Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 10. JÚNl 1995 Flutti til Svíþjóðar og setti upp sitt eigið kvikmyndafyrirtæki: Heimur kvikmynd- anna heillaði mig - segir Anna G. Magnúsdóttir sem lét gamlan draum rætast Anna G. Magnúsdóttir flutti tii Sviþjóðar árið 1993 og setti upp fyrirtæki sem framleiðir kvikmyndir. Henni hefur vegnað vel og verk hennar hafa vakið athygli. Mynd Leifur „Við erum í miðjum tökum á stutt- mynd sem heitir Sumariö ’91. Þær tökur fara fram á Gotlandi í Svíþjóð. Myndin byggist á þeim atburðum sem áttu sér stað í fyrrum Júgóslav- íu þegar stríöið braust út. Hún fjallar um ungan mann sem er kallaður í herinn og lendir í skriðdrekasveit- inni. Honum er skipað aö skjóta á fólk og allt sem á vegi hans verður í því umhverfi þar sem hann er alinn upp. Þegar hann spyr gagnrýnna spurninga varðandi stríðið og neitar að skjóta á fólk verður þaö til þess aö aðrir skjóta hann. Myndin gerist nánast öll á dauðastund þessa unga manns sem neitar að hlýða skilyrðis- laust,“ segir Anna G. Magnúsdóttir, kvikmyndaframleiðandi í Svíþjóð. „Þessi mynd er íjármögnuð meö fé frá sænsku kvikmyndastofnuninni, sænska sjónvarpinu, rás tvö, og einnig frá danska stuttmyndasjóðn- um. Þaö mun þýða að bæði sænska og danska sjónvarpið munu sýna myndina. Sumarið 91 verður full- kláruð í haust og það væri skemmti- legt ef íslenska sjónvarpið hefði áhuga á að sýna hana líka,“ segir Anna ennfremur. íslensk leikkona fer með hlutverk Hún hefur fengið Guðrúnu Gísla- dóttur leikkonu til að leika í mynd- inni. „Við vorum að leita aö góðri leikkona sem hefur rétta útlitið og mér fannst Guðrún hafa það. Hún hefur tjáningarríkt andlit. Einnig erum við með mjög þekktan leikara sem heitir Rade Serbedja frá Króatíu. Hann býr í London og lék í kvik- myndinni Before the Rain sem er ein af þeim myndum sem tilnefndar voru til óskarsverðlauna sem besta er- lenda myndin. Einnig erum við með ungan leikara frá Zagreb, Nenad Svetko, sem leikur aöalhlutverkiö." Anna segir að þessi litla kvikmynd, sem verður aðeins 12-15 mínútur, sé mjög spennandi verkefni. „Þetta er áhrifarík saga og einnig munum við vinna myndina á mjög myndrænan hátt með sérstökum linsum. Þó myndin sé stutt er allt umstangið í kringum hana eins og um kvikmynd í fullri lengd sé að ræða þar sem mikið af tækjum og tólum þarf til aö vinna hana. Meðal þess eru fimm skriðdrekar sem við fáum hjá hern- arðaryfiröldum í Svíþjóð. Þetta er því mjög spennandi verkefni og kreíj- andi á margan hátt. Leikstjóri mynd- arinnar heitir Antonia D. Carnerud, hún er sjálf frá Króatíu en hefur búið í Svíþjóð í fimmtán ár. Hún hefur gert sex kvikmyndir en þetta er fyrsta myndin sem hún leikstýr- ir.