Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
11
Sviðsljós
Oprah Winfrey ásamt kærastan-
um Steadman.
Gott afmæli
hjá Oprah
Winfrey
Sjónvarpskonan bandaríska,
Oprah Winfrey, varö fertug fyrir
nokkrum dögum og hélt upp á
afmæli sitt meö stæl enda ein
auðugasta kona heimsins. Oprah
hefur vakið mikla athygh fyrir
rabbþætti sína en þar hefur hún
fengiö frægt fólk til að tala hrein-
skilnislega um ýmsa persónulega
hluti sem ekki hafa verið á allra
vitorði. Meðal viðmælenda henn-
ar má nefna Michael Jackson en
Oprah er eina sjónvarpsmann-
eskjan sem hefur fengið leyfi til
að koma heim til hans.
Oprah á þó við vandamál að
stríða eins og flestir aðrir - það
er baráttan við aukakílóin. Hún
hefur verið akfeit, svo vægt sé til
orða tekið, en síðan tekið sig
verulega á eins og nú. Oprah
mætti nefnilega tággrönn í af-
mælisboðið sitt eins og sjá má á
myndinni þar sem hún er með
kærastanum, Steadman.
Oprah hélt samkvæmi með
tuttugu gestum í veitingahúsinu
La Orangerie í Beverly Hills.
Meðal gesta hennar voru Steven
Spielberg, Kate Capshaw, Maria
Shriver, Nastassja Kinski og Qu-
insy Jones sem rekur Kinski
rembingskoss á myndinni. Oprah
leigði þotu sem flutti hana frá
Chicago til Los Angeles og tók á
leigu þijár svítur í Bel Air hótel-
inu þar sem hún og nokkrir gesta
hennar gistu.
Nastassja Kinski og Quinsy Jo-
nes.
Súperfyrir-
saetan og nýi
kærastinn
Súperfyrirsætan Claudia Schiffer
tók sér smáfrí frá störfum fyrir
stuttu til að njóta lífsins í New York
með nýjasta vininum, millanum
David Copperfield. Claudia, sem er
23ja ára gömul, hefur áður verið
bendluð við söngvarann Peter Gabri-
el og Albert prins í Mónakó. Hins
vegar sýndist mönnum að Claudia
og David skemmtu sér hið besta er
þau komu í veitingastaðinn Planet
Hollywood og sambandið virkaði
meira en kunningsskapur.
Claudia og David nutu lifsins í
Stóra eplinu og heimsóttu meðal
annars Metropohtan listasafnið áður
en þaú fengu sér að borða og kíktu
síðan inn á Webster Hall nætur-
klúbbinn.
Súperfyrirsætan hefur nú verið á
toppnum sem módel í fimm ár og
frægð hennar virðist stöðugt ‘fara
vaxandi. Claudia hefur sagt að þegar
hún verði 25 ára ætli hún að hætta
sem fyrirsæta. Hana langar að eign-
ast barn - en ekki samt strax.
Tennisstjarnan Boris Becker er orðinn faðir. Eins og við skýrðum frá fyrir
stuttu átti hann von á frumburðinum ásamt eiginkonu sinni Barböru. Og nú
er fæddur lítill sonur sem hefur verið gefið nafnið Noah Gabriel. Barbara
og Boris gengu í það heilaga aðeins viku áður en sá litli leit dagsins Ijós
en þau hafa verið saman i tvö ár. Barbara er 27 ára en Boris 26. Myndirn-
ar voru teknar þegar sá litla var aðeins fjögurra daga gamall.
Það vakti athygli blaðaljósmyndara i New York í síðustu viku að sjá fyrrum
forsetafrú Bandaríkjanna, Jackie Kennedy Onassis, á gangi í Central Park
ásamt hinum myndarlega syni sinum, John, og vini til margra ára, Maurice
Tempelsman. Veðrið í New York hefur verið mjög slæmt undanfarið, eins
og víðar i Bandaríkjunum, og því voru þremenningarnir vel dúðaðir í snjón-
um. John Kennedy yngri hefði þó mátt klæða sig betur miðað við veður.
Mæðginin eru bæði búsett í New York og vegfarendur, sem fylgdust grannt
með ferðum þeirra, sáu á eftir þeim inn í hús hennar við Fimmta stræti.
HAGÆÐA SJQNVARPSTÆKI
Hitachi er gamalreynt gæöamerki
Þessi nýju tæki eru uppfull af
tækninýjungum
28 tommu BlackMask Permachrome
flatskjár með CTI skerpufilter
Víöómur 2x30W ásamt djúpbassa-
hátalara (SubWoofer)
íslenskt textavarp með topptexta
Aðgerðir birtast upp á skjá
3 scart-tengi og S-VHS tengi
Hljómburður og myndgæði eru helstu
aöalsmerki Hitachi
Þú verður að koma til að sjá og heyra
SÉRSTAKT TÍLBOÐ
119.000-
GERÐ CL-2864- RÉTT VERÐ KR. 144.000-
MUNALÁN, VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
HITACHI
15-30% afsláttur
af vönduðum þýskum
sófasettum.
Opið laugardag Nýborg c§3
10-16 Ármula 23. Sími 812470