Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
47
Taíland:
Munkarnir
gleyma
boðorðunum
Fátækum taílenskum karlmönnum þykir tilveran auöveld þegar þeir eru
orðnir munkar.
Glansinn er farinn að fara af
búddamunkunum í Taílandi. Leiö-
togar þeirra hafa verið orðaðir við
kynlíf, svindl og vopnasmygl. Þetta
vekur mikla athygli í landi þar sem
um 95 prósent þjóðarinnar eru
búddatrúar og þar sem búddaaltari
er á svo til hverju heimili og á
hverri skrifstofu. Hingað til hefur
búddatrúin skipaö stærri sess í
hugum almennings en sjálf kon-
ungsfjölskyldan sem annars nýtur
mikillar virðingar, að því er segir
í danska blaðinu Jyllands-Posten.
Á hverjum morgni um sólarupp-
rás ganga munkamir í Taílandi um
með betliskálar sínar sem almenn-
ingur gefur þeim mat í. Að gefa
munkunum mat er ríkur þáttur í
menningu Taílendinga. Flestir taí-
lenskir karlmenn veija einhverj-
um tíma ævi sinnar í klaustri. Þar
eiga þeir að lifa eftir boðorðum sem
eru alls 227 talsins. Þar er meðal
annars kveðið á um hvernig þeir
eigi að fara með peninga og hvern-
ig umgangast eigi konur fyrir utan
þessi hefðbundnu um að menn eigi
ekki að ljúga, stela eða drepa.
Kynlíf og
fjársvikamál
En síöustu átján mánuðina hefur
hvert hneykshð á fætur öðru varp-
að skugga á búddamunka. í júní í
fyrra var aldraður munkur hand-
tekinn þegar hann reyndi að
smygla 55 þúsund dollurum í fols-
uðum seðlum til Kambódíu. Annar
munkur varð uppvis að þjófnaði á
skartgripum að andvirði 20 þúsund
dollara. Tveir fíkniefnaneytendur,
sem dvöldu í klaustri til að komast
á réttan kjöl, voru barðir í hel.
í vor var sjötugur munkur bann-
lýstur fyrir að hafa sængað með
konu. Annar var handtekinn fyrir
að hafa beitt atvinnuiausan karl-
manna kynferðislegu oíbeldi. Og
fjölskyldu nokkurri, sem vakti yfir
nýlátnum ástvini í hofi, brá heldur
betur í brún þegar kistan tók að
hristast um miðja nótt. Hristingur-
inn stafaði af samförum munks við
hkiö.
Munkurinn Phra Kitti Vuddho
frá Chiang Mai, sem hefur lýst því
yfir að þaö sé ekki synd að drepa
kommúnista, er grunaður um að
tengjast vopnasmygli til Kambódíu
og hann var nýlega handtekinn
vegna íjársvikamáls.
Alræmdur munkur
Frægastur, dáðastur og alræmd-
astur er munkurinn Phra Ajahn
Yantra Amaro Bhikku frá Rachat-
hiwat-hofínu í Bangkok. Hann er
þekktari en frægustu poppstjörnur
í Taílandi. Fylgjendur hans eru
einkum konur, ungar og miðaldra,
úr efri stigum samfélagsins. Yantra
er sagður hafa mikla útgeislun.
Hann heldur boðorðið um að
snerta ekki peninga. En hann notar
bara krítarkort í staðinn. Fullyrt
er aö hann búi á lúxushótelum þeg-
ar hann ferðast um heiminn og þaö
er einmitt í heimsreisunum sem
hann á að hafa brotið boðorðið um
einlífi.
Ástfangin nunna
Nunna, sem fædd er í Kambódíu,
heldur því fram að hún og Yantra
hafi elskast á dekki skandínavísks
skemmtiferðaskips síðasthðið
sumar. Nunnan, sem heitir Kaewta
og er 38 ára, kveðst elska Yantra
sem er fímm árum eldri en hún.
Hefur hún hvatt hann til að kasta
kuflinum til að geta kvænst henni.
Æðstu menn munkareglunnar
saka hina ástföngnu nunnu um að
vilja skaða búddismann með
óhróðri og yfirvöld hafa ráðlegt
henni að leita aðstoðar hjá geð-
læknum. Yantra hefur lýst því yfir
að nunnunni verði refsað í helvíti
fyrir söguburð hennar. Áhangend-
ur Yantra segja að samfarir hafi
ekki getað átt sér stað. Það sé of
kalt í Skandinavíu til þess að hmur
geti risið á skipsdekki. Svona ver-
aldleg vandamál eru æðstu mönn-
um munkanna, sem allir eru gaml-
ir, alveg ofviða.
Auðvelt að
ganga í regluna
Það er ekki erfitt að gerast munk-
ur. Þeir sem hafa áhuga þurfa að
svara léttum spurningum á hinu
gamla máli, palí. Áður var mikill
agi ásamt auðmýkt og virðingu fyr-
ir trúnni sjálfsagður hlutur. Nú
virðist sem það að vera munkur sé
ekki bara að öðlast ríkara líf í and-
legu tilliti.
Dvöl í klaustri er að hluta til orð-
in einhvers konar aðgöngumiði að
auðveldri tilveru í borgunum fyrir
fátæka og atvinnulausa unga menn
frá landsbyggðinni. Það eru um 30
þúsund búddahof í Taílandi. í borg-
unum vilja margir komast aö en
úti á landsbyggðinni eru sums stað-
ar bara fáein munksefni. Á lands-
byggðinni viröast menn hins vegar
trúaðri.
Miklarfreistingar
Þetta hefur veriö útskýrt með því
að þeir sem dvelja í klaustrum í
stórborgunum fá mörg boð um að
blessa við ýmiss konar einkasam-
komur. Munkur getur komist yfir
það aö blessa á aht að tíu samkom-
um á dag og á hverjum stað fær
hann umslag með peningum.
Freistingamar eru miklar.
Hofm eru ekki lengur helstu
menntasetur Taílands. Því hlut-
verki gegna nú skólar og aðrar
menntastofnanir. Lærðir búddistar
kvarta nú undan því að það sé ekki
lengur hægt að fá munka til að
ræða hinar stóru spumingar um
búddisma og tilveruna þar sem
ungu munkarnir taki trúna ekki
nógu alvarlega.
Taílendingar era ekki búnir að
missa trúna en þeir bíða spenntir
eftir því hvenær munkamir taka
aftur að sér að vera hrein samviska
landsins.
Endursagt úr Jyllands-Posten
RAFHA
ZANUSSl °FN n
ZANUSSl HEU*y®0RÐ
zAHos8C^fTr
ZANUSSI Þvottavél
ZF-8000 800 sn./mín.
ZANUSSI
Þurrkari, TD-220
TELBOD
TÖKUM
GÖMLU
ELDAVÉLINA
UPP í NÝJA
ELDAVÉL
ZANUSSI Uppþvottavél
Kupperbusch með þurk. ZW-826
Eldavél
EH-540-WN
OPIÐ LAUGARDAG 10-16 & SUNNUDAG 10-15
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 880500