Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 íslendingar flykkjast á hljómleika með elstu og merkustu rokkhljómsveit heimsins: Stones hertaka Evrópu Þegar Svíar tala um bíl eiga þeir við Volvo. Og þegar þeir tala um rokk þessa dagana þá meina þeir Rolling Stones. Ef marka má umfjöllun blaöa varð það landsmönnum sannkallað ljós í efnahagslegu myrkrinu að mesta rokkhljómsveit heims skyldi velja Svíþjóð til að hefja síðasta hluta heimsferðar sinnar til að fylgja eftir plötunni Voodoo Lounge sem kom út um miðjan júlí í fyrra. Evrópuferðin hófst á laugardags- kvöldið var með hljómleikum á ólympíuleikvanginum í Stokkhólmi. Þrjátíu og fimm þúsund manns borg- uðu sig inn á hljómleikana. Miðinn kostaöi 350 sænskar krónur, jafn- viröi tæplega þrjú þúsund íslenskra. Utan við leikvanginn var næstum því jafnmannmargt og innan hans og þar reyndu svartamarkaðsbraskarar að selja sína miða á allt að þrettán þús- und krónur. Eftir að tónleikamir hó- fust féll svartamarkaösveröið þó nið- ur í sjö til átta þúsund. Athygh vakti að margt ungt fólk var í hópnum en flestir voru þó á bilinu 40-J5 ára. Eitthvað þessu líkt má búast við að ástandið verði við flesta viðkomustaði Rolling Stones á Evrópuferöinni sem lýkur ekki fyrr en seinni hiutann í ágúst. Hljómsveitin lék í Stokkhólmi á laugardag, í Helsinki á þriðjudags- kvöld, í Ósló í gærkvöldi og annað kvöld heldur hún síðan hljómleika í Kaupmannahöfn. Hundruð íslenskra aðdáenda hafa einmitt keypt sér miöa á þá tónleika til að fylgjast með því hvort gömlu brýnin séu í sama góða forminu og fyrir fimm árum þegar Rolling Stones voru síðast á ferð um Evrópu. Þannig heldur hljómsveitin áfram yfirreið sinni um Evrópu til 19. ágúst þegar hún spilar á kappaksturs- brautinni í Hockenheim í Þýskalandi. Að því loknu pakka fjórmenningarnir saman og halda hver til síns heima í Englandi, írlandi og Bandaríkjunum ásamt fylgdarfólki sínu. Hún er sem sagt ekkert íjarri lagi, samlíking Micks Jaggers á hljómleikaferð rokk- sveitar og sirkushóps. Menn koma í bæinn, setja upp allan búnaðinn, halda eina eða tvær sýningar, pakka síðan saman og flýta sér á næsta stað. 170tonnasvið Aðalmunurinn á ferð Rolling Ston- es og fjölleikahúss er náttúrlega umbúnaðurinn. Stones tjalda ekki og leika síðan list sína. Þeim nægir ekkert minna en stærstu íþróttaleik- vangar Evrópu. Sviöið eitt er um 170 tonn að þyngd og allt úr stáli og áli. Það tekur hundraö manns þrjá daga að skrúfa það saman og koma fyrir ljósum og hljóðkerfi. Þrjú hundruð og tíu hátalarabox eru í söngkerfinu og styrkur þess er ein og hálf milljón vatta. Helsta einkenni sviðsins er hins vegar tuttugu og á'tta metra hár ljósaturn sem sveigir sig yfir sviðið. Á endanum breikkar hann og minnir þvi einna helst á kóbraslöngu. í turn- inum eru hundruð ljóskastara og ýmiss konar eldútbúnaður til að magna áhrif tónlistarinnar. Síðasta hljómleikaferð Rolling Sto- nes var farin árin 1989 og 1990 til að fylgja eftir útkomu plötunnar Steel Wheels. Hún var tahn ein sú mesta að umfangi sem farin hafði verið til þess tíma. Nokkur eins tónleikasvið voru í gangi og voru þau flutt á milli landa eftir ákveðnu kerfi þannig að hljómsveitin gat komið fram kvöld eftir kvöld án þess aö tæknimenn hennar þyrftu að vinna allan sólar- hringinn. írska hljómsveitin U2 bætti um betur með Zoo TV ferðinni sinni og útbúnaður hljómsveitarinn- ar Pink Floyd í hljómleikaferð henn- ar síðasta sumar þótti með því besta sem sést hafði. Tæknisnillingamir, sem Rolling Stones hefur á launaskrá sinni, þurftu því virkilega að leggja höfuðið í bleyti til að skáka því sem U2 og Pink Floyd buðu upp á. Það er mál manna að það hafi tekist. Rolling Stones verða á ferð um Evrópu langt fram i ágúst. Frammistaöan betri skemmtan. Skandinaviu þykir benda til þess að hljómsveitin hafi sjaldan boðið upp á I góðu formi Síðast þegar Rolhng Stones komu th Evrópu sló breska tónlistarblaðið Q upp fyrirsögninni: „Stones eru að koma - læsið ömmur ykkar inni! Þessi