Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995 Fréttir DV Smáþorskuriim hvarf af fiskmörkuðum eftir breytingu á reglugerð: Talið að fiskinum sé 1 leygt eða landað fram hjá vigt - rúmlega 90% samdráttur hjá Fiskmarkaði Suðumesja 14.000 kg. 12.000 14.C Hundruð milljóna í hafið 2000 94 Upplýsingar. Fiskmarkaöur Suöurnesja undirmáls- þorskur í mars „Síðan reglugerðin var tekin í gagnið um áramót finnst manni þessi smáþorskur hverfa nánast af mörk- uðunum. Það haföi áður verið tals- vert af honum í boöi. Þetta er sá fisk- ur sem frystingin hefur átt mögu- leika á að kaupa,“ segir Sturla Er- lendsson, framkvæmdastjóri fisk- verkunarinnar ísfoldar á Eyrar- bakka. Sturla vitnar þarna til þess að þeg- ar sjávarútvegsráöuneytið breytti reglugerð um kvóta þannig að undir- málsfiskur taldi að fullu til kvóta, í stað þriðjungs áður, stórminnkaði framboð af undirmálsfiski. Fyrirtæki Sturlu byggði á síðasta ári vinnslu sína að miklu leyti á vinnslu smáþorsks og fjárfesti í véla- kosti í samræmi viö það. „Þetta hefur gert það að verkum að við höfum ekki unnið eitt einasta þorskkíló á þessu ári. Við höfum reyndar náð að nýta tækin til vinnslu á smáýsu en hún skilar sér miklu betur vegna þess að menn hafa átt í erfiðleikum með að ná ýsukvótan- um. Þar hirða menn allt sem kemur um borð,“ segir Sturla. Hann segir skýringu þess að undir- málsþorskurinn hverfur vera í breytingu á reglugerðinni. „Það hlýtur að gerast vegna þess að hann er tekinn að fullu inn í kvóta. Hann hverfur ekki allt í einu þessi fiskur, það kemur ekki til. Eitt- hvað hlýtur að veröa um hann,“ seg- ir Sturla. Gunnar Bergmann Traustason, verkstjóri hjá Fiskmarkaði Breiða- fjarðar, segir að sá undirmálsþorsk- ur sem komi inn á sinn markað sé aö langmestu leyti af krókabátum og ekki sjáist lengur undirmálsfiskur af neta- og snurvoðarbátum. „Undirmálsfiskur af netabátum og snurvoðarbátum hvarf alveg þegar reglugerðin tók gildi," segir Gunnar Bergmann. Ólafur E. Ólafsson, framkvæmda- stjóri Faxamarkaðar, tók í sama streng. „Það geröist nákvæmlega það sem reiknað ver meö þegar reglugerðin tók gildi, smáþorskurinn hvarf. Þaö eru allir sammála um það,“ segir Ólafur. Smáfiskinum fleygt Þeir aðilar sem DV ræddi við voru sammála um aö við reglugerðar- breytinguna í febrúar í vetur hefði það gerst að allflestir kvótabátar hefðu hætt að landa smáfiskinum um vigt. Nýlegt dæmi, þar sem togarinn Lómur HF landaði fiskinum beint til fiskbúðar, styður þessa kenningu. Öllu alvarlegra er þó að í mörgum tilvikum viröist augljóst aö fiskinum sé fleygt af veiöiskipum í hafið aftur. Erfitt er að kortleggja umfang þess þar sem tölulegar upplýsingar hggjá ekki á lausu. Ólafur Jóhannesson hjá Fiskmarkaði Suðumesja segir ekki leika neinn vafa á því að reglugerðin hafi orðið til þess að smáþorskur skili sér ekki lengur. Hann nefnir sem dæmi að í mars og apríl hafi l magniðminnkaöumrúm90prósent. I „Raunveruleikinn er sá að í mars í fyrra seldum við 14 tonn af smá- þorski en í mars sl. aðeins eitt tonn. Ef litið er á apríl í fyrra þá fengum við 5 tonn í sölu en aðeins hálft tonn í ár. Það er misskilningur að menn | hafi misnotað ákvæði um undirmál til að selja stærri fisk. Slíkt hefði þýtt lægra verð og það leikur sér enginn að því,“ segir Ólafur. Meðan gamla reglan var í gildi mátti smáfiskur vera 10 prósent af afla veiðiskips. Ef gengið er út frá því að ársafli sé 150 þúsund tonn þá er þar um að ræða 15 þúsund tonn í heildina. Miðað viö að