Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Vísnaþáttur
Freysteinn
Gunnarsson
Freysteinn Gunnarsson fæddist
aö Vola í Flóa 28. ágúst 1892. For-
eldrar hans voru bændahjónin
Guöbjörg Guöbrandsdóttir og
Gunnar Jónsson, bæöi fædd og
uppalinn í Flóa. Freysteinn ólst
upp hjá vandalausu fólki í Hróars-
holti í Flóa.
Freysteinn lauk kennaraprófi
voriö 1913 með góðum vitnisburði,
en jafnframt kennaranáminu haföi
hann búið sig undir aö taka inn-
tökupróf í fjórða bekk mennta-
skóla. Haustið 1915 settist Frey-
steinn í guðfræðideild Háskólans
og lauk þaðan guðfræðiprófi árið
1919. Freysteinn gaf út tvær
ljóðabækur um ævina og heita þær
því látlausa nafni Kvæði er kom
út 1935 og Kvæði II er kom út 1943
og komu þessar bækur í einu kveri
1987 sem einnig var aukið frá fyrri
bókunum.
Nú þegar nótt gerist löng er þessi
vísa Freysteins við hæfi:
Skammdegismyrkrið skellur á.
Skyggir í svartan álinn.
Kvöldinu langa kvíðir þá
kroppurinn manns og sálin.
Eitthvað hefur Freysteinn haft
áhyggjur af draumfórum sínum
þegar hann kveður:
Hætt er við, og hætt er við,
að hugann illa dreymi.
Mikið er, hvað mikið er
af myrkri í þessum heimi.
Alltaf þótti það áfangi þegar
menn höfðu þreyð þorra því þá var
allra veðra von. Þessa vísu kveður'
Freysteinn til þorra:
Nú er bráöum nógu kalt.
Norðan heröist garður.
Út og fram er frosið allt.
Fjandi er þorrinn harður.
Ekki hefur þorri alltaf boðað
hregg og harðindi til handa búandi
lýð. Þessa vísu kveður Freysteinn
og til þorra:
Fagur dagur geðið gleður.
Gleymist amstrið hart og strítt.
Þetta er blessað þorraveður,
þurrt og bjart og lygnt og hlýtt.
Eitthvað hefur þorri verið mildur
það áriö er Freysteinn kveður:
Nú er kominn þorraþræll.
Þorri karlinn, farðu sæll.
Þinn var ekki harður hæll.
Hlægilega varstu dæll.
Næsta visa hefur fyrirsögnina
„Ársæll þýðir“ og trúi ég að henni
sé beint til Ársæls Ámasonar bók-
bandsmeistara og útgefanda. Eitt-
hvað fékkst Freysteinn við bók-
band, sérlega þó á efri árum eftir
að hann lét af störfum við Kenn-
araskólann og þótti honum ágæt-
lega til takast í þeirri iðn. Vísa
Freysteins til meistara Ársæls
hljóðar svo:
Sólskin og sumarblíða
sindrar um Laugaveg.
Þú hefur mikiö að þýða.
Þýðingarlaus er ég.
Næstu vísu er beint til bókar-
korns trúi ég og er þar um að ræða
skáldmennt meistara Kjarvals. Gaf
hann út bækurnar Grjót, Enn grjót
og Meira grjót. Þó að flestum bæri
saman um snilld meistara Kjarvals
þar sem myndin var annars vegar
lögðu margir fæð á ljóðgerð hans.
Einhverjum spekingnum varð það
að orði er nafngiftir bókanna bar á
góma að þær væru helst til harðar.
Vísa Freysteins er á þennan veg:
Enn má heyra yshvinþyt.
Enn er fátt um vinarhót.
Veröldin er ljót á Ut.
Langtum vantar meira grjót.
Eitthvað hefur orkaö sterkt á
bragðskyn Freystein er hann kveð-
ur:
Þegar ég finn af þessu bragð,
þá fer mér að hlýna,
eins og þú legðir ullarlagð
ofan á sálu mína.
Næsta vísa flytur göfugan boö-
skap en svo hljóðar hún:
Alla þá sem eymdir þjá,
er yndi að hugga,
lýsa þeim sem ljósið þrá,
en lifa í skugga.
Oft má heyra sultarkrunk frá
krumma er vetur herðir:
Hvorki býr viö borð né sæng
bjargast þó um vetur.
Svífur hátt á svörtum væng
soltið krummatetur.
Að lokum fylgja hér tvær hring-
hendar sólhvarfavísur frá hendi
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Freysteins. Eru vísur þessar til-
einkaðar vori og hausti og hafa
sömu orð að innrími. Hljóðar
haustvísan svo:
Lengist nótt um sólarsvið
sjást um óttu skuggar líða.
Brestur flótti í ljóssins lið.
Lamast nótt af vetrarkvíða.
En á þennan veg hljóðar vorvís-
an:
Styttist nóttin. Sjá má senn
sól um óttu í heiði skarta.
Myrkraflótta fagnar enn
foldardrótt með vor í hjarta
Stöðupróf í framhaldsskolum
Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun vorannar 1995
verða sem hér segir:
enska
málfræði, spænska, þýska
franska, ítalska, stærðfræði
danska, norska, sænska
miðvikud.4.jan. kl. 18.00
fimmtud. 5.jan. kl. 16.00
föstud. ó.jan. kl. 10.00
föstud. ó.jan. kl. 16.00
Stöðupófin eru opin öllum framhaldsskólanemendum
sem orðið hafa sér úti um einhverja þekkingu umfram
grunnskóla. Tilkynna skal þátttöku símleiðis til skrif-
stofu Menntaskólans við Hamrahlíð í síðasta lagi 30.
desember í síma 685140.