hótfyndni er kannski ekkert svo íjarri lagi. Þrír af Qórum hðs- mönnum hljómsveitarinnar eru komnir á sextugsaldur. Það er ein- ungis „nýliðinn Ron Wood sem enn hefur ekki fagnað fimmtugsafmæli sínu. Hann er heldur ekki búinn að vera nema tuttugu ár í hljómsveit- inni - þrettán árum skemur en stofn- endurnir Mick Jagger, Keith Ric- hards og Charlie Watts. En þrátt fyr- ir töluverðan aldur er engan bilbug að finna á liðsmönnum hljómsveitar- innar ef marka má skrif sænskra, norskra og danskra blaða eftir tón- leikana í Stokkhólmi á laugardags- kvöldið var. Jagger fær fyrstu ágæt- iseinkunn fyrir gott úthald og sviðs- framkomu í sérflokki. Gítarleik Ric- hards er hrósaö í hástert og Ron Wood fær góða dóma fyrir að hafa fylgt honum vel eftir. Og áheyrendur jafnt sem gagnrýnendur kunnu vel að meta spartneskan trommuslátt Charlie Watts. Að minnsta kosti fékk Charlie langmest lófatak þegar hljómsveitin var kynnt. Fimm sinn- um varð hlédrægi trommuslagarinn að standa upp frá settinu og hneigja sig fyrir fagnandi manngrúanum áður en hann gat talið í Sympathy For The Devil. Ferðin sem nú er í gangi er hin fyrsta síðan Bill Wyman bassaleikari sagöi skihö við félaga sína eftir um það bil þrjátíu ára samstarf. í hans stað er kominn Daryl Jones, þel- dökkur piltur, liðtækur hljóðfæra- leikari, ágætis raddari og mun betri sviðsmaður en Wyman. Hann er hins vegar ekki fastur maöur í hijómsveit- inni og óvíst hvort hann leikur með henni á næstu plötu hennar. Og fleiri eru að sjálfsögðu í hópnum sem nú fer um Evrópu eins og logi yfir akur. Fyrst skal frægan telja Chuck Lea- vell píanóleikara og bónda sem alltaf er jafn undrandi á því að stórmenni á borð við Eric Clapton og liðsmenn Stones skuh velja sig til að sjá um píanóleikinn. Um saxöfónblástur sér Bobby Keys, margreyndur af plötum og úr hljómleikaferðum Stones á hðnum árum. Um bakraddirnar sjá Bemard Fowler og Lisa Fischer. Hún fær sérlega góða dóma fyrir samsöng sinn með Jagger í laginu Monkey Man sem hljómsveitin flytur nú í fyrsta sinni á sviði þrátt fyrir að rúm- lega aldarfjórðungur sé liðinn síðan það kom út á plötu. Prógrammið Hljómleikar Rolling Stones taka rúmlega tvær klukkustundir og hljómsveitin spilar 23 lög á þeim tíma. Aðeins tvö em ekki eftir Jagger og Richards, það er upphafslagið Not Fade Away eftir Buddy Holly og Norman Petty og Like A Rolling Stone eftir Bob Dylan. Að sögn gagn- rýnanda norska dagblaðsins Aften- posten, sem var viðstaddur tónleik- ana á laugardag, byggjast þeir nánast upp á eintómum hápunktum, allt frá upphafi til enda. Þar eru fastir liðir eins og Satisfaction, Honkey Tonk Women, Start Me Up, Sympathy For The Deyil og Brown Sugar. Upp- klappslagiö er Jumpin’Jack Flash. Alls eru sjö lög af nýju plötunni, Voodoo Lounge, á prógramminu og er það óvenjuhátt hlutfall nýrra laga og hlýtur að benda til þess að fjór- menningarnir séu sérlega ánægðir með það sem á plötunni er að finna. Nokkrir gagnrýnendur spá því að þessi heimsókn Rolling Stones til Evrópu sé hin síðasta. Fjórmenning- amir séu einfaldlega orðnir of gamlir til aö nenna að fara í enn eina hljóm- leikaferð sem tekur rúmlega eitt ár að ljúka. Á blaðamannafundi á dög- unum, þegar Evrópuferðin var kynnt, spurði blaðamaður fjórmenn- ingana hvort feröin í ár væri hin síð- asta. Jagger brást þannig við að hann útnefndi spurninguna frumlegustu spurningu fundarins og gaf blaða- manninum bol með merki hljóm sveitarinnar í verðlaun! Ef marka má lýsingar blaðamanna og áhorf- enda á frammistöðu hljómsveitar- innar að þessu sinni er engin ástæða til aö ætla að Mick Jagger, Keith Ric- hards, Charlie Watts og Ron Wood séu að hugsa til þess að fara að minnka við sig vinnu eða setjast í helgan stein. Hvað þá aö þeir séu að svipast um eftir íbúð í sambýli fyrir aldraða. Við skulum því allt eins reikna með því að hljómsveitin verði á ferð næst árið 2000 og verði þá hressari en nokkru sinni fyrr!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.