Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Einar K. Guðfinnsson alþingismaður:
Þorskkvótinn verði auk>
inn í 205 þúsund lestir
- engar forsendur fyrir því að auka kvótann, segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
„Eg tel þaö orðið tímabært að
auka þorskkvótann á þessu fisk-
veiðiári. Og til þess að fara samt
sem áður varlega mætti hugsa sér
að auka hann í það sama og hann
var á síðasta kvótaári eða í 205
þúsund lestir. Ég fagna því að við-
skiptaráðherra og fleiri þingmenn
Alþýðuflokksins skuli nú taka und-
ir þetta sjónarmið mitt sem ég setti
fram fyrir nokkrum vikum,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson alþingismað-
ur í samtali við DV.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra var inntur álits á hug-
myndum þeirra alþingismanna og
ráðherra sem nú leggja tii að auka
þorskkvótann. Tillögur þeirra eru
frá 20 þúsund lestum og upp í 100
þúsund lestir.
„Það er ekkert nýtt að það geti
verið gott fiskirí á vetarvertíö. Það
þarf ekki að vera sönnun þess aö
fiskistofnarnir hafi stækkað en guö
láti gott á vita. Enn sem komiö er
sé ég engar forsendur fyrir því að
auka kvótann. Ég minni líka á að
ákvörðunin, sem tekin var um
kvóta þessa aflaárs, fól í sér að far-
ið var 10 prósent fram úr ráðlegg-
ingum sérfræðinga Hafrannsókn-
arstofnunar. Þar ofan í kaupið er
svo slaki í kerfinu hvað varðar
smábátaveiðarnar. Menn geta ekki
lokað augunum fyrir þessu tvennu.
Það má því á vissan hátt segja að
það sé búið að gera það sem menn
eru að biðja um nú,“ sagði Þor-
steinn Pálsson.
Einar K. Guðfinnsson segir að
þaö fari ekkert á milli mála eftir
viðræður við sjómenn vítt og breitt
um landið að það sé vaxandi fisk-
gengd. Ástandið í sjónum sé líka
allt annað og betra en það var fyrir
einu eða tveimur árum.
„Ef til vill er þetta því að þakka
að við höfum tekið svo miklar dýf-
ur í aflanum og dregið svo mikið
úr aflaheimildum og að hagstæðar
aðstæður í sjónum, svo sem eins
og meiri áta, gera það aö verkum
að þorskstofninn hjami við hraðar
en menn geröu ráð fyrir. Ef þaö er
rétt þá var þessi tímabundna fóm
þess virði. Nú tel ég að við séum
að uppskera af þessu og mál til
komið aö auka kvótann, sagði Ein-
ar K. Guöfinnsson. -S.dór
Askrift aöeins að Stöð 2:
Engir mynd-
lyklartilog
langir biðlistar
Undanfamar vikur hefur Stöð 2
ekki getað tekið við áskrifendum sem
ætla bara að fá sér Stöð 2 þar sem
myndlyklar úr gamla kerfinu hafa
ekki verið til. Páil Magnússon sjón-
varpsstjóri sagði í samtali við DV að
hér væri um tímabundið ástand að
ræða sem yrði úr sögunni þegar nú-
verandi útsendingarkerfi yrði sam-
einað Fjölvarpskerfinu í næsta mán-
uði. Langir biðlistar eftir áskrift að
Stöð 2 hafa myndast. Samkvæmt
upplýsingum DV tók það eina fjöl-
skyldu á landsbyggðimii heilan mán-
uð að gerast áskrifandi. „Ég viður-
kenni að þetta er bagalegt ástand en
við gerðum okkur grein fyrir í upp-
hafi aö brúa yrði bilið á milli gamla
og nýja kerfisins," sagöi Páll og taldi
Stöð 2 ekki hafa misst áskrifendur
út á þetta.
