Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1993, Qupperneq 32
40
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Sviðsljós
. . . A kvikmyndahótíðinni i
Cannes voru Sylvester Stallone
og Janine Tumer, sflörnurnar úr
kvikmyndinni Clifthanger, meðal
gesta. Tumer sagði aö þaö heföi
ekki verið neitt mál að leika t
áhættuatriðunum -en iiins vegar
hefði kuidinn verið alveg að
drepa hana.
eínhver kynþokkafyllsta leíkkon-
an i Hoilywood, er búin að ná
séri kærasta. Það erfinnski leik-
stjórinn Renny Harlin sem er
sennilega frægastur fyrir leik-
stjórn sína á myndinni Cliffhan-
ger.
ktt fyrir að aðsókn hafi
verið allgóð á nýjustu kvikmynd
Arnolds Shwarzeneggers, Last
Action Hero, er ekki víst að kvik-
myndin komi til með að skila
gróða. Það kostaði hvorki meira
né minna en 6,2 milljarða ís-
lenskra króna að tramlelða
myndina.
Claudia Schiffer, ein eftir-
sóttasta fyrirsæta veraldar, hefur
tengi verið orðuð við Albert prins
frá Mónakó. Schíffer var orðin
leið á þessum sögusögnum og
gaf út þá yfirlýsingu fyrir
skömmu að hún stæði ekki i
neinu sambandi við hann.
.Franska leikkonan Isabelle
Adjani hefur nýlokið vlð leik f
myndinni Toxic Affair. Sú mynd
var á meðal þefrra sem sýnd var
á kvikmyndahátíðinni i Cannes
og fékk svo lélega dóma frá
gagnrýnendum að Adjani neitaði
að mæta á blaðamannafund sem
átti að halda um myndina.
Mike Myers, aðalleikarinn í Wayne'sWorld:
Á framtíðina
fyrir sér í
kvikmyndum
Ein af þeim kvikmyndum sem komið
hafa hvað mest á óvart á undanfórn-
um árum er „Wayne’s World". Þar
voru furðufuglamir Mike Myers og
Dana Carvey í aðalhlutverkum og
léku algjöra lúða (Wayne og Garth)
sem voru sífellt að reyna að vera ein-
hverjir töffarar.
Hinn sérkennilegi húmor, sem
matreiddur var í þeirri mynd, sló
einhvem veginn algjörlega í gegn hjá
ungu fólki og kom af stað ákveðinni
bylgju af bröndurum og hegðunar-
mynstri hjá þeim sem vildu líkjast
þeim félögum. Hugmyndasmiðimir á
bak við myndina, sem jafnframt vom
í aðalhlutverkunum, eru Myers og
Carvey. Báðir eru nú að hasla sér
völl sem kvikmyndaleikarar og tahð
er að Myers sérstaklega eigi framtíð
fyrir sér í þessu fagi.
Komufyrstfram
í sjónvarpsþætti
Ævintýrið byrjaði árið 1989 í Tor-
onto. Þá komu Myers ásamt Carvey
fram í sjónvarpsþættinum Saturday
Night Live. Þar matreiddu þeir þenn-
an sérkennilega húmor sinn og hann
gekk svo vel í áhorfendur að þeir
urðu fastagestir í þáttunum. í frpm-
haldinu var gerð kvikmyndin Wayn-
e’s World.
Hún kostaði mjög Utla peninga á
mælikvarða Hollywoodmynda, að-
eins rúmar 80 milljónir íslenskra
króna. Hún var auk þess sett á mark-
að í febrúarmánuði, sem er rólegasti
kvikmyndamánuðurinn. Gróðinn af
myndinni var hins vegar gífurlegur,
rúmir 8 milljarðar króna.
Myers fékk fyrir leik sinn um 20
miUjónir króna sem þykir ekki mik-
ið, sérstaklega þegar tekið er tillit til
þess hve miklum gróða myndin skil-
aði. Myers gengur allt í haginn þessa
dagana. Hann heldur áfram að koma
fram í þáttunum Saturday Night
Live, en Carvey hefur reyndar tekið
sér frá frá þeim þáttum í bili.
