Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Kvikmyndir
Tölvuleikir
á hvíta
tj aldinu
Atriði úr Mortal Kombat.
Þessa dagana liggur fyrir Alþingi frumvarp
um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldis-
kvikmyndum. Þar kemur fram að mennta-
málaráðherra sé heimilt að setja sérstakar
reglur um skoðun tölvuleikja. Ástæðan sé
sú að talsvert hafi færst í vöxt að tölvuleikir
innihaldi umtalsvert ofbeldi sem kunni að
vera háskalegt börnum og unglingum sem
lifi sig inn í leikina með beinni þátttöku fyr-
ir framan sjónvarps- eða tölvuskerminn.
Einn tölvuleikur hefur verið nefndur oftar
en nokkur annar hvað varðar ofbeldi. Það
er Mortai Kombat þar sem m.a. hetjan rífur
Umsjón
Baldur Hjaltason
hjartað úr andstæðingnum með tilheyrandi
blóðbaði. Nýlega var sett á markaðinn ný
útgáfa af þessum leik, Mortal Kombat II, sem
seldist fyrstu vikuna fyrir upphæð sem nem-
ur 3 milljörðum íslenskra króna. Talið er
að fyrri leikurinn hafi selst fyrir jafn háa
upphæð og aðstandendur Jurassic Park
fengu fyrir aðgöngumiðasöluna.
Fullkomnari tækni
Þaö sem einnig veldur áhyggjum er hve
grafík tölvuleikjcmna er að verða raunveru-
leg. Alltaf eru að koma nýjar útgáfur og betri
tækni og talið er að á næsta ári komi enn
fullkomnari útgáfa. Einnig er stutt í þrívídd-
arraunveruleikann á almennan markað sem
mun leiða til þess að böm og unglingar
munu eiga mun erfiðara með aö skilja á
milli leiksins og raunveruleikans. En þessi
gífurlegi áhugi á tölvuleikjum hefur einnig
leitt til þess að kvikmyndagerðarmenn hafa
séð sér leik á borði og nýtt sér þekktar tölvu-
leikjapersónur sem efni í gerð kvikmynda.
Áður vom það teiknimyndasögur sem vom
færöar yfir á hvíta tjaldið, eins og Batman,
Superman, Dick Tracy og Stjáni blái en núna
er komið að tölvuleikjahetjum.
Super Mario
Fyrstu tölvuleikjahetjurnar til að verða að
kvikmyndastjömum vom líklega Mario-
bræðurnir. Mario-bræðumir vom skapaðir
1985 af Nintento-fyrirtækinu þegar það setti
á markaðinn Mario-tölvuleikinn sem byggist
á því að notandinn þarf að fara gegnum átta
svæði með tilheyrandi erfiðleikum til að
geta bjargað prinsessu úr kastala. Síðan
fylgdi í kjölfarið Super Mario 2 og 3 þar sem
umgjörðinni var breytt en grunnhugmynd-
inni haldið óbreyttri. Þaö var töluvert lagt í
myndina. Þekktir leikarar voru fengnir, eins
og Bob Hopkins, sem lék annan bróðurinn,
og Dennis Hopper sem lék King Koopa.
Myndin varð ekkert sérstaklega vinsæl en
reyndist þó ágætis skemmtun. Hún er hins
vegar nokkuð frábmgðin Mortal Kombat
sem byggist meira á bardögum og blóðsút-
hellingum en ævintýmm.
Stórmynd
Mortal Kombat á að verða stórmynd og er
mikið lagt í hana. Það sem vekur hins vegar
forvitni er að engin stór nöfn fara með aðal-
hlutverkin heldur hefur fjármunum verið
varið þess í stað í sviðsmyndina sem mun
vera stórkostleg á köflum. Söguþráðurinn
er mjög einfaldur. Myndin fjallar um þrjá
keppendur sem em lokkaðir til að taka þátt
í bardagakeppni sem fer fram á dularfullri
eyju í Suður-Kínahafi. En þegar keppendur
eru komnir til eyjunnar kemur fljótlega í
ljós að meira liggur að baki en keppnin sjálf.
Keppendur dragast inn í valdabaráttu og
átök um heimsyfirráð þar sem tekist er á
um framtíð mannkynsins. Mortal Kombat
er því orðin nokkurs konar Star Wars okkar
tíma, eða það er allavega ætlun aðstandenda
myndarinnar.
Hörð samkeppni
Mortal Kombat mun fá töluverða sam-
keppni frá öðmm myndum sem byggjast á
tölvuleikjum. Það er von á Double Dragon
þar sem við sjáum meðal annars Robert
Patrick (Terminator) og svo Street Fighter.
Þar fer með aðalhlutverkið Jean-Claude Von
Damme ásamt Kyhe Minouge. Leikstjóri
Mortal Kombat er ungur Breti að nafni Paul
Anderson. Þetta er fyrsta myndin sem hann
gerir í Ameríku, eftir að hafa slegið í gegn
með myndinni Shopping sem var frumsýnd
á Sundance-kvikmyndahátíðinni í janúar
síðastliðnum. Anderson tilheyrir nýrri kyn-
slóð breskra leikstjóra sem líta upp til
þekktra leikstjóra og skammast sín ekki fyr-
ir að gera hasarmyndir. „Tilgangur minn,“
var nýlega haft eftir Anderson, „er að gera
myndir sem eru frumsýndar á Leicester
Square í stað kvikmyndahúsa sem sérhæfa
sig í listrænum myndum.“ Paul Anderson
tilheyrir því hópi leikstjóra á borð við Cris
Jones (White Angel), Vadim Jeans (Beyond
Bedlam) og Ngozi Onwurah (Welcome to
Terrordome), leikstjóra sem beita amerísku
aðferðinni til að ná fram spennu og hraða í
myndum sínum. Það var því rökrænt fram-
hald að láta Anderson spreyta sig veStan-
hafs á sinni næstu mynd. Tökum á mynd-
inni er um það bil að ljúka og hún verður
frumsýnd öðru hvorum megin við áramótin.
