Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1993, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 17. MAÍ1993
Memiing
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Tónleikar voru í Gerðubergi á laugardag. Þar söng Rannveig Bragadótt-
ir Postl, messósópran, einsöng við píanóundirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. A efnisskránni voru verk eftir Robert Schumann, Edward Grieg,
Francis Poulenc og Richard Strauss.
Þetta voru fimmtu og síðustu tónleikar starfsársins og í tilefni þess
hélt Jónas Ingimundarson tölu í lok tónleikanna. Þar kom fram að á
fimmta hundrað sönglög hefðu verið flutt á tónleikum Gerðubergs frá
upphafi eftir 95 tónskáld þar af 30 íslensk. Þessir tónleikar hafa notið
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
mikilla vinsælda og oft verið meöal skærustu perlanna í tónlistarlífi borg-
arinnar.
Tónleikamir hófust á verki Schumanns „Gedichte der Königin Maria
Stuart". Ljóðið er átakanlegt og eftir hina frægu drottningu Skota. Tónlist-
in er vel gerð án þess þó að neitt sérstakt grípi þar í eyrun. Tónlist Gri-
egs við ljóðið Haugtussa er mjög í sama anda þótt meir gæti þar þjóðlaga-
einkenna. Tónlist Poulencs hefur á sér persónlulegri ht hvað tónamálið
varðar að minnsta kosti. „Le Travail du Peintre" er samið í stíl sem
minnir mjög á svonefnt Recitativo accompagnato. Laglínan er heldur fá-
tækleg og eltir bragarháttinn svo til alveg. Hins vegar er meira lagt í
undirspilið sem oft er býsna litríkt. Meira jafnvægi milh þessara höfuð-
þátta var að finna í fjórum ljóðum Strauss. „Ruhe meine seele“ er lag
með mjög skýrri og áhrifaríkri hugmynd.
Söngur Rannveigar var mjög góður. Var ljóst að þar er á ferðinni þjálf-
uð fullþroska söngkona sem hefur öðlast gott vald á list sinni. Röddin
er góð og jöfn og túlkunin öguð og rík. Litur raddarinnar og hstræn tök
bentu til þess að söngkonan hefði meir sinnt óperusöng en ljóða, en ekki
var það til neinna lýta við þetta tækifæri. Jónas Ingimundarson skilaði
sínu hlutverki vel að vanda. í lokin var Reynir Axelsson kallaður fram
og hyhtur með lófataki. Hann hefur þýtt á íslensku megnið af textum
þeim sem fluttir hafa verið á tónleikum Gerðubergs, stundum úr hinum
fjarlægustu tungumálum, og jafnan tekist vel upp.
Bíldshöfða 18 - sími 687820
Q3i
C. ÁMUNDASON HF.
• Þyngd 530 g.
• Mál 62x184x39 mm.
• Rafhlaða, 800 mAh endist í
16 klst. í biðstöðu og 40 mín.
í notkun en 1200 mAh í 24
klst. í bið og 60 mín. i notkun.
• Hröð endurhleðsla rafhlöðu
-1 klst. (90%).
• Hleðslutæki, 12 eða 220 V.
• Skammvalsminni fyrir 99 nr.
• Hagkvæmt fyrirkomulag á
tökkum og skýrar valmyndir.
• Númeraboði tekur einnig
skilaboð meðan á simtali
stendur.
• Fjölmargir stillimöguleikar.
• Úrval aukahluta til að aðlaga
símann kröfum hvers og
eins.
■BENEWN^
NETTASTI OG LÉTTASTI
ÞRÁÐLAUSIHANDFARSÍMI,
NMT450, SEM VÖL ER Á
Sviðsljós
Afmælisbarnið Bjarki Eliasson er hér annar frá hægri.
Honum á vinstri hönd er William Möller en á hægri
hönd þau Áslaug Sigurðardóttir, Þorbjörg Jónsdóttir og
Arngrimur ísberg. DV-myndir GS
Ómar Smári Ármannsson, Jón Bjartmarz og Hákon
Sigurjónsson heiðruðu Bjarka Eliasson yfirlögregluþjón
á sjötugsafmæli hans.
Bjarki Elíasson sjötugur
Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn skyldu og vinum í félagsheimih lög- á þessum merkisdegi og gerði sér
ogskólastjóriLögregluskólaríkisins, reglumanna á laugardag. glaöan dag bæði í mat og drykk.
hélt upp á sjötugsafmæh sitt með fjöl- Mikið fjölmenni sótti Bjarka heim
Norsk list í Norræna húsinu
Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Einarsson, kennari og rithöfundur, og Ásdís Ármannsdóttir virða fyrir sér
málverk eftir norsku listakonuna Mai Bente Bonnevie sem eru til sýnis i Norræna húsinu. DV-mynd GS
Austurríski listamaðurinn Arnold Postl sýnir í Gerðu-
bergi. DV-myndir GS
Sóley Olgeirsdóttir, Gunnar Sigurjónsson og Ingólfur
Rögnvaldsson skoðuðu endurgerðir fornra helgimynda
eftir Arnold Postl í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Fomar helgimyndir í Gerðubergi
Amold Postl heitir hðlega fertugur
austurrískur myndhstarmaður sem
um þessar mundir sýnir verk sín í
menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Sýning Amolds var opnuð síðast-
hðinn laugardag og á henni eru eftir-
gerðir fomra helgimynda. Þær era
þannig gerðar að frummyndin er
endurgerð í silkiþrykk en síðan er
hið eiginlega málverk málað ofan í
það. Og útkoman verður alveg nýtt
verk.
Sýningin í Gerðubergi er sjöunda
einkasýning hstamannsins.
ffljHBHD* \J\UfDUL\
SÉRSTAKLEGA VÖNDUÐ OG ÓDÝR
VERKFÆRI FRA spear & jackson
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGJ 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211