Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
51
Kjötkrókur og Gáttaþefur.
Jólasveinamir
ómissandi þátt-
uríjólahaldinu
Þaö fjölgar heldur betur heima hjá
Huldu Guömundsdóttur um jólin. Þá
koma þeir hver á fætur öörum,
Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur og
alhr hinir synir Grýlu og Leppalúða.
„Það var nú reyndar þegar synir
mínir voru litlir að ég lét jólasvein-
ana koma einn af öörum fram aö jól-
um en núna set ég þá alla fram þrett-
án dögum fyrir jól. Þetta hefur verið
ómissandi þáttur í jólahaldinu," seg-
ir Hulda.
Jólasveinana geröi hún fyrir
fimmtán árum á meðan hún beið eft-
ir sjö ára syni sínum þegar hann var
í tímum í Tónmenntaskólanum í
Reykjavík. „Við bjuggum uppi við
Elliðaár og ég keyrði hann i skólann
og beið eftir honum. Til að hafa eitt-
hvað fyrir stafni á meðan fór ég að
búa til þessa jólasveina. Þetta var
talsvert tímafrekt og var ég að dunda
við þetta tvo vetrarparta," segir
Hulda.
Eftir að hafa lesiö vísur Jóhannes-
ar úr Kötlum um jólasveinana ákvað
Hulda að hafa jólasveinana sína ekki
smáfríða heldur svolítið stórkarla-
lega. Jólasveinarnir eru í íslenskum
skinnskóm og treyjur þeirra og
Grýlu og Leppalúða eru bútar úr
gömlum peysum af sonum Huldu.
Hún kveöst í raun hafa fengið mest-
allt efni í þá á heimilinu.
Jólasveinarnir hennar hafa vakið
mikla athygh og aðspurð segir Hulda
að það hafi svo sem hvarflað að sér
að fara að framleiða jólasveina til að
selja. Vinnan við gerð þeirra sé hins
vegar svo mikil að það heföi aldrei
borgað sig.
Föndur er eitt aðaláhugamál
Huldu, sem starfar í mötuneyti
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins, og hún hefur fengist við margt,
eins og til dæmis postulínsmálun,
keramik og glerskurð. Hún býr til
spegla og ýmsa aöra glermuni handa
ættingjum og vinum. „Ég sel þetta
stundum upp í efniskostnað. En þetta
hefur nú nær eingöngu verið tóm-
stundagaman. Föndrið gefur mér
nyög mikið. Þetta hefur líka komið
til af því að maður hefur verið að
reyna aö búa til allar jólagjafir sjálf-
ur og einnig jóladagatöl."
Hulda kveðst eiga góöan hóp vin-
kvenna og sitja þær oft saman og
fóndra. Hún er þeirrar skoðunar að
ýmis konar handavinna sé vinsælli
nú en oft áður. „Það hefur svo sem
alltaf verið föndrað en það er miklu
meira til núna í verslunum. Það eru
til alls konar efni sem gera allt fönd-
ur auðveldara.“
Hulda Guðmundsdóttir með jólasveinana sína þrettán og foreldra þeirra
sem hún bjó til fyrir fimmtán árum.
Bjúgnakrækir og Þvörusleikir.
Landbúnaður
skapar
verðmæti
fyrir tæpa
20 milljarða
króna
áári.
wnpw
t vmnhnmn
UOLwH fAiP'P]DRӮtTiT il
RABBAMEINSFÍ LAGSINS 1994
ÍTTU STUÐNING - VERTU MEÐ!
um
í þetta sinn voru miöar sendir konum, ááldri n
sem þegar hafa borgað miöana og minnum hiná á
pðstai
Greiöa má í banka, sparisjóöi eöa pó
Vakin er athygli á því að hægt er aö I
Hringið þá í sh
Hver keyptur miöi eflir sókn og vörrí gegn krabbameini!
j i
3ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
öan málstaö og verömæta vinnlnga.
iðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
með greiöslukortl (Visa, Eurocard).
.1)621414.
cJ wLLiLnJVjJLb U Uul/tILLLLV
SÍMI99-17-50
Verft kr. 39.90 mínútan
Jólagetraun Bónus Radió er skemmtilegur leikur þar sem þatttakendur eiga þess kost
að vinna glæsilega vinninga. Það eina sem þú gerir er aö hringja í 99-17-50 og svara
þiemur laufléttum spurningum. Svörin við spurningunum er að finna í jóiagafahandbók
Bónus Radíó sem fylgdi DV laugardaginn 26. nóvember.
Vikulega er skipt um spurningar og dregið úr vikulegum pottum eins og hér segir:
Föstudagana 9. og 16. desember veröa dregnir út Samsung þráðlausir slmar hver aö
verömæti kr. 25.190.
Dagana 19.. 21. og 22. desember veröa dregin út Yoko feröatæki hvert aö verömæti kr.
5.490.
í hádeginu á Þorláksmessu veröur aðalvinningurinn dreginn út sem er glæsilegt Samsung 29"
sjónvarp og Samsung myndbandstæki samtals aö verömæti kr. 128.480.
Allir sem svara öllum þremur spurningunum rétt komast í pottinn í hverri
viku og einnig í aöalpottinn sem dregið veröur úr á Þorláksmessu.
t>