Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
23
DV
Launaþróun sjúkraliða
og hjúkrunarfræðinga
Svar fjármálaráðherra við fyrirspum á Alþingi:
Bilið ranilli sjúkra-
liða og hjúkrunar-
fræðinga breikkar
Fjármálaráðherra svarði í gær á
Alþingi fyrirspum frá Ólafi Ragnari
Grímssyni um launamuninn hjá
hjúkrunarfræðingum og sjúkralið-
um. Þar kemur í ljós það sem sjúkra-
liðar hafa haldið fram að launamun-
urinn hefur aukist.
Ólafur Ragnar spurði meðal ann-
ars um hver hefðu verið umsamin
mánaöarlaun sjúkraliða að meðaltali
í janúar 1990 og í október 1994. Sömu-
leiðis meðallaun hjúkrunarfræðinga
á sama tíma.
í svari fjármálaráðherra kemur
fram að umsamin laun sjúkraliöa
alls í janúar 1990 voru 57.701 króna
á mánuði. í maí 1993 voru þau 68.750
krónur og í október 1994 voru þau -
69.281 krónur.
Umsamin laun hjúkrunarfræðinga
voru alls í janúar 1990 77.552 krónur
á mánuði. í maí 1993 voru þau 91.702
krónur og í október 1994 voru þau
komin í 100.170 krónur á mánuði.
Skipulag vestursvæðisins á Seltjamamesi:
Verðlaunatillag-
an gerir ráð fyrir
aukinni byggð
- fuglaskoðunartumi 1 Bakkatjörn og Qölda vindmylla
„Miklar væntingar hafa verið
bundnar við samkeppnina, bæði í
bæjarstjóm og meðal bæjarbúa. Það
er von okkar sem að þessum málum
hafa starfað að með samkeppninni
muni takast aö ná fram markmiðum
hennar, sem meðal annars felast í
því aö marka og skapa samræmi
milli núverandi byggðar og útivistar-
svæðis,“ sagði Erna Nielsen, forseti
bæjarstjómar á Seltjarnarnesi, við
verðlaunaafhendingu í samkeppni
um deiliskipulag sem fram fór í gær.
Alls barst 21 tillaga í samkeppnina
og voru 11 þeirra valdar til nánari
athugunar. Fyrstu verðlaun hlutu
arkitektamir Ágústa Sveinbjörns-
dóttir, Helga Bragadóttir og Ingibjörg
Kristjánsdóttir. Tillaga þeirra gerir
ráð fyrir að byggð verði 28 sérbýli á
norðvesturhluta svæðisins og að ak-
vegur verði lagður að Nesstofu úr
norðri. í tillögunni er meðal annars
gert ráð fyrir vindmyllum, fugla-
skoðunarturni í Bakkatjörn og fjölda
göngustíga, til dæmis að Nesstofu úr
suðri.
Efnt var til samkeppninnar í kjöl-
far harkalegra deilna um skipulag
vestursvæðisins. Áform voru uppi
um að heimila umfangsmiklar bygg-
ingarframkvæmdir á svæðinu og
leggja hringveg yfir Nesiö vestanvert
við Nesstofu. Frá þessu var horfiö
eftir að bæjarbúar höfnuðu slíkum
hugmyndum í skoðanakönnun.
Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi minni-
hlutans í bæjarstjórn, segist sæmi-
lega sátt við vinningstillöguna og
segir umræðuna um skipulagsmál á
Seltjamamesi vera í góðum farvegi.
„Barátta okkar fyrir verndun
svæðisins hefur skUað árangri þvi
ella hefði meirihlutinn malbikað allt
svæðið. í ljósi þess að bæjarfélagið
er nú kallað skattaparadís eru engin
rök fyrir að byggja í peningaskyni,"
segirSiv. -kaa
Vinnuslys
Vinnuslys varð á Friðarhöfninni í
Vestmannaeyjum um miðjan dag í
dag þegar verið var að landa gámum
um borð í Bakkafoss, skip Eimskipa-
félagsins.
Verið var að færa stykkið sem flyt-
ur tíl gámana þegar það rakst utan
í einn skipverjann með þeim afleið-
ingum að hann fótbrotnaði Ula.
Stykkið er um 5 tonn að þyngd.
Vatnsflóð
Vegir fóru í sundur á nokkmm
stöðum á Austfjörðum í gær
vegna mikUla vatnavaxta. Verst
var ástandið í Skriðdal ,og innst í
Fáskrúðsfirði og Reyðarfiröi, auk
þess sem vatnið flæddi yfir sums
staðar. ÚrheUi var á Austfjöröum
frá miðnætti í fyrrinótt og fram
eftir degi í gær.
Fréttir
VETRARSK0ÐUN
Sigurvegariim 1 myndbandamálinu:
Voru8árað
afgreiða málið
- það tók Hæstarétt á fiórða ár að fá niðurstöðu
„Það voru teknar af mér eitt þús-
und spólur sem var helmingurinn
af videoleigunni. Síðan var bara beð-
ið með að skila þeim. Veltan varð
minni og minni hjá mér. Ég fór neðar
og neðar og átti sífellt erfiðara með
að kaupa efni. Mig vantaði helming-
inn af innkomunni. Lögreglan beiö
eftir að við færum á hausinn. Þetta
endaði með því að ég varð að selja
videoleiguna. Aðrir sem lentu í þessu
urðu áö gera það sama,“ sagði Ingi-
mundur Jónsson, fyrrum eigandi
Vídeóspólunnar við Holtsgötu sem
varð fyrir því árið 1986 ásamt öörum
að lögreglan ákvað að taka mynd-
bönd sem talin voru ólögleg.
Myndböndunum var skilað árið
1990. Hæstiréttur dæmdi ríkissjóð til
að greiða Ingimundi 200 þúsund
krónur í skaðabætur vegna málsins.
Þó svo að atburðirnir hafi átt sér stað
fyrir átta árum gerði dómurinn ríkis-
sjóði einungis að greiða dráttarvexti
frá uppkvaðningu dómsins á
fimmtudag. Þetta telur Ingimundur
í hæsta máta óeðlilegt miðað við þá
röskun á starfsemi hans og það íjár-
hagstap sem fylgdi í kjölfariö.
„Fólkið sem skipti viö mig hætti
að koma. Við vorum á tímabili álitn-
ir glæpamenn,“ sagði Ingimundur.
Ingimundur sagði að dómsmála-
ráðuneytið hefði dregið lappirnar
þegar lögmaður hans reyndi ítrekað
beið eftir að við færum á hausinn."
að spyrjast fyrir og reyna að fá gang
í málið. Það væri meö ólíkindum aö
átta árum eftir að spólurnar voru
teknar skyldi niðurstaða loks liggja
fyrir. Á þessu tímabili var Hæstirétt-
ur á íjórða ár með málið.
Fjögur önnur hliðstæð mál bíða
afgreiðslu í Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Ákveðið var að bíða með af-
greiðslu þeirra á meðan Hæstiréttur
íjallaði um mál Ingimundar en í því
fékkst fyrst lokaniðurstaða fyrir
dómi. -Ótt
Verðdæmi
kr. 5.950,-
F. 4 cyl. án efnis.
Þjónusta í
15 árf
ÁTJXK SF.^C
bílaverkstæði
Nýbýlavegi 24
200 Kópavogi
Símar 46040 - 46081
Hlúum að
börnum heims
- framtíðin
er þeirra
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI
- með þinni hjálp
SlÓNVARPSIVnÐSTÖÐIN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16