Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Side 26
26
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
tflfl
Á toppnum
Lagið Vor í Vaglaskógi með
hljómsveitinni Sixties er enn á
toppnum aðra vikuna í röð. Þeir
félagar, sem spila klassíska
bítlatónlist, innlenda sem er-
lenda, sendu nýlega frá sér sína
fyrstu plötu sem nefnist Bítilæði
og hefur hún fengið mjög góðar
viðtökur.
Nýtt
Lagið Buddy Holly með hljóm-
sveitinni Weezer er hæsta nýja
lagið á listanum en það er í 22.
sæti þessa vikuna. Hér er á ferð-
inni heitasta rokkbandið í
Bandaríkjunum í dag en lagið var
á toppi bandaríska rokklistans
fyrir skömmu.
Hástökkið
Hástökk vikunnar er rapplag-
ið I’ll Be around með bandarísku
hljómsveitinni Rappin’4 Tay.
Lagið er byggt á gömlu lagi frá
1972 með hljómsveitinni Spinn-
ers. Lagið, sem er búið að vera í
þrjár vikur á listanum, var í 22.
sæti í síðustu viku en er nú kom-
ið í 14. sæti.
Sjúss
með Shane
Shan
McGowan, hinn íðilfagri
söngvari The Popes, er með mörg
járn í eldinum þessa dagana.
Hann er fyrir það fyrsta að und-
irbúa útgáfu á lagi þar sem hann
og Marie Brennan, söngkona
írsku hljómsveitarinnar Cl-
annad, syngja saman. Ennfrem-
ur er hann að undirbúa sig fyrir
að koma fram á nokkrum tónleik-
um í sumar með gömlu írsku
brýnunum í The Dubliners og síð-
ast en ekki síst bendir allt til þess
að sjónvarpsstöðin Channel 4
bjóði McGowan stöðu þátta-
stjórnanda í rabbþáttum! Einn
prufuþáttur hefur þegar verið
tekinn upp og ef af verður munu
þættirnir heita því táknræna
nafni: „A Drink with Shane Mc-
Gowan“ eða sjúss með Shane Mc-
Gowan.
Marti
Pellow í
hlutverk
Krists
íslendingar eru ekki einir um
að ætla að setja söngleikinn Jesus
Christ Superstar aftur á svið á
næstunni. Sömu áform eru uppi
í Bretlandi og það í stórum skala
því verið er að leita hófanna hjá
þekktum poppstjörnum í aðal-
hlutverkin. Einn þeirra sem ku
hafa þekkst slíkt boð er Marti
Pellow, söngvari skosku stór-
sveitarinnar Wet Wet Wet, og er
það ekkert minna en aöalhlut-
verkið sjálft, hlutverk Krists.
' > I ' i \ ( (■ I i /' • f f
\D ÍÆ u k) K M
7 >
.rj
VlMUm ID/ÍL '95 ' UUL 96
ÞESSI VIKA SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM WP 40
1 1 12 4 ••• 2 VIKA NR. f... VOR í VAGLASKÓGI SIXTIES
2 2 1 6 ARMY OF ME BJÖRK
4 5 3 LIVING NEXT DOOR TO ALICE (WHO THE X IS ALICE) GOMBIE
o 10 14 4 BE MY LOVER LA BOUCHE
5 5 4 5 LAY LADY LAY DURAN DURAN
6 6 7 5 HOLDING ON TO YOU TERENCE TRENT D’ARBY
Q> 14 25 3 LET HER CRY HOOTIE 8. THE BLOWFISH
8 3 2 8 HAVE YOU EVER REALLY LOVED A WOMAN BRYAN ADAMS
9 7 3 9 SELF ESTEEM OFFSPRING
(To> 11 17 24 4 LIGHTNING CRASHES LIVE
8 8 4 ÉG ELSKA ALLA STJÓRNIN
12 12 13 4 SOME MIGHT SAY OASIS
QD 15 36 3 EVERYDAY LIKE SUNDAY PRETENDERS
Q3> 22 32 3 - HÁSTÖKK VIKUNNAR... PLL BE AROUND RAPPIN '4 TAY
15 9 6 7 CAN'T STOP MY HEART FROM LOVING YOU AARON NEVILLE
16 13 15 5 SKY HIGH NEWTON
Qz) 25 31 3 MADE IN ENGLAND ELTON JOHN
Qs> 23 - 2 LOVE CITY GROOVE LOVE CITY GROOVE
Qá> 20 - 2 CRIMSON AND CLOVER SPANISH FLY
20 11 10 6 BABYBABY CORONA
21 16 18 4 ÉG SÉ UÓSIÐ BUBBI OG RÚNAR
1 - NÝTT Á LISTA ••• BUDDY HOLLY WEEZER
(22)
QD 28 - 2 NETFANGINN (ÉG SEGI þAð SATT) SÁLIN
24 24 28 5 THIS WAY TO HAPPINESS GLEN FREY
NÝTT 2 SÖKNUÐUR SIXTIES
