Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 35
34
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
39
Kristín Á. Guðmundsdóttir sér ekki fyrir endann á kjaradeilu sjúkraliða við ríkið:
Óbilandi kjarkur
og baráttuvilji
- og jólunum verður bara frestað hjá sjúkraliðum
„Það hefur því miður verið lítið að
gerast í okkar málum og dagarnir
fara mikið í bið hér í Karphúsinu,"
sagði hin snaggaralega Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags íslands, í viðtali viö DV um
hádegisbilið á fimmtudag. Þá höfðu
sjúkraliöar beðið eftir fundi með
sáttanefnd ríkisins frá því klukkan
tíu um morguninn. „Við tókum þá
ákvörðun að láta ekki þreyta okkur
og erum því bara í Pollýönnuleik,"
svarar Kristín þegar hún er spurð
hvort þær séu ekki farnar að þreyt-
ast.
Verkfall sjúkraliða hefur nú staðið
í þrjár vikur og ekkert virðist ganga
eða reka í samningamálum þeirra.
Baráttugleði formannsins hefur vak-
ið athygli þjóðarinnar og er talað um
Kristínu sem einn fremsta verka-
lýðsforingja landsins um þessar
mundir. Almenningur hrífst af krafti
hennar og samstöðu félagsmanna.
í baráttunni fyrir
tveimur árum
Það eru nákvæmlega tvö ár síðan
Kristín varð áberandi í þjóðlífinu. í
desember 1992 lögðu sjúkraliðar nið-
ur vinnu í tvo sólarhringa til að
leggja áherslu á launakröfur sínar
og fylktu liöi í kröfugöngu niður
Laugaveginn með baráttuspjöld. Þá
voru sjúkraliðar aöallega að berjast
fyrir sjúkraliða á landsbyggðinni. í
viðtali við DV þá sagði Kristín:
„Verkalýðshreyfingin hefur verið
eitthvað bragðdauf á undanförnum
árum en ég held að það hafi virkilega
komið fram hjá sjúkraliðum að það
er ennþá líf í verkalýðshreyfing-
unni.“
Þessi orð geta vel átt við aftur núna
þegar sjúkraliöar taka sig enn til og
berjast af fullum krafti fyrir bættum
kjörum. Þegar Kristín var spurð
hvort henni væri ekki farið að leið-
ast hversu lítið gengi í samningavið-
ræðum var hún fljót til svars: „Að
okkar mati er samninganefnd ríkis-
ins umboðslaus til að taka nokkrar
ákvarðanir. Á meöan fjármálaráð-
herra og þeir sem í kringum hann
sitja sem æðsta vald taka ekki af
skarið hafa þessir. samningamenn
ekkert umboð til að gera eitt eða
neitt út fyrir þann ramma sem settur
er af ráðherra. Þannig að þaö er ekki
við samninganefndina að sakast og
við erum ekkert pirraðar á henni.“
- Þið erum þá bara gramar út í Frið-
rik Sophusson:
„Það eru ekki bara við í samninga-
nefnd sjúkrahða og allir sjúkraliðar
sem eru þreyttir á Friðriki heldur
aUur almenningur. Við höfum komið
því mjög vel til skila á þeim fundum
sem við höldum með sjúkraliðum á
hverjum degi að þaö sé ekki við
samninganefndina að sakast. Á
hveijum degi mæta 250-300 manns á
félagsfund hjá okkur."
Enginn sparnaður
- Er ekki ríkisvaldið bara að spara
sér einhveijar krónur með því að
hafa ykkur í verkfalli fram yfir ára-
mótin?
„Ég get ekki séð að þaö sé neinn
spamaður af þessu verkfalli. Þegar
tU lengri tíma er Mtið hefur verkfaM
meinatækna og síðan sjúkraliða
skapað það að biðMstar eftir aðgerð-
„Mér þykir eins og það sé einhver stefna í dag að fá þessa stéttaskiptingu upp aftur," segir Kristín þegar hún
var spurð hvort ekki væri litið niður á sjúkraliða en henni fannst stéttaskipting á sjúkrahúsunum minnka á tímabili.
um hafa lengst til muna. Þessir bið-
Mstar geta ekki lengst endalaust
þannig að trúlega verður að gera eitt-
hvað í þeim málum með því að fjölga
starfsfólki og þjónustustofnunum.
Þetta verður því ekki sparnaður
heldur þvert á móti.“
- Finnið þið ekki reiði frá því fólki
sem þarf að sinna sjúkum ættmenn-
um meðan þið eruð í verkfallinu?
„Það er alveg ótrúlegt hversu
margir hafa haft samband við okkur,
jafnt sjúklingar sem aðstandendur,
og lýst yfir stuðningi við okkur. Það
sem kannski fyrst og fremst hefur
komið upp hjá fólki er undrun á því
að sjúkraMðar séu á þessum lágu
launum í þessu erfiða starfi."
