Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Fréttir
Engin VestQarðaaðstoð á sunnanverðum Vestflörðum?
Harma ef atvinnurek-
endur ná ekki saman
- segir Ólafur AmQörð, sveitarstjóri Vesturbyggðar
Frá höfninni á Patreksfirði. Þar er enn engin sameining og því ekki Vest-
fjarðaaðstoð í boði. Þarna gæti þó dregið til tíðinda á næstunni þvi eigend-
ur Straumness vilja yfirtaka Odda hf. DV-mynd JAK
„Þessi aðstoð var ekkert annað en
yfirklór. Upphæðin er bara tittlinga-
skítur og lögin þannig hönnuð að
þetta gat ekki bjargað nema fáeinum
útvöldum. Það ríkir hér uggvænlegt
ástand í atvinnumálum," segir Berg-
ur Torfason, stjómarformaður Fáfn-
is hf. á Þingeyri. Fáfnir hf. er ekki
lánshæfur til hluta Vestfjarðaaðstoð-
ar þar sem ekki eru möguieikar til
sameiningar við önnur fyrirtæki á
Vestfjörðum.
Þrjú fyrirtæki meö
100 milljónir
Vestfjarðanefndin hefur skilaö inn
tillögum um lán til þriggja fyrirtækja
á norðanverðum Vestfjörðum. Þar
er um aö ræða 100 milljónir eða þriðj-
ung þess fjár sem nefndinni er ætlaö
að gera tillögur um. Vandræðaástand
er nú vegna þess að enn hefur ekk-
ert fyrirtæki á sunnanverðum Vest-
fjörðum uppfyllt þau skilyrði sem
sett em svo til aðstoðar megi koma.
Það gæti farið svo miðað við stöðuna
núna að það færi sáraiitið eða ekkert
af þessari aðstoð á svæðiö sunnan
Önundarfjarðar.
Greiðslustöðvun á Þingeyri
Á Þingeyri er Fáfnir hf., lang-
stærsti atvinnurekandinn á staðn-
um, í greiðslustöðvun og fullkomlega
óljóst hvort það endar í gjaldþroti
fyrirtækisins. Lítil vinna hefur verið
í frystihúsi Fáfnis að undanfomu
enda er Sléttanes, eini togari fyrir-
tækisins, frystitogari. Togarinn
Framnes, sem aflaði hráefnis fyrir
frystihúsið, var seldur til ísafjarðar.
Þar með hefur Fáfnir ekkert skip
sem aflar hráefnis fyrir frystihúsið.
Smábátar á Þingeyri eru margir í
viðskiptum viö önnur byggðarlög.
Fréttaljós
Reyn i r Traustason
Greiöslustöðvun Fáfnis rennur út í
lok janúar nk. og þá skýrist væntan-
lega hvað verður um þennan höfuð-
atvinnurekstur á Þingeyri.
Sæfrost á Bíldudal lokað
Á Bíldudal er Sæfrost hf., sem var
aðalatvinnuveitandinn, í þeirri stöðu
að geta hvorki hfað né dáið. Fyrir-
tækið á hvorki skip né kvóta, aðeins
húsakost sem ekki hefur að geyma
atvinnustarfsemi. Byggðastofnun
seldi fyrirtækinu vélbátinn Stapa en
tók hann aftur og hefur nú selt hann
aftur til Kópavíkur sem er sameign-
arfyrirtæki fiskvinnslunnar í nausti
hf. á Bíldudal og Þórsbergs hf. á
Tálknafirði. Kópavík er trúlega eina
fyrirtækið á sunnanverðum Vest-
fjörðum sem á möguleika á að fá
hlutdeild í Vestfjarðaaðstoðinni. Það
grundvallast þó á því að Þórsberg
hf. nái að greiða úr sínum málum.
HT stærst á Tálknafirði
Á Tálknafirði er Hraðfrystihús
Tálknafjarðar stærsti atvinnurek-
andinn. Það fyrirtæki hefur verið í
samvinnu um veiðar við Straumnes
á Patreksfirði og er óljóst með hvaða
hætti það samstarf mun þróast á
næstunni. Ólíklegt er talið að það
fyrirtæki nái að uppfylla skilyrði um
sameiningu. Samkvæmt heimildum
DV er það einfaldlega vegna þess að
það fyrirtæki er sæmilega statt og
hentar því illa til samruna við hijáð
fyrirtæki.
Þórsberg, sem rekur fiskvinnslu á
Tálknafirði, er í nokkrum erfiðleik-
um, m.a. vegna gjaldþrots dótturfyr-
irtækisins Þórslax sem var í fiskeldi.
Það fyrirtæki varð gjaldþrota fyrir
skömmu og munu í framhaldinu ein-
hveijar ábyrgðir falia á Þórsberg.
Kópavík hf. samstarfsfyrirtæki þess
og Bílddælinga, er tahð líklegt til að
verða lánshæft eftir kaupin á Stapa
en auk þess á fyrirtækið vélbátinn
Lóm sem var keyptur af Þórsbergi.
