Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Page 20
20
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Kvikmyndir
Hús andanna
Síðar á þessu ári verður frum-
sýnd hérlendis nýjasta mynd
danska leikstjórans Bille August.
Myndin ber heitið Hús andanna og
er gerð eftir samnefndri sögu Isa-
bel Allende sem hún skrifaði 1985.
Hér er um að ræöa sannkallaða
stórmynd enda tóku þátt í fram-
leiðslu hennar bæði Þjóðverjar og
Portúgalar auk Dana. Þekktir
enskumælandi leikarar voru
fengnir í aöalhluverkin og stefnt á
alþjóðlegan markað með myndina.
En hvernig tókst til? Myndin var
frumsýnd í nokkrum löndum Evr-
ópu og svo auðvitað Norðurlönd-
unum í október sl. og yfirleitt viö
góðar undirtektir. Sérstaklega
voru viðtökurnar góðar í Þýska-
landi. Gagnrýnendur hafa verið
mishrifnir, sumir hafa lýst yfir
ánægju sinni en aðrir hafa fundiö
myndinni flest til foráttu. Sýning-
artími Húss andanna er 145 mínút-
ur en að undanfórnu hefur Bille
August verið að leggja hönd á örlít-
iö styttri og hnitmiðaðri útgáfu af
myndinni sem líklega verður sýnd
hérlendis.
Stórbrotinn
söguþráður
Hús andanna gerist í Suður-
Ameríku og spannar 45 ár í lífl
Trueba-fjölskyldunnar. Myndin
hefst 1926 þegar Esteban Trueba
(Jeremy Irons), þá ungur maður
sem er að reyna að koma undir sig
fótunum í lífinu, verður ástfanginn
af hinni undurfögru heföarmey
Rosu (Teri Polo). Foreldrar hennar
eru samþykkir því að þau rugli
saman reytunum en þegar Esteban
auðgast skyndilega deyr Rosa á
dularfullan hátt.
Clara, yngri systir Rosu, er þekkt
um allt þorpið fyrir skyggnigáfu
sína enda leita þorpsbúar óspart til
hennar með ýmis vandamál. Hún
haföi séð fyrir dauða systur sinnar Uppreisn
en þegar til kom reyndist harmur
hennar svo mikill að hún hætti að
tala í nokkur ár. Á meðan heldur
Esteban áfram að koma sér fyrir
og verður fljótlega einn voldugasti
bóndinn í héraðinu. Þegar svo leiö-
ir þeirra Estebans og Clöru hggja
aftur saman tuttugu árum síðar
fær Clara málið á ný og skömmu
síðar giftast þau.
Asteðahatur
En þar með er ekki öll sagan sögð.
Systir Estebans, Ferula (Glenn
Close), býr með þeim á býlinu.
Þetta er harðger kona sem alltaf
klæðist svörtu og virðist hafa unun
af að njósna um ástarlíf þeirra
Umsjón:
Baldur Hjaltason
hjóna. Þau Esteban og Clara eign-
ast dóttur sem hlýtur nafnið
Blanca. Ein vinnukonan knýr dyra
hjá Esteban og tilkynnir honum að
hún hafi fætt honum barn eftir að
hann nauðgaði henni nokkrum
árum áður. Esteben neitar ásökun-
um konunnar og vísar henni á dyr.
Næst liggur leiðin til ársins 1963
þegar Blanca (Winona Ryder) er
orðin 17 ára og ástfangin af ungum
pilti að nafni Pedro (Antonio
Banderas) sem er sonur nánasta
samstarfsmanns Estebans á bú-
garðinum. Esteban setur sig á móti
þessu sambandi og kemur til átaka
milli hans og Pedros. Ekki bætir
það úr skák að Esteban kemur að
systur sinni í rúminu með eigin-
konu sinni. Hann rekur Ferula frá
búgarðinum og reynir að neyða
Blanca til að giftast evrópskum
aðalsmanni.
Arið 1971 er Esteban búinn að
vinna sig upp í þá stöðu að vera
kominn í ríkisstjóm landsins. En
þessari hægrisinnuðu ríkisstjóm
stafar mikil hætta af vinstri öflum
sem stjórnað er af sjálfum Pedro. í
lokakafla myndarinnar tekur her-
inn völdin sem setur þau Blanca
og Pedro í mikinn háska sem Este-
ban einn getur greitt úr. En rann-
sóknardómari hinnar nýju stjóm-
ar er enginn annar heldur en sonur
vinnukonunnar sem Estebar neit-
aði að gangast við.
Eins og þeir þekkja best sem hafa
lesið bækur Isabel Allende er hér
um að ræöa mikið bókmenntaverk
sem byggist á ástum og örlögum.
Þaö er erfitt að gera svona saman-
þjöppuðu efni góð skil enda hafði
Isabel Allende htinn áhuga á að
láta gera kvikmynd eftir bókinni.
Það var ekki fyrr en Bille August
hafði sýnt henni myndina Palli sig-
urvegari, sem hann hafði gert
nokkrum árum áður, ásamt uppk-
asti aö handritinu, að Isabel gaf
grænt ljós á Bille sem leikstjóra.
Samanþjappað efni
Myndin er nokkurs konar sam-
anþjappað form af bókinni þar sem
hver hápunkturinn á fætur öðrum
sést á hvíta tjaldinu. Húsi andanna
hefur verið lýst sem tregafuhri ást-
arsögu á borð við Dr. Zivago, Gone
with the Wind og svo The Leopard.