I kröfugöngu með
baráttuspjöld
Sjúkraliðafélag íslands er mjög
ungt félag. Fagfélag sjúkraliða var
stofnað fyrir 25 árum en stéttarfélag-
ið 11. maí 1991. Það liðu fimmtán
mánuðir án þess að sjúkraliðar hefðu
kjarasamning en þá fóru þær í að-
gerðirnar í desember 1992. „Viö litum
þannig á að búið væri að bijóta á
ráðningarsamningi okkar með þvi
að hafa okkur á allt öðrum kjara-
samningi en gilti í félaginu. Það sem
var þó aðalbarátta okkar þá var að
sjúkraliðar sem kæmu utan af landi
þyrftu ekki að lækka í launum við
það að ganga í félagiö. SjúkraMðar
hér á höfuðborgarsvæðinu fóru sem
sagt í aðgerðir til að hægt væri að
stofna landsfélag," útskýrir Kristín.
„Við létum til okkar taka á ýmsum
stöðum tM að vekja athygM. í desemb-
er 1992 fórum við í kröfugöngu, geng-
um á fund þáverandi borgarstjóra,
Markúsar Arnar Antonssonar, og
stóöum á þingpöllum meðan um-
ræða um sjúkraliða fór þar fram. Við
stóöum líka á Austurvelli tM að kalla
Friðrik Sophusson út og afhentum
honum áskorun um að gera eitthvað
í máMnu. Við unnum þá baráttu og
fengum það sem við vildum. Hins
vegar vorum við ekki komnar með
„Við tókum þá ákvörðun að láta ekki þreyta okkur og erum því bara i
Pollýönnuleik," segir formaður Sjúkraliðafélagsins m.a. í viðtalinu og telur
að sjúkraliðar séu kúguð stétt. Dagsbrún gaf Sjúkraliðafélaginu eina milljón
króna í verkfallssjóð og tekur Kristin hér viö henni frá Guðmundi J. Guð-
mundssyni. DV-myndirBG
kjarasamning en það átti að gerast á
samningstímanum. Skrifað var und-
ir samning 8. desember 1992 og síðan
hefur ekkert verið hreyft við okkar
málum. Þegar samningar urðu lausir
í febrúar 1993 urðum við fyrsta félag-
ið sem fór af stað tM að ræða við
samninganefnd ríkisins. Þá vissum
við að umræðan var öM á þá leið að
viðhalda þjóöarsáttinni og vorum
sammála því. Jafnframt því sem við
skrifuðum upp á þjóðarsátt var
ákveðið að unnið yrði að því aö klára
kjarasamninga við sjúkraliða á
landsbyggðinni. Það hefur bara ekk-
ert gerst. Samninganefnd ríkisins
var í lófa lagið strax þá að ganga frá
þessum samningum við okkur. Við
fengum enga svörun og þess vegna
dróst þetta á langinn."
Launabilið breikkað
„Þegar komið var fram í maí árið
1993 fórum viö aö líta í kringum okk-
ur og vissum að það var búið að
bæta verulega við laun hjúkrunar-
fræðinga á Borgarspítalanum og þá
voru aðrir hjúkrunarfræðingar
komnir í aðgerðir til að fá þaö sama.
Þá fórum við aö huga að hvort okkur
bæri ekki að fara fram á sams konar
kjarabætur fyrir okkar félagsmenn.
Þá lögðum við fram kröfugerð um
6% launahækkun þó við værum ekki
með neitt í höndunum um hvað
hjúkrunarfræðingar hefðu fengið
enda fóru þeir samningar fram með
mikMli leynd. Hins vegar vissum við
að lágmarkiö væri 6%. Einnig horfð-
um við til þess sem þroskaþjálfar
voru búnir að fá. Við geröum ekkert
annað en að bera okkur saman við
þær stéttir sem við störfum með.
Þessum kröfum okkar var hins vegar
algjörlega hafnað.
Viðræður voru aftur teknar upp
haustið 1993 og við héldum áfram að
skoða þessi mál þar til í maí á þessu
ári þegar við sáum aö kominn var
kjarasamningur við hjúkrunarfræð’-
inga, meinatækna, röntgentækna og
ljósmæður. Auk þess höfðu prestar
fengið launahækkun og dómarar
með sjálftöku. Þar af leiðandi sá
maður að þjóöarsáttin var sprungin.
Þá bentum við samningamönnum
ríkisins á að nú værum við ekki leng-
ur með þessi 6% á borðinu heldur
vildum við meira. Vil viljum koma í
veg fyrir að launabilið aukist. Okkur
hefur hins vegar verið boöin 4%
hækkun og á því strandar málið,“
segir Kristín.
