Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 18
LAUjjARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Dagur í lífi Halldóru Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags Akureyrar:
í kynfraeðslutíma
Ég vaknaöi klukkan hálfsjö
mánudaginn 7. febrúar í logni og
hita sem hélst allan daginn hér á
Akureyri. Einn af þessum yndis-
legu stilludögum sem minnir meira
á vor en vetur. Þessa dagana erum
við Þuríöur Backman, vinkona mín
og hjúkrunarfræðingur Krabba-
meinsfélags íslands á Austíjörðum,
á fyrirlestraferð um Norðurland. í
dag er ferðinni heitið í Síðuskóla á
Akureyri þar sem við skiptum með
okkur verkum. Ég talaði viö 9.
bekkinga og Þuríður við 10. bekk-
inga um krabbamein, reykingar,
lífið og tilveruna.
Einnig sat ég góðan fyrirlestur
með níunda bekk um kynfræðslu
en í þessum skóla er í gangi kyn-
fræðsluprógramm samkvæmt
bandarískri fyrirmynd.
í kerfi þessu eru tveir kennarar
saman með bekkinn, líffræðikenn-
ari og hjúkrunarfræöingur. Krakk-
amir fá heimaverkefni sem bæði
þeir og foreldrar þeirra vinna. Síö-
an lesa nemendumir upp sín eigin
svör og viðhorf til hinna ýmsu
mála og einnig viðhorf foreldranna
til sömu mála. Ef upp koma misjöfn
viðhorf, sem stundum gerist jú hjá
foreldrum og unghngum, eru þau
rædd í bekknum og fundinn farveg-
ur fyrir skoðanir beggja.
Það vildi ég aö fólk á mínum aldri
heföi notið slíkrar fræðslu á sínum
tíma og hvet ég hér með alla for-
eldra að leggjast á eitt um það að
þessi fræðsla fari inn í alla grunn-
skóla landsins.
Talandi um afskipti foreldra af
málefnum barna og unghnga vhdi
ég gjaman sjá foreldra taka ábyrg-
ari afstöðu varðandi neyslu barna
sinna á tóbaki og áfengi því hvar
hggur ábyrgðin fyrst ef ekki hjá
foreldrum? Uppeldið er fyrst og
fremst okkar en ekki skólanna eða
félagasamtaka út í bæ.
Eftir að kennslu lauk tók við
Halldóra Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis og formaður tóbaksvarnanefndar, við störf sín á skrifstofunni.
vinna á skrifstofu Krabbameinsfé-
lags Akureyrar og nágrennis þar
sem ég er framkvæmdástjóri. Mik-
ið er komiö og hringt til okkar
flesta daga og var þessi engin und-
antekning. Einnig þurfti ég að und-
irbúa húsnæði félagsins fyrir fund
hjá „Styrk“ en það eru samtök
krabbameinssjúkhnga og aðstand-
enda þeirra sem hittast alltaf fyrsta
mánudagskvöld í hveijum mánuði.
Ég skrapp heim í sveitina mína
milli kl. 18 og 20 til að kíkja á syni
mína sem báðir hggja heima með
rauða hunda. Sá eldri, sem er tíu
ára, sýndi mér fyrstu kaflana úr
leikriti með söngvum sem hann og
pabbi hans eru að semja upp úr
sögunni um Aladdín og töfralamp-
ann fyrir árshátíð í skólanum í
mars. Leist mér nokkuð vel á upp-
hafið.
Það er líklega satt sem sagt er um
hjúkrunarfræðinga aö þegar veik-
indi eru heima eru þeir víðs fjarri
því auk tveggja með rauða hunda
lágu tvö með bakverk í kvöld. Ég
dreif mig hins vegar á fund hjá
„Styrk“. Ég kom heim kl. 23.00,
fékk mér sítrónute, heitt bað og
hlustaði á nýja geisladiskinn hans
Kristjáns Jóhannssonar á meðan.
Á eftir leit ég aðeins í íslandsbók
Mikaels, eftir Jose og Lesa Stevens,
og sofnaði aht of seint að venju.
Finnur þú funm breytingai? 244
Já, en það skiptir engu máli hvernig þú stafar „engifer“ þegar enginn Nafn:....
sér minnismiðann nema þúl
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ]jós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyghsgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur.
- Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækumar era geíhar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 244
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fertugustu og aðra getraun
reyndust vera:
1. Ema Jóhannesdóttir,,
Reynigrund 77,200 Kópavogi.
Grímar Teitsson,
Reynigrund 42, Akranesi.
Vinningarnir verða sendir
heim.