Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995 Sérstæð sakamál Rétt eins og öll önnur börn var Paulette Boudreaux full af eftir- væntingu yfir því hvað foreldrar hennar höfðu keypt handa henni í afmælisgjöf. Kvöldið fyrir tíu ára afmæhð læddist hún niður stigann af efri hæðinni í húsi fjölskyldunn- ar í Toronto í Ontario í Kanada til að vita hvort hún gæti orðið nokk- urs vísari um gjöfina. Paulette varð undrandi. Hún gat auðvitað ekki hlerað hver gjöfm var, en þess í stað heyrði hún íoður sinn segja í lágum hljóðum: „Nei, Yvonne. Það er best að hún fái aldr- ei að heyra sannleikann. Við vitum ekki hvaða áhrif það myndi hafa á hana, og það þjónar því engum til- gangi að segja henni það.“ „Það getur verið, Michel," svar- aði móðir hennar. „En er ekki betra að við segjum henni það heldur en að hún frétti það hjá ókunnugum?" „Hér þekkir okkur enginn," svar- aði Michel þá. „Ef við segjum henni það ekki fær hún aldrei að vita neitt.“ Hljóðlega læddist Paulette upp stigann og inn í herbergiö sitt, en henni varð ekki svefnsamt þessa nótt. Margar hugsanir sóttu að henni, en eitt var hún viss um. Sá dagur kæmi þegar hún kæmist að því hvað það var sem foreldrar hennar vildu ekki segja henni. Gamla ferðataskan Nú liðu fimm ár. Paulette var í leyfi úr skólanum og dag einn var hún ein heima. Þá ákvað hún að fara upp á háaloft og leita í ferða- töskum og kössum, ef þar kynni að vera eitthvaö sem varpað gæti ljósi á leyndarmálið sem henni hafði orðið svo tíðhugsaö um und- anfarin ár. Hún hafði ekki leitað lengi þegar hún fann umslag í gamalli íerða- tösku og á því stóð stórum stöfum: Einkamál. Hún hikaði augnablik, en opnaði svo umslagið. í því voru aUmargar samanbrotnar blaðaúr- klippur. Sú efsta var frá 15. janúar 1954 og fyrirsögnin var: „DUBUC HENGDUR FYRIR MORÐIÐ Á EIGINKONU SINNI“. Paulette starði á úrklippuna um stund. Hún þóttist nú viss um að hún væri komin á sporið. Síðan fór hún að lesa. „Snemma í morgun var hinn 54 ára gamli Fortunat Dubuc hengdur í Bordeaux-fangelsinu í Montreal fyrir morðið á konu sinni, Adri- enne Dubuc, í janúar í fyrra. Dubuc gekk föstum skrefum að gálganum og þegar hann var spurður að því hvort hann hefði nokkuð að segja áður en hann yrði tekinn af lífi svaraði hann: „Nei, komið ykkur bara að verki, svo við getum komið þessu frá.“ Hann lét þó eftir sig bréf til stúlkunnar Yvonne Gaudin, sem sögð er ganga með barn hans, en hennar vegna er hann talinn hafa myrt konu sína.“ Móðirin spurö Paulette hætti lestrinum og lagði úrklippurnar aftur í umslagið. Mikið rót var komið á hugsanir hennar. Yvonne Gaudin var nafn móöur hennar áður en hún giftist Michel Boudreaux. Paulette var fædd í maí og Dubuc hafði verið hengdur í janúar áriö eftir. Þegar móðir hennar kom heim spurði Paulette: „Hver var Fortun- at Dubuc? Var hann faðir minn? Ég vil að þú segir mér allt um hann. Mér finnst ég eiga rétt á að vita það.“ Yvonne Boudreaux varð náfol, og um hríð kom hún engu orði upp. Svo rétti hún úr sér og sagði: „Þú hafðir ekkert leyfi til að róta í mínum persónulegu munum, en úr því þú gerðir það er best að þú fáir að heyra alla söguna. Fortunat Dubuc hafði verið bóndi í St. Isidore í Quebec-ríki og hafði verið kvæntur í tuttugu og sex ár sumarið 1952, þegar hann fór í heimsókn til bónda nokkurs í grenndinni. Þar kynntist hann fimmtán ára dóttur hans. Adrienne Dubuc, kona Dubucs, var þá fimmtíu og tveggja ára og Fortunat Dubuc. að mestu rúmfóst vegna heilsu- brests. Þótt hann væri árinu eldri var hann heilsugóður. Hann var einmana í hjónabandi sínu og Yvonne var sömuleiðis einmana. Hún fékk ekki að umgangast jafn- aldra sína að neinu marki því for- eldrar hennar voru strangtrúaðir og ólu hana upp á þann hátt að henni fannst hún hafa mjög tak- markað frelsi. Eiginkonan deyr Þau Fortunat og Yvonne drógust hvort að öðru þrátt fyrir aldurs- muninn og fóru að hittast á laun. Þar kom að hún varð ólétt og þá bað Dubuc hana að giftast sér. Vandinn var hins vegar sá að af því gat ekki orðið meðan Adrienne Dubuc var lifandi. Hann ákvað því að flýta fyrir því að hún yfirgæfi þennan heim. Dag nokkurn í janúar 