Matgæðingiir vikuimar
Léttrey kta r
lambakótelettur
Inger Helgadóttir, bóndakona í Skorradal, býður upp
á ljúffengan eftirrétt auk léttreyktra lambakótelettna
og innbakaðs lambalæris með fyllingu.
„Það góða við lambakjötið er að það má matreiða
það á margs konar hátt og fljótlegan líka,“ tekur Inger
fram.
Hún segist helst matreiöa eitthvað fljótlegt. „Það
vantar alveg eldhúshormónin í mig en ég er samt með
stórt heimili og margt fólk í kringum mig. Mér hentar
því betur að gera eitthvað sem er fljótlegt."
Léttreyjktar lambakótelettur
kótelettur
maltöl
rasp
pipar
Kóteletturnar eru lagðar í malt í 10 til 12 tíma. Velt
upp úr raspi með örlitlum pipar og steiktar í ofnskúffu
í 30 til 40 mínútur. Bornar fram með brúnuðum kartöfl-
um, soðinu af kótelettunum og rauðkáli. Einnig er
gott að hafa með tómata sem hafa veriö holaðir að
innan, fylltir með grænum baunum og hitaðir í ofni
augnablik. í stað kótelettnanna má hafa léttreikt
lambalæri skorið í sneiðar og er það þá matreitt á
sama hátt.
Fylltlambalæri
1 meðalstórt úrbeinað læri
salt og pipar
250 g sveppir
1 laukur
1-2 paprikur
3 msk. tómatsósa
smjörlíki
500 g smjördeig
Lærið er kryddað með salti og pipar, steikt í ofni og
látið kólna. Grænmetið í fyllinguna er saxað smátt.
Smjörlíkið brætt á pönnu, grænmetið látið út í og tóm-
atsósan og látiö malla um stund.
Fylhngin er lögð á lærið. Smjördeigið er flatt út og
brotið yfir lærið. Deigpakkinn penslaður með eggi og
bakaður við 200 gráður í 20 til 30 mínútur á neðstu
rim. Einnig má bera fyllinguna fram heita með steik-
inni.
í sósu notar Inger hálfan lítra af ijóma og einn pipar-
ost. Rjóminn er hitaður og osturinn bræddur í.
Inger Helgadóttir.
Súkkulaðiterta
11/4 dl sterkt kafFi
200 g suðusúkkulaði
200 g sykur
200 g smjör
3 egg
1 dl möndluspænir
Kaffi, suðusúkkulaði og sykur er brætt saman en
má alls ekki sjóða. Smjöriö er hrært saman við og
látiö kólna. Eggin eru þeytt vel og blandað saman viö.
Smjörpappír er settur í springform og smuröur vel
með olíu. 1 dl af möndluspónum er stráð í formið og
síðan er deiginu hellt út í. Bakað við 180 gráður í 40
mínútur. Tertan á að vera blaut þegar hún er tekin
út. Skreytt með rjóma og ávöxtum sem eru við hönd-
ina.
Inger skorar á Petrúnu Sveinsdóttur á Akranesi að
vera næsti matgæðingur. „Hún er mikill listakokkur
og lumar áreiðanlega á einhverju góðu.“
Hmhlíðin__________________
Afi er uppáhalds-
útvarpsmaðurinn
- segir Unnur Berglind Guðmundsdóttir dansari
Unnur Berglind Guðmundsdótt-
ir, sem á 17 ára afmæli í dag, hefur
æft dans frá því að hún var 6 ára.
Um síðustu helgi varð Unnur í öðru
sæti ásamt Jóhanni Emi Ólafssyni
í standarddönsum atvinnumanna í
danskeppni Dansráðs íslands.
„Ég ætla að feta í fótspor
mömmu, afa og ömmu að einhveiju
leyti. En ég er ekki viss um að dans
verði framtíðarstarf mitt,“ segir
Unnur Berghnd sem er dóttir
Hennýjar Hermanns danskennara.
AFi hennar og amma eru danskenn-
ararnir Hermann Ragnar Stefáns-
son og Unnur Arngrímsdóttir.
Fullt nafn: Unnur Berglind Guð-
mundsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 3. desember
1.977.
Maki: Ég á kærasta sem heitir Ólaf-
ur Helgi.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemandi í MR og danskenn-
aranemi.
Laun: Misjöfn.
Áhugamól: Dans, ferðalög og leik-
hús.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottó? Eg fékk einu sinni 11 rétta í
ensku knattspymunni.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að dansa og ferðast.
Unnur Berglind Guðmundsdóttir.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Sofa.
Uppáhaldsmatur: Kjötsúpa.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Norska dansparið
Kim og Cecile Rygel.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Keanu Reeves.
Ertu hlynnt eða andvíg rikisstjórn-
inni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Stjána bláa.
Uppáhaldsleikari: Felix Bergsson.
Uppáhaldsleikkona: Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Mariah Carey.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Þríburarnir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Kvik-
myndir.
Uppáhaldsveitingahús. Ég er hriFm
af japönskum veitingastöðum.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Rend mig i traditionerne.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Afl
minn, Hermann Ragnar Stefáns-
son.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Casa-
nova í Barcelona.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valur.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að klára stúdentspróf
og danskennaranámið.
Hvað gerðir þú í sumarfriinu? Ég
æfði dans og keppti. Ég sótti einnig
danskennararáðstefnur og svo fór
ég í vikufrí til Spánar.