Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 24
24 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 „Þjóðarréttur" í 43 ár á milli tannanna á landanum en líklega aldrei meira en nú í kjölfar breytinga: Borðum milljónir af Prins Póló árlega - Prins Póló er og verður Prins Póló, segir Björn Guðmundsson forstjóri en fjórða kynslóðin gæðir sér nú á súkkulaðikexinu Magnús Olafsson segist ekki borða mikiö Prins Póló - þó fái hann sér stykki af og til eins og hér. Hann segist hafa heyrt að upphaflega hafi það verið framleitt sem megrunarkex enda hafi hann, þrátt fyrir slagarann vinsæla, aldrei verið beðinn um að leika i alþjóðlegum auglýsingum fyrir kexverksmiðjuna. DV-mynd GVA Það er óhætt að fullyrða að leita þurfi víða um heim til að finna jafn miklar umræður um breytingar á umbúðum og stærð súkkulaðistykk- is og átt hafa sér stað undanfarna viku hér á landi. Nýlegar breytingar á því sem margir vilja kalla þjóöar- rétt íslendinga, Prins Póló, hafa þannig orðið tilefni til skoöanaskipta á ýmsum vettvangi. Kaffitímar vinnustaða hafa verið undirlagðir umræðum um súkkulaðikexið, íjall- að hefur verið um breytingarnar í fréttum blaða og ljósvakamiðla og margir hafa látið skoðun sína í ljós í rabbþáttum útvarpsstöðvanna. DV hefur ekki farið varhluta af umræð- unni og kannaði hug þjóðarinnar á dögunum. Rödd fólksins var sterk og ákveðin - 92 prósent þjóðarinnar voru ósátt við nýjar umbúðir utan um Prins Póló enda nánast trúar- brögð fyrir suma hvemig tekið er utan af góðgætinu. Höftunum aö þakka Prins Póló hefur verið flutt til landsins í 43 ár. Upphaflega var þaö Baltic Trading sem flutti súkkulaði- kexiö inn en síðustu 39 árin hefur innflutningurinn verið í höndum Heildverslunar Ásbjörns Ólafssonar. „Ég er nú eiginlega búinn að vera jafn lengi Prins Pólóinu hjá fyrirtæk- inu. Á þessum tíma voru mikil inn- flutningshöft og það fengust bara vörur frá jafnkeypislöndunum eða þeim löndum sem, keyptu okkar framleiðslu. Mest voru þetta austan- tjaldslöndin. Viö vorum svo heppnir að Pólland var öll þessi ár í viðskipt- um við okkur þannig að það fengust alltaf leyfi til innflutnings á Prins Póló. Ég held því fram aö þaö hafi ekki bara verið höftin sem gerðu Prins Póló jafn vinsælt og það er heldur er það verulega gott. Það er mátulega sætt og höfðar til fólks,“ segir Björn Guðmundsson, forstjóri Heildverslunar Ásbjöms Ólafssonar, og bendir á, þessu til stuönings, að sala á Prins Póló hefur haldið sér eftir að innflutningshöft voru afnum- in árið 1980. Prins Póló og menningin Sjálfsagt er mjög sjaldgæft að heil þjóð taki jafn miklu ástfóstri við eina tegund sælgætis og íslendingar hafa gert í þessu tilviki. íslenskir leikrita- höfundar hafa séð ástæðu til að nefna Prins Póló í verkum sínum, sjálft nóbelskáldið fjallar oftar en einu sinni um það í bók sinni Kristnihaldi undir Jökli, sem út kom áriö 1968, en þar segir Tumi Jónsen að Prins Póló sé eini munaðurinn sem fólkið á bænum hans hafl látiö eftir sér eft- ir að velgengni kom til landsins. Loks muna líklega flestir eftir vinsælum slagara sem Magnús Ólafsson söng um sjóara og gæja sem sjúkur er í Prins Póló og varð vinsæll sumarið 1981. Magnús segir að Þorgeir Ást- valdsson hafi fundið lagið, sem var upphaflega sungiö af þýskum pönk- hópi, og Gunnar Þórðarson síðan gjörbreytt þvi. Þorsteinn Eggertsson hafi hins vegar samið textann. „Hver gæti átt svona rugltexta ann- ar en hann? Þegar ég sá textann fyrst sagði ég: „Þennan texta syng ég aldrei. Þetta er svo mikil þvæla.