Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994 Bridge Bridgekvöld byrjenda Þríðjudaginn 29. nóvember var bridgekvold byrjenda og var spilaður eins kvölds tvímenningur að vanda. Hæstu skor í NS náðu eftirtalín pör: 1. Álfheiður Gísladóttir-Pálmi Gunnarsson 151 2. Árni Gunnarsson Kristrún Kristjánsdóttir 139 3. Hallgrímur Markússon-Ari Jónsson 137 - og hæsta skorið í AV: 1. Jón E. Bjarnason-Jóhann Jóhannsson 154 2. Þórdis Einarsdóttir-Birgir Magnússon 138 3. Finnbogi Gunnarsson -Urrnar Jóhannesson 128 Parakiúbburinn Síöasta þriðjudag, 29. nóvember, hófst tveggja kvölda tvímenningur og úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi: 1. Gróa Eíðsdóttir-Július Snorrason 190 2. Guörún Jóhannesdóttir-Sigurður B. Þorsteinsson 184 3. Jónína Pálsdóttir-Raih Thorarensen 169 4. Bryndís Þorsteinsdóttir-Sverrir Ármannsson 167 5. Guðlaug Jónsdóttir-Jón Ingi Björnson 164 Bridgefélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 28. nóvember var spiluö ein umferð í sveitakeppni félags- ins og staða efetu sveita eftir þrjár umferðþ- er þannig: 1. Vinir Konna 63 2. Dröfn Guðniundsdóttir 61 3. Sævar Magnússon 57 4. Erla Sigurjónsdóttir 55 5. Ólafur Ingimundarson 52 Næsta mánudag, 5, desember, kemur Bridgefélag kvenna í heimsókn og verður spiluð sveitakeppni á 10 borðum. Spilað er í íþróttahúsinu, Strand- götu, og hefst spilamennskan klukkan 19.30. The Boys í jólabakstri Rúnar og Arnar á fullu í jólabakstrinum. „Það erum við sem bökum fyrir jól- in. Áður varð mamma að hjálpa okk- ur svolítiö en nú getum við þetta allt sjálfir. Reyndar bökum við einnig oft á öðrum árstímum en það er skemmtilegast að baka fyrir jólin.“ Þetta segja The Boys, Rúnar og Arn- Yfir 30 gerOir af viöarrömmum. Verö frá 1900 kr. - Lyklaskápur 29x23 2900 kr. stgr. 111x50 cm 7300 kr. stgr. Fatahengi 17.800 kr. stgr. 84x63 cm. 12.100 kr. stgr 84x59 cm 7400 kr. stgr. 80x60 cm. 8300 kr. stgr. PöntenarÞföiuista OpMÍ alla daga 10-22 123x44 cm 7300 kr.stgr. Myndarammi 26x21 1250 kr. stgr. v/Josswgskirkjugarð - s. 40500 4 16541 ar Halldórssynir, í viðtali við Norsk Ukeblad. í viðtalinu kemur fram að vinsæld- ir The Boys séu svo miklar að fjöl- skyldan hafi orðið að fá sér leynilegt símanúmer. Ungir aðdáendur, og þá ekki síst stelpur, hafa mikinn áhuga á að ná sambandi við drengina. Rúnar og Arnar eru spurðir að því hvað íslendingar borði um jólin og þeir greina samviskusamlega frá hamborgarhryggnum, svínasteik- inni með rauðkálinu og hangikjötinu með uppstúfl og grænum baunum og svo auðvitað laufabrauðinu. Þeir nota tækifærið til að auglýsa íslenska lambakjötið og segja að kjötið sé al- veg frábært þar sem féð gangi villt. Strákarnir taka það fram að á ís- landi séu bakaðar sams konar kökur fyrir jólin og í Noregi, að laufabrauð- inu undanskildu og „konfektkökum" sem þeir segja bestu kökur í heimi. Þeir gefa lesendum uppskrift að konfektkökunum sínum og látum við hana fylgja hér með. Konfektkökur 200 g smjörlíki 300 g sykur 2 egg 275 g hveiti 1 tsk. lyftiduft 100 g möndlur 1 plata suðusúkkulaði Smjörlíki og sykur hrært saman þar tÚ það verður ljóst og létt. Súkku- laðið saxað og blandað saman við ásamt möndlum, hveiti, lyftidufti og eggjum sem sett eru í eitt í einu. Deigið er sett með teskeið á ofnplötu. Bakað við 180 gráður í 20 mínútur. Jólin ætla Rúnar og Arnar að halda í Noregi. Fyrir tveimur árum héldu þeir jól á íslandi en í fyrra voru þeir í Taílandi um jólin. Haustið hefur verið annasamt hjá bræðrunum þannig að jólafríið verð- ur kærkomið. Fyrr í vetur voru þeir á Ítalíu þar sem þeir tóku þátt í sjón- varpsþætti sem margar milljónir horfa á. „Við vorum ekkert tauga- óstyrkir. Við spiluðum og sungum fyrir þá sem voru í salnum og hugs- uðum ekki um alla þá sem voru að horfa á sjónvarpið," segja þeir Rúnar og Arnar í viðtalinu. í þættinum komu fram tuttugu efnilegir ungir skemmtikraftar og urðu The Boys meðal þeirra tíu bestu. Konfektkökurnar tilbúnar og foreldr- arnir, Halldór og Eyrún, fá að smakka. The Boys urðu meóal tíu efstu af tuttugu í itölskum sjónvarpsþætti þar sem ungir efnilegir skemmtikraftar komu fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.