Þjóðviljinn - 14.02.1981, Blaðsíða 9
Helgin 14.— 15. febrúar 1981 þjóDVILJINN — SIÐA 9
Eiríkur
frá
Brúnum
um
„Indíana-
villumenn
Ameríku”
Eiríkur frá Brúnum, sá
sem tók mormónatrú og
fór til Utah vestur, hefur
verið nokkuð á dagskrá hjá
okkur að undanförnu —
birtist hér í blaðinu
snemma í janúar allítarleg
frásögn af honum og reis-
um hans frægum.
í Mormónaritum Eiríks
er að ýmsu vikið sem f yrir
augu hans bar í vestur-
heimi — m.a. ullar-
maskínaríi, járnbrautar-
lagningu og fleiri mann-
virkjum. Eiríkur víkur
einnig að frumbyggjum
landsins, sem hafa mikið
verið á skjánum hjá lands-
mönnum að undanförnu
vegna f ramhaldsmynda-
flokksins Landnemarnir,
sem byrjuðu sæmilega en
versnuðu mjög eftir því
sem á leið. Fer hér á eftir
upphaf að kapitula í sem
Eiríkur skrifar ,,um
Indíanavillumenn Am-
eríku" og er hann
merkilega laus við fjand-
samlegar kenndir í þeirra
garð. Honum finnst ekki
nema von að Indjánar vilji
hefna harma sinna þar
sem „stjórnin og Ameríku-
menn halda hvorki orð né
gjörðir við þá".
Þessi samstaða hins islenska
mormóna meö Indjánum á sér
reyndar þær sérstæðu rætur, að
hann hefur lesiö um það að Jósep
Smith spámaöur hafi ætlaö
Indjánum sérstakt hlutverk i
frelsunarverki mormóna. Eirikur
litur svo á, aö þessir minnihluta-
hópar tveir séu báöir ofsóttir af
stjórnvöldum i Bandarikjunum
og eigi þvi samstööu og vonar
meira aö segja aölndjánar hafi
betur i viöureign sinni viö þá
hvitu og geti svo ,,rýmkað út land
fyrir sig og mormóna”.
En þá fer, eins og sumsstaöar
annarsstaöar i ritum Eiriks, aö
hann týnir þræöinum, gleymir þvi
aö hann er að skrifa um Indjána
en skrifar þvi fleira um mormóna
og setjum viö þar punkt á eftir
efninu, sem Eirikur er aftur kom-
inn aö blessuöu liferni útvalinna
guös barna i Sion.
— áb.
Þaö er von þeir reyni aö bera hönd fyrir höfuö sér, þar þeir eru drepnir
.
Þú munt giska á þaö, lesari minn, hver þessi maöur hefur veriö sem var aö prédika fyrir
Indjánum.
Það er von þeim gremjist
Indiánar eru hér innan um fjöll-
in á ýmsum stööum, liöugar 50
þúsund manns. Nú i haust og i
vetur hafa Indiánar veriö aö búa
sig til einhverra stórræða, þeir
eru aö smiöa axir, boga og örvar,
kaupa i búðum byssur, högl og
púður, þeir eru aö brenna elda á
hæstu f jöllum á nóttum til að gera
hver öðrum visbendingu með
samtökin? menn vita ekki neinar
orsakir hjá þeim, nema litlar
tvær. Onnur var sú, aö hér fyrir
sunnan Utah drápu tveir menn
hálfdrukknir einn Indiána; litlu
siðar komu nokkrir Indiánar
þangaö, sem moröingjarnir voru,
og heimtuðu þá út, en fengu ekki,
og urðu aö fara svo búnir og höföu
lofað að hefna, en þá mundu fieiri
gjalda.
Hin var sú, hér fyrir noröan
Utah, aö Indiánar voru drifnir og
hraktir úr einum dal, er þeir voru
búnir aö vera lengi i og jafnvel
búnir aö fá leyfi áður hjá stjórn-
inni aö mega vera þar, en þeir
höföu lofaö meö gremju, aö þeir
skyldu reyna aö ná honum daln-
um aftur. Þaö er von þeim gremj-
ist og reyni aö bera hönd fyrir
höfuö sér, þar þeir eru drepnir og
stjórnin og Amerikumenn halda
hvorki orö né gjöröir viö þá, en
eigi veit ég, hvort þessir Indiánar
eru mormónar eöur ekki, en þaö
er f jöldi af þeim, sem eru búnir aö
taka mormónatrú og láta skira
sig og kvað halda vel trú sina.