Bille August hefur tekist að finna
einhvern meðalveg sem leikstjóri,
en hins vegar eru ekki alhr sam-
mála meðferð hans á bókinni, ekki
síst aödáendur Isabel AUende. Það
er mjög erfitt fyrir þá sem hafa les-
ið bókina að ímynda sér að það sé
hægt aö gera góða mynd um svona
flókinn efnisþráð. En aðsóknartöl-
ur sýna að Bille August hefur ekki
tekist sem verst upp.
ANDENES HUS
'THE HOUS£ Of THE SPIRITS"
BERHD EICHINGERt>r«tmcr«cn BILIE AUGUSTi in,
Að öhum ólöstuðum fer Glenn
Close á kostum í hlutverki Ferula,
systur Esteban. Það mæðir mikið á
Jeremy Iron, sem er höfuð ættar-
innar, en hann fér léttilega með
sitt hlutverk eins og raunar Meryl
Streep sem er orðin frekar sjald-
gæfur gestur á hvíta tjaldinu.
Bille August er þegar farinn að
vinna að sinni næstu mynd sem er
byggð á bókinni „Skrifað í snjó-
inn“ eftir Peter Höeg. BiUe ætlar
að halda áfram að vinna meö fram-
leiðandanum að Húsi andanna en
viö handritagerðina hafa þeir feng-
ið til Uðs við sig Bandaríkjamann-
inn Larry Gross sem hefur skrifað
nokkur spennumyndahandrit. En
áður en hann hefur myndatökur
ætlar BUle að safna þreki því und-
anfarna mánuði hefur hann verið
á flækingi um allan heim við að
kynna Hús andanna.
Kínversk verð -
launamynd
Nú er farið að styttast í tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna í ár. Sú
mynd, sem taUn er líklegust til að
hreppa hnossið sem besta erlenda
kvikmyndin, kemur frá Kína og
nefnist FAREWELL MY CONCU-
BINE. Myndin hlaut gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra
Leikstjórinn Chen Kaige.
ásamt THE PIANO og hefur síðan
hlotið íjölda verðlauna. Þetta er
flmmta mynd kínverska leikstjórans
Chen Kaige og sú fyrsta síðan hann
gerði LIFE ON A STRING árið 1990.
FAREWELL MY CONCUBINE var
lengi vel bönnuö í Kína en hefur nú
verið leyfö til takmarkaðra sýninga
af kínverskum stjómvöldum eftir að
búið er að klippa burtu sum atriðin
sem stjómvöld gátu ekki feUt sig við.
Myndin spannar nær mannsaldur í
sögu Kína. Áhorfendur fá að kynnast
gegnum líf þeirra Cheng Dieyi og
Duna Xialou hvemig herfurstar réðu
ríkjum í héruðum Kína árið 1925,
blómadögum Peking-Ópemnnar,
innrás Japana áriö 1937, innleiðingu
kommúnismans og svo sjálfri menn-
ingarbyltingunni.
Óperuaðdáendur
Áhorfendur fá fyrst að kynnast
þeim Cheng og Duan á unga aldri
þegar þeir era settir í þjálfun til að
geta leikið í Peking-óperunni. Þeir
tengjast sterkum böndum gegnum
list sína sem þeir vilja lifa fyrir.
Cheng er kynvflltur og þótt hann
elski Duan er þar aðeins um andlega
ást að ræða sem tengist hlutverkum
þeirra í óperunni - Duan leikur þar
Atriði úr Farewell my Concubine.
kóng en Cheng ástmey hans. Þegar
Duan giftist ungri stúlku, sem hafði
verið ástkona hans um skeið, mynd-
ast mikil spenna milU þeirra félaga
sem leiðir til tímabundinna vinsUta.
Leikstjórinn notar þessa efnisum-
gjörð til að taka á ýmsum þáttum í
stjórnmálasögu Kína. Atriðin sem
sýna hvemig félagar í menningar-
byltingunni fá þá félaga til að snúast
hvor gegn öðrum og hvemig þeir era
niðurlægðir áður en þeir era sendir
í endurhæfingu, eru gífurlega sterk
og sláandi. Kynvilla er einnig sterkur
undirtónn í myndinni og er því ekki
nema von að kínversk stjórnvöld
hafi ekki verið of hrifin þegar mynd-
in fór að vinna til verðlauna.
Sérstök lífsreynsla
Leikstjórinn Chen Kaige á ekki
langt aö sækja hæfileikana því faðir
hans, Chen Huaiki, var þekktur leik-
stjóri. Hann segir þó að menningar-
byltingin hafi haft meiri áhrif á sig
sem leikstjóra en nokkuð annað í líf-
inu. Kaige var sendur út í sveit í
endurhæfingu og neyddur til að
skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að
faðir hans væri njósnari. Þessi bak-
grunnur endurspeglast sterklega í
efnisvaU Kaige og hvemig hann
vinnur úr sínum viðfangsefnum.
FAREWELL MY CONCUBINE er,
eins og margar nýlegar kínverskar
myndir sem hafa verið sýndar í Evr-
ópu, afskaplega Utrík og fafleg fyrir
augað. Myndin er sérlega vel gerð
og vel leikin enda heldur hún áhorf-
endum í heljargreipum meöan á sýn-
ingu stendur. FAREWELL MY
CONCUBINE verður framsýnd hér-
lendis innan skamms.