Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Qupperneq 60
64
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
OIÍUIU-
OIÍIÍHI
ov
9 9*1 7*00
Verð aðeins 39,90 mín.
_4j Enski boltinn
5 j ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
81 NBA-deildin
Vikutilboð
stórmarkaðanna
Q Uppskriftir
py Læknavaktin
21 Apótek
_3j Gengi
ÍH Dagskrá Sjónv.
_2j Dagskrá St. 2
3 ) Dagskrá rásar 1
41 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5 | Myndbandagagnrýni
6 | ísl. listinn
-topp 40
7 [ Tónlistargagnrýni
AJKrár
2 j Dansstaðir
3!Leikhús
4 j Leikhúsgagnrýni
[5j Bíó
6 | Kvikmgagnrýni
vmmngsnumer
Lottó
_2j Víkingalottó
3j Getraunir
99*17*00
Verö aðeins 39,90 mín.
Athugasemd um
„lóðastríð"
DV hefur borist eftirfarandi at-
hugasemd:
í frétt 1DV 30. nóvember sl. er m.a.
eftirfarandi haft eftir forstjóra Olíu-
félagsins hf., Geir Magnússyni:
„Olís er með 28 prósenta markaðs-
hlutdeild og fimm eða sex bensín-
stöðvar. Skeljungur er meö svipaða
markaðshlutdeild og ellefu stöðvar.
Við erum með 44 prósenta markaðs-
hlutdeild og aðeins fimm stöðvar."
Hér er ranglega farið með og þvi
nauðsynlegt að eftirfarandi komi
fram:
Olíufélagið hf. - ESSO var með
39,8% markaðshlutdeild á árinu 1993.
Eftir 10 fyrstu mánuði þessa árs
stefnir í svipaða hlutdeild, eða um
40%. Sölustaðir á vegum Olíufélags-
ins eru samkvæmt símaskrá samtals
10 innan borgarmarka Reykjavíkur.
Olíufélagið rekur um 137 sölustaði
um land allt skv. auglýsingum félags-
ins.
Skeljungur hf. - SHELL var með
32,3% markaðshlutdeild á árinu 1993
og stefnir sömuleiðis í svipaða út-
komu á þessu ári. Sölustaðir á vegum
Skeljungs í Reykjavík eru 10. Fjöldi
sölustaða um land allt er um 70.
Olís var með 27,9% markaðshlut-
deild á árinu 1993 og svipaða á þessu
ári. Félagið er með 6 sölustaði í
Reykjavík. Félagið rekur liðlega 70
sölustaði um land allt.
Skeljungur hf.
Kristinn Björnsson
TiHcyimingar
Kór Átthagafélags Stranda-
manna
Á morgun, sunnudaginn 4. des., kl. 16
heldur kórinn sína árlegu aöventutón-
leika í Bústaðakirkju. Kórinn flytur jóla-
lög ásamt bamakór. Hanna Björk Guð-
jónsdóttir syngur einsöng. Píanóleikari
er Pavel Smid og stjórnandi kórsins er
Erla Þórólfsdóttir. Þorsteinn Ólafsson
flytur hugleiðingu um jólin. Á eftir verð-
ur kaffihlaðborð. Út er komin geislaplata
og snælda með söng kórsins og verður
platan til sölu á aðventutónleikunum.
Leikfélag Selfoss
í kvöld sýnir Leikfélag Selfoss, í allra síð-
asta sinn: „Við bíðum eftir Godot“. Sýn-
ingin hefst kl. 20.30. Miðapantanir og
nánari upplýsingar em í síma 98-23535.
Einkaklúbburinn og Tweety
Hljómsveitin Tweety heldur tónleika á
Tveimur vinum í kvöld. Félagar í Einka-
klúbbnum fá 200 kr. afslátt af miöaverði
meðan húsrúm leyfir. Félagar íjölmennið
og hlustið á þessa frábæra hljómsveit.
Þjóðleikhúsið
Nú em aðeins tvær sýningar eftir á leik-
ritinu „Sannar sögur af sálarlífi systra"
sem sýnt hefur verið við miklar vinsæld-
ir á Smiðaverkstæði Þjóðleikhússins.
Sannar sögur em leikgerð Viðars Egg-
ertssonar á þremur skáldsögum Guð-
bergs Bergssonar, Hermann og Dídí, Það
sefur úr djúpinu og Það rís úr djúpinu,
meinfyndin og raunsönn lýsing á ís-
lenskri fjöiskyldu í rammíslensku sjávar-
plássi á sjötta áratugnum. Síðustu sýn-
ingar á Sönnum sögum em 4. og 6. des.
