Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Page 39
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
43
Nóri fer á kostum og frændfólk
hans er ekki að skafa utan af
þwí frekar en fyrri daginn.
Steffens
Mikið úrval af falleg-
um drengjafatnaði í
stærðum 128-173 cm
Skyrtupeysa
m/hettu
kr. 3.495,-
10% staðgrefðsluafsl.
Ekkert
póstkröfugjald
Bókaútgéfan
Fex: 2 75
steffens
- segir Baldvin Kr. Baldvinsson
Jóharma S. Sigþórsdóttir, DV, Laugum:
„Það er óskaplega erfitt að selja
sjálfan sig. Ég hélt að það yrði erfið-
ast að syngja inn en það reyndist
vera auðveldast þegar upp var stað-
ið.“
Þetta segir Baldvin Kr. Baldvins-
son, bóndi í Torfunesi, sem hefur
ráðist í að gefa sjálfur út geisladisk
með eigin söng. Hann lagði land und-
ir fót í sumar þegar aðrir bændur
voru í heyskap og hélt suður þar sem
hann fékk nokkra snillinga til liðs
við sig. Og draumurinn varð að veru-
leika: diskurinn góði er kominn út.
Baldvin hefur sungið mjög mikið,
einkum síðastliðin þrjjú ár, á ýmiss
konar samkomum. „Ég hef verið að
reyna að þróa mig og mér er sagt að
það hafi skilað árangri. Það er stefn-
an að reyna að verða betri og betri.
Maður syngur ekki á gamalli frægð
heldur verður maður að sanna sig í
hvert skipti sem maður kemur fram.
Það er nú oft svo með þá sem hafa
sungið við jarðarfarir í sínu heima-
héraði og sígildar perlur og dægurlög
við alls konar athafnir og samkomur
að farið er að tala um að það þurfi
að festa þá einhvers staðar til að
geyma röddina. í alltof mörgum til-
fellum hefur verið farið í þetta allt
of seint þannig að fólk hefur verið
farið að missa sitt besta. Án þess að
mér finnist nokkuð vera farið að
halla undan hjá mér þá var upphafið
það að mig langaði til að taka upp
það „prógram“ sem ég hafði verið
með. En diskur var ekki inni í mynd-
inni í upphafi heldur ákvað ég að
fara í upptöku til að eiga þetta á
bandi. Ýmsir höfðu nefnt þetta við
mig og hvatt mig en útslagið gerði
að bankastjóri íslandsbanka á Húsa-
vík hvatti mig mjög eindregið og hef-
ur stutt mig mjög í þessu dæmi. Þeg-
ar ég var búinn í upptökum og hafði
fundið hvernig þetta virkaði ákvað
ég að láta vaða og gefa út disk. Það
blundar alltaf í manni að fást við eitt-
hvað sem vekur spennu.“
Gaman að vera
öðruvísi en aðrir
Baldvin býr með fé og hross en
hefur jafnframt sungið á ýmsum
samkomum eins og áður sagði. Auk
þess er hann á kafi í félagsmálum.
Hann hefur því í nógu að snúast eins
og nærri má geta.
„Þetta var rosavinna, sérstaklega
af því að ég gef diskinn að öllu leyti
út sjálfur. Eg var við upptökur í ágúst
þegar aðrir bændur voru að heyja.
Ég hef alltaf gaman af því að vera
öðruvísi en aðrir og vissulega þarf
svolítið áræði til að leggja út í þetta.
Það blundar alltaf undir niðri í mér
visst keppnisskap, að takast á við
þetta eins og annað.
Ég er að framleiða landbúnaðar-
vörur og til dæmis í kjötinu hef ég
óskaplega lítið um það að segja sem
einstaklingur hvernig markaðssetn-
ingin fer fram. Ég er orðinn hund-
leiður á því. Ég vanda mig eins og
ég get við að fá betra kjöt, meira kjöt
af hverjum grip og þar fram eftir
götunum. En í sjálfu sér fær neytand-
inn aldrei að segja neitt um það hvað
honum finnst um mína framleiðslu.
