Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
41
Yfirburðir mark-
aðsbúskapar
ARNE JON jSACHSEN - GARL B. HAMiLTON
RORVALDUR GVLFASON
Menning
Rauði kross íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722
i ii i ii 11 iiiiiiii m
Hrun sósíalismans í Sovétríkjun-
um og Austur-Evrópu hefur skapað
mikla þörf þar fyrir vörur, þjónustu
og hugmyndir frá markaðsþjóðfélög-
um Vesturlanda. Eitt af því sem
skortur reyndist á var þekking á leik-
reglum frjáls viðskiptalífs og lögmál-
um efnahagsstarfseminnar á frjáls-
um markaði. Þessi bók er tilraun til
að Veita slíka fræðslu og hefur að
mér skilst hlotið góðar undirtektir í
Eystrasaltsríkjunum og Austur-
Evrópu.
Bókinni er skipt í fjóra meginkafla.
í hinum fyrsta er fjallað um grund-
vallarhugtök hagfræðinnar og
hvernig fræðigreinin er notuð til að
skýra og skilja efnahagslega starf-
semi. í öðrum hluta er fjallað um það
hvernig markaðsbúskapur gengur
fyrir sig og um kosti hans og galla.
í þriðja hluta er lýst ýmsum nútíma-
hugmyndum um ríkisíjármál,
vinnumarkað og fjallað um hlutverk
ríkisins í hagkerfinu. Loks er í fjórða
hluta bókarinnar vikið að sérstökum
úrlausnarefnum sem upp koma við
einkavæðingu viö umskiptin frá sós-
íalisma til markaðsbúskapar.
Markmið sitt segja höfundarnir
vera „að útskýra, í sem allra einfcld-
ustum dráttum, hagfræðileg hugtök
og efnahagslegt samhengi sem lítt
hefur komiö við sögu í Mið- og Aust-
ur-Evrópu og fáir fengið glöggan
skilning á.“ (34).
Þetta er læsileg bók, rituð af hóf-
semi og yfirvegun, og þannig úr garði
gerð að hugmyndir og kenningar
markaðshagfræðinnar ættu að vera
skiljanlegar þeim sem lítt hafa leitt
að þeim hugann fyrr. Og velgengni
bókarinnar erlendis kemur ekki á
óvart í ljósi þess hve vel hún tekur
á ýmsum raunhæfum viðfangsefn-
um og vandamálum sem hljóta að
blasa við í sósíalísku hagkerfi sem
komið er á leiðarenda.
Það er svo annar handleggur hvort
bók sem skrifuð er til að endurhæfa
sósíalista og sósíalískt þjóðfélag eigi
sérstakt erindi við íslendinga. Margt
í þessari bók verkar framandi á ís-
lenskan lesanda. Þótt stjórnlyndi og
opinber forsjá hafi í allt of ríkum
mæli einkennt efnahagslíf hér á
landi eru aðstæður okkar mjög frá-
brugðnar því sem þekkist í Austur-
Evrópu. Ráð sem þar duga og leiðir
sem þar eru æskilegar eru ekki endi-
lega við hæfi hér á landi. Engu að
síður er ástæða til að fagna útkomu
þessarar bókar sem er ánægjuleg
viðbót við mjög nauman bókakost á
íslensku um hagfræðileg efni.
th'Ór
Stálvaskar
Besta verð á íslandi
NÁMSKEIÐ UM
ÍSLENSKT
ÞJÓÐFÉLAG FYRIR
ENSKUMÆLANDI
NÝBÚA
Rauði kross Islands heldur námskeið fyrir enskumæl-
andi nýbúa um uppbyggingu þjóðfélagsins, réttindi og
skyldur íbúanna, heilbrigðis- og menntakerfi og fleira.
Námskeiðið fer fram á ensku. Fjölrituðum bæklingi
sem félagsmálaráðuneytið hefur látið gera og þýða á
ensku verður dreift á námskeiðinu.
Staður: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Tími: Þriðjudagurinn 6. desember kl. 20.00-23.00 og
þriðjudagurinn 13. desember kl. 20.00-23.00.
Skráning: Skrifstofa RKÍ, sími 91-626722 fyrir kl. 17.00
þann 5. desember.
VerðrNámskeiðið er ókeypis. Boðið verður upp á kaffi
og te.
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. kl. 10-16
1 'A hólf + borö
Kr. 1 0.950
Bókmenntir
Guðmundur Magnússon
Ágúst Einarsson prófessor ritar
fróðlegan formála að íslensku útgáf-
unni og rekur þar m.a. íslenska hag-
sögu síðustu áratuga. Guðmundur
Ólafsson hagfræðingur hefur svo
tekið saman skrár um hugtök og
mannanöfn fyrir íslensku útgáfuna
og þótti mér nokkur sérviska ein-
kenna þá samantekt. T.d. má vera
að „laushalastefna" þykið fyndið orð
yfir „laissez faire“, en það hæfir tæp-
ast virðulegum hagfræðitexta.
Markaösbúskapur
Arne Jon Isachsen, Carl B. Hamilton og
Þorvaldur Gylfason
Helgi Skúli Kjartansson þýddi
Heimskringla 1994
286 bls.
11 gerðir af eldhúsvöskum á
frábæru verði.
Einnig mikið úrval af blönd-
unartækjum. Verslun
fyrir
alla
A COURSE ON
ICELANDIC
SOCIETY FOR
ENGLISH SPEAKING
PEOPLE LIVINGIN
ICELAND
The Icelandic Red Cross is holding a course for Engl-
ish speaking people living in Iceland on the structure
of Icelandic Society, the rights and obligations of the
inhabitants, health services, educational system etc.
The course will be held in English. A booklet publis-
hed by the Ministry of Social Affairs „Icelandic Law
and Icelandic Society" which has been translated into
English will be distributed on the course.
Place: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Time: Tuesday 6th of December from 8 p.m. to l l p.m.
andTuesday 13th of Decemberfrom 8 p.m. to 11 p.m.
Register: Icelandic Red Cross Office, tel. 91-626722
before 5 p.m. on the 5th of December.
Cost: The course is free. Coffee and tee will be served.