Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Page 4
4
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
Fréttir
Aðalfundur KE A:
Yf ir 90 milljóna tap
á vatnsútf lutningi
hagnaður af reglulegri starfsemi tæpar 120 milljónir
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akuieyii:
Hlutdeild KEA í tapi dótturfyrir-
tækjanna AKVA og AKVA USA, sem
eru fyrirtæki í vatnsútflutningi frá
Akureyri, nam á síðasta ári 92 millj-
ónum króna. Þetta kom fram á aðal-
fundi KEA sem haldinn var á Akur-
eyri um helgina.
í skýrslu stjómar og kaupfélags-
stjóra, sem lögð var fram á fundin-
um, kom fram aö gert er ráð fyrir
að AKVA USA, sem er söluaðili
vatnsins í Bandaríkjunum, geti fjár-
magnað sig sjálft á þessu ári og í
framtíöinni. „Ef það tekst ekki er um
tvennt að velja, það hætti starfsemi
Frá aðalfundi KEA um helgina. Jóhannes Sígvaldason formaður i ræðustól
lengst t.v. en stjórn og kaupfélagsstjóri sitja honum aö baki. DV-mynd gk
eða aðrir en KEA sjái því fyrir íjár-
magni sem er frekar ólíklegt. Arið
1995 er því væntanlega úrshtaár
varðandi það hvort þessi tilraun með
vatnsútflutning tekst eða ekki“, segir
í skýrslunni.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
KEA á síðasta ári nam 118 milljónum
króna miðað við 70 milljóna króna
tap árið áður. Hlutdeild KEA í tapi
dótturfyrirtækjanna nam hins vegar
79 milljónum króna. Þar var tap
vatnsútílutningsfyrirtækjanna sem
fyrr sagði 92 milljónir en hagnaður
af rekstri annarra dótturfyrirtækja
nam 13 milljónum króna.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fjöldi ökumanna lenti í erflð
leikum um miðjan dag á laugar
dag í óveðri sem skall skyndilega
á í Eyjafirði. M.a. þurfti að kalla
út björgunarsveit á Dalvík til að
aðstoða ökumenn viö aö komast
á milli Akureyrar og Dalvíkur.
Talsvert margar bifreiðar vqru
fastar í sköflum á veginum á Ár-
skógsströnd og var brugðið á það
ráð aö senda öflugt tæki á móti
þeim og aðstoða þá við að komast
leiðar sinnar. Eftir að leik KA og
Vals í handbolta lauk á Akureyri
var fjöldi bíla á leiöinni út með
firöinum en lögreglan ákvað að
láta þá bíða þar til veðrið gengi
niður og það varð um kvöldmat-
arlej tiö.
Samherjatogarinn Akureyrin EA-110 kom til heimahafnar á Akureyrl um helgina frá Póllandi. Þar var skipið m.a.
lengt og er nú orðið lengsta skip ísienska fiskveiðioflotans, rétt tæplega 72 metra langt. Að auki voru ýmsar aðr-
ar breytingar framkvæmdar á skiplnu sem er elsta skip Samherja. Skipið, sem hét áður Guðsteinn, var fyrsta
skip þeirra Samherjamanna og hefur reynst einstakt afla- og happaskip. Myndin er af Akureyrinni við bryggju á
Akureyri um helgina. DV-mynd, gk
Akureyri:
Kennarar yf ir-
tóku f und Davíðs
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kennarar flölmenntu á almennan
fund Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra, sem haldinn var á Akureyri
um helgina, og má segja að þeir hafi
yfirtekið fundinn að loknu ávarpi
hans og efstu manna framboðslista
flokksins á Norðurlandi eystra. Það
sama gerðist reyndar á sams konar
fundi á Húsavík á fóstudagskvöld.
Kennarar söfnuðust saman á Ráð-
hústorgi fyrir fundinn og um 50
þeirra komu saman í fundarsalinn á
skemmtistaðnum 1929 þar sem fund-
urinn var haldinn. AUs voru um 200
manns á fundinum.
Kennarar fengu engin ákveðin svör
við spumingum sínum um hugsan-
leg lok verkfalls þeirra, enda málið
í höndum ríkissáttasemjara, og á
fundinum á Húsavík lýsti Davíð því
yfir aö hann hefði enga hugmyndum
hvað myndi felast í tiUögu sáttasemj-
ara kæmi hún fram.
Davíð ræddi m.a. það sjónarmið
Sjálfstæðisflokksins að innganga í Evr-
ópusambandið sé ekki á dagskfá.. „Við
höfum tryggt aUa viðskiptahagsmuni
okkar með samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið, þar yrði engu um
breytt þótt við gengjum í ESB. Við
höfum tryggt hagsmuni unga fólksins,
menntunarmöguleika, menningar-
möguleika og aðUd að vísindastarfi í
Evrópu,“ sagði Davíð m.a.
í dag mælir Dagfari
Fatlaðir fá á snúðinn
Frá og með deginum í dag hafa
kennarar ákveðið að feUa niður
kennslu sína og umönnun varð-
andi fötluð börn. VerkfaUsnefnd
kennara hefur ákveðið að fram-
lengja ekki undanþágu sína um
kennslu fyrir fatlaöa frá og með
deginum í dag.