Samningar
ekki sjáanlegir
- Þú sérð þá ekki fram á samninga
á næstu dögum:
„Nei, ég sé ekki fram á neina samn-
inga. Það virðist ekki vera skoðun
samningamanna ríkisins að það eigi:
að hækka láun fólks jafnt. Ég lít
þannig á aðþað séu láglaunastéttirn-
ar sem lögðu mest af mörkum í þjóð-
arsáttina og þær eigi að fá umbun
fyrir það núna. Það virðist hins vegar
vera þveröfug stefna hjá þessari rík-
isstjórn. Ég vil hins vegar að það
komi skýrt fram að þetta fólk, hjúkr-
unarfræðingar, röntgentæknar, ljós-
mæður og fleiri, er ekkert allt of
sælt af þeim hækkunum sem það
fékk. Þetta eru virkMega lágt launað-
ar stéttir í þjóðfélaginu og því já-
kvætt að þær hafi fengið einhverja
hækkun. Það má hins vegar ekki
koma í veg fyrir að aðrar stéttir fái
Mka hækkun og þá sérstaklega þær
sem lægra og verr eru settar í þjóðfé-
laginu."
Jólunum frestað
- Hvemig eru sjúkraliðar í stakk
búnir tM að takast á við svo langt
verkfall?
„FóMi kemst fyrst óg fremst af með
kjarkinum og af honum eiga sjúkra-
Möar nóg. Hins vegar er það stað-
reynd að það fer að sverfa fljótt að
fóMii um leið og það fær ekki sína
fyrstu útborgun. Þetta tímabil sem í
hönd fer og menn líta til með hryll-
ingi, að vera í verkfaMi um jól, er þó
heldur betra en ef verkfaMið hefði
verið eftir áramótin. SjúkraMðum er
í lófa lagið að halda engin jól. Hins
vegar, ef verkfallið hefði skoMið á um
áramót, væri búið að halda jólin og
eftir að greiða þau. Það geta fleiri
frestað jólunum en Castro."
t - Þið eruð þá ennþá uppfullar af
baráttuvilja?
„BaráttuvMjinn í sjúkraMðum er
ótrúlegur. Það hefur verið haft á orði
hjá sumum að þetta líkist helst trúar-
blindu. Kannski er þaö rétt en
sjúkraliðar eru orðnir svo lang-
þreyttir á þeirri stöðu sem þeir hafa
verið í. Þeir hafa veriö kúgaðir í
vinnu og kúgaðir kjaralega. Þegar
kúgun er gengin langt þá rís fólk
upp. Það hefur orðið gífurlegur flótti
úr stéttinni og þá sérstaklega á þeim
timum þegar auövelt var að fá vinnu.
Allir sem geta fengið vinnu annars
staðar eru farnir."
Týpísk kvennastétt
Um sjö hundruð sjúkraliðar eru i
verkfalli og flestallt konur. Kristín
segir að það sé ekki síst vegna þess
að þetta sé týpísk kvennastétt hversu
Mla starfið er launað. „Við erum ein-
mitt að súpa seyðið að því aö vera
hin týpíska kvennastétt."
- Það verður þó engin barátta háð
án foringja. Ert þaö þú sem hvetur
fólkið áfram svo það gefist ekki upp?
„Ég er sannfærð um að þaö þarf
forystu sem hefur skoðanir á málefn-
unum og hana hef ég. En ég er líka
með mjög sterkar forystumanneskj-
ur i kringum mig. Ég stend ekki ein
í þessu þó ég hafi mitt að segja.“
- Hvaðan kemur þessi kraftur. Ertu
pólitísk eða bara svona verkalýðs-
sinnuö?
„Ég hef ofsalega sterka réttlætis-
kennd. Ég hef líka skoðun á stjórn-
málum og legg eyrað eftir því hver
stefna flokka er. Hins vegar hef ég
ekki verið flokksbundin og ekki ein-
skorðað mig við einn flokk. Ef flokk-
ur sem ég hef kosið hefur ekki staðið
við þá stefnu sem hann hefur lofað
þá endurskoða ég stöðuna fyrir
næstu kosningar. Það er líka eitt sem
,r hrjáir mig, ef svo er hægt að segja,
f en ég á mjög erfitt með að hætta við
hálfklárað verk. Ég vil sjá árangur
af því sem ég byrja á.“
Eftirsótt starf
Kristín Á. Guðmundsdóttir er 44ra
ára gömul. Hún er gift Diðriki ísleifs-
syni og eiga þau þrjú uppkomin börn,
það yngsta tvítugt, og fjögur barna-
börn. Kristín er alin upp undir Eyja-
tjöllum og er hún næstelst sex systk-
ina. Faðir Kristínar, Guðmundur
Árnason, lést þegar hún var tólf ára
og ól móðir hennar, Sigríður Jóns-
dóttir, ein upp barnahópinn.