Ekki sameining á Patró
Á Patreksfirði eru tvö stærstu fyr-
irtækin, Oddi hf. og Straumnes hf.,
ekki á sameiningarbuxum. Þar gæti
þó dregið til mikiha tíðinda á næst-
unni þar sem eigendur Straumness,
Guðfinnur Pálsson og Ólafur Stein-
grímsson, hafa fengið samþykkt inn-
an stjórnar Þróunarsjóðs tilboð sem
þeir gerðu í 44 prósent hlutabréfa í
Odda. Eftir er þó að bjóða starfsfólki
Odda og eigendum að neyta for-
kaupsréttar að hlutabréfunum. Verði
sú niðurstaða að eigendur Straum-
ness fái yfirhöndina er ljóst að
grundvöhur verður til þess að fyrir-
tækin sameinist og fái þar með Vest-
fjarðaaðstoð. Sú aðstoð gæti numið
allt að 100 milljónum króna.
Eins og staðan er í dag er þó ljóst
að þrátt fyrir hræringar í atvinnuhf-
inu er ekkert í hendi hvað varðar
sameiningu. Því geti svo farið að
sunnanverðir Vestfirðir fái lítið eöa
ekkert.
„Ég harma það ef það er staðreynd
að atvinnurekendur á sunnanverð-
um Vestfjörðum geti ekki náð saman
og nýtt sér fjármagn úr Vestfjarðaað-
stoðinni," segir Ólafur Arnfjörð, bæj-
arstjóri í Vesturbyggð.
Neytendasamtökin:
KæraStöð2
Neytendasamtökin hafa sent
Samkeppnisstofiiun kæru á
hendur Islenska útvarpsfélaginu,
eiganda Stöðvar 2, vegna áskrift-
arskilmála sem settir eru um
nýju myndlyklana. Neytenda-
samtökin kæra í kjölfar fjölda
kvartana sem borist hafa vegna
skilmáianna.
Lyfjakassa
stolið á BSl
Lyfjakassa, sem fara átti vestur
á land, var stolið á Bifreiðastöð
íslands, BSÍ, síðdegis í gær. í
kassanum voru m.a. nokkur
hættuleg lyf við inntöku, s.s.
hjarta- og taugalyf.
RLR rannsakar málið en sam-
kvæmt upplýsingum þaðan er
ekki um svokölluð eftirritunar-
skyld lyf að ræöa, þ.e. lyf sem eru
undir sérstöku eftirliti. Algengt
er að fíkniefnaneytendur reyni
að veröa sér úti um slík lyf.
Fílharmónía:
Tónleikar
eftirviku
Aðventutónleikar Söngsveitar-
innar Fíiharmóníu verða haldnir
á sunnudaginn eftir viku í Krists-
kirkju. Missagt var í DV í gær að
tónieikamir yrðu á morgun. Við-
komandi eru beðnir velvirðingar
á mistökunum.
Fimm unglingar dæmdir fyrir mjög gróf árásarmál:
Einn fékk eins
árs f angelsi
- lokað réttarhald vegna ungs aldurs ákærðu
Fimm piltar, 15-17 ára, fengu
fangelsisdóma í Héraösdómi
Reykjavíkur í gær þar sem þeir
voru sakfelldir fyrir gróf ofbeldis-
brot í fimm sakamálum sem áttu
sér staö fyrr á árinu. Um var að
ræða tvö rán meö grófu ofbeldi,
árás á mann með meitli þar sem
12 tennur brotnuðu og fleiri lík-
amsárásir.
Máhð var mjög umfangsmikið og
stóðu réttarhöldin sleitulaust yfir í
tvo daga. Þau voru lokuð vegna
þess hve sakborningamir eru ung-
ir. Einn af fimmmenningunum
fékk eins árs óskilorðsbundið fang-
elsi, annar fékk 4 mánaða fangelsi
en 2 skilorðsbundið en hinir þrír
fengu skilorðsbundna fangelsis-
dóma.
Einn af piltunum, 17 ára, var
dæmdur fyrir að hafa ráðist á og
slegið mann meö 30 sentímetra
meith með þeim afleiðingum að 12
tennur brotnuðu. Tveir af piltun-
um voru dæmdir fyrir að bijótast
inn í söluturninn Straumnes í
Breiöholti og ráöast síðan að manni
meö hnefahöggum og spörkum -
mann sem haföi stöðvað félaga
þeirra þegar þeir voru að flýja inn-
brotsstað. Maðurinn sem hand-
samaði félaga þeirra hlaut kinn-
beinsbrot, rifbrot eftir ítrekuð
spörk í síðu og annað nýrað rifnaði.
Annar phtanna sem var í lík-
amsárásinni við Straumnes var
jafnframt dæmdur fyrir að hafa
handleggsbrotið mann á sama stað
og félagi hans með meitilinn réöst
á annan.