DV
Liklega hafa fáar myndir vakið eins mikið
umtal um ofbeldi í kvikmyndum og nýjasta mynd
Olivers Stones sem ber nafnið Natural Born Kill-
ers. Það verður að fára aftur allt til 1971 þegar
Stanley Kubrick gerði myndina A Clockwork
Orange eftir samnefndri sögu Anthonys Burgess
til að fá einhver samanburð. Þar fylgdumst við
með Alex Little og hvernig þjóðfélagiö tók á þess-
um ofbeldishneígöa unglingi og félaga hans. Likt
og þá á kvikmyndaeftirlit Bretlands erfitt með
að gera upp hug sinn gagnvart Natural Born
KiUers sem átti aö frumsýna þarlendis fyrr á
árinu. Það er búið að banna myndina í ír(andi en
í Bretlandi er enn verið að reyna að svara þeirri
spurningu hvað sé réttlætanlegt aö leyfa mikið
ofbeldi til að koma boöskap til skila án þess aö
skerða frelsi einstaklingsins til listsköpunar.
Hroðalegir atburðir
Þaö sem hefur ýtt undir umræðuna eru nýlegir
hroðalegir atburðir sem tengjast ofbeldi meðal
barna og unglinga. Allir muna eftir litla barninu
sem var myrt í Bretlandi af ungum strákum, án
nokkurs sýnilegs tilgangs, og svo nýlega morðið
á norska stúlkubarainu sem var myrt í viðurvist
annarra bama og svo siðast morð á sænskum
unglingi sem var myrtur af tveimur bræðrum,
aðeins nokkrum áram eldri.
Almenningur stendur ráðþrota gagnvart svona
atburðum og hefur reynt að finna skýringuna í
auknu áhorfi unglinga á ofbeldismyndir og notk-
un ofbeldiskenndra tölvuleikja. Fyrstu viðbrögð-
in eru að beita boðum og banni og reyna þannig
að hefta aðgang bama og unglinga að ofbeldis-
kenndu efni. En þetta er hægar sagt en gert.
Ábyrgðin hlýtur alltaf fyrst og fremst að hvíla
hjá foreldrunum, aö þeir gefi sér tima til að vera
með börnum sínum og kenna þeim að greina í
sundur rétt og rangt, raunveruleika sem óraun-
veruleika.
Víótæk umræða
Við sjáum hér á íslandi m.a. áhrif þessarar
umræðu í frumvarpi um bann við ofbeldiskvik-
myndum þar sem sex manna kvikmyndaskoðun-
amefnd á að skoða allar kvikmyndir sem ætlaðar
eru til sýningar og dreifingar hériendis og meta
hvort kvikmyndin sé ofbeldismynd í skilningi
laganna og einnig hvort hún sé viö hæfi barna.
Þetta mat verður alltaf einstaklingsbundið. í
dag eru flestar kvikmyndir sem sýndar eru hér-
lendis gerðar i Bretlandi eða Bandaríkjunum.
Þær eru merktar með leiðbeiningum frá kvik-
myndaefirlití viðkomandi lands eða álika eftir-
litsaðila hvað varðar lágmarks aldurstakmark
þeirra sem mega sjá viðkomandi mynd. Það verö-
ur forvitnilegt að sjá hvort við á Islandi metum
ofbeldi öðruvísi en þessi lönd sem eru ekki held-
ur alltaf sammála, eins og varðandi myndina
Natural Born Killers. Hún var leyfð til sýningar
í Bandaríkjunum en er enn í biðstöðu i Bretlandi.
Hvereru mörkin?
Nokkru eftir frumsýningu Natural Born Killers
í Fi-akklandi gerðist þá atburöur að franskt par
réðst á lögreglustöð og rændi vopnum og endaði
viðmeign þess við lögregluna með miklu blóð-
baði og mannfalli, Fjölmiðlar voru ekki lengi að
tengja þetta við frumsýningu myndarinnar þar
sem í ibúð þeirra skötuhjúa fannst kynningarefni
um myndina. Hins vegar hefur lögreglan ekki
getað sýnt fram á að skötuhjúin liafi nokkurn
tíma séð Natural Born Killers og þvi er tengingin
milli þessara atburða varasöm. Eftir atburöina í
Noregi ákvað sænsk sjónvarpsstöð sem sendir
út gegnum gervihnött að hætta útsendingum á
barnaefninu Mighty Morphin Power Rangers
meðan athugað var hvort krakkarnir sera frömdu
morðið hefðu fengiö fyrirmyndina úr þáttaröö-
inni. Þeirri spurningu, eins og öðrum álika, hefur
ekki verið hægt að svara og ætlunin er að hefja
sýningar fljótlega að nýju.
Teiknimyndir innihalda oft mikiö ofbeldi og þar
á meðal myndir frá Walt Disney. Mörg börn eru
hrædd þegar þau horfa á Mjallhvíti og setja má
spurningarmerki við það hvort þessar myndir
séu viö hæfi ungra barna. Allt ber þetta að sama
brunni, þ.e. spurningunni „hvar eru mörkin?"
Þau breytast án efa með nýjum tímum og munu
skapa umræöur og deilur á milli manna núna
eins og endranær. Hins vegar er hiö jákvæöa í
þessari umræðu að foreldrar átta síg nú miklu
betur á framboði og aðgengi barna og unglinga
að ofbeldiskenndu efni og ættu þvi að geta notað
þessa þekkingu sína til að vernda bömin sín og
fræða um þetta efni.