Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
43
maður ársins
„Dauðlegir menn eiga ekki að efast um visku og almætti þeirra sem stjórna frá tindum hins veraldlega ,
valds, hvort heldur það er Stjórnarráðið við Lækjargötu, Hvíta húsið í Washington, byggingar í Kreml eða
Bunker Foringjans í Berlín.“
Embættis-
Nýlega var aíhjúpað við hátíðlega
athöfn minnismerki um óþekkta
embættísmanninn fyrir utan
Stjórnarráðiðaðviðstöddumráða-
mönnum þjóðarinnar, fulltrúum
erlendra ríkja og ótölulegum fjölda
embættísmanna af öllum stigum.
Líkneskið var af miðaldra manni
með skjalatösku, fremur feitlögnum
á jakkafótum, sem horfði hugsi yfir
þykk gleraugu. Úr svipnum skein
bæði mannvit, einlægni og æöru-
leysi. Nökkvi læknir var fenginn til
að halda hátíðarræðuna við þetta
tækifæri. Hann sagði m.a.:
Ræða Nökkva
„Sælt er hverri þjóð að eiga sæ-
garpa enn; en ekki er að spauga með
embættismenn. Þessar þekktu
hendingar þjóðskáldsins koma mér
í hug þegar við nú minnumst emb-
ættismanna þessarar þjóðar sem
unnu störf sín af hjartans lítíllætí
og trúmennsku og skeyttu meira um
hylli húsbænda sinna en andúð alm-
úgans. Fámennur hópur valda-
manna getur stjómað stómm eða
smáum þjóðum að vild sinni ef emb-
ættísmenn era nægilega húsbónda-
hollir. Margir em þeir sem halda
að allt vald mannsins komi frá Guði.
Góður embættismaður trúir ekki á
slíkt bull. Hann veit að völdin liggja
hjá alvitrum mönnum sem sitja á
ólympsfjalli stjórnmálanna og stýra
ríki sínu. Dauðlegir menn eiga ekki
að efast um visku og almætti þeirra
sem stjórna frá tindum hins verald-
lega valds, hvort heldur það er
Stjórnarráðið við Lækjargötu, Hvíta
húsið í Washington, byggingar í
Kreml eða Bunker Foringjans í
Berlin. Góður embættismaður inn-
heimtír réttláta og rangláta skatta,
hann handtekur bæði seka og sak-
lausa, hann klappar einum en kýlir
annan kaldan í nafni þeirra sem
stjórna á hverjum tíma. Allt vald
stjórnandans byggist á góðum emb-
ættismönnum sem spyrja einskis en
hlýða því sem við þá er sagt möglun-
arlaust."
Fram stígur
fulltrúinn
Nökkvi læknir gerði hlé á máli
sínu og þagði á dramatískan hátt
eins óg hann hafði lært á námskeiði
í ræðumennsku. Síðan hélt hann
áfram: „Mér er það sönn ánægja að
kalla fram embættismann ársins,
Hallgrím Kjagan, fulltrúa við hag-
vaxtarhönnunardeild ríkisins."
Á læknavaktiniú
Undir dynjandi lófaklappi kjagaði
Hallgrímur fram. Hann var sláandi
líkur styttunni af óþekkta embættis-
manninum enda sögðu gárungar að
listamaðurinn hefði fengið þrjá
ókeypis tíma í hagvaxtarræktinni
aö launum fyrir myndina. Nökkvi
afhenti Hallgrími fulltrúa æðsta
heiðursmerki embættísmannasam-
félagsins; beiska kaleikinn. Hann
átti að minna á hversu oft embættis-
menn vinna vanþakklát störffyrir
æðstu yfirmenn þjóðar sinnar. Hall-
grímur Kjagan leit yfir mannfjöld-
ann og hampaði kaleiknum fóður-
lega í hendi sér. Hann brosti góðlát-
lega og horfði yfir gleraugun sín á
mannfjöldann og sagði hátíðlega:
„Landar mínir nær og fjær. Mér er
það mikill heiður og ljúfsönn
ánægja að veita viðtöku þessum
verðlaunum hér í dag. Ég hef alltaf
rækt skyldur mínar af stakri trú-
mennsku við Guð og menn sem
embættismaður. Ef valdamenn hafa
sagt mér að reka eða ráða mann hef
ég gert það. Stundum hef ég rekið
menn en tekið þá aftur í vinnu ef
stjórnvöld skipuðu mér að gera svo.
Ég hef haldið uppi merki íslenskrar
embættismannastéttar með því að
vera hlýðinn og húsbóndahollur og
spyrja einskis og draga engar
ákvarðanir ráðamanna í efa. Þegar
ég efast um réttmæti eigin verka
hugsa ég til orða Ritningarinnar:
Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun
ég setja þig!“ Nokkrir feitlagnir,
andstuttir embættismenn heyrðust
hrópa lágum rómi eftir að hafa litíð
flóttalega í kringum sig: „Heyr,
heyr.“ Hallgrímur hélt áfram:
„Minn herra situr í Stjómarráðinu.
Ég mun hlýða honum í einu og öllu
og aldrei efast um stjórnkænsku
hans og vit. Megi góður Guð gæta
æðstu manna þjóðarinnar og megi
þeir gefa sér tíma til að líta eftir
verkum Guðs og hjálpa honum í
erfiðu starfi." Fulltrúinn hneigði sig
kurteislega og settist á gullbryddað-
an stól. Hann burstaði kusk af
jakkaboðangnum og strauk fingmm
í gegnum hárið sem tekið var að
þynnast. Mannfjöldinn tíndist heim
til sín hljóður í bragði enda var nú
farið að rigna. Eftir stóð styttan af
óþekkta embættismanninum og
brosti torræðu brosi framan í rign-
inguna. Gráleit dúfa settist á vinstri
öxlina og virtist hvísla einhveij u í
málmeyrað.
Viltu búa í FLÓRÍDA?
Það er möguleiki að fá löglegt dvalarleyfi í Flórída með því
að fjárfesta í fyrirtækjum eins og t.d. mótelum.
Hafið samband við Walt Burgess, innflytjendasérfræðing og '
fasteignasala, sími 813-581-2868, fax 813-585-2083.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RfKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
byggja aðveitustöðvarhús á Kirkjubæjarklaustri.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins, Dufþaksbraut 12, Hvolsvelli, og
Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum
15. febrúar 1994 gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Verkinu á að vera að fullu lokið föstudaginn 26.
ágúst 1994.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins á Hvolsvelli fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 2.
mars 1994, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenda sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu:
„RARIK-94001 Kirkjubæjarklaustur - aðveitu-
stöð“
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 REYKJAVÍK
Þeir eigjnast eklei
sem eyða nenin^um
re áU e§fa!
Leggðu heldur reglulega inn á Bakhjarl
Sparisjóðs vélstjóra.
Bakhjarl gaf 6,64% raunávöxtun í jan. - des. 1993
og gaf hæstu raunávöxlun á sérkjarareikningum
í íslenska bankakerfinu árin 1991 og 1992.
Þú Lýrð lietur en ááur
meá reglulegum sparnaái
á Bakkjarli Sparisjóás vé lstj óra.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18, sími: 628577. - Síðumúla 1, sími: 685244.
- Rofabæ 39, sími: 677788.