(26> 31 40 3 SOMEONE TO LOVE JON B. & BABYFACE
QD NÝTT 1 THIS AIN'T A LOVE SONG BON JOVI
rn TT 1 SEXY GIRL SNOW
29 19 20 4 DON'T WANT TO FORGIVE WET WET WET
(Is) 38 . 2 WATER RUNS DRY BOYS II MEN
B1 40 _ 2 BIG YELLOW TAXI AMY GRANT
32 21 16 12 OVER MY SHOULDER MIKE & THE MECHANICS
33 33 37 3 FEEL MY LOVE TEN SHARP
(34) 35 NÝTT 1 NO MATTER WHAT YOU DO OLIVIA NEWTON-JOHN
18 < 6 SAVE IT 'TIL THE MORNING AFTER SHUT UP AND DANCE
(3§) Qz> (H) 1 SE PÁ MEJ JAN JOHANSEN
1 (24-7-365) l'M GONNA LOVE YOU CHARLES 8. EDDIE
39 - 2 WHERE DO 1 GO FROM YOU JON SECADA
E^l NÝTT 1 COME AND GET YOUR LOVE REAL MCCOY
IBl NÝTT 1 DRIVING WITH THE BRAKES ON DEL AMITRI
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmdaf markaðsdeild DVihverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, I textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur
þátt í vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem
er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Varað við
samningum
Á hverjum degi eru 40 þúsund
manns að rembast við að verða
poppstjörnur í Bretlandi einu
saman. Aðeins 160 af þessum
fjölda tekst árlega að komast á út-
gáfusamning og af þeim tekst að-
eins litlum hluta að ná alþjóðlegri
hylli. En þar með er björninn
ekki alltaf unninn því þorstinn
eftir frægðinni er oft svo mikill
að einstaklingamir skrifa imdir
nánast hvaða samninga sem er til
að komast í sviðsljósið. Þannig
hafa ýmsir málsmetandi menn
með reynslu, poppstjömur á borð
við Billy Joel, Brace Springsteen
og Jon Bon Jovi, varað unga upp-
rennandi listamenn við því að
skrifa undir samninga nema að
vandlega athuguðu máli. Þeir
segja reynslu sína þá að útgáfu-
íyrirtækin svifist einskis í samn-
ingum.
Weiland í
vondum
málum
Scott Weiland, söngvari Stone
Temple Pilots, er í afar vondum
málum þessa dagana vegna eitur-
lyfjaíiknar sinnar. Hann var til
skamms tíma vistaður á endur-
hæfingarstofhim en var ekki fyrr
kominn þaðan út en hann var
handtekinn með heróín og kóka-
ín í fómm sínum. Konan hans
borgaði tryggingu fyrir hann og
sótti hann á lögreglustöðina en
hann launaði henni greiðann
með því að stökkva út úr bílnum
þegar hún nam staðar við rautt
ljós. Eftir það heyrðist ekki frá
honum í fjóra daga en þá kom
hann fram á útvarpsstöð og baðst
afsökunar á framferði sínu. Wei-
land er nú kominn aftur á endur-
hæfingarstofhun og bíður dóms
að auki.
Plötufréttir
Rage against the Machine er
hætt við að hætta og ný plata er
loks í uppsiglingu. Eftir að hafa
unnið í heilt ár að annarri plötu
sveitarinnar fór aHt í háaloft og
útlit fyrir að saga sveitarinnar
væri öH. Nú er hins vegar ailt faU-
ið í ljúfa löð og platan á leiðinni
í haust... Manic Street Preachers
er komin í hljóðver og vinnar að
upptökum á lögum sem liðsmað-
ur sveitarinnar, Richey Ed-
wards, samdi skömmu áður en
hann hvarf í febrúar síðastliðn-
um . . . Liðsmenn Smashing
Pumpkins eru að vinna að nýrri
plötu og ku framleiðslan vera svo
mikU að ekki dugi minna en tvö-
falt albúm ...
Upp á loft
að leita
Gömul upptaka með Mick Jag-
ger og Keith Richards frá ung-
lingsárum þeirra, sem fannst
ekki aUs fyrir löngu, var seld á
uppboði í Lundúnum á dögunum
fýrir rúm fimmtíu þúsund pund
eða ríflega fimm miUjónir króna.
-SþS-