Dagur - 22.12.1969, Page 29
JÓLABLAÐ DAGS
29
BOGIPÉTURSSON:
Einn dagur
vié
Ástjörn
Bogi Pétursson. (Ljósm. E. D.)
HLÝIR geislar sólar heilsa þessum nýja
degi á sumai'heimilinu Ástjöm í Keldu-
hverfi, þar sem dvelja rúmlega 40
drengir, og með starfsfólki er þarna yfir
50 manns. Logn er, því speglar tjörnin
umhverfið og friður rikir.
Klukkan er rétt að verða átta en þá
fara allir á fætur. Meðan beðið er eftir
klukkunni rabba drengirnir saman. Eitt
hið eftirsóttasta á slíkum morgni er að
fá að skreppa fram á spegilslétt vatnið,
og á örfáum mínútum eru allir bátam-
ir komnir af stað um vatnið.
En ekki verður lengi róið því klukk-
an um 9 hefst fánahylling og morgun-
verður. Eftir morgunverð er lestur úr
Ritningu, söngur og að lokum bæn til
Guðs um blessun og varðveizlu.
Þar sem veðurútlit er svo fagurt er
ákveðið að fara í Hljóðakletta, sem eru
13—15 km. frá Ástjörn, og er vegurinn
þangað illfær fólksbílum nema í þurru
veðri, en bílaikostur er 1 jeppi og 2
fólksbílar.
Drengimir eru mjög spenntir og allt
er á fleygi ferð, eins og eðlilegt er þegar
svo stór hópur er að taka sig upp.
, .Þetta ferðalag mun taka allan da'ginn,
og ráðskonan fær nóg að gera, því út-
búa þarf nesti. Klukkan um 11 fá ailir
graut eins og þeh’ geta í sig látið.
Klukfcan er um 11.30 þegar þeir
fyrstu fara af stað, en 3 fullorðnir fara
með.
Það er fögur sjón er blasir við þegar
komið er á brún Hljóðakletta, og einnig
hefur maður þá tilfinningu að óvíða
sjáist jafn margt stórkostlegt á ekki
stærra svæði en Hljóðaklettar eru.
Allsstaðar eru tjöld og ferðafólk, sem
sýnir að Hljóðaklettar eru eftirsóttir af
ferðamönnum.
Ekkert má tefja því margir drengir
bíða óþreyjufullir heima á Ástjöm.
Klukkan er farin að halla í 2 þegar all-
ir eru komnir. Nú fer talning fram og
jafnframt lögð á það áherzla að enginn
drengur megi yfirgefa hópinn. Fyrir
hópnum fara fullorðnir, einnig eru full-
orðnir aftast, svo hér á enginn að geta
týnst.
Samt fer ekki hjá því að maður finn-
ur glögglega að mikil ábyrgð er að fara
slíka ferð, og að þungt mundi okkur
öllum falia ef nokkuð kæmi fyrir, og
það er bæn og von að slíkt hendi e'kki.
Á göngu okkar finnum við marga
séi'kennilega hellisskúta og kletta, sem
er hreint ævintýri fyrir stráka að fara
um. Þá er komið að einum feikna stór-
um helli sem er í stórum bolla, þetta er
kölluð Kirkjan, samt virðist ekki
árennilegt að fara inn, því grjót virðist
mjög laust í lofti. Vegna þessarar hættu
er drengjunum bönnuð innganga í
Kirkjuna. Það gæti annars litið dálítið
illa út. Drengirnir eru ekki ánægðir að
fá ekki inn að ganga, en allar aðrar
kirkjudyr eru þeim opnar svo það ætti
ekki að koma að sök með þetta bann.
Eftir mikla og mjög skemmtilega göngu
er sest niður og reynt að fylla botn-
lausan magann. En ganga í svo dásam-
legu veðri og lofti er frískandi bæði
fyrh’ sál og líkama.
Klukkan er um 6 e. h. þegar farið er
að hugsa til heimferðar. Fólksbílamir
bíða upp á brún Hljóðakletta, en jepp-
inn hafði farið alla leið inn, það sem
komist verður. í fyrstu ferð fer ráðs-
konan, því hún þarf að fara að hugsa
um kvöldmat, einnig eru teknir
minnstu drengimir, hinir ganga að
fólksbílunum. Enn er lögð áherzla á að
allir haldi hópinn, því hættan er alls-
staðar, bæði Jökulsárgljúfur og öræfin
með öllum sínum hættum. Jeppanum
er ekið heim og verður hann talsvert á
undan fólksbílunum.
STROK OG LEIT.
Þegar bíllinn nálgast þann stað sem
fólksbílarnir höfðu fai'ið frá, sést hóp-