Þjóðviljinn - 14.02.1981, Síða 11
Helgin 14.— 15. febrúar 1981 ÞJOÐVILJINN — StÐA 11
Buster Keaton kom sá og
sigraði á kvikmyndahátíð.
Þessi frábæri meistari
þöglu myndanna hefur
ekki verið mjög i hávegum
harður hérlendis fyrr en
nú, og megum við sannar-
lega vera þakklát aðsfand-
endum hátíðarinnar fyrir
að gefa okkur kost á að
kynnast honum.
Hann hét fullu nafni
Hoseph Francis Keaton og
fæddist árið 1895. Foreldr-
ar hans voru farandleikar-
ar og byrjuðu að nota
drenginn á sýningum sín-
um um leið og hann gat
gengið. Hann var ekki hár í
loftinu þegar hann var bú-
inn að læra allar þær
kúnstir sem hægt var að
læra í f jölleikahúsum
þeirra tima. 1917 byrjaði
hann að leika i kvikmynd-
um hjá Fatty Arbuckle,
sem var einn þekktasti
grínmyndasmiður um ær
mundir.
En ferill Fattys hlaut skjótan
og illa endi 1921, þegar hann
flæktist i hneykslismál. Þá fór
Buster Keaton að framleiða sinar
eigin myndir, og á árunum 1921-28
gerði hann flestar þær myndir
sem halda nafni hans á lofti. En
1928 var örlagarikt ár i lifi hans.
Þá lét hann glepjast til að gera
samning við Metro Goldwyn
Mayer, þrátt fyrir aðvaranir
margra góðra manna.
Vinnubrögðin sem hann neydd-
ist til að taka upp þegar hann
réðst i þjónustu risans'voru gjöró-
lik þvi sem hann hafði áður þekkt,
t.d. þurfti hann nú að skila full-
frágengnum handritum, en áður
hafði hann að mestu leyti spunnið
á staðnum. Einnig fékk hann nú
hjörð aðstoðarmanna, sem hann
kunni ekki að stjórna. Það fór að
halla undan fæti, myndirnar sem
hann gerði fyrir MGM voru ekki
svipur hjá sjón, og þar kom að
hann lagðist i drykkjuskap og
hætti að mestu að gera kvik-
myndir.
Síöustu árin
Nú tók við langur og dimmur
kafli i ævisögu Keatons, Ofan á öll
hans vandræði bættist sú stað-
BUSTER KEATON:
Gamanleikarinn
með steinandlitið
reynd, að talmyndir voru komnar
til sögunnar og höfðu haft afdrifa-
rik áhrif á myndmálið, sem leiddi
til þess, að margir snillingar
þöglu myndanna voru ekki lengur
taldir gjaldgengir. Oðru hverju
fékk hann hlutverk i myndum, en
það gerðist æ sjaldnar, og flestir
höfðu gleymt honum.
1 grein i nýútkomnu Kvik-
myndablaði segir Viðar Vikings-
son svo frá, að Samuel Beckett,
leikritahöfundurinn frægi, hafi á
þessum árum leitað Buster uppi
og fengið hann til að leika i kvik-
mynd sinni, „Film”. Þegar Beck-
ett fann hann loksins sat hann ,,i
hópi spilafélaga i miðjum póker,
en þessi póker hafði staðið yfir i
nokkra áratugi og spilafélagarnir
skulduðu hver öðrum miljarða
dollara”.
Buster Keaton dó árið 1966, en
örfáum árum áður hafði hann
verið „uppgötvaður” á nýjan
leik. Þar átti mestan hlut að máli
Raymond Rohauer, sá sem er
gestur Kvikmyndahátiðar að
þessu sinni. Hann tók að sér að
bjarga verkum Keatons frá glöt-
un, og er enn að finna myndir sem
allir héldu týndar, sbr. stuttu
myndirnar tvær sem hann kom
með hingað.
Arið 1965 voru allar tiltækar
myndir Keattons sýndar með við-
höfn á kvikmyndahátiðinni i Fen-
eyjum. Hann var sjálfur viö-
staddur og fékk að upplifa frægð-
arljómann: En sú ánægja stóð
stutt, þvi árið eftir dó hann úr
krabbameini.
Fíf Idirfska
Buster Keaton er frábrugðinn
öðrum gamanleikurum að þvi
leyti að honum stökk aldrei bros.
Af þessu hlaut hann viðurnefnið
„steinandlit”, sem er varla rétt-
nefni, þvi alvörusvipurinn á and-
liti hans tók á sig ýmsar myndir,
þótt hann breyttist aldrei i gleði-
svip. Sá Buster sem við sjáúm á
tjaldinu er litill maður i flestum
skilningi, lágvaxinn litilmagni.
Hann er hrekklaus og einlægur,
lendir i ótrúlegum hrakningum,
lifsháska og svaðilförum af ýmsu
tagi, en hefur alltaf heppnina með
sér á endanum.
