Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Page 14
14
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM' (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Afnám þrísköttunar
Þingmenn eiga að sjá sóma sinn í því að samþykkja
hið bráðasta þingsályktunartillögu, sem fram er komin
um „afnám tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum“ eins og þar
segir. Fróðir menn hafa leitt líkur að því, að tvísköttun,
eða raunar þrísköttun, lífeyris hafi komið til vegna mis-
skilnings þingmanna, en ekki af illum vilja. Þarna er um
að ræða hrópleg rangindi.
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins standa að þingsá-
lyktunartillögunni, þau Guðmundur Hallvarðsson, Sól-
veig Pétursdóttir og Vilhjálmur Egilsson. í tillögunni
segir, að Alþingi álykti að fela fjármálaráðherra að leggja
fyrir Alþingi frumvarp til laga, sem leiði til afnáms tví-
sköttunar af lífeyrisgreiðslum og jafnræðis í skattalegri
meðferð vaxtahluta lífeyrisins.
Verzlunarráð kynnti fyrir skömmu skýrslu lífeyris-
sjóðanefndar ráðsins, þar sem fjallað var um vanda líf-
eyrissjóða á greinargóðan hátt. Fulltrúar lífeyrissjóðanna
hafa reynt að bera brigður á upplýsingar ráðsins, en
hafa í raun engu getað hnekkt. Málið er margþætt, en
skattlagningin er meðal hins mikilvægasta, sem breyta
þarf. Síðan á að afnema skylduaðild að lífeyrissjóðum.
Horíið var frá að undanþiggja iðgjöldin frá skattlagn-
ingu með skattabreytingu árið 1988, þegar staðgreiðslu
skatta var komið á. Nú eru iðgjöld því skattlögð en per-
sónuafsláttur hafður 2400 krónum hærri en ella, sam-
kvæmt skýrslunni. Þegar kemur að því, að fólk taki líf-
eyri, ber lífeyrisþega samkvæmt núgildandi kerfi að
greiða tekjuskatt af tekjum, sem eru umfram skattleysis-
mörk. Launþegar greiða því tekjuskatt af tekjum, sem
launþegi greiddi sem iðgjald í lífeyrissjóð, 4 prósent af
launum, og síðan er lífeyririnn skattlagður á nýjan leik,
þegar hann er greiddur út. Þama er þvi um augljósa
tvísköttun að ræða, skattlagningu, sem ekki á að tíðkast.
í raun má segja, að um þrísköttun sé að ræða, því að til
viðbótar tvísköttuninni eru þessar „tekjur“ skattlagðar
1 þriðja sinn, þar sem greiðslur frá Tryggingastofnun
skerðast með hækkandi tekjum.
„Erfitt er að trúa því, að það hafi verið ætlun löggjaf-
ans að leggja svo þungar byrðar á lífeyrissparnað lands-
manna, frekar er við því að búast, að menn hafi skort
yfirsýn yfir lífeyrismál almennt, enda hefur lífeyriskerfið
nánast gengið sjálfala frá upphafi, og engin heildstæð lög
eru til um þennan málaflokk,“ sagði í skýrslu Verzlunar-
ráðs. Sé það rétt ályktað, ættu þingmenn að geta lagfært
þetta hið fyrsta.
Skattaleg mismunun er ennfremur á ferðinni um
ávöxtun launþegahluta lífeyrisiðgjaldsins, þar sem tek-
inn er tekjuskattur af lífeyrisgreiðslum á sama tíma og
ávöxtun annars sparifjár er skattfrjáls. Afleiðing þrí-
sköttunarinnar er því, að spamaður afþessu tagi er gerð-
ur óhaghagkvæmur í samanburði við aðrar spamaðar-
leiðir.
Þannig þvingar löggjafinn í núverandi kerfi til óhag-
stæðs spamaðar, í stað þess að hvetja fólk til að leita
hagstæðustu spamaðarleiðanna, þegar safnað er fyrir
elhárin.
Þrísköttunarkerfið er jafn óalandi, þótt fmna megi
hliðstæður annars staðar á Norðurlöndum. Annars stað-
ar en þar er reglan yfirleitt, að eingöngu eftirlauna-
greiðslumar eru skattlagðar. I þetta sinn hefur Verzlun-
arráð vakið duglega athygh á óréttlætinu. Það er þó eng-
an veginn í fyrsta sinn, sem Alþingi fjallar um máhð, en
th þessa hefur „kerfinu“ tekizt að drepa úrbótum á dreif.
