Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
55
Fréttir
Kjötiðnaðarfyrirtækið Kjamafæði á Akureyri:
Byrjaði í bflskúr en er
nú með 70 manns í vinnu
þakklátir fyrir hvemig okkur hefur verið tekið, segir Eiður Gunnlaugsson, annar eigendanna
Bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir með væn hangikjötslæri á milli sin t fyrirtæki sinu, Kjarnafæði á Akur-
eyri. __ DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
Fyrir um áratug hófu bræðurnir
Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir á
Akureyri pitsugerð og framleiðslu á
hrásalati í bílskúr þar í bænum. Eft-
ir eitt ár voru þeir komnir með 6-7
manns í vinnu og búnir að fá aðstöðu
í Iðngörðum Akureyrar. Fljótlega
sprengdu þeir það húsnæði utan af
sér og keyptu stórt og gott húsnæði
við Fjölnisgötu þar sem fyrirtækið
er enn þann dag í dag. Fyrir fjórum
árum voru starfsmenn orðnir 45 tals-
ins í 35 stöðugildum. í dag eru þeir
um 70 í tæplega 60 stöðum og þeim
mun fjölga eitthvað á næstunni.
Fyrirtækið er Kjarnafæði sf. og
framleiðslan sem í upphafl var bund-
in við pitsur og hrásalat varð fljót-
lega að almennri kjötvinnslu. Ekkert
lát er á uppbggingu fyrirtækisins og
þessa dagana er unnið að frágangi
húsnæðis sem Kjarnafæði hefur
keypt á Svcdbarðseyri. Þar er um að
ræða sláturhús og frystigeymslu
Kaupfélags Svalbarðseyrar sem varð
gjaldþrota og þangað fer hluti af kjöt-
vinnslu Kjarnafæðis. Þegar Eiður
var spurður hvort starfsfólki myndi
enn fjölga sagðist hann reikna með
einhverri fjölgun og a.m.k. yrði ekki
um fækkun að ræða.
Vinna og aftur vinna
Kjarnafæði er gott dæmi tii að setja
fram sem andstæðu gjaldþrota og
erfiðleika í atvinnurekstri á Akur-
eyri og sýnir að hægt er að gera góða
hluti. „Ef ég á að nefna eitthvað öðru
fremur sem hefur hjálpað okkur þá
er það fyrst og fremst að þetta er
ekkert nema vinna og aftur vinna,
við erum alltaf á staðnum og nennum
að fylgjast með á öllum sviðum. Þá
þurfa menn að aðlaga sig markaðn-
um hverju sinni og tileinka sér breyt-
ingar á neyslu og neysluvenjum. Það
má svo ekki gleyma því að við höfum
haft mjög gott starfsfólk, virklega
gott. Og síðast en ekki síst erum við
bræðurnir mjög samhentir í þessari
uppbyggingu sem er auðvitað nauð-
synlegt."
Þrátt fyrir að Kjarnafæði hafi ekki
farið varhluta af erfiðleikum vegna
gjaldþrota viðskiptavina sinna hefur
fyrirtækið sífellt vaxið á markaðnum
og flytur t.d. orðið umtalsvert magn
af vörum sínum til höfuðborgar-
svæðisins. „Við erum mjög þakklátir
fyrir hvað okkur hefur verið vel tek-
ið, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu
heldur um allt land. Vörur frá okkur
eru t.d. seldar í mörgum stórverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu, s.s. Bón-
usi, Hagkaupi og Fjarðarkaupum, en
annars eru vörur frá okkur úti um
allt land,“ segir Eiður.
Hræddur við GATT
Kjarnafæði hefur ávallt verið rekið
með „örlitlum hagnaði" eins og Eið-
ur orðaði það en hann telur að blikur
séu á lofti nú. „Ég er hræddur við
GATT og þann innflutning sem mun
verða. Við sjáum fyrir okkur iðn-
greinar sem hafa orðið skelfilega úti
í samkeppni við fyrirtæki annarra
þjóða þar sem rekstrarumhverfið er
betra og það er nóg að horfa á skipa-
smíðaiðnaðinn í því sambandi. Því
miður held ég að kjötiðnaðurinn og
matvælaframleiðsla okkar eigi erfiða
tíma fram undan þótt við séum í
fremstu röð matvælaframleiðenda í
heiminum," segir Eiður.
