Dagur - 22.12.1969, Page 3

Dagur - 22.12.1969, Page 3
JÓLABLAÐ DAGS 3 Ólajur Try'ggvaóon. SAGT ER, að trúin ílytji fjöll, máttur kærleikans sé mikill og bænheitir menn geri kráflaverk. Víst er, að hugarorka mannsins ©r mikil, en vísindamenn hafa kosið, að leita fremur annarra sanninda með rannsóknum en að kanna hin ómældu orkusvið mannshugans og eru farnii’ að spígspora á tunglinu við mik_ inn fögnuð jarðarbúa 'áður en vísinda- leg vissa er fengin um orku þá og hæ'fi- leika, sem í okkur sjálfum býr, svo ekki sé nú minnzt á afdrif sála-rinnar eða hvort hún sé nokkur til þega-r umbúð- irnar eru orðnar ónýtar. Já, jafnvel kristnir menn deila um framhaldslíf og samband heimanna tveggja, jafnframt því sem þeir biðja anda framliðins manns um hjálp í nauðum. Hundruð, ef ekki þúsundir manna hér á landi bera því glaðir vitni, að þeir hafi hlotið hjálp frá þeim, sem horfnir eru yfir landamærin, með aðstoð fólks með dulargáfur. Hér á Akureyri var um langt skeið huglækningastofa, þótt aldrei væri hún auglýst og var hún miikið sótt og sálarrannsóknarfélög rannsaka margskonar dulræn fyrir- basri. Mörgunr þykja þau rök ekki nægi- lega sterk, að líf sé eftir þetta líf, og hafa ekki fengið órækai' sannanir fyrir því. Samt er skynsarnlegt að gera ráð fyrir því. Og ef menn vilja fallast á það, er jafn sjálfsagt að búa sig undir það og að hugsa 'fyrir morgundeginum, sem jafnan hefur verið háttur hygginna manna. En „morgundagurinn“, sá er bíður allra dauðlegra manna, er e-kki aðeins nýr dagur, heldur hlýtur hann að vera tengdur deginum í dag, vera fram'hald af honum sé 'hann til. En ganga má að því sem gcfnu, að með meiri þekkingu á andlegri orku manna og hæfileikum, framhaldslífinu og sambandi okkar við það, kynni enn ein heimsmynd að verða til og flcstum líklegri til að gjörbreyta viðhorfi mann- kynsins til lífsins hér á jörð — í feg- urðarátt —. Ef gengið er út frá því, að fólk með dulargáfur, sem kallað er, geti læknað líkamlega sjúkdóma manna, hversu líklegt er þá ekki, að margir venjulegi-r menn geti einnig læknað sjúka, ef beir leggjast á eitt og sameina andlega orku sína? Því svonefndar dulargáfur búa sennilega með hverjum heilbrigðum manni, eða andleg orka, hversu sem menn vilja skilgj-eina hana. En þessi spurning hefur oft komið í huga minn. Þegar svo frettir bárust af því, að hafin væri einhvarskonar ste-rfsemi í þessa átt, bæði hér á Akureyi’i og sunnan fjalla, er eingöngu byggðist á því, að hjálpa fólki með krafti bænar- innar og að þar væru litlir starfshópar að vci’ki og árangur undraverður, leit- aði ég frétta hjá Olafi Tryggvasyni huglækni á Akureyri. En hann er kunnur fyrir lækningar sínar og þykir maður kröftugur í andanum. Ilinir clulrænu hæfileikar fólks eru skilgreindir? Já, talað er um dulskyggni, dulheyrn,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.