“ Heimildarmynd um kvennabolta Anna hefur verið búsett í Stokk- hólmi frá árinu 1993 og rekur þar sitt eigið kvikmyndafyrirtæki. Hún hefur framleitt nokkrar myndir sem allar hafa hlotið góða dóma og verið vel tekið. Um síðustu helgi sýndi sænska sjónvarpið, rás eitt, heimild- armynd um kvennaknattspyrnu sem Anna framleiddi. Hún vakti mikla athygli og fékk góða dóma. Um þess- ar mundir stendur einmitt yfir HM í kvennaboltanum í Svíþjóð og var þessi heimildarmynd, En film om fotboll, send út á besta sýningartíma. „Þetta er klukkustundarlöng mynd um kvennaknattspyrnu og ég fékk Sigurð S. Jónsson til að koma hingað og klippa hana ásamt sænskum klippara, Carinu Hellberg." Unnið á mörgum sviðum Anna stundaði nám í kvikmynda- gerð og fjölmiðlun við Dramatic Inst- itute í Stokkhólmi á árunum 1982- 1986. Hún kom síðan aftur heim, starfaði við þáttagerð hjá ríkisút- varpinu og gerði heimildar- og fræöslumyndir fyrir Námsgagna- stofnun. Hún starfaði viö kvikmynd- ina Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur og rak fyr- irtækið Teiknimyndagerðina hf. Anna stundaði m.a. kennslu við mennta- og grunnskóla. Einnig hélt hún fjölmörg námskeið fyrir kenn- ara á vegum KHÍ og HÍ um notkun myndbanda og fjölmiðla við kennslu. Þá var hún með námskeið í Tóm- stundaskólanum. Hún skrifaði enn- fremur, ásamt Páli Ólafssyni kenn- ara, bók um fjölmiöla sem notuö er við kennslu. Það var hins vegar kvik- myndaheimurinn sem heillaði hana og segja má aö Anna hafi látið gaml- an draum rætast er hún ákvað að flytjast aftur til Stokkhólms ásamt dóttur sinni, Erlu. Nægverkefni „Ég á töluvert af vinum hér sem ég haföi samband við meðan ég var á íslandi. Reyndar kunni ég alltaf mjög vel við mig hér og var farin að hugsa mér til hreyfings. Þegar ég kannaði möguleikana sá ég að ekkert var því til fyrirstöðu að koma hingað og stofna mitt eigið fyrirtæki. Ég ákvað því að láta á það reyna úr því aö dóttir mín, sem þá var fimmtán ára, var alveg sátt við það. Upphaf- lega ætlaði ég að vera í eitt ár en þar sem vel hefur gengið og okkur liöið vel höfum við ekkert hugsað til heim- ferðar. Verkefnin hafa verið næg.“ í fyrrahaust gerði hún kvikmynd- ina Stúlkur fæddar 1960. Hún fjallar um sex gamlar bekkjarsystur á Lett- landi. „Sú mynd var frumsýnd í fe- brúar á kvikmyndahátíðinni í Gauta- borg. Konurnar segja frá sér og sínu lífi eftir að Sovétríkin hrundu. Við fengum verðlaun fyrir þá mynd á hátíöinni. Þeir sögðu að þetta væri fyndin, létt og skemmtileg mynd um alvarlegt efni. Konurnar eru flestar einstæðar mæður og hafa það fremur erfitt, eru atvinnulausar og búa fá- tæklega. Þetta eru hins vegar klárar konur og fullar af krafti. Þær tala mikið um karlmenn, jafnt gleði sem vonbrigði. Það var einnig verúð að sýna þessa mynd nýlega á kvik- myndahátíð í Bornholm. Myndin á reyndar eftir að fara víöar en verður auk þess sýnd í sænska sjónvarp- inu.“ Meðframleiðandi í mörgum myndum Anna segist jafnframt vera með ýmis önnur verkefni sem eru styttri á veg komin, meðal annars teikni- myndasyrpu og bíómynd í fullri lengd. Þá er hún með fmnskri konu að framleiða kvikmynd sem verður tilbúin í haust og verður sýnd bæði í kvikmyndahúsum og sjónvarpi. Hún Qallar um konu í Eistlandi sem varð milljónamæringur nánast á einni nóttu þegar Sovétríkin liðu undir lok. „Eg fór til Helsinki um daginn og skoðaði myndina og hún lofar góöu. Einnig er ég að framleiða tvær danskar kvikmyndir með Ar- ena