Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
■21
Árni Sigurðsson tölvusérfræðingur og kona hans, Ag-
nes, sem er frá Chile.
Elsa og Kjartan Loange skemmta sér greinilega konung-
lega en þau dvelja í St. Petersburg á hverjum vetri.
Fyrsta þorrablótið í Bandaríkjunum:
I
Lóðaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru lóðir undir 17 einbýlishús og 22
íbúðir í raðhúsum við Starengi. Gert er ráð fyrir að
lóðirnar verði byggingarhæfar í sumar.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 632310. Þar
fást einnig afhent umsóknareyðublöð, skipulagsskil-
málar og uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum frá og með mánudegin-
um 14. febrúar nk. á skrifstofu borgarverkfræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Suðrænir dansar
Anna Bjamason, DV, Flórída:
Fyrsta þorrablót vetrarins í Banda-
ríkjunum var haldið í Orlando,
Flórída 29. janúar. Blótið tókst með
eindæmum vel og var það mál
manna að betra þorrablót hafi ekki
verið haldið hér um slóðir. Sumir
gengu svo langt að segja að þetta
væri besta og skemmtilegasta þorra-
blót sem þeir hefðu sótt. Um hundrað
og tíu gestir mættu til blótsins.
Mjög vel var vandað til þessarar
skemmtunar. Boðið var upp á afar
sérstæð og vönduð skemmtiatriði.
Stöðvarstjóri Flugleiða í Orlando,
Yolanda Aulava, sýndi seiðandi suð-
ræna dansa með dóttur sinni, Jerus-
ha, sem er aðeins átta ára gömul.
Eiginmaður Yolöndu, Fihp, lék undir
og söng og gerði þetta atriði feikna
lukku meðal gestanna. Yolanda tók
nokkra blótsgesti út á dansgólfið og
lét þá dilla sér í trylltum suðurhafs-
dansi við gríðarleg fagnaðarlæti við-
staddra. Þá lék Ray Frye af miklum
glæsibrag á munnhörpu, sem tengd
var galdratækjum sem létu leikinn
hljóma eins og komin væri stór-
hljómsveit á staðinn. Þriðja atriðið
var nemandi frá Daytona Beach, Alli,
sem lék á gítar og söng, og naut að-
stoðar annarra nemenda og blóts-
gesta. Loks lék bandarísk hljómsveit
fyrir dansi. Var það The Bob Bruce
Quartett. Hljómsveitin lék lög við
aUra hæfi og var svo vinsæl að menn
sem höfðu ekki dansað í mörg ár
gátu ekki setið kyrrir heldur döns-
uðu frá sér allt vit.
Þorramaturinn var bæði vel fram-
reiddur og vel útUátinn. Einnig var
boðið upp á kaldan lax í hlaupi, ís-
lenskt lambalæri og íslenskan ham-
borgarhrygg fyrir þá sem ekki hafa
smekk fyrir hið þjóðlega. Það var
Sigríður Þorvaldsdóttir frá Reykja-
vík og sonur hennar, veitingamaður-
inn Eiríkur Friðriksson, sem sáu um
matinn.
Glæsilegt happdrætti
Á hlótinu var veglegt happdrætti
með glæsilegum vinningum. Meðal
þeirra íslenskur fiskur, rækjur, lopa-
Eiríkur Friðriksson meistarakokkur með sviðabakka, en sviðin vekja alltaf
mesta athygli í eldhúsi hótelsins þar sem nokkrir blökkumenn eru við störf.
peysur, geisladiskar, bækur og
margt fleira. Aðalvinningurinn var
farmiði tU íslands sem Flugleiðir gefa
(90%) Björk Jónsdóttir, einn af ís-
lensku húseigendunum í Orlando,
vann farmiðann.
Þorrablótið var haldið í Langford
hótehnu í Winter Park sem er íslend-
ingum að góðu kunnugt. Þetta er í
þriðja sinn sem blótið er haldið í
húsakynnum Langfords fjölskyld-
unnar en þar var einnig haldið mjög
vel heppnað jólabaU fyrr í vetur.
Lovísa og Bob Reusch eru þekkt fyrir greiðvikni við Jerusha og Yolanda vöktu fádæma athygli með seið-
landa í Orlando. andi dönsum sínum.
afsláttur í örfáa clag'a af öllum teppum,
dúkum ogf gólfflísum.
miðstöð heimilantia
Reykjavik Akureyrí Ísafirðí Akranesi
í Miódd og Lynhélsi 10 FuruvöUurr. ", Mjallargotu " Stillholt 16
670050 675600 96-12780 94-4644 93-11799
Hornbaðkörin
vinsælu komin
aftur. Nudd-
kerfi og allir
fylgihlutir.
15% staögreiösluafsl.
ORAS blöndunartæki
Royal Sphinx
salerni
20% afsláttur
til loka febrúar ec)a
meðan birgðir endast.
SUÐURLANDSBRAUT 20 -108 REYKJAVÍK - SÍMI 813833 - FAX - 812664