Þjóðviljinn - 14.02.1981, Síða 3
Helgin 14.— 15. febrúar 1981 ÞJÓÐVÍLJINN — SIÐA 3
Reykj avikurborg:
Yfir 500 lóðum
úthlutað á árinu
Fidelio
endur-
fluttur
í dag
1 dag kl. 14 verður óperan
Fidelio endurflutt f Háskólabíói,
en flytjendur eru á þriðja hundr-
að talsins, Karlakór Reykjavíkur
og Söngsveitin Fílharmónia auk
Sinfdniuhljómsveitar tslands og
sjö einsöngvara: Astrid Schirm-
er, Manfred Schenk, Ludovigo
Spiess, Bent Norup, Elin Sigur-
vinsdóttir, Sigurður Björnsson og
Kristinn Hailsson. Stjórnandi er
Jean-Pierre Jacquillat.
Óperan var flutt á áskriftartón-
leikum Sinfóniuhljómsveitar-
innar s.l. fimmtudagskvöld fyrir
húsfylli og var henni tekið með
kostum og kynjum. Þar stóðu á
sviðinu þrumusöngvarar, sem
greinilega höfðu ekki mikið fyrir
þvi að fylla Háskólabió með
kröftugum tónum.
Það ætti ekki neinum að finnast
á sig hallað þó sérstaklega sé
minnst á söngvarana Manfred
Schenk sem hefur einkar fallega
og kröftuga barytónrödd og Bent
Norup sem fóru á kostum i hlut-
verkum Rocca fangavarðar og
Don Pizarro. Þjóðviljinn náði i
gær tali af Þjóðverjanum Manfr-
ed Schenk, en hann hefur sungið
hlutverk Roccas yfir tvö hundruð
sinnum i öllum helstu tónleika- og
óperuhúsum Evrópu á rúmlega
20 ára söngferli sinum. Þetta er
þó I fyrsta sinn sem hann tekur
þátt i tónleikaflutningi verksins,
þ.e. án sviðsmyndar og búninga
og sagði hann að tónleikaformið
tslenska tónlistarfólkið kom
gleðilega á óvart, sagði þýski
barytónninn Manfred Schenk.
Ljósm. —eik.
ætti mjög vel við Fidelio.
„Reyndar þekki ég þessa óperu
nú orðið svo vel,” sagði Schen.k.
,,að ég geri mér ekki alveg^ grein
fyrir þvi hvernig hún kemst til
skila til fólks sem kannski er að
heyra hana i fyrsta sinn þegar
samtölum sem eru inni á milli
söngvanna er sleppt.”
— En hvernig list svo þessum
margreynda söngvara á islenska
tónlistarmenn og hvernig gekk
samvinnan?
„Frammistaða hljómsveitar-
innar og kóranna kom mér gleði-
lega á óvart”, sagði Schenk.
„Maður fann lika að áhorfendur
voru mjög jákvæðir og tóku
flutningnum ákaflega vel.
Stemmningin var mjög góð. Þá
var samvinnan með mestu ágæt-
um og geysilega gaman að vinna
með stjórnandanum Jean Pierre
Jacquillet.”
— Sem sagt, allt mjög gott?
„Já, — þegar maður ferðast
svona milli staða og kemur i nýja
og nýja hópa kemur það fyrir að
andrúmsloftið er ekki nógu gott
eða jafnvel svo slæmt að varla er
hægt að vinna. Þvi var ekki fyrir
að fara hér, heldur þvert á móti,
— allt til fyrirmyndar.”
Þvi er svo við að bæta að fyrir
hádegi I dag er hægt að nálgast
miða i bókaverslun Eymunds-
sonar og eftir hádegið i miðasöi-
unni i Háskólabiói. Al/ká.
í ár verða gerðar bygg-
ingarhæfar ióðir undir
rúmlega 500 ibúðir i
Reykjavík, þar af um 150
ibúðir sem verða sérhann-
aðar fyrir aldraða og fatl-
aða. Allar eru þessar lóðir
vestan Elliðaáa og flestar
á þéttingarsvæðunum
svonefndu við Eyrarland
og öskjuhliðarskóla en
einnig í Nýja miðbænum og
á Eiðsgranda.
12 lóðum undir einbýlishús
verður úthlutað á Eiðsgranda og
er þá aðeins óráðstafað tveimur
þyrpingum á þvi svæði. 150 ibúðir
verða i einbýli, parhúsum, rað-
húsum og litlum fjölbýlishúsum
við Eyrarland i Fossvogi. Hefur
Starfsmannafélagi Reykjavikur-
borgar, hópi aldraðra og bygg-
ingameistara sem hyggst reisa
sérhannaðar ibúðir fyrir fatlaða
svo og Geðverndarfélagi Islands
verið gefin fyrirheitrfyrfr allt að
54 ibúðum i þeirri byggð.
