Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 26
26
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Heimssamtök mafíunnar færa út kvíamar:
Rússar leggj a
undir sig Evrópu
Spectre, hin illræmdu alþjóölegu
samtök sem Ian Fleming, höfundur
James Bond bókanna, skrifaöi um
eru nú til í raunveruleikanum.
Maííusamtök ýmissa landa hafa
myndað heimssamtök.
Þetta kom fram á ráöstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í síðustu viku í
Napólí þar sem fjallað var um
skipulagða glæpastarfsemi. Þátt-
tökuiönd á ráðstefnunni voru 140
og komust þau að samkomulagi um
að brjóta niður veldi maíiunnar sem
teygt hefur anga sína víða um heim.
En ekki voru öll þátttökuríkin
jafn áköf í að hefja stríö gegn glæpa-
samtökunum. Skýringin er sú að í
nokkrum ríkjanna hefur mafían
talsverð pólítísk áhrif. Þetta var
einkum áberandi þegar rætt var um
að rekja milljarða mafíunnar á fjár-
málamörkuðum. Bankaþjóðir eins
og Sviss og Austurríki eru mótfalln-
ar því að Sameinuðu þjóðimar gæg-
ist í bankareikninga hjá þeim.
Rússarborgaskatt
til amerísku maf-
íunnar
Innan lögreglunnar eru alheims-
samtök mafíunnar kölluð GOC sem
er stytting úr Global Organized
Crime eða Skipulögð alheimsglæpa-
starfsemi. Þessari starfsemi hefur
vaxið fiskur um hrygg eftir lok
kalda stríðsins. Landamæri hafa
opnast og ný tækni og nýjar sam-
göngur, auk heimsmarkaðar, hafa
auðveldaö útvíkkun samtakanna.
Stærstu samtökin eru mafían á
Sikiley, Cosa Nostra mafían í
Bandaríkjunum, fíkniefnahring-
irnir í Kólumbíu, rússneska maf-
ían, glæpasamtök í Kína og sam-
tökin Yakuza í Japan.
Þessi samtök útvega hvert ööru
markaðsaðild. Rússar borga skatt
til amerísku mafíunnar til að fá
hlut í glæpastarfseminni í Norður-
og Suður-Ameríku. Amerískir
mafíósar starfa í fyrrum Sovétríkj-
unum. Mafían á Sikiley hefur fært
út kvíarnar til Ítalíu og þaðan til
Frakklands, Hollands, Belgíu,
Þýskalands og Skandinavíu.
Mafíósar dulbúnir
sem innflytjendur
Samtímis breiðir rússneska maf-
ían út anga sína til Vestur-Evrópu.
Hún hefur náð fótfestu í Eystra-
saltslöndunum og Þýskalandi. Þaö
er haft eftir rússneska mafíusér-
fræðingnum Borís Uvarov að það
sem Rússlandi tókst ekki á tímum
kommúnismans muni rússnesku
mafíunni takast, nefnilega að
leggja undir sig Evrópu án þess að
Evrópubúar taki eftir þvi.
Dulbúnir sem innflytjendur geta
fulltrúar mafíunnar sest aö hvar
sem er í Evrópusambandslöndun-
um þar sem eftirlit hefur minnkað
á landamærum. Starfsemi ýmissa
stofnana í Evrópu er svo þung í
vöfum að Evrópusambandið hefur
ekki getað komiö á laggimar lög-
reglu í líkingu við bandarísku al-
ríkislögregluna. Evrópusambands-
löndin hafa ekki einu sinni getað
komið sér saman um sameiginlega
útvarpsrás fyrir lögreglu land-
anna. Mafían hefur hins vegar yfír
að ráða nýjustu tækni við undir-
- segir rússneskur mafíusérfræðingur
Einn af sikiieysku mafiósunum bak við lás og slá.
búning glæpa sinna.
Eina stofnunin sem er í stakk
búin til að berjast gegn alþjóðlegu
mafíunni er alþjóölega lögreglan
Interpol sem er með aðalstöðvar í
Lyon. Þátttökuríkin 140 sem sátu
ráöstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Napólí höfðu ekki mikinn áhuga á
að gera Interpol að eins konar At-
lantshafsbandalagi í baráttunni
gegn alþjóðlegu mafíunni.
Þaggað niður
í dómara
Sá sem fyrstur uppgötvaði alþjóð-
lega samvinnu mafíusamtaka var
ítalski dómarinn Giovanni Falcone
sem mafían myrti 1992. ítalskir
stjórnmálamenn voru tortryggnir
gagnvart tilraunum Falcones til aö
koma á fót alþjóölegri samvinnu
gegn mafíunni. Honum tókst þó að
sannfæra Helmut Kohl, kanslara
Þýskalands, um alþjóðlega starf-
semi mafíunnar.
