Þjóðviljinn - 14.02.1981, Page 5
Helgin 14.— 15. febrúar 1981 ÞJ6ÐV1LJINN — StDA 5
Undir forystu afsettu
leiötoganna. En hver er þá stefna
hins nýja leiðtoga Sjálfstæöis-
flokksins? Hún birtist við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar ársins
1981.
Þar var lagt til að lækka
fjárveitingar til ýmissa liða um
samtals 1981 miljón króna.
Aðeins fimm gjaldaliðir
(rekstrarliðir) voru sérstaklega
tilgreindir til lækkunar, þ.e.
Árbæjarsafn, styrkur til
Jafnréttisráðs, styrkur til Torfu-
samtakanna, framlag til Strætis-
vagna Reykjavikur og framlag til
Framkvæmdasjóðs.
Auk þessara rekstrarliða var
lagt til að lækka fjárveitingar til
launabreytinga (vegna hækkunar
visitölu) um 500 miljónir króna,
sem bendir til þess að annað
hvort hafi Sjálfstæðismenn i
borgarstjórn meiri trú á áhrifum
efnahagsaðgerða rikisstjórnar-
innar en nokkrir aðrir i landinu
eða að þeir séu að boða þann vilja
sinn að greiða ekki starfsmönn-
um borgarinnar umsamdar visi-
tölubætur.
Aðrar lækkunartillögur þeirra
eru loðnari og yfirborðskenndari.
Þannig lögðu þeir til að lækka
bifreiðakostnað nokkurra stofn-
ana án þess að benda á leiðir eða
hve mikið skuli lækka hjá hverri.
Þá lögðu þeir til að framlag til
nýbyggingar gatna og holræsa
lækkaði um 5% án þess að tiltaka
nokkra framkvæmd sem þeir
telja að megi falia niður.
Þeir vildu skera niður
byggingarframkvæmdir á vegum
borgarinnar, — aðrar en
byggingarframkvæmdir fyrir
aldraða, um nær 400 miljónir
króna, án þess að tiltaka hverju
mætti fresta eða hvað væri
óþarft.
Þeir vildu minnka áhaldakaup
borgarinnar, einnig án þess að
tiltaka hverju ætti að fresta.
Aðeins einn lið vildu þeir hækka
en það var liðurinn „tekjufærðar
eftirstöðvar” sem raunar var
hækkaðurum meira en þeir lögðu
til skv. tillögu meirihlutans.
A móti þessum lækkunum vildu
þeir að útsvarsálagningin yrði
11% i stað 11,88%.
Sjaldan eða aldrei hafa verið
lagðar fram við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar jafn illa unnar
og yfirborðskenndar tillögur. Þó
má lesa úr þeim væntanlega
stefnunýja leiðtogans, - að draga
úr framkvæmdum, og skera niður
framlög til menningarstofnana og
félagssamtaka og lækka i staðinn
álagningu á borgarbúa.
En hvað hefur nýi leiðtoginn
lagt til að yrði lækkað af
tekjustofnum borgarinnar? Það
er nauðsynlegt aö gera grein fyrir
þvi i heilu lagi til að skilja stefnu
hans til fulls.
Sjálfstæðismenn i borgarstjórn
hafa i tengslum við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár
lagt til eftirfarandi lækkanir á
tekjum borgarinnar:
að útsvarstekjur
lækkium 2.477 m.kr.
að aðstöðugjöld
lækkium 1,712 m.kr.
að fasteignaskattar
lækkium 2,188 m.kr.
að lóðaleiga
lækkium 266 m.kr.
og að gatnagerðargjöld
verðium 220 m.kr.
lægri en áætlun gerir ráð fyrir.
Samtals eru þetta 6.823 miljónir
króna.
Allar fjárveitingar á yfir-
standandi ári til byggingarfram-
kvæmda.s.s. til skólabygginga,
borgarbókasafns, æskulýðs-
heimila, iþróttamannavirkja,
borgarleikhúss, sjúkrahúsa,
heilsugæslustöðva, barnaheimila
svo nokkuð sé tilgreint, þ.e. allar
byggingarframkvæmdir aðrar en
byggingarframkvæmdir vegna
aldraðra (sem þeir vilja ekki
lækka) nema 5.512 miljónum
króna!
öll áhaldakaup vegna
sjúkrahúsa, skóla, menningar-
mála, iþróttamáia og félagsmála
nema samtals 1.002 miljónum!
Þótt hætt yrði við allar
framkvæmdir hér að ofan og öll
áhaldakaup þá myndi samt vera
eftir að skera niður 309 miljónir
króna tii aö mæta lækkunartillög-
um nýja ieiðtogans.
Það er vonandi hverjum manni
ljóst að menn með slikar hug-
myndir eins og birtast I tillögum
Sjálfstæðismanna mega auðvitað
aldrei komast i aðstöðu til aö
framkvæma þær.