114 ibúðir verða i einbýli, rað-
húsum og parhúsum á svæðinu
við öskjuhliðarskóla og er þar
m.a. gert ráð fyrir tveimur
ibúðum i 10 einbýlishúsum til af-
nota fyrir sömu fjölskyldu fyrir
börn eða aldraða á heimilinu.
I Nýja miðbænum i Kringlu-
mýri verða 15 ibúðir i raðhúsum
en auk þess 215 ibúðir i 2ja til 6
hæða fjölbýlishúsum. Gefið hefur
verið fyrirheit um allt að 100
ibúðir i þessari byggð fyrir sér-
150 fyrir
aldraða og
fatlaða!
hannað húsnæði fyrir aldraða
með mikilli þjónustu og fæðinga-
sundiaug m.a. Þá eru nokkrar
„eftirlegukindur” t.d. tvær hest-
húslóðir i Breiðholti og hugsan-
lega nokkrar á Eiðsgranda-
svæðinu sem úthlutað verður um
leið.
Morgunblaðið féll á nokkuð ein-
föld reiknisdæmi þessu tengdu á
fimmtudag þar sem i fyrirsögn
var fullyrt að lóðum undir
300—350 ibúðir yrði úthlutað þó að
i texta kæmi fram að 511 ibúðir
Jafnréttishreyfing var form-
lega stofnuð á Akureyri um sl.
helgi einsog sagt hefur verið frá I
Þjóðviljanum. Hefur stofnun
félagsins vakið mikla athygli og
umræður i bæjarfélaginu, en
fyrsti starfsfundurinn hefur nú
verið boðaður i dag, laugardag, I
Einingarhúsinu Þingvallastræti
14, kl. 16.
yrðu væri að ræða. Kaus „hið
virta” fréttablað að telja ekki til
lóða þær 150 ibúðir sem hópar og
félög fá til ráðstöfunar. Sagði
Sigurjón Pétursson um þessa
reikningskúnst i gær að frétt
Morgunblaðsins væri mjög
blekkjandi og liður i áróðursher-
ferð Sjálfstæðisflokksins um
„lóðaskort” i borginni.
„A þessu ári verður úthlutað
lóðum undir rúmlega 500 ibúðir
og þó búið hafi verið að gefa fyrir-
heit um hluta þeirra vegna sér-
stakra þarfa dregur það i sjálfu
sér ekki úr úthltuninni. Það er al-
gengt að slik fyrirheit séu gefin
einkum til aðila sem þurfa nokk-
urn aðdraganda og undirbúning
að framkvæmdum og hafa t.d.
Byggung og Verkamannabústað-
irnir notið slikra fyrirheita. Það
er fáránlegtað telja það ekki með
sem úthlutaðar lóðir”, sagði
Sigurjón Pétursson.
— AI
Eru aliir jafnréttis-
sinnar hvattir til að mæta.
Gengið verður endanlega frá
grundvelli félagsins á fundinum i
dagog þá ma. aðild karlmanna og
hvort þeir skuli eiga aðild að
grunnhópum. Starfsemin fram-
undan verður rædd og skipt niöur
i hópa eftir áhugasviði hvers og
eins.
Jafnréttishreyfingin Akureyri
Fyrsti staris- fundur í dag
UNGVERSK
HÁTÍÐ
Feröaskrifstofan Malevairtours, Hungar Hótel og Feröamála-
ráö Ungverjalands kynna Ungverjaland sem ferðamannaland.
Framreiddur veröur daglega ungverskur matur og ungversk
vin, sem hvort tveggja telst með þvi besta i Evrópu.
Gestum veröur skemmt meö ungverskri músik undir borðum.
Þekkt sigaunahljómsveit leikur og söngkona syngur meö.
Dansað verður á hverju kvöldi.
Sýndar veröa ungverskar kvikmyndir laugardag og sunnudag
kl. 14.00 báða dagana.
Auk þess munu fulltrúar viöskiptamála veröa á hótelinu og
kynna ungverskar vörur.
Ferðaskrifstofa okkar mun i sumar efna til f jölda ferða til Ung-
verjalandsog hefur bæklingur (með upplýsingum um verð, verið
gefinn út. Sendum hvert á land sem er.
NÝTT FERÐAMANNALAND
• Búdapest skoðuð, ein fallegasta höfuðborg
í Evrópu
• Dvalið á baðströnd við Balatonvatn.
• Skoðunarferðir farnar um landið.
• Tækifæri gefst til að skreppa til Austurríkis
og Júgóslavíu svo eitthvað sé nefnt.
A HOTEL LOFTLEIÐUM
17.-22. FEBRÚAR
Kynning á ungverskri matseld í Leifsbúð
17. febrúar kl. 18.00.Ungverski matreiðslumeistarinn
Zoltabara og Hilmar Jónsson veitingastjóri kynna.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Ferðaskrifstofa
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoðavog 44 - Reykjavik - Sima 86255.