Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Side 30
42
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Iþróttir
Guðmundur
Gíslason
Guðmundur Gíslason var fyrsti
sundmaöurinn sem kjörjnn var
íþróttamaður ársins, árið 1962, og
rauf þá einokun frjálsíþrótta-
manna á titlinum. Guðmundur
var kjörinn aftur 1969 og er einn
fárra sem hafa hreppt nafnbótina
tvisvar.
Guðmundur var um árabil
fremstur íslenskra sundmanna
og keppti fjórum sinnum á
ólympíuleikum, í Róm 1960,
Tokyo 1964, Mexíkó 1968 og í
Miinchen 1972, og það hefur að-
eins Bjarni Friðriksson júdómað-
ur leikið eftir. Hann var mjög fjöl-
hæfur og setti met í mörgum
greinum, en hann keppti til dæm-
is í skriðsundi, ílugsundi og fjór-
sundi í Mexíkó.
Guðmundur, sem er 53 ára
gamall og starfar sem aðstoðar-
bankastjóri í Búnaðarbankanum,
æfði frjálsar íþróttir frá 10 til 13
ára aldurs en byrjaði þá í sundinu
af fullum krafti. Sitt fyrsta ís-
landsmet í flokki fullorðinna setti
hann tæplega 17 ára gamall, og
metin urðu alls 157. Keppnisferl-
inum lauk Guðmundur árið 1974,
þá 33 ára, en þjálfaöi síðan í 7 ár,
auk þess að sitja í landsliðsnefnd
og sinna dómarastörfum.
„Þegar ég lít til baka lifa ólymp-
íuleikarnir fernir í minningunni
og þeir voru allir sérstakir, hveij-
ir á sinn hátt. í Tokyo var sér-
staklega gaman, í Mexíkó er
minnisstætt hve þunna loftið fór
illa með margar stjörnurnar, en
í Munchen upplifði maður hins
vegar þann hryllilega atburð þeg-
ar ísraelsmennirnir voru drepn-
ir,“ sagði Guömundur við DV.
Síðan sundferlinum lauk hefur
Guðmundur stundað langhlaup
af miklum krafti ásamt félögum
sínum og oft tekið þátt í mótum.
„Þetta átti að vera biðstaða á
meðan við vorum að leita okkur
að heppilegri grein, en síðan
ílentumst við í hlaupunum. Það
má segja að maður hafi sinnt
sundinu alltof lítið í seinni tíð.
En ég fylgist grannt með keppnis-
fólkinu í sundi, þekki það reynd-
ar ekki en veit hvaöa tíma það
nær, og ég hef líka fylgst mikið
með í gegnum dætur mínar sem
hafa keppt og þjálfað í sundi um
árabil," sagði Guömundur Gísla-
son. -VS
PLÚS
Plús vikunnar fær frjáls-
íþróttafólkið sem kemur vel
undan vetri og er þegar byrjað
að setja íslandsmet og ná lág-
mörkum fyrir Evrópumeist-
aramót. Það er útlit fyrir líf-
legt tímabil framundan á
þessu sviði.
MÍNUS
Mínus vikunnar fá þeir aðilar
innan skíðahreyfmgarinnar
sem vildu ekki virða gildandi
lágmörk fyrir vetrarólympíu-
leikana. Þeir fimm sem náöu
lágmörkum voru sendir, farið
var eftir settum reglum og ef
menn ætla að breyta þeim eft-
ir á er betra að hafa engar
reglur!
Vetrarólympíuleikamir settir í Liilehammer í dag:
Vinsældir Ulvangs á
við Ibsen og Grieg
- standa norsku gulldrengimir undir væntingum þegar á hólminn er komið?
Klukkan þrjú í dag rennur stóra
stundin upp hjá Norðmönnum. Þá
hefst setningarathöfn 17. vetrar-
ólympíuleikanna sem haldnir eru í
Lillehammer og standa yfir til 27.
febrúar. Leikanna hefur verið beöið
með mikilli eftirvæntingu í Noregi,
að minnsta kosti hjá hluta þjóðarinn-
ar, og Lillehammer verður mið-
punktur íþróttaheimsins næstu tvær
vikurnar.
Reyndar verða leikarnir hafnir áð-
ur en þeir eru formlega settir því
klukkan 11 byija íshokkímenn sína
keppni með leik Finna og Tékka í
Hákonarhöllinni og leik Rússa og
Norðmanna í „hellinum" stórbrotna
í Gjovík.
Fyrsta stóra greinin er síðan á dag-
skrá á morgun, sunnudag, þegar
bestu brunkappar heims í karla-
flokki reyna með sér, og síðan rúllar
hver greinin á eftir annarri. Loka-
daginn, 27. febrúar, er keppt í svigi
karla og 50 kílómetra göngu karla,
og þá fer fram úrslitaleikurinn í ís-
knattleik.