1953 sneri Dubuc sér til prestsins á staðnum, Yvonne Gaudin. Adrienne Dubuc. Jean-Marie Russel læknir, ásamt konu sinni. fóður Elisee Choquet, og sagði að þegar hann hefði komið inn eftir morgunverkin í útihúsunum hefði kona hans verið dáin. Hann bað nú um að presturinn og heimilis- læknirinn kæmu með á sveitabæ- inn. Þannig stóð á að heimilislæknir- inn gat ekki komið með presti og var því sóttur annar læknir, Cle- ment að nafni. Hann taldi Adrienne hafa látist af hjartabilun, og þegar heimilislæknir Dubucs-hjóna gat svo staðfest að hún hefði verið hjartveik gaf Clement læknir út dánarvottorð. Nágrannarnir verða forvitnir Adrienne Dubuc var jarðsett, og þar með hefði málinu verið lokið hefðu ekki tvær forvitnar grann- konur farið að fylgjast með því sem gerðist á bæ Dubucs. Þær fengu mikinn áhuga á lífinu þar eftir að þeim varð ljóst að ung stúlka var komin á bæinn, aðeins þremur vik- um eftir lát Adrienne. Enginn hafði séð stúlkuna koma og hún virtist aldrei fara úr húsi fyrr en eftir myrkur. Dubuc sjálfur vakti nokkra at- hygli á sér fyrir að vera í mun betra skapi en hann hafði verið um ára- bil. Það þótti ýmsum kyndugt, svo skömmu eftir að hann hafði misst konu sína sem hann hafði verið kvæntur í rétt rúman aldarfjórð- ung. Nágrannakonumar þurftu að fmna sér tilefni til að grennslast fyrir um hagi Dubucs, svo þær gerðu sér ferð heim á bæinn til þess að bjóða aðstoð við sveitastörf- in, skyldi hennar vera þörf. Það sem þær sáu varð svo til þess að mikið umtal hófst í sveitinni. Þær sögðu að ung stúlka, Yvonne Gaud- in, aðeins sextán ára, væri á bæn- um og gengi hún með barn. Ábendingin Konurnar tvær lögðu saman tvo og tvo og komust að þeirri niður- stöðu að Dubuc væri með eitthvað óhreint í pokahorninu. Þær fóru á fund yfirvaldsins og þegar þær höfðu sagt sögu sína var ákveðið að grafa upp lík Adrienne Dubuc. Réttarlæknir, Jean-Marie Rouss- el, var fenginn til rannsóknarinnar og kom í ljós að í líkinu var um tuttugu sinnum meira af strikníni en þurfti til að drepa meðalmann. Um leið og niðurstaðan lá fyrir var málið fengið rannsóknarlög- réglunni og eftir yfirheyrslur tókst henni aö komast að því að vinur Dubucs, Robert Laviere, hafði keypt flösku með refaeitri, en striknín var aðalefnið í því. Laviere skýrði svo frá því aö Dubuc hefði beðið sig að kaupa eitrið fyrir sig. Húsleit hjá Dubuc leiddi síðan í ljós flöskuna og vantaði þá í hana um helming innihaldsins. Dauðadómurinn Dubuc gerði enga tilraun til að ljúga um gerðir sínar. Hann sagðist hafa hellt eitrinu út í hjartalyf konu sinnar. „Ég vissi að konan mín gat dáið hvenær sem var,“ sagði hann. „En ég hafði ekki tíma til að bíða því að stúlkan sem ég elskaði gekk með barnið mitt.“ Það varð ekkert af brúðkaupinu -sem fyrirhugað hafði verið. Dubuc kom hins vegar fyrir rétt í Montre- al í september 1953 og hlýddu kvið- dómendur á málflutninginn. Að honum loknum og eftir að þeir höfðu ráðiö ráðum sínum í þrjá tíma lýsti kviðdómsformaðurinn yfir því að þeir teldu Dubuc sekan. Dómarinn setti upp svarta hettu og hanska, en það var hefð við uppkvaðningu dauðadóma. Síðan tilkynnti hann að Fortunat Dubuc skyldi hengdur. Eftirmálinn Paulette Boudreaux, sem er nú fjörutíu og eins árs, segir nú frá: „Ég fæddist í maí 1954 og tveimur árum síðar giftist móðir mín Mic- hel Boudreaux. í fimmtán ár hélt ég að hann væri faðir minn. Þau fluttust til Toronto, þar sem enginn þekkti móður mína. Hefði ég ekki heyrt samtalið í stofunni kvöldið fyrir tíu ára afmælið mitt heföi ég líklega aldrei fengið að vita hver raunverulegur faðir minn var.“ Móðir mín leit svo á að hún bæri sinn hluta ábyrgðarinnar, sagði Paulette svo. „Hún lést nýlega úr krabbameini og þegar hún lá bana- leguna sagði hún við mig: „Það skipti mig engu þótt Fortunat Dubuc væri fimmtíu og þriggja ára og ég fimmtán ára. Og það hefði engu breytt þótt hann hefði verið dálítið eldri. Ég hefði samt viljað giftast honum til þess að komast að heiman og frá foreldrum mín- um. Mér fmnst því að ég hafi átt þátt í að senda konu hans í gröfma og hann í gálgann." “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.