Myers hefur auk þess haft úr mörg-
um kvikmyndatilboðum að moða.
Hann leikur aðalhlutverkið í gaman-
spennumyndinni I Married an Axe
Murderer. Eiginkonan er leikin af
Nancy Travis, sem lék meðal annars
í L.A. Story. Þar leikur Myers mann
sem kvænist konu sem hefur myrt
aUa eiginmenn sína fram að þeirra
hjónabandi. Þar á eftir kom leikur í
myndinni Wayne’s World 2 (hvaða
annað?) og hann þiggur 10 sinnum
hærri laun fyrir leik sinn í þeirri
mynd, eða 200 miUjónir.
Myers getur nú valið úr kvikmyndatilboðum.
Myers, sem varö þrítugur á árinu,
gekk nýverið í hjónaband. í viðtah,
sem tekið var við hann nýlega, var
hann beðinn um aö lýsa sjálfum sér.
Hann segist á margan hátt ekki v.era
ólíkur rugludallinum Wayne sem
hann túlkar í samnefndum kvik-
myndum. Hann hafi verið hálfgerður
lúði á sínum yngri árum og gengið í
gegnum mörg þroskastig. Hann hafl
verið pönkari og einnig þungarokks-
aðdáandi en í dag sé hann orðinn
heldur rólegri og yfirvegaðri. Samt
sem áður lofar Myers því að þeir fé-
lagamir, Wayne og Garth, séu jafn-
vel enn ruglaðri í mynd númer 2.
Mike Myers sem Wayne og Dana
Carvey í hlutverki Garths í hinni vin-
sælu mynd, Wayne’s World.
Nancy Travis leikur á móti Myers
Axe Murderer."
gamanspennumyndinni „I Married an
Félagarnir Mel Glbson og
Danny Glover, sem leikið hala
saman í kvikmyndunum Leathal
Weapon i ein þrjú skipti, nota
hvert tækitæri til að hittast þvi
þeir eru hinir mestu mátar. Þeir
höfðu tækifæri til þess á kvik-
myndahátíðlnni í Cannes og eins
og sjá má, voru þeir mjög
ánægðir í félagsskap hvor ann-
ars.
. Eiginkona kyntrötlsins
Patricks Swayze, söng- og leik-
konan Lisa Niemi, hefur hingað
til fallið i skuggann af eiginmanni
sínum. Hún fékk nýlega hlutverk
á sviði á Broadway í verki sem
heltir The Will Rogers Follie’s.
Hún þykir hafa staðið sig með
eindæmum vel og aðdáenda-
bréfin streyma inn. Því hefur
verið haldið fram að Patrick sé
afbrýðisamur vegna velgengni
konu sinnar.
Frá því að Jill Ireland, eig-
inkona Charles Bronson’s, lést
úr krabbameini, hefur gamla
brýnið leitað sér huggunar hjá
leikkonunni Kim Weeks. Hún er
ekki nema 28 ára gömul, en hann
varð sjötugur á árinu sem er að
líða. Aidursmunurinn er 42 ár,
en ástin á sér engin landamæri.
. . . Fyrirsætan Cindy Crawford
er ekki mikið fyrir að láta bera á
sér í daglega lífinu. Þegar hún
bregður sér út að kaupa i matinn
reynir hún að klæða sig á sem
venjulegastan máta til að sleppa
undan Ijósmyndurum. Það tekst
þó ekki alltaf, elns og eftirfarandi
mynd sýnir, en klæðnaðurinn er
fram úr hófi venjuiegur.
. . . Það er ábatasamt að taka
að sér að vera barnfóstra fyrir
stjörnurnar. Barnfóstran Kristi
Groteke, sem passaði börn Miu
Farrow og Woodys Allen er nú
að gefa út bók um viðburðarika
vist sina hjá þeim. Hún þiggur
að launum hátt í 10 milljónir is-
lenskra króna frá útgefandanum.