Þjóðviljinn - 14.02.1981, Blaðsíða 18
lg StÐft — ÞJÓDVÍLlíNN' ' Helgin. 14:— 15. febrúar 1981
Örtölvu- Skipulagslaus tækniþróun
byltingin hættuleg vinnandi fólki
Ekk i seinna vænna
að umræða hefjist
í stéttarfélögunum
„Tækni er ekki skrimsli sem
ber að forðast. Póstmenn eiga að
vera jákvæðir, en þó gagnrýnir á
nýjungar”, segja þeir Sævar
Einarsson og Guðjón L. Sigurðs-
son, starfsmenn Póstgiróstofunn-
ar, i niðurlagi greinar um tölvur i
póstþjónustunni i siðasta ,,Póst-
mannablaði”, en að þvi er Guðjón
sagði i viðtali við Þjóðviljann hef-
ur Póstmannafélagið enn sem
komiðer ekkert rætt væntanlegar
breytingar né viðbrögð við þeim,
þótt jafnvel geti komið til, að
byrjað verði á tölvuvæðingu póst-
stöðva þegar á þessu ári eða þvi
næsta.
Eins og fram kom i fyrri grein
um Ortölvubyltinguna, sem birt-
ist i Sunnudagsblaði Þjóðviljans
7.-8. febrúar sl., er þvi spáð i
Vestur-Evrópu, að tölvustýrðar
póstsamgöngur muni hafa veru-
leg áhrif á atvinnuhorfur á þvi
sviði á komandi áratug. I
V-Þýskalandi er t.d. búist við
mikilli fækkun starfsfólks vegna
tölvutækni á pósthúsunum, en á
móti, að til verði vegna tækninnar
nýjar stöður sem svara til uþb.
2/3 af þeim gömlu. Þar og viðar
fer nú fram mikil umræða um
hvernig mæta skuli og aðlaga sig
tölvutækninni af hálfu stéttar-
félaganna, en hér er umræðan
vart hafin.
I póstinum hér eru tölvur að-
eins notaðar hjá Póstgiróstofunni
og fengu blaðamenn Þjóðviljans
að skoða starfsemina þar nú i vik-
unni. Að sögn Guðjóns L. Sígurðs-
sonar er þar um inntaksvinnslu
að ræða, sem siðan er fullunnin
hjá Skýrsluvélum rikisins, sem
Myndir: eik
Viðtal: vh
Litið inn á einu
tölvuvæddu
deild póstsins —
Póstgíróstofuna
reyndar hefur aðsetur i næsta
húsi, og eru niðurstöðurnar svo
sendar jafnhraðan til baka til
Póstgiróstofunnar. Hún þjónar nú
sem reikningsstofnun fyrir öll
pósthús landsins, tæpíega 100
talsins.og fara gegnum stofnun-
ina um miljón færslur á ári vegna
orlofskerfisins og annað eins
vegna giróþjónustunnar, sagði
Guðjón.
Þegar Póstgiróstofan tók til
starfa 1971 var hún eingöngu með
giróþjónustuna, en tók við orlofs-
reikningshaldinu 1973. Orlofs-
verkefnið var frá byrjun unnið
með tölvum, en tölvuvinnsla
girósins hófst ekki fyrr en 1978.
Framað þvi var kortabókhald og
var álagið stundum gifurlegt,
toppar mynduðust og fólk var að
vinna kvöld og helgar til að anna
verkefnunum.
—Með tölvunum duttu topparn-
ir niður og nú finnum við ekki eins
fyrir áramótum og mánaðamót-
um, segir Guðjón. Væri nú hægt
að auka talsvert færslufjölda og
afgreiðslur án þess að fjölga
starfsfólki. En vinnubrögð hafa
lika breyst, þannig að nú er aðal-
vinnslan i tölvunum á kvöldin, er
unnið á vöktum og allar innlagnir
og útborganir td. dagsins i dag
færðarinn og komnar inná reikn-
inga á morgun. Af 32 manna
starfsliði stofnunarinnar eru 8 á
þessum vöktum, en auk þess höf-
um við varafólk sem kalla má inn
á kvöldin á sérstökum álagsdög-
um.
