Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Page 44
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Lögreglumenn á Akureyri, sem
voru aö keyra inn í bæinn aö norðan-
verðu í fyrrinótt, sáu skyndilega
ökutæki koma á móti sér á röngum
vegarhelmingi. Þeir stöövuöu bif-'
reiðina og þeim sem á móti þeim kom
á fleygiferö tókst að foröast árekstur.
Þama reyndist á feröinni „blind-
fullur maöur á vélsleöa" eins og
varðstjóri lögreglunnar oröaöi þaö.
Þegar hann haíöi komist fram hjá
lögreglubílnum geystist hann upp á
snjóskafl utan vegar og flaug fram
af honum eina 17 metra. Sleðinn lenti
á skíðunum og ökumaðurinn kastaö-
ist þá fyrst af sleðanum og lá eftir
nokkra metra í burtu.
„Stúturinn" var fluttur á slysadeild
en þar réðst illa viö hann sökum ölv-
unar svo hann var fluttur rakleitt í
fangageymslu þar sem hann fékk að
sofa úr sér.
LOKI
Getur Kaninn ekki notað
Patríot-flaugará kvikindin?
Rlkissáttasemjari:
Annasamur
mánudagur
Embætti ríkissáttasemjara á anna-
saman mánudag fyrir höndum. Auk
þess að leggja fram sáttatillögu í
kennaradeilunni á fundi klukkan 11
verða fundir með þremúr stéttarfé-
lögum eftir hádegi í dag.
Fundur meö Flugfreyjufélagi ís-
lands hefur verið boðaður klukkan
13 í dag en viðræður í gær urðu ár-
angurslausar.
Klukkan 14 mæta fuiltrúar versl-
unardeildar Verkalýðsfélagsins Jök-
uls á Höfn í Hornafirði í húsakynni
sáttasemjara en félagið hefur boðað
verkfall 100 verslunarmanna á Höfn
frá 31. mars nk.
Fundur með leikurum hjá Ríkisút-
varpinu hefur síðan verið boðaður
klukkan 16. Vonir standa til að þetta
verði ekki mánudagur til mæðu.
Gekkber-
serksgang við
bilasölu
Lögreglan handtók snemma í gær-
morgun mann sem gengiö hafði ber-
serksgang við bílasölu í Reykjavík. í
fyrstu var tahð að maðurinn hefði
skemmt tvo bíla en þegar Mða tók á
morguninn kom í ljós að maðurinn
hafði stórskemmt þriðja bílinn. Mað-
urinn hafði ekki verið yfirheyrður
síðdegis í gær en hann var þá enn í
haldi. -PP
Brynja Björk Harðardóttir, nítján ára Njarðvíkurmær, var kosin fegurðar-
drottning Suðurnesja á laugardagskvöld. Um helgina var einnig valin feg-
ursta stúlkan á Suðurlandi. Sjá nánari fréttir á bls. 6 DV-mynd ÆMK
Sáttatillaga 1 kennaradeilimni lögö fram í dag:
Önnin ónýt verði
tillagan felld
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
hefur boðað samninganefndir kenn-
ara og ríkisins á sinn fund klukkan
11 í dag í Karphúsinu. Þar leggur
hann fram sáttatillögu til lausnar
kennaradeilunni. Fulltrúaráð kenn-
arafélaganna tekur tillöguna til um-
fjöllunar síðar í dag. Verkfall kenn-
ara hefur nú staðiö yfir í fimm vikur
og ræður dagurinn í dag úrslitum.
Samtímis sáttatillögunni verða
lagðar fram samræmdar tillögur
menntamálaráðuneytisins um
hvemig unnt verður að ljúka skóla-
starfi annarinnar í grunn- og fram-
haldsskólum landsins. Menntamála-
ráðherra átti fundi um helgina með
fulltrúum skólastjóra og -meistara.
Gengið var út frá því að sáttatillagan
yrði samþykkt og verkfalli aflýst í
vikunni. Verði tillagan felld eru
menn sammála um að vorönn ónýtis.
Mikil leynd hefur ríkt yfir inni-
haldi sáttatillögunnar. Menn telja þó
ljóst að hún nái til þriggja stórra
þátta, þ.e. launaflokkaröðunar,
kennsluskyldu og skipulagsbreyt-
inga í grunnskólum.
Talsmenn kennarafélaganna, sem
DV ræddi við í gærkvöldi, sögðu að
til að sáttatillaga Þóris yrði sam-
þykkt yrði hún að innihalda veruleg-
ar bætur frá þeim tillögum sem
samninganefnd ríkisins hefur lagt
fram til þessa í deilunni.
