafði Colin Camp-
beh, hafi aldrei þekkt neinn innan
konungsfj ölskyldunnar.
Frétt Sunday Mirror var sú fyrsta
sem birtist um drottninguna sjálfa
en áður hefur blaðið velt sér upp úr
hjónabandserflðleikum barna henn-
ar. Reuter
Danir varaðir við einangrun
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, varaði landa
sína við einangmn ef þeir höfnuðu
Maastricht-samningnum um póli-
tíska einingu Evrópu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á morgun. Nýjustu
skoðanakannanir benda til þess aö
stuðningsmönnum samningsins fari
fjölgandi.
Andstæðingar Maastricht sögðu í
stundum stormasömum sjónvarps-
umræðum í gærkvöldi að ef menn
greiddu atkvæði gegn samningnum
yrði hann jarðaður og nauðsynlegt
yrði að taka upp viðræður um sveigj-
anlegri samning.
Nyrup Rasmussen sagði að danska
efnahagslíf mundi bíða skaða af ef
adstæðingar Maastricht færu með
sigur af hólmi eins og í atkvæða-
greiðslunniíjúníífyrra. Reuter
Hann var mjög greindur
en f ullkomlega brjálaður
- segir franski innanríkisráöherrann um gíslatökumanninn
Eric Schmitt, maðurinn sem tók
börnin í leikskól'anum í úthverfi Par-
ísar í gíshngu fyrir helgi, var at-
vinnulaus, fráskilinn og einrænn og
að sögn sérfræðinga bar hann öll
merki hættulegs manns meö of-
sóknaræði.
Lögreglan skaut Scmitt til bana
með þremur kúlum í höfuðið á laug-
ardagsmorgun en þá hafði hann
haldið sex börnum og fóstru þeirra,
Laurence Dreyfus, í gíslingu í 46
klukkustundir.
Scmitt hafði fest sextán dínamít-
túpur við líkama sinn og kallaði sjálf-
an sig „mennsku sprengjuna". Þá
haíði hann komið sprengjum fyrir
inni í skólastofunni.
„Hann var mjög greindur en full-
komlega bijálaður,“ sagði Charles
Fóstran Laurence Dreyfus er þjóð-
hetja í Frakklandi. Símamynd Reuter
Pasqua, innanríkisráðherra Frakk-
lands, sem hafði yfirumsjón með að-
gerðum lögreglunnar.
Yfirvöld sögðu að svo virtist sem
hinn 42 ára gamli Schmitt hefði verið
einn aö verki. Ekki er vitað hvað
manninum gekk til.
Franska útvarpið skýrði frá því að
Scmitt hefði ekki gerst brotlegur við
lög nema hvað hann hefði verið sekt-
aður fyrir of hraðan akstur og fyrir
ölvunarakstur. Tölvufyrirtæki sem
hann rak fór á hausinn 1991 og sat
hann uppi með miklar skuldir. Þá
missti hann aðra vinnu á síðasta ári.
Dreyfus verður sæmd æðsta heið-
ursmerki Frakklands fyrir fram-
göngu sína á meöan á gíslatökunni
stóð.
Reuter