Báðir piltarnir sem fóru inn í
Straumnes voru ásamt tveimur
öörum dæmdir fyrir að hafa ráðist
inn í verslunina Nóatún við Kleif-
arsel 18 þar sem þeir ógnuðu 18 ára
afgreiðslustúlku með hnífi. Henni
var skipað að opna afgreiðslukassa
og rændu piltarnir 113 þúsund
krónum úr honum. Þrír af piltun-
um voru auk þessa dæmdir fyrir
aö hafa ruðst grímuklæddir inn í
söluturn að Seljabraut 54 og valdiö
þar afgreiðslustúlku ótta en þeir
hurfu á braut án þess að hafa nokk-
uð upp úr krafsinu.
Sá sem þyngstu refsinguna hlaut,
12 mánaða fangelsi, tók þátt í
tveimur líkamsárásum og öðru
ráninu. Hann rauf skilorð meö
brotunum og var refsingin því höfð
óskilorðsbundin þrátt fyrir ungan
aidur. Sá sem braut tennumar í
manninum hiaut 4 mánaða fangelsi
en 2 skilorðsbundið vegna ungs
aldurs. Hinir þrír fengu 7-10 mán-
aða fangelsi en refsingarnar voru
hafðar skilorðsbundnar, meðal
annars vegna ungs aldurs þeirra.
Bijóti þeir aftur af sér verða þessar
refsingar dæmdar með.
Þó málið hafi verið umfangsmik-
ið lauk afgreiðslu þess hjá héraðs-
dómi á aðeins 24 dögum eftir að
ákæra var gefin út. Sverrir Einars-
son héraðsdómari kvað upp dóm-
inn. -Ótt
Norðurland vestra:
Átta í próf •
kjöri hjá
Framsókn
Öm Þóraiinsson, DV, Hjótum:
Framboðsfrestur fyrir prófkjör
framsóknarmanna á Norður-
landi vestra rann út 1. desember.
Átta manns tilkynntu þátttöku í
því og fer það fram 13.-14. jan-
úar. Kosníng verður bindandi
fyrir 4 efstu sætin.
Þeir sem gáfu kost, á sér eru
Elín R. Líndal bóndi, Lækjamóti,
V-Hún., Gunnar Bragi Sveinsson
verslunarmaður, Sauðárkróki,
Herdís Sæmundsdóttir leiðbein-
andi, Sauðárkróki, Magnús B.
Jónsson sveitarstjóri, Skaga-
strönd, Páh Pétursson alþingis-
maður, Höllustöðum, A-Hún.,
Stefán Guðmundsson alþingis-
maður, Sauðárkróki, Sverrir
Sveinsson veitustjóri, Siglufirði,
og Valur Gunnarsson oddviti,
Hvammsstanga.
Alþýðubandalagið:
Mun ekki vikja
fyrirÖnnu
GyJfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Máhnu hefur verið stillt þann-
ig upp að nauðsynlegt sé aö hafa
konu í 2. sætinu og ef það verður
niðurstaðan þá er ekkert vanda-
mál að fa í þaö sæti konu héðan
frá Siglufirði,“ segir Sigurður
Hlöðversson, formaður kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra, en mikill
kurr er vegna uppstilhngar á lista
flokksins sem fram fer um helg-
ina.
Sigurður skipaði 2. sæti listans
viö kosníngamar 1991. Þá var
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki, í 3.
sæti. Nú er gerð krafa um að þau
Anna Kristín og Sigurður hafi
sætaskipti. „Ég mun ekki víkja
fyrir Önnu Kristinu. Það er mik-
ill kurr hér á Siglufirði, við telj-
um okkur þurfa mann héðan í
sæti ofarlega á listanum," sagði
Sigurður.
Kvennalistinn:
Siðari umferð
viðuppstillingu
áReykjanesi
Síðari umferð við val á lista
Kvennahstans á Reykjanesi við
komandi alþingiskosningar er
hafin. Að sögn Ingibjargar Guð-
mundsdóttur, sem á sæti í upp-
stilhngarnefnd, er miðaö við að
Ijúka síðari umferðinni fyrir jól.
Þingkona Kvennahstans á
Reykjanesi, Anna Ólafsdóttir
Björnsson, verður ekki í fram-
boði að þessu sinni vegna út-
skiptareglu samtakanna.
Þórunn Sveinbjömsdóttir,
starfskona Kvennalistans, sagöi
að fyrirhugað væri að síðari um-
ferðin við val á lista í Reykjavík
hæfist 5. desember.
Kristín Einarsdóttir þingkona
verður ekki í framboði vegna út-
skiptareglunnar en Kristín Ást-
geirsdóttir þingkona er áfram
gjaldgeng í framboð.
Leiðrétting
í frétt í DV um framboðsmál
Alþýðuflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra var Sigurður
Arnórsson titlaður fram-
kvæmdastjóri fiokksins. Það er
rangt. Sigurður er gjaldkeri Al-
þýðuflokksins en framkvæmda-
stjóri hans er Siguröur Tómas
Björgvinsson. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum. :;