Leynd hefur sömuleiðis hvílt yfir
þeim tillögum sem menntamálaráð-
herra ætlar að leggja fram um skóla-
starfið. Einn skólameistari sem aö
tillögunum vann orðaði þaö þó þann-
ig í samtali við DV að yröi verkfalli
aflýst í vikunni yrði sömu gæðakröf-
um haldið uppi í skólunum og engin
„útsöluskírteim“ gefin út.
Minkar á varnarsvæðinu
Vart hefur orðið aukinnar umferð-
ar villiminka í íbúðarhverfum varn-
arliðsmanna á varnarsvæðinu. Að
auki er vitað um tvö tófugreni á
svæðinu. Engar aðgerðir hafa verið
ákveðnar gegn dýrunum.
„Það hafa verið skjálftar hérna
að undanfórnu. Þeír voru fyrst
norðan við Hverageröi en þeir hafa
færst nær og það liggur hérna
sprunga i gegnum bæinn og við
höfum áhyggjur af þvi hvaða áhrif
það kynni að hafa á gróðurhúsin
ef hér kæmi skjálfti sem ætti upp-
tök sín nær en veriö hefur,“ segir
Einar Mathiesen; bæjarstjóri og
formaður Almannavamanefndar
Hveragerðis.
Síðastliðinn fóstudag sendi Al-
majinavarnanefnd bæjarins frá sér
tilkynningu til allra garðyrkju-
bænda í bænum. Þar segir að Al-
mannavarnanefndin teiji „af þessu
tilefni ástæðu til þess að vara garö-
yrkjubændur við þeim hættum
sem fylgja atburöum af þessu tæi.
íhuga mætti hvort notkun öryggis-
hjálma í gróöurhúsum með gler-
þekju sé ekki skynsamleg við þess-
ar aðstæður."
Ennfremur segir í tilkynning-
unni að þar sem margt bendi til
þess að upptök skjálftavirkninnar
eigi eftir aö færast nær Hveragerði
megi gera ráð fyrír aukinni hvera-
virkni en ekki er talin hætta á
skemmdum á burðarvirki húsa en
minniháttar skemmdum megi bú-
ast við. „Gler kann t.d. að falla úr
þekjum einhverra gróðurhúsa."
Einar vildi gera sem minnst úr
hættunni, sagði að hér væri aðal-
lega verið aö vekja athygli á því
sem hugsanlega kynni að gerast.
Ekki yröi fylgst sérlega með hvort
menn færu eftir því sem lagt væri
til í tilkynningunni. Engu að síöur
er i niðurlagi tilkynningarinnar
tahn ástæða til aö minna á jarð-
skjálfta í Hveragerði árið 1947.
„Muna margir eldri Hvergeröingar
eftir þeim atburöum."
„Við fengum þetta bréf í gær og
höfum nú ekki enn gefiö okkur
tíma til að ræða um þetta en hugs-
anlega munum við taka upp á því
að ganga með hjálm viö störf okk-
ognagrenm
ar. Þetta ástand vekur sannarlega
ugg í brjóstí, okkar og það hefur
hvarflað að okkur áður að ganga
með hjálm tíl starfa í gróðurhús-
um,“ sagði Magnea Ásdís Árna-
dóttír garðyrkjubóndi í samtah við
DV í gær.
Um 6500 til 7000 fermetra gólflöt-
ur er undir gleri í Hveragerði og
nágrenni og starfa ijölmargir undir
því. Á nýliðnu Alþingi var borin
upp þingsályktunartihaga þar sem
þingmenn Suðurlands lögðu tíl að
mannvirki á Suðurlandi yrðu tekin
út með tihití til styrkleika og jarð-
skjálfta. Ekki varð af samþykkt
þeirrartillögu. -pp
Veðriö á morgun:
Víða létt-
skýjað
Á morgun verður suðvestan-
kaldi og dáhtil slydda eða snjóél
um landið vestanvert en hæg
breytileg átt og léttskýjað í öðrum
landshlutum. Vindur snýst í vax-
andi suðaustanátt annað kvöld.
Hiti verður á bihnu + 3 til -5 stíg.
Veðrið í dag er á bls. 52
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
§\ruls&n
SuAuríandsbraut 10. S. 686489.
Ltm
alltaf á
Miðvikudögnm
FRETTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIOSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA*
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL6-8 LAUGAftDAGS- OG MANUDAGSMOftGNA
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995.
„Stútur“ á ferðinni:
Flaug 17 metra
á vélsleðanum