Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 23
Jólablað 1975 — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
3«
■■■ ■
íÆi*í? s
Eldrauður vegur i alfaraleið
á isa bláu landi:
roðinn úr austri að birjóta sérs-i>raut
um byggðir og hraun þessa lands?
Myndir eftir Kristján Kristjánsson.
Hvernig má það vera
að hvorki húsmóðir i vesturbænum
né bóndakona fyrir austan
hafi komið auga á
aðsteðjandi hættu?
Er Velvakandi að sofna á Varðbergi?
Megum við eiga von á
að eldrauðir vegir
útbii fleiri byggðir
okkar fagurbláa lands?
Á KVENNAÁRI
Jafnræði kynja er kjörorð ársins
en leyfist mér að spyrja
hvort náttúrulögmálið
sé hallkvæmt karlkyni
i jafnaðarviðleitninni
Rótfast i mold og klettaskorum
er kvenkyn venslað tungli stjörnum og sól
bundið hrynjandi náttúrunnar
nánar en mánuðir ársins
lætur lifssafann streyma um æðar sér
bera dulmál um háspennukerfi tauganna
sem hefur margar móttökustöðvar
lifir i helgidómi holdsins
nærist á ástriðu
æðstri lifsgæða
hefur hugboð að vegvisi og áttavita
skautið sem tilveran snýst um
og dimm göng lifsins
inni veröld sem allir þrá
veröld inni veröld
þarsem undrið gerist
og rætur okkar liggja
brjóstin birgðastöðvar ódauðleika
lyklar að óráðnum leyndardómum
igildi jarðar og jarðargróða
Rótlaust karlkyn
venslað skýjum og vindum
vopnað þrumum og eldingum
leitar fullnægju i faðmlagi
sem færir þvi ástardauða
og endurvakta ófullnægju
með vitund um
að það er einungis verkfæri
til viðhalds stofninum
slitið úr tengslum við náttúru
og lif sem kviknar i djúpi
utangarðs við lifsundrið
fann karlkyn upp loftfimleika hugans:
heimspeki stjórnmál herstjórnarlist
stærðfræði skák stjörnuvisindi
Með margrætt bros Monu Lisu
stendur kvenkyn álengdar við leikvang loftfimleika
sveipað veðrum og vindum
og finnur safann stiga i stofni sinum
Er ekki nóg að hafa rauða hunda
rauð hús, rauð þök, rauð hross
rauða bila, rauðar beljur
rauðgraut, rauðliða, rauðsprettu
rauðkál, rauðblæði, rauðbirting
rauðvin, rauðsokka, rauðhettu
rauðost, rauðskeggja, rauðbrysting
rauðber, rauðmaga, rauðamöl
rauðúlf, rauðbeður, rauðaldin
mýrarrauða, skarlatssótt
kvöldroða og morgunroða
brennivinsnef og neftóbaksklúta
þó við förum ekki lika að leggja rauða vegi?
Eina riki Evrópu
með eldrauða vegi
á ihalds bláu landi
og enginn segir neitt
nema eitt vesalt skáldmenni
sem roðnar uppi hársrætur
þegar hann er sagður rauðbirkinn
og rauðleitur i skoðunum
STEINA FYRIR BRAUÐ
Gefið mér steina fyrir brauð:
þeir eru tormeltir
hlaða ekki á mig kiwanis-hvapi
lions-fitu eða rotary-skvapi
Með steinbörn i maga
er erfitt að róa i spikinu
hvaðþá hlaupa i spik
aukþess sem slik börn
eru ófin á mogga
og óvæn á gljúfrasteini
Gefið mér steina fyrir brauð
til að hlaða varnargarð
gegn umsáturssveitum
heimalinnar átklúbbahópsálar
á leirbornum hagfótum
frimúrara varðbergs
vestrænnar samvinnu
og junior chamber