Film í Kaupmannahöfn í fullri lengd. Önnur er nánast tilbúin og hina erum við að fara í gang með,“ segir Anna. Hún viðurkennir að það sé afar sjaldgæft að konur framleiði kvik- myndir. „Við erum tvær undir sama þaki sem vinnum á svipaöan hátt. Starfsemi okkar er aðskilin en við deilum húsnæði og þaö kemur vel út fyrir báðar. Þessi kona heitir An- ita Oxburgh og er sænski meðfram- leiðandinn á íslensku kvikmyndinni Benjamín dúfa. Við getum verið hvor annarri innan handar með ýmislegt auk þess sem við auðgumst báðar af samböndum okkur. Húsnæði okkar er í miðborg Stokkhólms á mjög góð- um stað,“ segir Anna ennfremur. Frá Norðfirði í hinn stóra heim Anna er fædd og uppalin á Nes- kaupstað. Hún flutti til Hafnarfjarð- ar þegar hún var fimmtán ára göm- ul. Það er langur vegur frá Norðfirði í heim alþjóðlegra kvikmynda en Anna segist alla tíð hafa veriö mikill bíófíkill. Hún var þó orðin 27 ára þegar hún fór utan í nám í kvik- myndafræðum og lét þar meö gaml- an draum rætast. Það hefur þó verið enn meira stökk er hún ákvað að leggja land undir fót fyrir tveimur árum og stofna sitt eigið fyrirtæki með kvikmyndir. „Ég hafði komist að því, meðan ég vann heima á ís- landi, að þetta var það sem áhugi minn beindist helst að innan kvik- myndagerðarinnar. Ég hef fengist viö ýmislegt, verið upptökustjóri, klippari, hljóðmaður, skrifað handrit og fleira. Ég fann það líka, þegar ég starfaði hjá útvarpinu, að þetta var sá þáttur sem ég fann mig sterkasta í. Þessi ákvörðun mín kom þó smám saman," segir Anna. Hún segir mun auðveldara að starfa við fagiö í Svíþjóð en á ís- landi. „Styrkveitingar til kvik- myndagerðar eru meö allt öðrum hætti en heima. Sænska kvikmynda- stofnunin er með ákveðið fjármagn til alls kyns kvikmyndagerðar. Hins vegar eru þaö eingöngu framleiðend- ur sem fá fjármagn og þeir skulu bera ábyrgð. Hér er heldur enginn umsóknarfrestur heldur er hægt að sækja um hvenær sem er og styrk- irnir eru veittir jafnóðum. Annað hvort er hugmyndin keypt eða ekki og menn þurfa ekki að bíða meðan málið fer fyrir einhverja nefnd." Anna segist ekki hrinda fram- leiðslu í gang án þess að öll peninga- mál séu á hreinu. „Maður fer ekki í gang með mynd upp á von og óvon,“ segir hún. „Yfirleitt er langur undir- búningstími að hverju verkefni. Einnig er lögð talsverö áhersla á þró- un handrita og sérstakir styrkir veittir til þess.“ Gefur sig að fullu í starfið Anna segir að allnokkrar konur starfi innan kvikmyndagerðarinnar en sjaldgæfara sé að þær séu fram- leiðendur. „Ég hef aldrei fundið fyrir því að menn hugsi um mig sem öðru- vísi framleiðanda af því að ég er kona. Ég hugsa ekki einu sinni þann- ig sjálf. Ef menn taka ákvörðun um aö hleypa svona fyrirtæki af stokk- unum þá verður aö leggja sig allan í starfið og þá er sama hvort karl eða kona á í hlut. Þetta er ekki unnið með hálfum huga, maöur verður að gefa sig starfinu. Merkilegra er, finnst mér, hversu vel mér hefur verið tekið þar sem ég er útlendingur í þessu landi," segir Anna G. Magn- úsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.