Það kemur fram, að starfsliði
Póstgiróstofunnar hefur ekki
fækkaðmeð tölvunum, en þvihef-
ur heldur ekki fjölgað þrátt fyrir
aukin verkefni, sem enn má auka
án fjölgunar starfsfólks. Sem
dæmi má taka nýjasta tækið
OCR-tölvulesarann svokallaða,
sem er hið eina sinnar tegundar
hér á landi fyrir utan það sem
Reiknistofa bankanna hefur og
les tölvurákina neðst á nýju giró-
seðlunum og á ávisanaeyðublöð-
um bankanna. Áður var þetta allt
skráð og voru 6 manns i skrán-
ingu. Nú eru 3 i henni, en 2 vinna
við lesarann. Þetta virðist
kannski ekki mikill sparnaður i
starfskrafti, en áður þurfti að
leita til Reiknistofu bankanna
með lesturinn og framundan
er jafnframt breyting á ýmsum
öðrum skjölum Póst- og sima-
málastofnunarinnar, svo sem á
færsluseðlum, úttektarseðlum og
fl., sem breytt verður i OCR skjöl
og „lesin” hjá Póstgiró.
Tölvuvæðing póststöðvanna
sem framundan er taldi Guðjón,
að mundi ekki fækka starfsliði
póstsins hér á landi að marki'
vegna þess hve pósthúsin eru
yfirleitt litil nema þá kannski i
Reykjavik. Hitt gæti orðið vanda-
mál fyrir starfandi póstmenn,
sagði hann, að þeir væru þess
varla búnir að taka við störfum
við tölvurnar. Með grein sinni i
„Póstmannablaðinu” væru þeir
Sævar að reyna að vekja upp um-
ræður félagsmanna, en enginn
formlegur undirbúningur hefði
enn farið fram af hálfu stéttar-
félagsins, engin námskeið, engin
umræða, ekkert, og væri ekki
seinna vænna að hefjast handa ef
póstmenn ætluðu ekki að vikja
fyrir öðrum við þessi nýju störf.
T.d. gæti farið svo, að simamenn,
sem eru undir sömu stofnun, þótt
Guðjón L. Sigurðsson á Póstgiróstofunni: Reynum að vekja upp umræður.
Þorgeröur Kristjánsdóttir við innskrift-
Guðrún Olafsdóttir við nýjasta tækið - tölvulesarann.
i öðru félagi séu, krefðust þess að
sitja að þessari vinnu á þeim for-
sendum, að þeir hefðu fram að
þessu verið i tænistörfum stofn-
unarinnar.
— Við höfum áhuga á þvi fyrst
og fremst að f á fólkið til að taka á
þessum málum, sagði hann.
Það er svo ótal margt sem þarf
að athuga i þessu sambandi gagn-
vart vinnandi fólki; tökum t.d.
bara það hvernig vinnutiminn
kann að breytast — það verður jú
að nýta dýran vélabúnað. Hvern-
ig verður brugðist við breyttum
vinnudegi? Hvernig verður
menntun starfsfólksins háttað og
hver verða launin? Þetta getur
orðið hættuleg þróun.
— Ertu á móti henni?
— Ég er ekki á móti henni, en
hún er algerlega skipulagslaus
hér á landi. Þetta hellist yfir okk-
ur, á þvi er enginn vafi, en hér sit-
ur hver i sinu horni og leysir sitt,
en ekkert heildarskipulag er til á
málunum. Það getur orðið hættu-
legt, bæði vinnandi fólki og þjóð-
félaginu i heild.