Stjóm íslehska útvarpsfélagsins
hf„ sem rekur Stöð 2 og Bylgjuna,
hefur ákveðið spamaðaraðgerðir
innan fyrirtækjanna. Liður í þeim
var að segja upp starfsfólki sem al-
þekkt er orðið. I gær gengu til baka
uppsagnir Haligríms Thorsteinsson-
ar og Eiríks Hjálmarssonar. Sam-
kvæmt heimildum DV gæti uppsögn
Valtýs Bjöms Valtýssonar verið aft-
urkölluð en það skýrist næstu daga.
Þá hefur PáU Magnússon ákveðið
aö selja 4 milljóna króna Toyota
jeppa sem hann hefur haft til umráða
síðustu mánuði. Páll sagðist ekki
hafa haft tíma til að leita að nýjum
bíl. „Ætli ég geri það ekki í næstu
viku og bíllinn þarf ekkert frekar að
vera jeppi.“
PáU sagöi aö mannabreytingar á
toppi fyrirtækisins væm ekki á döf-
inni og hvorki hann né Magnús
Kristjánsson markaðsstjóri væm að
hætta. -bjb
Sjómenn:
Miðlunartil-
laga samþykkt
Sjómannafélag Reykjavíkur,
Vinnuveitendasamband Islands og
Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna hafa samþykkt miölunartiUögu
ríkissáttasemjara sem lögð var fram
í deUu þessara aöUa 21. janúar.
ÚrsUtin úr atkvæðagreiöslunni
vom þau að þjá SR sögðu 46 já en
33 nei. Eitt atkvæði var ógUt. Alls
greiddu 80 atkvæði en 130 vom á
kjörskrá. ífjá VSÍ var 21 á Kjörskrá,
14 greiddu atkvæði og samþykktu
þeir aUir tiUöguna. Hjá Vinnumála-
sambandi samvinnufélaganna vom 7
á kjörskrá. Af þeim 6 sem greiddu
atkvæöi sögðu 5 já en einn nei. -IBS
Stuttar fréttir
Amber Atlantic ber við Brimsnesfjall á leið inn Seyðisfjörð.
Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfirði;
Margir Japanar em nú á Austfjörð-
um tíl þess að fylgjast með loðnu-
frystingu og er þegar búið að frysta
þaö mikið að útskipun er hafin.
Flutningaskipið Amber Atlantic
kom tíl Seyðisfjarðar 10. febrúar tU
þess aö taka frysta loðnu og sUd á
Japansmarkað. Lestunarstjóri á veg-
um SH, Guðni Eyjólfsson, tók á móti
skipinu og mun fylgja því á Aust-
DV-mynd Pétur
fjarðahafnir. Skipiö er með þeim
stærri sem sjást hér um slóöir og
kemur tíl með að taka alla þá loðnu
sem búið er að frysta á Austfjörðum.
Hvað kemur í staðinn fyrir kvótaþingið?
Það verður staðið við
loforðið til sjómanna
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Nú þegar ljóst er að hugmyndin
að kvótaþingi, sem þríhöfðanefnd
ríkisstjórnarinnar lagði fram, á ekki
hljómgrunn á Aiþingi vaknar sú
spuming með hvaða hætti ríkis-
stjórnin ætlar að standa við loforðið
sem fylgdi setningu bráðabirgðalag-
anna á sjómannaverkfallið, um að
koma í veg fyrir að sjómenn taki
þátt í kvótabraski. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra var spurður
að þessu.
„Það verður að sjálfsögðu staðið
við það loforð. Tillagan, sem ráðu-
neytísstjóranefndin kom með, kvóta-
þingiö, hefur verið send sjávarút-
vegsmálanefnd Alþingis. Það er að
vísu rétt að hugmyndin virðist ekki
eiga hijómgrunn á Alþingi. En í
næstu viku verður fyrsta umræða
um fiskveiðistjómunarfrumvarpið
og þróunarsjóðsfrumvarpið. Þau
fara að sjálfsögðu bæði til sjávarút-
vegsnefpdar og það er gert ráð fyrir
því að í tengslum við umfjöllun sjáv-
arútvegsnefndarinnar veröi tekiö á
þessu rnáli," sagöi Þorsteinn.