Haukur Helgason
NATO vaknar af
þriggja ára doða
Eftir þriggja ára aðgerðaleysi gagn-
vart árásarhernaði Serba á hendur
öörum ríkjum, sem myndast hafa
úr fyrrum Júgóslavíu, hafa ríki
Atlantshafsbandalagsins loks
mannað sig upp í að boða loftárásir
á stórskotaliðsvirki Serba, létti þeir
ekki af umsáti um Sarajevo, höfuð-
borg Bosníu-Hersegóvínu.
Tilefnið er sprengjuárás á mark-
aðstorg í Sarajevo um síðustu helgi
þar sem 68 óbreyttir borgarar tætt-
ust í sundur og um 200 særöust en
ástæðan fyrir breyttri afstöðu
NATO er að nú er ljóst að trúverð-
ugleiki bandalagsins er í veði. Á
undanfórnum misserum hefur
skothríð Serba drepið þúsundir og
sært tugþúsundir Sarajevobúa án
þess nokkuð væri að gert til að
stöðva blóðbaðið.
Sannleiksgildi orða bandaríska
öldungadeildarmannsins, sem
kvað NATO eiga um tvo kosti að
velja „Out of area or out of buis-
ness“ (Út fyrir svæðið eða úr
rekstri), sannast æ betur. Reynslan
frá upplausn Júgóslavíu rekur á
eftir ríkjum Mið- og Austur-Evrópu
að sækjast eftir aðild að NATO því
annað dugi ekki. Sömuleiðis er at-
hafnalömun Vesturlanda gagnvart
yfirgangi Serba vatn á myllu rúss-
neskra útþenslusinna.
Meginatriðið er það sama og ver-
ið hefur frá upphafi, framferði
Serba gengur í berhögg við regluna
um að landamærum ríkja veröi
ekki breytt með valdi heldur aðeins
gagnkvæmu samkomulagi. Komist
þeir upp með landvinninga með
vopnavaldi af Króatíu og Bosníu-
Hersegóvínu, aðildarríkjum Sam-
einuðu þjóðanna, getur ekkert ríki
í svipaðri aðstöðu verið óhult.
Það ófyrirgefanlega er að hefðu
ríkisstjórnir Vesturlanda tekið
rögg á sig fyrr hefði mátt afstýra
miklum blóðsúthellingum og ólýs-
anlegum hörmungum. James Gal-
Erlendtíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
vin, bandaríski hershöfðinginn
sem var yfirhershöfðingi NATO
þegar ófriðurinn í fyrrum Júgó-
slavíu hófst, sagði í vitnisburði fyr-
ir þingnefnd í Washington að sann-
færing sín væri að hefði árásum
Serba á borgimar Vukovar og
Dubrovnik í Króatíu verið mætt á
viðeigandi hátt af hálfu NATO
hefði því sem á eftir fór veriö af-
stýrt án verulegra mannfórna.
En þegar þetta gerðist var George
Bush enn við völd í Washington,
staðráðinn í að forðast afskipti af
Balkanmálum vegna forsetakosn-
inganna sem í hönd fóra. Og NATO
er þannig úr garði gert að banda-
rísku undirlagi að Evrópuríkin þar
geta ekki hafist handa um aðgerðir
án bandarískrar forustu.
Ákvörðunin sem nú hefur verið
tekin í Brussel náðist aðeins fram
vegna þess að stjórnir Bandaríkj-
anna og Frakklands náðu loks sam-
an um sameiginlega tillögugerð.
Má það reyndar kraftaverk heita
eftir það sem á undan er gengið því
ekki er nema hálfur mánuður síöan
utanríkisráðherrunum Warren
Christopher og Alain Juppé lenti
harkalega saman á fundi í París
út af stefnu NATO gagnvart ófriðn-
um í Bosníu.