Undirbúningsnefnd á fundi nýlega. A myndina vantar 4 fulltrúa. en i
nefndinni er einn fulltrúi fvrir hvert hinna 13 barna sr. Jóns, er niðja
eignuðust.
Reykhlíðingar
koma saman
á tveggja alda afmæli ættföðurins
Unnið er nú að' lokaundirbún-
ingi móts þess, er niðjar sr. Jóns
Þorsteinssonar, ættföður Reykja-
hliðarættarinnar, efna til sunnu-
daginn 22. febrúar næstkomandiá
tveggja alda afmæli hans.
Mótið hefst i veitingahúsinu
Sigtúni við Suðurlandsbraut kl. 3
e.h. með dagskrá og kaffi-
drykkju. Er þess vænst, að þang-
að komi ungir og gamlir, bæði
ættmenn og tengdafólk. Þeir, sem
taka vilja þátt i sameiginlegu
borðhaldi um kvöldið kl. 8, þurfa
að gera sérstaklega viðvart um
það i sima 85073 (skrifstofusima
Sigtúns) mánud., þriðjud. og mið-
vikud. 16.—18. febrúar kl. 4—6.
Musica Nova
starfar
A áratugnum 1960-70 starfaði
hér á landi félagsskapur tón-
listarmanna sem hét Musica
Nova og mörgum er enn i fersku
minni. Þessi félagsskapur hefur
nú verið endurvakinn eftir rúm-
Iega tiu ára hlé á starfseminni. i
nýkjörinni stjórn Musica Nova
eru þau Manuela Wiesler,
formaður, Súorri Sigfús Birgisson
og Leifur Þórarinsson.
Að sögn Leifs Þórarinssonar
var félagið endurvakið vegna
þess að hér á landi hefur legið
niðri kynning á nýrri útlendri tón-
list og jafnframt hefur vantað
fyrirtæki sem ýtti undir islenska
tónsmið með þvi aö panta tón-
verk, flytja þau á tónleikum og
gefa þau út á plötum.
Starfsemin verður þriþætt. 1
fyrsta lagi er gert ráð fyrir að
hljóðfæraleikarar láti i ljós óskir
um tónverk og sendi inn pantanir,
sem teknar verða fyrir af nefnd
á ný
sem i eiga sæti þau Helga Ingólts-
dóttir semballeikari, Hafsteinn
Guðmundsson fagottleikari og
Kristján Daviðsson listmálari.
Nefndin sér um að panta verkin
hjá viðkomandi tónskáldum. 1
öðru lagi er gert ráð fyrir fernum
tónleikum á ári, og verður frum-
flutt a.m.k. eitt nýtt islenskt tón-
verk á hverjum tónleikum. I
þriðja lagi verða þessi tónverk
svo gefin út á plötum.
I byrjun mai verða haldnir
kynningartónleikar, þar sem flutt
verður islenskt tónverk sem tólf
islensk tónskáld semja i samein-
ingu, og einnig verk eftir nokkur
erlend tónskáld sem hafa haft
hvað mest áhrif á 20. öld: Edgar
Varese, Anton Webern og
Petrazzi.
Musica Nova er opin öllum
þeim sem áhuga hafa á nýrri tón-
list, islenskri sem erlendri.
—ih
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin i Alþýðuhúsinu laugardag- inn 14. febrúar. Húsið opnað kl. 19. Borðhald hefst kl. 20. Miðasala við innganginn. Gestur kvöldsins er Auður Haralds rit- höfundur. Gunnar Jónsson leikur á gitar. Auk þess munu í'élagar ABA fremja ýmis- konar uppákomur. Hljómsveitin Jamaica leikur fyrir dansi. Miðapantanir teknar i simum: 23871 iKatrin) 25363 (lngibjörg) 21740 (Hildigunnur) jrjrjrjrjrjrjrjrjrjfjrjrjr
ÚTBOÐ Stjórn verkamannabústaða í Ileykjavik óskar eftir tilboðum i málun 6Ö raðhúsaibúða i Hoiahverfi. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. frá og með föstud. 13. tebr. gegn 300 kr. skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, mánud. 2. mars kl. 15. Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik. _
Lækningastofa Hef opnað lækningastofu i Domus Medica, Egilsgötu 3, 5.hæð. Viðtalspantanir i sima 15477. Gunnar Valtýsson læknir Sérgrein: Almennar lyflækningar, inn- kirtla- og efnaskiptasjúkdómar (sykur- sýki).
FALLEGT OG STERKT
Þú getur valiö um 11 gerðir eldhusa frá NOREMA í mismunandi
verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og
sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á
að þær þyldu mikla notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum
þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga.
Hringdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema
SNOREMA
Innréttíngahúsið
Háteigsvegi 3
Verslun sími 27344