Hann sagði að sjávarútvegsnefndin
mundi væntanlega taka afstöðu til
þessarar tillögu ráðuneytisstjóranna
um kvótaþing.
„Það eru ýmsir kostir í því efni.
Það er hægt að útfæra þá hugmynd
í eitthvað breyttu formi með tilliti til
þeirrar gagnrýni sem komið hefur
fram á hana. Það er einnig hægt að
fara einhverja svipaða leið og samn-
ingsaðilar voru að ræða við samn-
ingaborðið og ganga þá heldur lengra
til móts við sjónarmið sjómanna en
atvinnurekendur höfðu fafiist á í
þeim umræðum. Þetta eru nú
kannski þeir helstu kostir sem koma
til álita en um þetta verður nánar
fjallað í sjávarútvegsnefndinni,“
sagði Þorsteinn Pálsson.
-S.dór
Kaninur og hænur munu sýna
sig í Geysishúsinu um helgina.
Tilefiiið er kynning á Húsdýra-
garöinum sem íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkurborgar
stendur fyrir.
Minnibotnfiskafli
Heildaraflinn í janúar varð
34.378 tonn, þar af botnfiskur
17.895 tonn. Verðmæti aflans er
áætlað tæplega 1,5 milljarðar. í
janúar i fyrra var botnfiskaflinn
tæplega 31 þúsund tonn og verð-
mætið um 3 miUjaröar.
Samkeppnisráð hefur synjað
Lögmannafélagi íslands um und-
anþágu til að gefa út leiðbeinandi
gjaidskrá fyrir lögmenn.
Fyrirtækið Spor hf. gerði sig
sekt ura ólöglega samkeppnis-
hindrun með skyndilegri verð-
hækkun á hljómdiskum til versl-
unarinnar HMM Topp í Kringl-
unni. Þá braut Skífan lög á sömu
verslun með því að neita henni
um sölu hljómdiska. Samkeppn-
isráö komst að þessari niöur-
stööu í gær.
BúvöruráVöllinn
Vamariiðið á Keflavíkurflug-
velli hefur samþykkt að kaupa
íslenskar landbúnaöarvörur fyr-
ir 15,4 milljónir króna frá l. apríl
1994 til 31. mars 1995. Samningur
þessa efhis hefur verið gerður við
utanríkisráðuneytíð og tekur til
nautakjöts, -------------
um
Dómsmálaráðherra ráögerir aö
efha til kynningar á fyrirhuguðu
hæstaréttarhúsi og kanna viö-
horf fólks til staðsetningar þess.
lokað Fjölvarp
Fjölvarpi Stöðvar tvö veröur
lokað öðrum en áskrifendum frá
og með næsta mánudegi. Búið er
aöseljaum700ioftnet. -kaa
Sveinn Bjömsson 1 París:
Innf lytjendur verða að reyna innf lutning
„Eg hef ekki oröiö var við aö það
hafi reynt á innflutning. Það er mik-
il áhætta aö ætla aö reyna aö flytja
gám frá Antwerpen og fara með hann
í gegnum kerfið ef allt stöövast. Það
er gríðarlegur kostnaður ef illa fer.
Menn vilja fá tryggingu fyrir því að
ekki komi til slíkrar stöðvimar,"
sagöi Sveinn Bjömsson, starfandi
sendiherra í Paris, um deilumar um
fiskinnflutning til Frakklands í sam-
tali viö DV í gær.
Frönsk sfjómvöld afléttu í fyrradag
umdeildu innflutningsbanni á fisk
frá svokölluðu þriðja landi sem ekki
uppfyllir heilbrigðiskröfur EB. Þrátt
fyrir þetta bar enn á tregðu í gær
meðal franskra tollyfirvalda við að
afgreiða fisk frá íslandi og öðmm
löndum til landsins.
„Hins vegar segja þau yfirvöld sem
ég hef haft samband við að máhð sé
leyst. Þeir segja að búið' sé að gefa
út auglýsingar sem eigi að duga en
þau geta ekki svaraö fyrir tollayfir-
völd eða einstaka tollstarfsmenn,"
sagði Sveinn.
- -PP