1
^5
' • »
Flokkun á skógarplöntum hjá Barra í byrjun janúar.
ísaflörður:
Listi Sjálfstæðisf lokksins
Sigurjón J. SiguröBSon, DV, ísafiröi:
Á fundi í fulltrúaráöi Sjálfstæðis-
flokksins á ísafirði á þriðjudags-
kvöld var samþykkt tillaga kjör-
nefitdar um að eftirtaldir 18 ein-
staklingár skuli skipa framboðs-
lista flokksins í komandi sveitar-
stjórnarkosningar.
1. Þorsteinn Jóhannesson yfir-
læknir FSÍ. 2. Halldór Jónsson út-
gerðarstjóri. 3. Kolbrún Halldórs- lögraaður. 11. Bjarndís Friðriks-
dóttir fiskvinnslukona. 4. Pétur dóttir málarameistari. 12. Helga
H.R. Sígurðsson mjólkurbússtjóri. Sigurgeirsdóttir bjúkrunarfræð-
5. Ragnheiður Hákonardóttir hús- ingur. 13. Sævar Gestsson sjómað-
móðir. 6. Kristján Kristjánsson ur. 14. Árni Friöbjamarson pípu-
umdæmistæknifræöingur. 7. lagningameistari. 15. Kristín Hálf-
Björgvin A. Björgvinsson af- dánsdóttir skrifstofumaður. 16.
greiðslustjóri. 8. Signý Rósants- Skarphéðinn Gíslason skipstjóri.
dóttir, bankastarfsraaður. 9. Marz- 17. Kristján Jóakimsson sjávarút-
ellíus Sveinbjörnsson smiöur. 10. vegsfræðingur. 18. Einar Garðar
Björn Jóhannesson héraðsdóms- Hjaltason framkvæmdastjóri.
Barri á Egilsstöðum:
Framleitt fyrir
Landgræðsluna
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
„Við gerum okkur vonir um að
geta nýtt gróðurhúsið og tækjabúnað
okkar mun betur því þessari ræktun
getum við bætt við án þess að auka
tækjakostinn. Við þurfum þó ekki
að bæta við starfsfólki en hins vegar
mun það fólk sem hér hefur unniö
timabundið vor og sumar fá lengri
og samfelldari vinnu,“ Jón Kr. Arn-
arson, framkvæmdastjóri Barra hf.
Skógrækt ríkisins var nýlega með
útboð á 800 þúsund skógarplöntum á
vegum landgræðsluskógaverkefnis
og var Barri með lægsta tilboðið,
rúmlega 11,5 millj. króna. Um helm-
ingur þessara plantna er birki en
hitt er sitkaelri, fura, greni og lerki.
Inni í tilboðinu var flutningur á
plöntunum á hina ýmsu afgreiðslu-
staði vítt um land. Jón sagöi að þeir
hefðu náð mjög hagstæðum samn-
ingum við vöruflutningafyrirtækið
Svavar og Kolbrúnu á Egilsstöðum
og hefði það átt sinn þátt í að tilboð-
ið var svo hagstætt.
Jón Kr. Arnarson framkvæmdastjóri
Barra. DV-myndir Sigrún
Hlutafélagið Barri var stofnað 1990
til að framleiða skógarplöntur fyrir
Héraðsskóga og er hægt að fá rúm-
lega milljón plöntur úr einni sán-
ingu. Gróðurhús Barra er 2000 m2
að stærð. Þrír menn starfa þar allt
árið en 10-15 manns yfir annatím-
ann.
Hasskílóið:
Málið upplýst
Fíkniefnalögreglan telur að mál borg í fyrrakvöld.
41 árs Reykvíkings, sem eitt kfló Maðurinn viðurkenndi eign á
af hassi fannst á, sé upplýst. efninu við yfirheyrslur. Við hús-
Eins og DV greindi frá í gær fann leit, sem gerð var í gærkvöld, kom
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli ekkertframsembendirtilaðmálið
fíkniefnin innanklæða á mannin- sé umfangsmeira. -pp
um þegar hann kom frá Luxem-