Þá var hluti af tillögugerð Frakk-
landsstjómar að jafnframt þrýst-
ingi á Serba með flughernaði ef
þörf kreföi til að aflétta umsátri
þeirra um Sarajevo og aðrar borgir
Bosníu, sem lýstar hafa verið
vemdarsvæði SÞ, yrði lagt að
ófriðaraðilum öllum, Bosníustjórn,
Króötum og Serbum, að ganga frá
skiptingu landsins í sambandsríki.
Kæmu þeir sér ekki saman yrðu
ríkin, sem tekið hafa á sig skuld-
bindingar til að reyna að lægja
ófriðinn í Bosníu, að skera úr
ágreiningi.
Af 26.000 manna liði í Bosníu á
vegum SÞ hefur Frakkland lagt til
6.000 manns. Núverandi sljórn í
París fer ekki dult með að háfi frið-
arlíkur ekki vænkast fyrir vorið
taki hún til alvarlegrar athugunar
að kalla herlið sitt á brott.
Það eina sem breytt gæti þessari
afstöðu Frakklandsstjórnar væri
ef Bandaríkjastjóm fengist til að
leggja fram Uðsafla til að taka þátt
í vanþakklátu og erfiðu starfi liðs-
aflans á vegum SÞ í Bosníu. Engar
horfur eru á að stjórn Chntons for-
seta taki slíkt í mál nú frekar en
fyrr. Hún er hvekkt af óförunum í
Sómalíu og á Haiti þar sem banda-
rískt gæslulið var látið hörfa af
hólmi.
Komi til loftárása á fallbyssuvirki
Serba verður þeim stjórnað eftir
myndum frá mannlausum könn-
unarflugvélum sem komið verður
um gervihnött til móttökustöðva í
Albaniu. Fullyrt er að með þessu
móti geti árásir orðið afar ná-
kvæmar. Máske verður vitneskja
um það til þess að Sebar efni nýgef-
iö loforð um að fjarlægja stórskota-
liðsvopnin cif sjálfsdáðum.
Sir Michael Ftose, yfirhershöfðingi liðsafla SÞ í Bosníu, (t.v.) tilkynnir samþykki Serba við brottflutningi þunga-
vopna umhverfis Sarajevo og bendir á André Soubirou hershöfðingja sem á að fylgjast með framkvæmdinni.
Simamynd Reuter
Skoðanir aimarra
Alger peningaeyðsla
„Flestir skattgreiðendur ímynda sér líklega að
lítil efnahagsaðstoð okkar viö erlend ríki, rétt innan
við tveir milljarðar punda á ári, fari til mjög fátækra
landa þar sem börn svelta eða eru veik, þar sem
hreint vatn og matur eru af skornum skammti. Þeim
bregður því kannski við að uppgötva að fé skuh yfir-
leitt vera sent til Malasíu, lands þar sem hagvöxtur
er um 8 prósent á ári og sem er á góðri leið með að
skipa sér í hóp „efnahagslegra tígrisdýra" Suðaust-
ur-Asíu.“
Úr leiðara Independent on Sunday 6. febrúar.
Slæmt í Kína
„Árleg skýrsla utanríkisráðuneytisins um mann-
réttindamál dregur upp dökka mynd af lögreglurík-
inu í Kína þar sem upplýsingar um pyntingar, þving-
aðar játningar og langa fangelsisdóma fyrir hug-
myndafræðilega „glæpi" eru skjalfestar. Hvíta húsið
verður að ákveða í vor hvort Kínverjar fái áfram að
njóta lágra innflutningstoha til Bandaríkjanna.
Skýrslan minnir á hversu langt í land Kínverjar eiga
ætli þeir sér að uppfylla kröfur sem Chnton forseti
setti í maí í fyrra.“
Úr leiðara New York Times 10. febrúar.
Undarlegt með Milligan
„Við munum líklega aldrei komast að öhum stað-
reyndunum um hin undarlegu síðustu augnablik
íhaldsþingmannsins Stephens Milligans. Það er þó
ljóst að dauði hans er mikill missir fyrir fjölskyldu
hans og stjórnmáhn. Að ahra áhti var hann gáfað-
ur, viðkunnanlegur og hæfileikaríkur, maður sem
margir töldu að hefði jafnvel komist til æðstu met-
orða. Þess vegna eru andstæðurnar milli þeirrar
myndar og kringumstæönanna við dauða hans svona
ógnvekjandi." Úr leiðara Daily Mail 9. febrúar.