Kristín fór ung út á vinnumarkað-
inn en hún hefur alla tíð unnið innan
heilbrigðisgeirans. Hún starfaði m.a.
sem starfsstúlka við aðhlynningu á
Hrafnistu. Síðan flutti fjölskyldan til
Svíþjóðar en þar starfaði Kristín á
geðdeild. Skömmu eftir heimkomuna
hvatti vinkona hennar hana til að
koma með sér í sjúkraMðanám sem
hún lét verða af.
- Hefur ekki sjúkraliðastarfið verið
töluvert vinsælt í gegnum tíðina?
„Á sínum tíma þegar byrjað var
að mennta sjúkraliðastéttina fóru
margar fullorðnar konur á sjúkra-
Mðanámskeið sem sjúkrahúsin voru
með. Síðan varð þetta meira nám
sem fór inn í fjölbrautakerfið og þá
varð mikM aukning af ungu fólki. Við
þessa breytingu varð námið líka opin
leið upp í frekara nám, t.d. hjúkrun-
arfræði í Háskóla íslands. Mín skoö-
un er sú að það eigi að nýta betur
menntun sjúkraMða því þær fá mjög
góðan grunn. Þeim sjúkraMðum sem
hafa farið i hjúkrunarfræði í Háskól-
anum hefur gengið betur en öörum
vegna þessarar undirbúningsmennt-
unar.“
Mikil stéttaskipting
- En hefúr ekki einmitt verið litið
niður á sjúkraliða á heMbrigðisstofn-
unum?
„Þegar ég byrjaði að vinna á
sjúkrahúsi sem starfsstúlka sá ég vel
þennan píramída sem er á sjúkra-
húsunum. Þetta var á þeim árum
sem sjúkraMðamenntunin yar að
byrja á Landspítalanum. Ég var
neðst í tröppunni sem starfsstúlka
og sá ótrúlega stéttaskiptingu. Hún
var svo mikM að námsbúningur
Kristin Á. Guðmundsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Diðriki Isleifssyni. Hún hefur ekki haft mikinn tíma fyrir fjölskyldu sína undanfarið og segist vera
þessi nútíma amma sem hafi engan tima fyrir barnabörnin. DV-mynd ÞÖK
sjúkraliða var eins og rauðröndóttur
fangabúningur á meðan búningur
hjúkrunarnema var í englabláum lit.
Síðan breyttist þetta og búningar
urðu líkari og mér fannst eins og
þessi stéttaskipting hefði minnkað
með árunum. Hins vegar þykir mér
eins og það sé einhver stefna í dag
að taka þessa stéttaskiptingu upp
aftur. Þaö er mjög reynt til þess.
Maður heyrir t.d. að það þurfi að
fara að breyta búningum og það yrði
þá tM að draga fólk í ákveðna flokka.
Það er mikil synd að fólk skuli ekki
reyna að vinna betur saman sem ein
heMd. í Noregi hefur sjúkraliðafélag-
ið útnefnt hjúkrunarforstjóra ársins,
hjúkrunarfræðing éða lækni, sem
þykir hafa unnið að því að vinna vel
með öðrum stéttum."
Stuðningur
frá fjölskyldunni
Kristín fór í sjúkraliðanámið 1981.
Mörgum þótti hún áræðin aö leggja
í þriggja ára nám með lítM börn þar
sem maður hennar vann mikið úti á
landi. Hún segir að þótt það hafi ver-
iö erfitt hafi hún ákveðið að ljúka
náminu og segist hafa rekið alla að
heiman þegar hún lá yfir skólabók-
unum fyrir prófin. „Þá héldu margir
að ég væri oröin koxrugluð," segir
hún. Kristín hefur unnið á skurð-
deMd Landspítalans síðan. Þrátt fyrir
að formennskan í Sjúkraliðafélaginu
sé fuMt starf hefur Kristín kosið að
gegna 50% vinnu á spítalanum með
fram því. Ég fæ góöan stuðning frá
fjölskyldunni í þessari baráttu
minni."
Kristín hefur komið skörulega
fram í fjölmiðlum og margir hafa
undrað sig á hversu örugg hún er.
„Ég hef bara það mottó aö vera ég
sjálf. Ef hlutirnir ganga ekki upp í
samræmi við skoðanir mínar þá hef
ég ekkert að gera í þessu starfi. Ef
þeir hins vegar gera það þá er aMt í
góðu lagi. Ég hef fengiö mikið af upp-
hringingum frá fólki sem vill þakka
mér og hvetur okkur áfram."
- En Mggur ekki beinast við fyrir þig
að fara í póMtík?
„Ég hef ekki haft áhuga á því hing-
að tM. Mér hefur oft á tíðum fundist
það andrúmsloft sem ríkir í kringum
stjórnmálamenn mannskemmandi,"
segir Kristín Á. Guömundsdóttir,
formaður SjúkraMðafélags íslands.