En þessa afurð, það er diskinn, get
ég verið með án allra kvóta og kvaða
frá öðrum. Það er ég sjálfur sem tek
þessa ákvörðun, ég sjálfur sem tek
Qárhagslega áhættu, dreifi þessu og
stend og fell meö mínum gerðum.
Nú fæ ég viðbrögð frá neytendum
beint í æð. Nú get ég ekki sagt, eins
og við bændur segjum gjarnan, að
það hafi verið aðrir sem hafi klúðrað
þessu.“
Baldvin segist vera mjög ánægður
með útkomuna. Vinnslan sé eins og
best verði á kosið í höndum Didda
fiðlu sem sé raunar „algjört náttúru-
barn“ á þessu sviði. Auk hans valdi
Baldvin meðal annars til samstarfs
snillingana Reyni Jónasson harmon-
íkuleikara og Szymon Kuran fiðlu-
leikara. „Þetta eru meiri háttar snill-
ingar og það var hreinn skóli að
vinna með þeim. Hvað varðar Szym-
on Kuran þá er þar heimsfrægur
maður á ferðinni og maður gat látiö
sér detta í hug að honum fyndist
ekki mikið til um þennan afdala-
bónda að norðan sem væri að reyna
að ropa eitthvað í stúdíói, en það var
meiri háttar að vinna með honum.
Mig langar að koma sérstökum þökk-
um til þessara aðila og annarra sem
komu við sögu.
Og nú er diskur norðlenska bónd-
ans kominn út og er í stöflum heima
í Torfunesi. Og þá liggur fyrir að
koma afurðinni til kaupenda.
„Eftir mikið ferli sem ég þurfti að
fara í gegnum með þetta kom að
þeirri stund aö ég var kominn með
kassana hingað heim, fulla af disk-
um, pg þá féllust mér hreinlega hend-
ur. Ég er búinn að spyrja mig dag
eftir dag: Hvemig ætlar þú að fara
að þessu, góði? Ætlar þú að fara heim
á bæina og segja: Ég er búinn að
syngja inn á geisladisk, viltu ekki
kaupa einn? Mér finnst það alveg
skelfilegt.“
í Torfunesi
Dæmið lítur ekki eins illa út og
ætla mætti af orðum Baldvins. „Ég
var svo heppinn að formaður karla-
kórsins hérna hringdi í mig í hádeg-
inu í dag og bauð mér að kórinn sæi
um dreifingu á þessu fyrir mig. Ég
er óskaplega þakklátur fyrir það. Svo
hafa ótrúlega margir haft samband
við mig og pantað disk. Japis tók
hann einnig í verslanir hjá sér á
Reykjavíkursvæðinu og Suðurlandi,
þannig að það er mikið þungu fargi
af mér létt. Mér sýnist byrjunin vera
þannig að ég þurfi að panta viðbót
við það sem ég hef þegar fengiö."
í Bankabókinni fer lesandinn ó
bak viö tjöldin í peningastofnunum
landsins í fylgd með Nóra, sögu-
manninum úr „Kolkrabbanum", og
faer m.a. að gaegjast inn þar sem
útvalin stónmenni á þneföldum
ráðhemalaunum sitja í góðu
yfinlaeti við að ákveða vexti,
venðbaetur og þjónustugjöld
handa þér að bonga.
Vissin þú að útlánatöp
síðustu þniggja éna jafngilda
venðmaeti allnan byggðan í Bneiðholti?
Vissin þú að Seðlabankakónguninn van
sömuleiðis stjónnanfonmaðun þess
fyninteekis sem sló metið i tapneksthi á
(slandi 1 003 og skuldan meina en allun
íslenski sjávanútveguninn samanlagt?
Þingeyskur bóndi gefur út eigin geisladisk:
Óskaplega erfitt
að selja sjálfan sig
Baldvin í Torfunesi með diskinn.
DV-mynd JSS