Norðmenn gera sér vonir um aö
skíðagöngumenn þeirra, með Vegard
Ulvang og Björn Dæhlie í farar-
broddi, sópi að sér gullverðlaunum,
eins og þeir gerðu á leikunum í Al-
bertville fyrir tveimur árum. Þá
stóðu norskir göngumenn fimm
sinnum á efsta þrepi verðlaunapalls-
ins og sannkallað gullæði gekk yfir
Noreg. Vinsældir Ulvangs eru shkar
í.landinu aö einungis skáldið Ibsen
og tónskáldið Grieg hafa notið slíkr-
ar hylh Norðmanna.
Önnur ~hetja er Kjetil-Andre
Ámodt, einn fremsti alpagreinamað-
ur heims, og hann gæti hugsanlega
krækt í nokkur verðlaun, þvi að
hann hefur sigrað í öllum fimm alpa-
greinunum á heimsbikarmótum síö-
ustu misserin.
En Norðmenn fá skæða keppi-
nauta. Vladimir Smimov frá Kaz-
akhstan gæti stungið þá alla af í
göngunni eins og hann hefur gert
hvað eftir annað í vetur, og reyndir
kappar á borð við Marc Girardelli
og Alberto Tomba munu fórna öllu
til að komast í efsta þrepið í alpa-
greinunum.
Fimm íslendingar keppa í Lille-
hammer og fyrstir af stað verða
göngumennirnir Daníel Jakobsson
og Rögnvaldur Ingþórsson. Þeir
keppa í 30 kílómetra göngu á mánu-
daginn.
-VS
Ein ferö eins og í bruni og
nokkurs konar blanda af oruni
og stórsvigi. Brautin þó styttri
en í bruninu.
Bóndabýli
Fyrst var keppt í alpagreinum á ólympíuleikunum
1936, í bruni, svigi og stórsvigi, en 1988 var risa-
stórsvigi og tvíkeppni bætt viö.
Ein ferð á beinni braut.
Hraðinn er gífurlegur, allt að
130 km á klukkustund.
Tvær ferðir, sín á hvorri braut;
og tímar lagðir saman. Stutt á
milli hliða og því mikið um
beygjur.
STÓRSVIG
Qbrun
SVIG
RISASTORSVIG
Keppt sérstaklega í svigi (2
' feroir) og bruni (1 ferð) og
árangurinn lagður saman.
Lestarstöö
UIVIHVERFISVERND
Jarðrask og skogarhögg
í lágmarki við lagningu
brautanna.
Snjóplógar eru lagværir
og sparneytnir.
Strengir og lagnir alls
staðar neðanjarðar á
svæðinu.
Tvær feröir og tímar lagöir
saman. Lengri braut en í svigi
og lengra miíli hliða og því
meiri hraði.
Pétur Guðmundsson
- náöi fimmta besta árangri ársins í heiminum í kúluvarpi
Pétur Guðmundsson byrjar vel
með nýja stílinn.
Pétur Guðmundsson náði um
síðustu helgi fimmta besta árangri
í heiminum í kúluvarpi innanhúss
á þessu ári þegar hann kastaði 20,15
metra á opnu móti KR-inga í Reiö-
höllinni í Reykjavík. Þetta kast
kom á góðum tíma því það tryggði
honum þátttökurétt á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss sem
fram fer í París eftir einn mánuð.
Pétur hefur verið fremsti kúlu-
varpari íslands um árabil og litla
keppni fengið á mótum hér heima.
Hann á íslandsmetin, bæði utan-
húss og innanhúss, og bæði setti
hann árið 1990. Þá kastaði hann
21,26 metra utanhúss og 20,66
metra innanhúss.
„Það má segja að þetta kast hafi
verið á undan áætlun og það kom
mér virkilega á óvart. Ég er í þung-
um æfingum þessa dagana, æfi
undir miklu álagi, og kem síðan til
með að létta mig þegar nær dregur
Evrópumeistaramótinu," sagði
Pétur við DV.
Hann hefur breytt um kaststíl í
vetur, lagði gamla stihnn til hliðar
eftir heimsmeistaramótið síðasta
haust, og óhætt er aö segja að hann
fari vel af stað með þeim nýja.
„SnúningsstíMinn sem ég notaði
var þannig að hann bauð upp á eitt
og eitt mjög gott kast, en hann gekk
ekki upp hjá mér, þannig að ég
gafst upp á honum. í staðinn tók
ég upp stíl sem kenndur er við
Bandaríkjamann, O’Brian, en 70-80
prósent af bestu kösturum heims
nota hann nuna. Hann býður upp
á jafnari köst og virðist henta mér
vel.
Núna stefni ég að því aö ná sem
bestum árangri á Evrópumeistara-
mótinu. Eftir að Svisslendingurinn
Gunthör hætti má segja að Evrópa
sé opin í kúluvarpinu, enginn er
áberandi bestúr, þannig að með
góðu kasti gæti ég komist ofar-
lega,“ sagði Pétur Guðmundsson.
-VS