Lögreglan á Suðvesturlandi
verður með sameiginlegt umferðarátak
dagana 4.-9. desember. Athyglinni verð-
ur sérstaklega beint að „ljósabúnaði"
ökutækja. Það hefur vakið athygli að
nokkuð er um „eineygðar" bifreiðar
og/eða að afturljós þeima sjáist ekki í
myrkrinu. Oft er þetta vegna þess að
ökumenn vita ekki að pemr hafa farið í
ijóskerjum. Lögreglan vill hvetja öku-
menn til að gefa sér svolítinn tíma og
huga að ljósabúnaði ökutækja sinna.
Þannig geta þeir dregið úr líkum á slys-
um og óhöppum.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Skemmuvegur 34, hluti 0202, þingl.
eig. Róbert Viðar Pétursson, gerðar-
beiðendur Endurskoðun Guðmundar
Sveinssonar og Sameinaði lífeyris-
sjóðurinn, 7. desember 1994 kl. 14.45.
Skjólbraut 4, neðri hæð, þingl. eig. Jón
Þorkelsson og Ágústa Linda Ágústs-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, Búnaðarbanki Islands
og íslandsbanki hf., 7. desember 1994
kl, 15.30._________________________
Smiðjuvegur 11, 5. súlubil, efri hæð,
þingl. eig. Kristmann Þ. Einarsson,
gerðarbeiðandi Búnaðarbanki ís-
lands, 7. desember 1994 kl. 16.15.
Þverbrekka 2, íbúð 201, þingl. eig.
Þuríður Ólöf Rúnarsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður verka-
manna, Bæjarsjóður Kópavogs og
Vátryggingafelag íslands, 7. desember
1994 kl. 17.45.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAV0GI
Mjóddin í jólabúning
Undanfama daga hafa tæknimenn unnið
að uppsetningu á jólaskreytingum í
göngugötu í Mjódd, einnig em verslanir
og fyrirtæki komin í jólabúning. í des-
ember verður sölutími verslana í Mjódd
sem hér segir: Laugard. 3. des. kl. 10-18,
sunnud. 4. des. kl. 13-17, laugard. 10. des.
kl. 10-18, sunnud. 11. des. kl. 13-17, laug-
ard. 17. des. kl. 10-22, sunnud. 18. des. kl.
13-17, þriðud. 20. des. kl. 9-22, miðvikud.
21. des. kl. 9-22, fimmtud. 22. des. 9-23,
Þorláksmessa kl. 9-23, Aðfangadag kl.
9-12.
Langur laugardagur - 3. des.
Þennan Langa laugardag er fyrirhugaö
að fá harmoníkuleikara úr Harmoníkufé-
lagi Reykjavíkur til að leika fyrir vegfar-
endur. Cote d‘or flllinn ætlar að gefa gest-
um og gangandi góðgæti fyrir utan Hag-
kaup í Kjörgarði. Bangsaleikurinn verð-
ur í gangi og í verðlaun verða flmm vinn-
ingar frá versluninni Jóni Indíafara.
Margt fleira verður í boði. Verslanir og
veitingahús verða með tilboð í tilefni
dagsins. Verslanir verða opnar kl. 10-18
í dag, og kl. 13-17 á morgun, sunnudag.
Kringlan
í dag verður opið kl. 10-18 í Kringlunni
og á morgun, sunnudag, kl. 13-17. Kveikt
verður á jólatré Kringlunnar á sunnu-
daginn kl. 15. Kvennakór Suðurnesja tek-
ur lagið kl. 14 í dag og kl. 15 á sunnudag-
inn. I dag kl. 13 og á sunnudag kl. 16.30
syngur söngtríó leikfélagsins Frú Emilíu,
Skán'a en ekkert, lög úr leikritinu Kirsu-
beijagarðinum og söngsveitin Fílharm-
ónia mun syngja jólalög fyrir Kringlu-
gesti kl. 16 á sunnudag.
Jólabasar Kvenfélags Kópa-
vogs
Kvenfélag Kópavogs heldur sinn árlega
basár sunnudaginn 4. des. kl. 14 í Félags-
heimili Kópavogs, 2. hæð. Að þessu sinni
hafa félagskonur lagt rika áherslu á
saumskap og handavinnu sem hentar vel
til jólagjafa fyrir alla aldurshópa. Á boð-
stólum verða heimabakaðar jólakökur
og að venju verður selt kaffi og ijóma-
vöfflur. Barnakór Kársnesskóla mun
koma í heimsókn og syngja fyrir basar-
gesti. Allur ágóði rennur til líknar- og
menningarmála.