—vh
E§S8ílÍ?ÍIÍ
Hrafn Sæmundsson prentari:
Spurningin
um framtíð
mannkyns
„Tölvan er staðreynd og
það þýðir ekkert að ber jast
gegn tækninni. Það þarf
hins vegar að kanna hvaða
áhrif hún hefur og verka-
lýðshreyfingin þarf að
móta kröfur sínar í sam-
ræmi við þær niðurstöður",
sagði Hrafn Sæmundsson
prentari í samtali við Þjóð-
viljann. Hrafn hefur fylgst
vel með tölvubyltingunni,
enda er kunnara en frá
þurf i að segja að prentarar
hafa þegar látið tölvumál-
in til sín taka í kjarasamn-
ingum.
Hrafn sagði að sér fyndist
brýnast að snúa umræðunni um
tölvumál frá möguleikum tölv-
anna að þvi að gera upp þau dæmi
sem þegar eru til staðar. 1 frysti-
iðnaðinum á Isafirði er verið að
smiða 3. eininga tölvustýrð tæki
sem m.a. eigaaðsjá um viktun og
pökkun. 1 frystihúsi tsbjarnarins
er tölvuvæðing þegar hafin. Stór-
fyrirtæki eins og Sambandið
og sum tryggingafyrirtækjanna
hafa stórar tölvur eða eru að
kaupa þær. Hvaöa áhrif hafa
þær? Fækkar fólkisem vinnur við
fyrirtækin, hvað verður um það?
Það er vitað að enginn er ráðinn i
stað þeirra sem hætta. Hvernig
ætlar verkalýðshreyfingin að
bregðast við? Hún þarf að vita
fyrir hverju hún ætlar að berjast
Við getum sagt okkur sjálf að ef
vel tekst til á tsafirði verður
frystiiðnaðurinn um allt land
tölvuvæddur. Hvað verður um
það fólk sem missir vinnu?
„Þetta er eins konar öfug iðn-
bylting”, sagði Hrafn. „Hér fyrr-
um fór allt það vinnuafl sem losn-
aði úr framleiðslugreinunum yfir
i þjónustugreinarnar, með aukn-
um hagvexti og gnótt auðlinda.
Nú beinist byltingin að þjónustu-
greinunum um leið og auðlindir
þverra. Mér sýnist aðeins um tvo
kosti að ræða. Annars vegar að
framleiða jafn mikið með færra
fólki og borga þá hinum atvinnu-
leysisbætur, sem er illur kostur
þvi fólk þarf að hafa eitthvað
fyrir stafni. Hinn er sá að stytta
vinnutimann.
Tölvutæknin er löngu fram
komin, en það sem hefur verið að
gerast er það að hún er komin á
ódýrt framleiðslustig. Hins vegar
var mér sagt frá þvi að nýlega
hefði verið grein i New York
Times um nýja tölvu sem er i
smiðum sem getur tekið ákvarð-
anir. Þar með er tölvutæknin
komin á annað stig og við hljótum
að verða að taka afstöðu til þess
að hverju skuli stefnt. Ætlar
maðurinn að missa tökin á tækn-
inni og gera sjálfan sig óþarfan,
eða á að gripa i taumana? Þetta
er orðin spurningin um framtið og
hamingju mannkynsins”.
— ká
Gullöld
atvinnu-
leysis eða
frístunda?
Það eru aðallega tvær mjög
þýðingarmiklar spurningar sem
valda heilabrotum i sambandi við
afleiðingar þriðju iðnbyltingar-
innar (tölvubyltingarinnar Þjv.):
I fyrsta lagi: Mun þessi iðnbylt-
ing verða til þess að samfélagið
verður samfélag atvinnuleysis
eða verðúr það samfélag fri-
stunda?
Og i öðru lagi: Leiðir þriðja iðn-
byltingin annarsvegar af sér gull-
öld, þar sem maðurinn mun vinna
færri og færri vinnustundir sam-
timis þviað hann beri meira og
meira úr býtum — eða verður hún
þess valdandi að meginþorri
vinnufærra manna verður at-
vinnulaus samtimis þvi að fáir út-
valdir standa að baki allri fram-
leiðslu?
Or grein André Gofz i Rétti 3,
1980, bls. 155.