Helgisaga
Máske þig langi, lesari minn,
aö heyra, hvernig þeir hafa fengiö
aövörun um náðarboðskapinn, er
þeir hafa margir sagt frá sjálfir,
að þeir hafi hlýtt. Þar sem þeir
Þó Indjánar séu liöfærri, hefur
guö nóg ráö tii aö styrkja þá
á móti stjórninni.
hafi verið margar saman komnir
i sinum hibýlum, hafi komiö inn
til þeirra maöur, sem þeir þekktu
ekki ogkunni þeirra mál og talaöi
við þá vingjarnlega um sama efni
og mormónar kenna og boöa, sem
er um Jesús Krist og hans orö og
Guð hafi sent engil til jarðarinnar
meö þann boöskap, aö fólkið
skyldi lifa betur, trúa og hlýöa og
láta skira sig og hann hafi ráðlagt
þeim að fara til næstu mormóna
og visaö sér á mann, er hann til-
nefndi aö hafi myndugleik aö
skira þá upp úr vatni og leggja
hendur yfir þá meö blessun.
Þeir söögust hafa látiö já og
svo viö þessari ræöu, sumir hálf
trúaö, sumir á milli hluta og
sumir afneitaö.
Svo kvaddihann þá og fór út frá
þeim. Þeir sögöust hafa fariö á
eftir honum aö gá aö, i hvaöa átt
hann fór, en þegar maöurinn var
farinn rétt út fyrir dyrnar, hvarf
hann þeim, svo að þeir sáu hann
hvergi, hvorki á jöröinni né i loft-
inu, og þótti þeim þetta furöu
gegna og sögöu, aö þaö hafi ekki
mennskur maöur veriö, fyrst að
hann hvarf þeim svona og héldu
svo, aö þessi hafi veriö sendur til
þeirra frá þeim stóra anda, sem
þeir segja aö sé uppi i himninum.
Kom þeim þá saman um, aö
þaö væri sjálfsagt aö hlýöa þvi, er
hann sagöi og fara sem fyrst á
staö til þess manns og bæjar, er
hann visaöi til, aö láta skira sig.
Þegar þeir hafa komið, hai'a
mormónar ekkert vitab fyrri en
þeir voru komnir og beiddu um að
skira sig og sögöu frá orðum og
atvikum til þess, eins og ég hefi
sagt.
Eftir aö mormónar hafa upp-
frætt þá betur um sama efni og
maðurinn, hafa þeir skirt þá, og
þeir, bæði karl og kona, veriö
auðmjúk og skikkanleg og veriö
skirö mörg hundruð á dag af
þeim; ég ætla nú að eftirláta þér
lesari minn aö gizka á eftir þinni
hugarlund, hver þessi maður
muni hafa veriö, sem hefur veriö
aö prédika fyrir Indiánum og sagt
þeim aö trúa og hlýöa.
Skjöldur
fyrir mormóna?
Indiánum er vel viö mormóna
og gjöra þeim ekkert mein og
mormónar heldur ekki þeim;
Jóseph Smith haföi lagt rikt á viö
mormóna aö taka vel Indiánun-
um og gefa þeim, þegar þeir
koma og svikja þá aldrei I neinu,
þvi engillinn hafi sagt sér, aö
Indiánar skyldu veröa blóööxi eöa
skjöldur fyrir mormóna, ef
stjórnin ætlaöi aðyfirfallaþá sak-
lausa meö ofriki og þrengingum
eöa heratförum. Þó Indiánar séu
liöfærri, hefur Guð nóg ráö til aö
styrkja þá á móti stjórninni, svo
aö hún hafi ekkert viö og Indiánar
eiga aö rýmka út land fyrir sig og
mormóna. Þetta hefur Jóseph
Smith sagt aö ætti aö ske rétt
fyrir endirinn og er ekki óliklegt,
aö þaö dragist nú bráöum aö þvi
og eru nokkrar likur til þess nú,
þar sem nú liggja 50 klögunarbréf
frá ýmsum stööum á borðinu i
þingsalnum til stjórnarinnar
uppá aö þrengja að mormónum
eða aö afmá þá. Flest af þessum
klögunarbréfum eru frá presta-
stéttinni, þeirra hljóö, og höfuö-
prestanna tóku yfir, krossfestu
þá, krossfestu þá, en stjórnin
kvað þruma viö og segja og
svara, aö þeir komi ekki meö
neinar gildar og sannar ástæður á
mormóna til þess aö ég fari aö
þröngva þeim að svo komnu. En
svo mega leiðir ljúga, aö ljúfur
megi trúa og stjórnin veröi eins
og Pilatus, aö hún þoröi ekki
annaö en hlýba og fordæma okkur
meö röngum dómi eftir fólksins
hatursfullu ósk. En hvaö sem
stjórnin gjörir, þá kviöum viö
mormónar þvi ekkert, þvi viö
treystum og biöjum okkar fööur á
himninum aö vernda okkur og
varöveita frá öllum illum árásum
heimsins barna og erum jafn
kátir og glaöir og ánægöir, hvert
sem herrann ætlar okkur aö lifa
eöa deyja, þá erum viö hans út-
valin börn i Slon, hér i fjallanna
dölum.