Aðventusamkoma í Árbæjar-
kirkju
Sunnudaginn 4. des. verður haldin að-
ventusamkoma í Árbæjarkirkju og hefst
hún kl. 20.30. Dagskrá aðventukvöldsins:
Ávarp, sr. Þór Hauksson, Kirkjukór Ár-
bæjarlúrkju syngur, sr. Heimir Steinsson
flytur ræðu. Barnakór Árbæjarsóknar
syngur. Helgistund í umsjón Guðmundar
Þorsteinssonar sóknaiTirests. Aöventu-
ljósin tendruð. Veitingar í boði að lokinni
samkomunni í safnaöarheimili kirkjunn-
ar. Allir eru hjartanlega velkomnir.
ísland í Rússlandi í 200 ár
í dag kl. 15 verður Árni Bergmann rithöf-
undur gestur MÍR í félagsheimilinu að
Vatnsstíg 10 og flytur þá erindi sem hann
nefnir „Island í Rússlandi í 200 ár“. í fyr-
irlestri sínum mun Árni greina frá athug-
unum sem hann hefur unnið að um skeið
og varða ímynd íslands í rússneskri
menningammræðu og skáldskap.
Kolaportið
íslenskur handverksiðnaður á markaðs-
torgi Kolaportsins um helgina. íslenskur
handverksmarkaður verður í hliðarsal
við markaðstorg Kolaportsins þessa
helgi. Þar munu um 50 aðilar víösvegar
af landinu bjóða upp á mikið úrval af
íslensku handverki, s.s. listmunum, fatn-
aði, skreytingum og öðra fyrir þá sem
vilja gefa íslenska jólagjöf á þessum jól-
um. Markaðurinn verður opinn á sama
tíma og markaðstorgið, laugard. kl. 10-16
og sunnud. kl. 11-17.
Kvikmyndasýning í Norræna
húsinu
Sunnudaginn 4. des. kl. 14 verða sýndir
tveir þættir um Línu langsokk sem heita:
Pippis jul og Pippi hittar en spunk. Kvik-
myndin er byggð á bók eftir Ástrid Lind-
gren. Sýningin tekur eina klst. og er með
sænsku tali. Allir em velkomnir og er
aðgangur ókeypis.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla sviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Laugard. 7. jan.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Haraid Á. Sigurösson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Laugard. 7. jan.
Litla sviðkl. 20:
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Fimmtud. 29/12, sunnud. 8. jan. kl. 16.
Söngleikurinn
KABARETT
frumsýning ijanúar.
Miðasala er opin alla daga nema
mánudaga frá kt. 13.00-20.00. Miða-
pantanir í sima 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12.
Gjafakortin okkar
eru frábær jóiagjöf!
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Leikfélag Akureyrar
BARPAR
Tveggja manna kabarettinn sem
sló i gegn á síðasta leikári!
Sýnt í Þorpinu, Höfðahlið 1
AUKASÝNING
í kvöld, 3. desember, kl. 20.30.
Allra siðasta sýnlng.
Gjafakort
er frábær jólagjöf!
Miðasala i Samkomuhúsinu eropin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Simsvari tekur við
miðapöntunum utan opnunartima.
Greiðslukortaþjónusta.
Barðstrendingafélagið og
Djúpmannafélagið
em með félagsvist á Hallveigarstöðum
kl. 14 í dag. Allir velkomnir. Góð verð-
laun.
Skaftfellingafélagið í Rvík
Félagsvist sunnudaginn 4. des. kl. 14 í
Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Baháíar í Reykjavík
Baháíar bjóða á opið hús í Álfabakka 12
í Mjódd kl. 20.30 í kvöld. Allir velkomnir.
Flóamarkaður KFUM og
KFUK
KFUM og KFUK í Reykjavík halda flóa-
markað í dag, laugardaginn 3. des. kl.
10-17, í Austurstræti 20 (þar sem Hress-
ingarskálinn var áður). Á boðstólum
verður einkum fatnaður af ýmsu tagi sem
verður seldur mjög ódýrt. Jólakort félag-
anna verður einnig til sölu á staönum.
Kvenfélag Hreyfils
heldur jólafund i Hreyfdshúsinu sunnu-
dagskvöldiö 4. des. kl. 19. Skráning í s.