Eftir lát Falcones upplýsti einn
af leiðtogum sikileysku mafíunnar,
Leonardo Messina, að mafíusam-
tök hans heföu frá 1980 tilheyrt
GOC. Samtökin héldu toppfund í
Varsjá 1991, í Prag 1992 og í Berlín
1993. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglumálaráðherra Israels, Moshes
Shahals, hélt rússneska mafían
nýlega toppfund á hóteli í Tel Aviv
í tilefni ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Napólí.
Neðanjarðar-
byggingar
í fyrra fékk alþjóðlega mafían eig-
ið ríki, Aruba. Það er 75 ferkíló-
metra stórt eyríki í Karíbahafi. Þar
eru neðanjarðarbyggingar eins og
í James Bond kvikmynd. Það var
sikileyska mafíuíjölskyldan Cun-
trera, sem býr í Venesúela, sem
keypti eyjuna. Alþjóðlega mafían
notar eyjuna sem fjármálamiöstöð
þaðan sem milljarðar dollara eru
fluttir til banka víðs vegar um
heim.
Viðskipti með fíkniefni eru aðal-
starfsemi alþjóðamafíunnar. Næst-
stærsta tekjulindin er viðskipti
með vopn. Auk margs konar ann-
arrar glæpastarfsemi skipuleggur
alþjóðamafían sölu á konum og
bömum vegna vændis og útvegar
fólk frá þróunarlöndum til ríkra
landa eins og Danmerkur.
Guðfaðirinn
íVilníus
Það eru ekki bara dómarar sem
eru myrtir vegna baráttunnar gegn
mafíunni heldur einnig blaða-
menn. Fyrir nokkrum vikum var
Borís Dekanidze dæmdur til dauða
í Vilníus í Litháen fyrir að hafa
skipulagt og skipað fyrir um morð
á blaðamanninum Vytas Lingys.
Eftir að hafa skrifað fjölda upp-
ljóstrandi greina um starfsemi
mafíunnar í Litháen var Vytas
skotinn til bana fyrir utan íbúö sína
13. október síðastliðinn.
Hinn dæmdi er sonur gyöings frá
Georgíu, Georgis Dekanidzes, sem
margjr telja vera guðföður maf-
íunnar í Vilníus. Georgi hefur
hagnast vel á inn- og útflutningi.
Hann fullyrðir að sonur sinn sé
Georgi Dekanidze, sem býr í Vil-
níus í Litháen, fullyrðir að hann
sé aðeins maður sem nýtur vel-
gengni i viðskiptum. Blaðamenn
eru hins vegar þeirrar skoðunar
að hann sé einn af æöstu mönnum
mafiunnar í borginni.
fórnarlamb í árangurslausri bar-
áttu lögreglunnar gegn vaxandi
glæpastarfsemi. Auk Borísar voru
þrír aörir handteknir vegna morðs-
ins á Vytas. Sá sem viðurkenndi
að hafa framið morðið sagði Borís
manninn á bak viö það.
Eftir morðið hefur blaðið Respu-
blika hert baráttuna gegn maf-
íunni. Ejórir blaðamenn, með
Audrius Lingys í fararbroddi, bróð-
ur hins myrta, vinna stöðugt að
nýjum uppljóstrunum um starf-
semi í undirheimunum. Talið er að
mafían tengist hótunum sem bár-
ust eftir dauðadóminn yfir Borís,
um að sprengja ætti kjarnorkuver
í loft upp. Hótanimar voru túlkað-
ar sem tilraun til að fá Borís látinn
lausan.
Sambönd viö
vafasöm fyrirtæki
Einn af sigrum blaðamannanna
var að við réttarhöldin slógu dóm-
arar því föstu að Borís tilheyrði
mafíunni. Audrius er þeirrar skoð-
unar að Borís og faðir hans, Ge-
orgi, hafi verið í náinni samvinnu.
Georgi hafi sambönd við vafasöm
fyrirtæki í ísrael og Belgíu og hafi
tengst vopnaviðskiptum. Blað
Audrius greindi til dæmis frá því
að lögreglan í Litháen heföi keypt
vopn og annan búnað frá maf-
íunni. Það er mat Audrius að maf-
ían hafi meira að segja sambönd í
stj órnmálaheiminum.
Georgi afneitar öllu sambandi við
mafíuna. Hann segir fólk öfund-
sjúkt yfir velgengni hans. Það sé
ekki auðvelt aö græða peninga í
Litháen. En hann kveðst sjá fyrir
sér að glæpastarfsemi í Austur-
Evrópu eigi eftir að vaxa ört á
næstu ámm. Það sé stríð í mörgum
af lýðveldum fyrrum Sovétríkj-
anna. Ungt fólk sé atvinnulaust og
nenni ekki að vinna á landsbyggð-
inni eða í verksmiðjum því það
þéni lítið á því. Það sé nóg ástæða
til að glæpum fjölgi.