varlega sé far- ið í sakimar og reiknaö með að „að- eins“ helmingurinn fari í hafið aftur er ljóst að þarna er um verulegt tjón að ræða. Undirmálsfiskur gæti kost- að um 50 krónur kílóið upp úr sjó, þannig að 7.500 tonn leggja sig á 375 milljónir króna. Ef htið er ttl útflutn- ingsverömætis af sama afla þá er um ' aðræðaum800mihjónirkróna. -rt Stuttar fréttir Hafísinn hörfar Hafls hefur hörfaö talsvert norðvestur af landinu. Isinn er um 70 milur noröur af Homí. Næst landi er ísinn 57 milur norð- vestur af Kópanesi. FjárfestíGrimsby Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og J.P.J & Co. í Færeyjum hafa keypt aht hlutafé Faroe Sea- food Company Ltd. í Grimsby á Englandi. Skrifað var undir samninga þar að lútandí sl. fimmtudagskvöld. Samiðumfiskimenn í gær var skrifað undir samning um þjálfun, skírteini og vaktir fiskimanna á ráöstefnu Alþjóða- siglingamálastofnunarinnar f London. Varaforseti ráöstefn- unnar var RagnhUdur Hjaltadótt- ir, skrhstofustjóri í samgöngu- ráðuneytinu. Tll veiða við Kolbeinsey Tveir tugir norskra loðnuveiði- skipa héldu í gær tíl veiða við Kolbeinsey. RÚV greindi frá þessu. -kaa Iðnaðarmaöurinn á myndinni var að lagfæra strompinn á öðru húsanna þegar Ijósmyndari DV leif í heimsókn i vikunni, enda eins gott að hafa hann í lagi þegar þingmönnum hitnar í hamsi. DV-mynd GVA Fárveiktist eftir am- f etamínát í smokkum íslendingur, sem handtekinn var í Danmörku fyrir hálfum mánuði, hafði gleypt um 300 grömm af am- fetamíni í smokkum. Ekki vildi betur til en svo að eitthvaö af smokkunum hafði sprungið eftir inntöku og maðurinn fárveiktist. Lögreglan tók síðan eftir smokkum í ælu mannsins þegar flytja átti hann á sjúkrahús. íslendingurinn var að koma frá Amsterdam og flaug í gegnum Kaupmannahöfn. Hann hafði ætlað efnið til sölu hér innanlands og var framseldur til íslands eftir fjögurra daga sjúkrahúsvist. Hann hefur verið látinn laus og telst máhö upp- lýst. -sv UmhverfiAustur- vallarbreytist Unnið er aö umfangsmiklum við- gerðum á húsunum Kirkjustræti 8 og 10, við hhðina á Alþingishúsinu. Alþingi keypti húsin árið 1982 í þeim tilgangi að rífa þau og byggja stór- hýsi á lóðinni. Frá því var hins vegar horfiö vegna kostnaðar og voru hús- in látin drabbast niður í rúman ára- tug. Nú hefur hins vegar verið ákveð- ið að færa húsin í upprunalegt horf og gert ráð fyrir að vinnu við þau að utanverðu ljúki seint á þessu ári. Meðal annars á að rífa tengibyggingu milU þeirra og má þvi búast við að umhverfi Austurvallar breytist nokkuð þegar verkinu er lokið. Enn hefur engin ákvörðun verið tekin um hvaða starfsemi fari fram í húsunum en án efa munu þau bæta eitthvað úr brýnum húsnæðisvanda Alþingis. Reykjavíkurbórg: Alltskóiafólk komiðívinnu „Nú er allt skólcifólk 16 ára og eldra í Reykjavík komið í vinnu, gengið var frá því á fimmtudag," sagði Oddr- ún Kristjánsdóttir, framkvæmda- stjóri Vinnumiðlunar Reykjavíkur- borgar. Alls sóttu 3960 ungmenni um starf hjá borginni, 1201 staðfesti ekki um- sókn sína og hefur þá trúlega fengið vinnu annars staðar og 2759 hafa verið ráönir. Tværbílveltur Lögreglan í Keflavík þurfti að hafa afskipti af tveimur bOveltum í fyrri- nótt. Önnur var á malarvegi á Mið- nesheiði en þar slasaðist enginn. Eft- ir hina, sem varð á malarvegi milli Garðs og Sandgerðis, skammt frá golfskálanum, var þrennt flutt á sjúkrahús. Einn var lagður inn til frekari rannsóknar. Hann meiddist á baki. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.