“ Gunni Þóröar setti bara fram skúff- una og sagöi að þetta yrði pottþétt „hitt“. Ég trúði honum og Þorgeiri sem haföi líka mikla trú á þessu lagi. Síðan var farið inn í stúdíó og textinn sunginn. Eg man aö það voru tveir textar þar sem Prins Póló kom fyrir en þessi varð fyrir valinu,“ segir Magnús. Hann segir það hafa komið sér á óvart hversu miklum vinsældum lagið náði enda hafi þetta verið fyrsta lagið sem hann söng inn á plötu. Gunnar og Þorgeir hafi hins vegar haft trú á því, eins og fyrr sagði, en svo hafl hann sjálfur sannfærst þeg- ar hann heyrði það betur. Aðspurður jánkar hann því að hann eigi vel- gengni sína að stórum hluta laginu að þakka. Prins Póló og minningarnar „Þetta var sumarið 1981 og eina lagiö sem heyrðist fyrir utan þetta var - Ég fer í fríið. Þaö eiga örugg- lega margir sælar minningar frá þessum tíma og ég hef grun um aö þessi lög téngist þvi sumri í hugum margra, sérstaklega þeirra sem sóttu útihátíðir-. Þegar ég fer til dæmis á Þjóðhátíð syng ég yfirleitt Prins Póló og jafnan þekkja allir lagið og taka vel undir,“ segir Magnús. Sjálfur segist Magnús ekki borða mikið Prins Póló - þó fái hann sér stykki af og til. Hann hafl heyrt að upphaflega hafi það veriö framleitt sem megrunarkex enda hafi hann, þrátt fyrir þennan vinsæla slagara, aldrei verið beðinn um að leika í al- þjóðlegum auglýsingum fyrir kex- verksmiðjuna. „Ég veit að þetta lag fór víða. Það var til dæmis mjög vinsælt meðal íslendinga í Ástralíu. Björn Guð- mundsson lét síðan þýða textann yfir á ensku og svo snaraði einhver annar honum af ensku yfir á pólsku. Þar var þetta spilað í pólsku kexverk- smiðjunni við miklar vinsældir. Ég hef mikinn áhuga á að heyra þetta sungið á pólsku því ég held að textinn sé nú orðinn ennþá skrýtnari. Hann hefur líklega afbakast á leiðinni og nógu var hann ruglaður fyrir. Svona geta ólíklegustu hlutir hitt í mark en Þorgeir sagði að ef nafnið Prins Póló kæmi fyrir í textanum þá væri það nóg,“ segir Magnús. Hann þvertekur fyrir það að Björn hafi greitt Sumargleðinni fyrir að flytja lagið. Björn hafl hins vegar verið fljótur að átta sig á auglýsinga- gildinu og séð þeim fyrir Prins Pólói að japla á og gefa á skemmtunum. „Mér finnst ömurlegt að það skuli vera búið að skipta um umbúðir á Prins Pólóinu. Eg vil hafa þetta í gömlu umbúðunum og það liggur við að ég horfi með tárin í augunum til fortíðarinnar því súkkulaðið hefur alltaf rifjað upp gamlar og góðar end- urminningar," segir Magnús og bæt- ir því við að hann hefði lengið beðið þess að Björn byöi sér til Póllands til að syngja lagið í Prins Póló verk- smiðjunni. Prins Póló aldurinn er25til40 ára Prins Póló er framleitt í verksmiðj- unni Olza á landamærum Póllands og Tékklands, Póllandsmegin. Björn