Ýmis tiltæki Busters eru svo
snilldarleg, að þau munu aldrei
fyrnast. Eitt frægasta og jafn-
framt lifshættulegasta atriðið i
myndum hans er i Gufubáta-Bill
júnior, sem sýnd verður á kvik-
myndahátiðinni á morgun,
sunnudag. Þar er sýnt hvernig
hvirfilbylur verður þess valdandi
að framhlið á húsi fellur til jarðar
i heilu lagi. Buster stóð undir
þessum vegg en var svo heppinn
að standa einmitt þar sem glugg-
inn kom niður og stóð þvi jafn-
teinréttur eftir að veggurinn var
hruninn.
Að sjálfsögðu var þetta atriði
skipulagt i smáatriðum, og hús-
hliðin sérstaklega hönnuð með til-
liti til þess. Glugginn var hafður
langur, 18 fet, en um breiddina er
það að segja að hún samsvaraði
herðunum á Buster, að viðbætt-
um tveimur tommum við hvora
öxl. Það mátti semsé ekki muna
nema tveimur tommum.
Þetta var ekki i eina skiptið
sem Buster lagði lif sitt i hættu
fyrir listina. Hann notaði aldrei
staðgengla i hættulegum atriðum,
einsog nú er gert.
Þessi fifldirfska er þó ekki það
sem mestu máli skiptir i myndum
hans, enda hefði hýn dugað hon-
um skammt. Einsog allir góðir
gamanmyndahöfundar var hann
ekki bara grinisti, heldur var allt-
af alvara að baki grininu. 1 bestu
myndum sinum er Buster Keaton
að f jalla um samtima sinn og það
þjóðfélag sem hann lifði i.
Persónan sem hann skapaði ferð-
ast um þetta þjóðfélag einsog
gestur frá annarri stjörnu. Hann
er einfari og á erfitt með að að-
lagast rikjandi hugsunarhætti.
Hann sýnir okkur þvi þennan
rikjandi hugsunarhátt i spéspegli
og kennir okkur að efast um gildi
hans.
—ih
Þessi ljósmynd var til skamms tima það eina sem til var af „Astar-
hreiðrinu” eftir Buster Keaton. En svo tókst Rohauer að grafa upp ein-
tak af myndinni og gera þaö sýningarhæft.
Kvikmyndahátið í Regnboganum
Buster Keaton.
Um helgina
Nú er upp runnin siðasta*
helgi kvikmyndahátiðar-
innar. Einsog sagt var frá i
blaðinu i gær verður hátiðin
ekki framlengd, en sýning-
um fjöigað um helgina og
hefjast þær kl. 13 bæði i
dag og á morgun. Sýndar
verða eftirtaldar myndir:
Laugardagur
Tvær með Buster Keaton:
linefaleikarinn (Aukamynd:
Báturinn), kl. 1 og 3. Hers-
höfðinginn (Aukamynd:
Vika). kl. 5, 7, 9 og 11.
Tvær eftir Alfred Hitch-
cock: Fuglarnir, kl. 9.05 og
11.05 Síðasta sinn. Jamaica -
kráinkl. 1.05 3.05 5.05 og 7.05.
Konstantur eftir Pólverj-
ann Zanussi, siðasta sinn, kl.
1.10 3.10 og 5.10.
Vikufri eftir Frakkann
Bertrand Tavernier kl. 9 og
11.
Krossfestir elskendur —
iðilfagurt japanskt
meistaraverk eftir Mizo-
guchi, siðasta sinn, kl. 1, 3, 5
og 7.
Cha cha — rokkmyndin
með Ninu Hagen, kl. 7,10 9,10
og 11.10.
Sunnudagur
Tvær með Buster Keaton:
Gufubáta-Bill júnior (Auka-
mynd: Járnsmiðurinn) kl. 1,
3, 5, 7, 9 og 11. Hershöfðing-
inn (Aukamynd: Vika)kl. 1,
3 og 5.
Jamaica-kráin eftir Hitch-
cock kl. 1.05 3.05 5,05 og 7.05.
Cha-cha kl. 1.10, 3.10, 5.10
7.10 9,10 Og 11.10.
Vikufri kl. 7, 9, og 11.
Stjórnandinn— nýjasta
mynd pólska snillingsins An-
drzej Wajda, kl. 9.05 og 11.05.
Græddur er
Með verðtryggingu sparifjár hefur
þetta gamla orðtak fengið fullt gildi á
ný.
Nú býður Landsbankinn þér að
ávaxta sparifé á 6 mánaða reikning-
um, verðtryggðum og með 1 % árs-
vöxtum að auki.
Þannig tryggir æskan sér framtíð
og aldraðir öryggi.
Sparifé, sem verðbólgan vinnur
ekki á.
Leggið inn í Landsbankann og
tryggið spariféð gegn verðbólgunni.
LANDSBANKINN
Bcuiki allra landsmanna