Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Síða 24
24
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Fordkeppnin:
Tvær utan-
landsferðir í boði
- ef sigurvegarinn kemst í Supermodel of the World
Einn þátttakenda í keppninni Super-
model of the World í fyrra.
Walt Walley ásamt súperfyrirsæt-
unni Rachel Hunter, eiginkonu
söngvarans Rods Stewarts.
Góðir samningar
Sigurvegarinn í fyrra var Veronica
Blume frá Spáni. Hún hlaut í verð-
laun fimmtán milljóna króna samn-
ing við Ford Models skrifstofuna í
New York auk skartgripa að verö-
mæti tæpra tveggja milljóna króna,
hannaðra af ítalska hönnuöinum
Manfredi.
Þær stúlkur sem komu í næstu
tveimur sætum á eftir fengu einnig
samninga við Ford Models í New
York. Stúlkan í öðru sæti, Magdalena
Wrobel frá Póllandi, fékk samning
upp á rúmar tíu milljónir króna, og
sú í þriðja sæti, Michelle Behennah
frá Englandi, fékk samning upp á sjö
milljónir.
Skilafrestur á myndum í Ford-
keppnina er til 20. febrúar. Þá verða
Birna Willardsdóttir, Fordstúlkan 1993, i góðum félagsskap á Flórída sl.
sumar þegar hún tók þátt i keppninni Supermodel of the World.
allar þær myndir sem borist hafa
sendar til Ford Models í New York
þar sem valið verður í úrslit. Þær
stúlkur sem valdar verða í úrslit fara
í frekari myndatökur og viðtöl en
dómari Ford Models mun velja sigur-
vegara úr þeim myndum. Sigurveg-
arinn mun síðan áður en langt um
líður fljúga til New York eða Parísar
í frekari tiskuljósmyndatökur.
Merkið myndimar:
Fordkeppnin,
helgarblað DV,
Þverholti 11,
105 Reykjavík.
-ELA
Fordkeppnin er í fullum gangi og
myndir streyma inn. Eins og sagt var
frá í síðasta helgarblaði hefur keppn-
in breyst vegna aukinna krafna Ford
Models í New York. Það er Disney-
fyrirtækið sem kostar keppnina og
sjónvarpsútsendinguna frá henni.
Disney gerir kröfu um að einungis
toppfyrirsætur taki þátt í keppninni
Supermodel of the World þetta árið,
stúlkur sem geta hafiö störf strax
eftir keppnina.
Keppnin hér heima mun einungis
fara fram á síðum blaðsins enda eru
það myndirnar sem skipta öllu máli
þar sem eftir þeim verður vahð. Sú
stúlka sem vahn verður sigurvegari
þarf að vera mjög „photogenísk“, það
er að segja myndast mjög vel. Eftir
sigur hér heima fer hún til New York
eða Parísar þar sem atvinnutísku-
ljósmyndari mun taka myndir af
henni. Þær myndir skera síðan úr
um hvort íslenski sigurvegarinn fær
að taka þátt í keppninni Supermodel
of the World í Disney World á Flórída
í sumar. Þannig að í raun þarf sigur-
vegarinn að gangast undir inntöku-
próf. Vegna þess mun keppnin verða
miklu meira spennandi.
Tvær utanlandsferðir
Sú stúlka sem sigrar í Fordkeppn-
inni gæti því átt tvær utanlandsferð-
ir í vændum. Hins vegar verður hún
að vera tilbúin að starfa á erlendum
vettvangi sem fyrirsæta því ef hún
kemst í keppnina fær hún mögulega
einnig samning upp á vasann. Það
má því segja að til mikils sé að vinna
fyrir stúlkur sem áhuga hafa á fyrir-
sætustörfum.
Þó íslenski sigurvegarinn nái ekki
að komast í Supermodel of the World
keppnina á hann engu að síður
myndamöppu tekna af góðum tísku-
ljósmyndara sem gott getur verið að
eiga þegar sótt er um fyrirsætustörf.
Þar fyrir utan hefur Fordstúlkan þá
fengið nasasjón af því hvemig þessi
heimur er starfræktur þannig að hún
mun verða reynslunni ríkari.
Þátttakendum fjölgar
Á undanfórnum árum hefur þátt-
takendum í Supermodel of the World
Sigurvegari keppninnar í fyrra, Ver-
onica Blume, frá Spáni.
keppninni fjölgað til mikiha muna.
Stúlkur frá Asíu og Austur-Evrópu
hafa bæst við hópinn. í fyrra voru
hátt í fimmtíu stúlkur hvaöanæva
að úr heiminum sem komu til
Flórída. Bæði þótti keppnin of kostn-
aðarsöm en einnig var of tímafrekt
að undirbúa allar þessar stúlkur fyr-
ir sjónvarpsútsendinguna. Þá er því
ekki að neita aö sumar stúlkurnar
áttu ekkert erindi í keppnina. Þess
vegna hefur verið ákveðiö að breyta
til og setja upp inntökupróf.
Keppnin um súperfyrirsætuna fer
fram í Disney-skemmtigarðinum á
Flórdía í sumar. Stúlkumar sem þátt
taka í keppninni munu búa á lúxus-
hóteh þá daga sem dyalið verður og
starfa með frægum tískuljósmyndur-
um, fórðunarmeistumm og úrvals-
sjónvarpsliði. Keppnin er send út um
Bandaríkin, til Frakklands og Japan.
Venjulega em þekktir kynnar á
þessu kvöldi en í fyrra var það
bandaríski sjónvarpsþáttaleikarinn
Ert þú fyrirsæta ársins?
Nafn
Aldur............
Heimili..........
Símanúmer........
Póstnr. og staður
Hð&íl ........................
Staða......................
Hefur þú starfað við fyrirsætustörf?
Fyllið í réttan reit já □ nei □
Ef svarið er játandi þá hvar........
Myndirnar sendist til:
Ford-keppnin, Helgarblað DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík
Gleymið ekki að senda myndir með.