Skýringar eru meðal annars þær
að neyðarástand hafi mjög víða
skapast vegna verkfaUsins og verk-
faUsstjórnin telur sér ekki fært að
afstýra ófremdarástandi í einstök-
um tilfeUum. Hún vUl ekki gera
upp á milU einstakUnga og vUl að
neyðarástandið gangi jafnt yfir
aUa. Ennfremur segir verkfalls-
nefndin að íjármálaráðuneytið hafi
neitaö að svara því hvort kennarar
sem starfa á undanþágu fái sömu
laun og áður og nefndin telur sér
ekki fært að standa að ákvörðun-
um sem gera félagsmönnum skylt
að vinna á smánarlaunum í verk-
fallinu.
Þessar röksemdir tekur Dagfari
heilshugar undir. í fyrsta lagi er
það ekki sök kennara ef einhver
böm era fötluð. Það er vandamál
fötluðu bamanna og þeirra fjöl-
skyldna sem að þeim standa. Þeim
var nær að eiga fötluð börn. Kenn-
arar sinna ekki fötluðum bömum
umfram venjulegum börnum, enda
ganga verkföll jafnt yfir alla. Sér-
staklega þegar ófremdarástand rík-
ir.
Fötluð böm eiga engan rétt á því
aö sleppa við ófremdarástand
fremur en aörir og þau eiga í sjálfu
sér að vera kennuram þakklát fyr-
ir að hafa veri á undanþágu í heilar
fimm vikur frá því verkfalhð hófst.
Það var ekkert sjálfgefið, enda var
tilgangur verkfahsins einmitt sá að
skapa sem mesta kaos og neyð og
láta fólk finna fyrir því að kennarar
eru í verkfalh til aö fá hærri laun.
Umönnun og kennsla á fötluðum
bömum er göfugt verk, sem kenn-
arar hafa tekið að sér. Eðlilegt hefði
verið að kennarar heföu strax feht
niður vinnu við fötluð böm til að
láta neyðina sem því fylgir bitna
strax og með fuhum þunga á að-
standendum bamanna. Þetta gerðu
kennarar ekki og það sýnir göfug-
lyndi þeirra og tilfmningar gagn-
vart fótluðum og sýnir hvað kenn-
arar eru góöir. Þeir heföu getað
látið þetta ógert.
Þessi miskunnsemi hefur ekki
verið metin. Það hefur enginn
þakkað kennurum fyrir að veita
undanþágur gagnvart fótluðum
bömum og úr því ahir taka þetta
sem sjálfsagðan hlut er nú komið
að því að kennarar nenna ekki
lengur að vera góðir og vhja sýna
það svart á hvítu hverjir það era
sem ráða í þessu verkfalh.
Úr því ríkisstjómin er svo harð-
bijósta að neita kennuram um
launahækkanir og samninga, er
það mat verkfahsnefndarinnar að
láta þá fötluð börn og aðstandendur
þeirra fmna hvar Davíð keypti öhö.
Þeir skulu fá að blæða fyrir skhn-
ingsleysi ríkisvaldsins. Fötluö börn
og foreldrar þeirra skulu svo sann-
arlega átta sig á því að ef Davíð og
Friðrik semja ekki þá er það ekki
kennurum að kenna að fötiuð börn
fá ekki kennnslu heldur ráðherr-
unum.
Það er heldur engin sanngirni í
því að fötluð börn og foreldrar
þeirra sleppi við ófremdarástand
þegar enginn annar sleppur. Hvers
vegna ættu fötluð böm að fá notið
þeirra forréttinda að skorast undan
því að búa við neyð þegar þau hafa
haft það afar gott í verkfalhnu fram
að þessu. Fötiuð börn hafa ekki
fundið fyrir neinum óþægindum
af verkfalhnu frekar en alla aðra
daga og þau hafa í ramúnni haft
það svo gott að það telst fullkomið
ranglæti að láta þau komast upp
með það áfram.
Svo er hka hitt að þaö er ófært
að láta kennara líða fyrir þaö að
kenna fötluöum börnum meðan
aðrir þurfa ekki að kenna. Það er
ekki hægt að bjóða fuhfrískum
kennurum upp á það að kenna föti-
uðum börnum þegar laun þeirra
era í fullkominni óvissu. Kennarar
hða fyrir þaö og skitt veri þá um
bömin og foreldra þeirra á meðan.
Óvissa kennaranna er miklu alvar-
legri heldur en óvissa fötiuðu bam-
anna. Það hlýtur öllum að vera
ljóst.
Nú er ríkisvaldið að sverfa að
kennurum með afarkostum eftir
að hafa neitað þeim um þá peninga
sem kennarar hafa krafist. Þá verð-
ur verkfahsnefndin að grípa til
sinna ráöa og hefna sín og þær
hefndir era árangursríkastar ef
það bitnar á þeim sem síst skyldi.
Dagfari