76776, Ásta, og s.72096, Guðríöur.
SVD Hraunprýði
heldur fjölskyldubingó í Gaflinum
sunnudaginn 4. des. kl. 14. Margir góöir
vinningar. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara I Rvík og
nágrenni
Sunnudagur í Risinu, bridskeppni, tví-
menningur kl. 13 og félagsvist kl. 14.
Dansað í Goðheimum kl. 20.
Kasablanka
Þann 3. des. kl. 22 verður skemmtistaður-
inn Kasablanka opnaður á ný eftir nokk-
urt hlé. Opnunarkvöldið verður rammað
inn með útgáfuteiti þeirra Eiðs Snorra
og Einars Snorra sem halda upp á nýút-
komna Ijósmyndabók sína í salarkynn-
um staðarins. Bubbleflies munu stiga á
stokk og þeir Þossi, Robbi og Árni E.
munu sjá um skífuþeyting. Um miöbik
kvölds mun verslunin Frikki og Dýriö
bjóða upp á allsérstæða tískusýningu.
Auk vínveitinga verða í boði ávextir og
mjólkurhristingur.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
VALD ÖRLAGANNA
eftir Giuseppe Verdi
Á morgun, sud., fáein sæti laus, þrd. 6/12,
laus sætl, fid. 8/12, örfá sæti laus, næst-
síðasta sýning, Id. 10/12, uppselt, siðasta
sýnlng.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Föd. 13. jan, laus sæti.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
í kvöld, 60. sýn., uppselt, föd. 6. jan.,
laus sætl. Ath. Fáar sýningar eftlr.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Á morgun kl. 13.00 (ath. sýningartima),
nokkur sæti laus, mvd. 28/12 kl. 17.00,
sud.8. jan.kl. 14.00.
Litla sviðið kl. 20.30.
DÓTTIR LÚSÍFERS
eftir William Luce
í kvöld, uppselt, siðasta sýning.
Aukasýning fid. 8/12 kl. 20.30.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00.
SANNAR SÖGUR AF
SÁLARLÍFISYSTRA
eftir Guðberg Bergsson í leikgerð
Viðars Eggertssonar
Á morgun, næstsíðasta sýning, þrd. 6/12,
síðasta sýning.
’ 3 Gjafakort i leikhus-
sígild og skemmtileg gjöf.
Miðasala Þjóðlelkhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13—18 og
fram að sýningu sýningardaga. Tekið á
móti símapöntunum alla vlrka daga frá
kl. 10.00.
Græna línan 99 61 60. Bréfsími61 12 00.
Síml 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta.
TRÍTILTOPPUR
barnasýning eftir Pétur Eggerz
Sun. 4/12, kl. 14, fá sæti laus, og 16.
Mán. 5/12, kl. 10, upps., og 14.
Þri. 6/12, kl. 10, upps., og 14.
Mlð. 7/12, kl. 10, upps., og 14, upps.
Fim. 8/12, kl. 10, upps., og 14, upps.
Fös. 9/12, kl. 10, upps., og 14, upps.
Sun. 11/12, kl. 14, upps., og 16.
Mán. 12/12, kl. 10, upps., og 14.
Þri. 13/12, kl. 10 og 14.
Mið. 14/12, kl. 10 og 14.
Fim. 15/12, kl. 10.30, upps., og 14.
Fös. 16/12, kl. 10 og 14.
Miðasala allan sólarhringinn, 622669
Laugavejf 10$ -10$ Reykjavík
Silfurlínan
Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borg-
ara alla virka daga kl. 16-18.
Andlát
Fanney S. Gunnlaugsdóttir, Furu-
gerði 1, Reykjavík, andaðist á Borg-
arspítalanum 1. desember.
Marínó Eiður Eyþórsson, Laugarnes-
vegi 38, Reykjavík, lést í Landspítal-
anum 30. nóvember.
Jarðarfarir
Alma Karen Friðriksdóttir verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 3. desember kl. 14.
Njörður Óskarsson, Baughóli 38,
Húsavík, verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju laugardaginn 3.
desember kl. 14.
Jónína Þórey Hafsteinsdóttir, Soga-
vegi 136, Reykjavík, verður jaðsung-
in frá Bústaðakirkju mánudaginn 5.
desember kl. 13.30.
Hertha V. Guðmundsdóttir, ísólfs-
skála, Grindavík, verður jarðsungin
frá Grindavíkurkirkju laugardaginn
3. desember kl. 14.