Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Page 33
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
45
Sviðsljós
Ted Danson úr Staupa-
steini ástfanginn
- hitti þá einu réttu í kvikmyndaveri
Ted Danson, sem flestir kannast
við úr myndaflokknum Staupasteini,
sem sýndur hefur verið í sjónvarp-
inu, hefur verið talsvert í sviðsljós-
inu að undanförnu. Sagan segir aö
leikarinn megi helst ekki stíga inn í
kvikmyndaver öðruvísi en að verða
ástfanginn.
Það var við upptökur á myndinni
Made sem Ted varð ástfanginn af
leikkonunni Whoopy Goldberg. Eftir
skammvinnt ástarævintýri shtnaöi
upp úr hjá þeim. Síöan hófust upp-
tökur á Pontiac Moon. Þar hitti hann
Mary Steenburgen og það var ekki
að sökum að spyija. Það var ást við
fyrstu sýn og ljósmyndarar hafa ekki
haft undan að smefla myndum af
turtildúfunum þar sem leið þeirra
hefur legið um.
Upptökurnar hafa farið fram í
Arizona og Utah. Ted og Mary hafa
ekki farið leynt með þann hug sem
þau bera hvort til annars. Haft er
eftir einum starfsmanna kvik-
myndaversins að Ted hafi fylgt henni
hvert fótmál í kvikmyndaverinu
„eins og hvolpur“. Hann hafi jafnvel
staðið við hliðina á henni og látið
dæluna ganga meðan verið var að
farða hana.
Bæði fráskilin
. Ted Danson og Mary Steenburgen
eru bæöi fráskilin. Ted haföi verið
kvæntur í fimmtán ár en skildi við
konu sína, Casey, í fyrra. Mary var
gift Malcolm McDowell en hjóna-
bandið entist ekki nema í tíu ár. Þau
skildu árið 1990. Bæði Ted og Mary
eiga böm frá fyrri hjónaböndum en
kunnugir segja aö þaö sé ekki hið
eina sem þau eigi sameiginlegt. „Ted
og Mary hafa mjög svipaöar stjórn-
málaskoöanir," segir einn vina
þeirra. „Þau em eins og sköpuð hvort
fyrir annað."
Ted og Mary höfðu ekki þekkst lengi
þegar ástin blossaði upp. Þau hafa
verið óaðskiljanleg síðan.
Hamingjan leynir sér ekki í svip
hjónaleysanna.
Parið hefur farið i langar rómantískar gönguferðir þegar það hefur átt frí
frá kvikmyndaverinu.
Lyle Lovett rifjar upp gömul kynni
Rómantískt kvöld með
fyrrverandi unnustu
Óhætt er að segja.að athygli gesta í
nýafstöðnu plötupartíi hafi beinst að
kántrísöngvaranum Lyle Lovett og
Ashley Judd. Ashley er nefnilega
fyrrverandi unnusta Lovett og það
þykja miklir kærleikar meö þeim um
þessar mundir. Þau hafa meðal ann-
ars sést snæða saman á veitingahúsi
í Nashville þar sem þau sátu lengi
kvölds í innilegum samræðum.
Þetta þykir ekkert sérlega sniðugt
hjá Lyle kallinum, sem er kvæntur
„einni fallegustu leikkonu í heimi“,
eins og aðdáendur Júlíu Roberts orða
það. Aðrir benda á að honum sé
nokkur vorkunn því að þúsundir
kílómetra skilji hann og eiginkonu
hans. Bent er á að Lyle og Júlía hafi
aðeins veriö gift í sjö mánuði og ótrú-
legt að brestir séu komnir í hjóna-
bandið svo fljótt. Hvað sem því líður
þá er Júlía í Hollywood þessa dagana
en Lyle hefur verið að syngja um
allar trissur enda mun hann bókaður
marga mánuði fram í tímann.
Gömul ást
Ashley Judd, sem er dóttir kántrí-
söngkonunnar Naomi Judd og systir
Wyonnu, var í ástarsambandi við
Lyle fyrir tveim árum. Var fullyrt,
að Ashley, sem leikur í Systrunum,
sem nú er verið að sýna á Stöð 2,
heföi hafnað bónoröi Lovetts. Hann
hefur þekkt Judd-íjölskylduna í
mörg ár og sagðist svo ákveðinn í að
kvænast Ashley að hún varð að segja
honum að hægja á ferðinni. Meðan
Lyle var „úti í kuldanum" fór hann
að fara út meö menntaskólastelpu.
Hún bað hann að bíða eftir því að
hún lyki námi. Þá hitti hann Júlíu
Roberts og eftir stutt ástríðuþrungin
kynni gengu þau í það heilaga. Fjöl-
skyldur og vinir stóðu á öndinni því
aö enginn haföi átt von á hjónabandi
Lyle í góðum félagsskap. F.v.: Natalie Cole, Wyonna Judd, Naomi Judd,
hann sjálfur og Ashley.
svona fljótt.
En vegna anna hafa Lyle, sem nú
er orðinn 36 ára, og hin gullfallega
eiginkona hans, sem er tíu árum
yngri, aöeins verið saman í saman-
lagt fjórar eða fimm vikur, vanalega
tvo til þijá daga í senn.
Ólyginn
... að Madonna hefði þjáðst af
slæmum höfuðverk. Læknar
segja að slíkan höfuðverk fái
þeir sem tali of mikið í bílasima.
Slfk tæki eru komin á bannlista
hjá söngkonunni.
...að Claudia Schiffer siglí nú
um á snekkjunni Honey Fte sem
áður var I elgu Kennedys for-
seta. Kærastinn hennar, David
Copperfield, mun hafa keypt
hana fyrir nokkra milljónatugi.
... að söngvaranum fræga, Pa-
varotti, eigi ekki að verða skota-
skuld úr þvf að klæða af sér
vetrarkuldann. Hann mun nýlega
hafa pantað sex handprjónaðar
siðar nærbuxur sem eiga að
vernda hann frá kvefi og öðrum
hvimleiðum vetrarpestum.
... að Anna prinsessa muni
verða sú fyrsta ur ensku kon-
ungsfjölskyldunni sem heim-
sækir Víetnam. Þangað fer hún
í lok febrúar eftir að hafa dvalið
í Hong Kong.
... að Barry Manilow hafi beðið
eldri konu að taka lagið með sér
á sviðinu. í átakamikllllarfu flugu
fölsku tennurnar út úr konunnl.
Hún lét sér ekkl bregða, tók þær
upp, stakk þeim í vasann og
hélt áfram að syngja.
... að Martha Louise prinsessa
hefði tekið að sér aö vera vernd-
ari Barnaþorpanna SOS í Nor-
egi. Sagl hefur verlð frá starf-
semí þelrra hér á landi en það
munu vera 30 ár siðan hún var
sett á laggirnar í Noregi.