Guðmundsson segir ána Olza skilja löndin að og verksmiðjuna draga nafn sitt af henni. Um 800 manns starfa í verksmiöjunni og er Prins Póló ein af framleiðslulínunum. Auk sölu á innanlandsmarkaði í Póllandi er súkkulaðikexið flutt út til Kúveit, Sádi-Arabíu, Kanada og íslands sem lengi vel var stærsti kaupandinn. Kúveit hefur hins vegar skipað sess aðalútflutningslands Olza verk- smiðjunnar síðustu árin. Reynt hefur verið að flytja Prins Póló út til annarra landa en án veru- legs árangurs. Þó er litiö magn, lík- lega tveir gámar eða svo, selt til Bandaríkjanna árlega. Þannig hefur DV heimildir fyrir því að kexið fáist í ákveöinni verslun í New York og að íslendingar séu tíðir gestir í þeirri verslun. „Við höfum látið kanna neysluhóp okkar og það kom í ljós að í honum eru börn frá 10 ára aldri og allt upp í sjötug gamalmenni. Meginhópur- inn er þó á aldrinum 25 til 40 ára og nú er íjórða kynslóðin farin að borða Prins Póló. Það er eins og þetta erfist frá foreldrum til barna og jafnvel barnabarna og svo framvegis," segir Björn. 230 tonn afPrins Póló Hann segir að öll þessi ár hafi neysla á Prins Póló verið nokkuð jöfn. Aðeins hafi mátt greina sam- drátt í sölu um það leyti sem inn- flutningur á sælgæti var gefinn frjáls en salan náði fljótlega sama marki og áður. Aðjafnaði neyta íslendingar um 230 tonna af súkkulaöikexinu árlega, aö sögn Björns, eöa sem nem- ur á níunda hundrað gramma á hvert mannsbarn. Það þýöir að íslendingar borða á fimmtu milljón Prins Pólóa á ári hverju og er þá aðeins reiknað með stórum Prins Pólóum. Það kem- ur því engum á óvart að aldrei hefur komið' til tals að hætta innflutningi á súkkulaðikexinu. Það er einn af hornsteinum Heildverslunar Ás- björns Ólafssonar enda nemur salan fimmta hluta af veltu fyrirtækisins. Síöan frjálsu markaöshagkerfi var komið á í Póllandi hafa mörg fyrir- tæki í eigu ríkisins verið einkavædd. Nýlega varð það hlutskipti Olza verksmiðjunnar en hún komst í eigu Kraft Jacobs Suchard sem er eitt af fyrirtækjum eignarhaldsfyrirtækis- ins Philip Morris. Það var að frum- kvæði forráðamanna þess sem breyt- ingar voru gerðar á tækjabúnaöi verksmiðjunnar og umbúðum súkkulaðikexins. Hræddist breytingarnar „Þeir vildu endurnýja vélakostinn og færa þetta nær nútímanum - hafa vöruna í lokuðum umbúðum. Þetta réttlættu þeir með því að það væri neytandanum til hagsbóta og vöru- gæðin yrðu meiri. Við vildum gjarn- an að gamla bréfið fengi að halda sér en það var ekki hægt. Nýju vélarnar þeirra geta ekki framleitt 50 gramma súkkulaðikex og því varð að fram- leiða það í 40 grömmum. Ég verö að viðurkenna að ég hræddist bæði umbúða- og stærðarbreytinguna en þetta hefur komið mjög vel út ef miö er tekið af sölunni. Eg held aö marg- ir séu fyrirfram á móti breytingun- um þegar þeir sjá umbúðirnar. Það er ekki hægt að opna þetta á sama hátt og gert hefur veriö í áraraðir og ekki bætti úr skák að það var þynnra. Ég held samt að þetta sé mikið til sálrænt. Prins Póló er og verður Prins Póló og stenst þessa breytingu eins og tímans tönn,“ segir Björn. -PP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.