Þjóðviljinn - 14.02.1981, Side 19
Helgin 14 — 15. febrúaY 19ál ÞJÖRVlLJtNlV— SÍÐA -19
Hin margslungna
samanburöarfrœði
í deilum um hagkerfi, áætlanabúskap og margt
fleira eru háðir miklir talnaleikir með saman-
burði á Sovétrikjunum og Bandarikjunum eins og
menn vita. Samanburður á framförum og lifs-
kjörum i þessum löndum hefur jafnan reynst
erfiður og ber margt til.
Hvað kostar að lifa í
New Y ork og Moskvu?
1 fyrsta lagi hafa menn spurt,
hvort það sé fyllilega réttlátt að
bera saman þjóðfélög sem hafa
búið við jafn misjafnar að-
stæður: Bandarikin voru vissu-
lega miklu betur sett en Sovét-
rikin strax þegar þau voru að
verða til upp úr rústum heims-
styrjaldar og borgarastriðs
fyrir sextiu árum. Og i annan
stað voru heimsstyrjaldarárin
siðari uppgangsár i bandarisk-
um efnahag og lifskjörum,
meðan Sovétmenn máttu þola
þungar búsifjar.
Þetta er vitanlega sjálfsagt að
hafa i huga.
En hvað sem sögunni liður, er
alltaf verið að þessum saman-
buröi. Að vestan er hann einatt
fölginn i þvi, að telja upp verð-
lag á einstaka neysluvörum og
verður sá reikningur mjög
óhagstæður Sovétmönnum.
Sovéskir svara svo með þvi, að
forðast verðlagsupptalningar
nema á nokkrum tegundum
vöru og þjónustu (húsnæði, far-
gjöld, grammófónplötur osfrv.)
og leggja siðan mikla áherslu á
að almenningur fái uppbót á
laun með mikilli samneyslu i
skólakerfi, eftirlaunakerfi
osfrv.
Tvær borgir
Nú hefur einn af lesendum
blaösins sent inn úrklippu úr
bandariska vikublaðinu Time
frá þvi i júni i fyrra, en þá kom
út sérhefti um Sovétrikin. Þar
er gerður samanburður á lifs-
kjörum iðnverkamanna i tveim
borgum, er annar i New York en
hinn i Moskvu. Þessi saman-
burður reynir að vera heiðar-
legur svo langt sem hann nær,
og er þvi ekki úr vegi að birta
hann hér, lesendum til nokkurs
fróðleiks — meðal annars um
verðlagsstefnu hjá þessum
keppinautum tveim og fleira
þesslegt.
1 samanburðinum gengur hið
bandariska rit út frá þvi, að
bandariski verkamaðurinn hafi
265 dollara og 60 sent fyrir um 40
stunda vinnuviku, en hinn
sovéski 56,54 dollara (rúblur
yfirfærðar i dollara eftir opin-
beru gengi) fyrir 42 stunda
vinnuviku. Þetta þýðir að sá
bandariski hafi 6,64 dollara á
timann en iðnverkamaðurinn
sem i Moskvu situr 1,35 dollara.
Siðan birtir Time verðlag i
tveim borgum i dollurum. En til
þess að fá samanburðinn skyn-
samlegri, höfum við yfirfært
verðlagið i vinnustundir og
minútur, við segjum t.d. ekki að
bensingallón kosti 1,35 dollara i
New York og 1,25 Moskvu,
heldur umreiknum i minútur
hve langan tima það tekur að
vinna sér fyrir þeirri vöru i
þessum tveim borgum.
Litið nú á þennan útreikning!
Viðbótarskýring
Svo margar voru þær toiur.
Þess var getið til skýringar, að
ameriski billinn var af gerðinni
Citation en hinn sovéski Zjigúli
(Lada). Að þvier varðar orlofs-
ferð fyrir eina i tvær vikur þá
segir að i bandariska dæminu sé
miðað við annatima á Florida
með máltiðum, en 70% af
Moskvuupphæðinni kunni að
vera greidd af verkalýðsfélag-
inu. Svo'skal þvi bætt við, sem
féll úr hér að ofan fyrir klaufa-
skap, að bandariski verka-
maðurinn er talinn vera klukku-
stund aö vinna sér fyrir potti af
vodka en hinn sovéski átta
stundir!
Nú, hverju má við þetta
bæta? Það er augljóst, að i
Sovétrikjunum er lagt á það
mikið kapp að halda niðri verði
á ýmiskonar þjónustu (húsnæði,
rafmagn, hiti ofl.). Hinsvegar
verður verðlagssamanburður
mjög hagstæður Bandarikja-
manninum þegar spurt er eftir
meiriháttar neysluvarningi
(bifreið, sjónvarp, húsgögn);
einnig verður fatnaður þar
vestra að miklum mun ódýrari.
Matvælasamananburðurinn
gæti raunar verið enn óhagstæö-
ari hinum sovéska iðnverka-
manni, en hér kemur fram.
Vegna þess m.a. að hann getur
ekki gengið að kjöti og ýmsum
öðrum matvælum visum i versl-
unum á föstu verði, heldur mun
kaupa ýmislegt enn dýrara á
frjálsum markaöi.
Á hinn bóginn lætur þessi
samanburður ekki neitt uppi til
eða frá um útgjaldalið sem
miklu varðar, en það eru
skattar. Eru þetta laun áður eöa
eftir að skattar eru dregnir frá?
Það kemur ekki fram, en ef að
hér á eftir að draga skatta frá
þá munu þeir nema allmiklu
lægra hlutfalli af tekjum og
vinnutima hins sovéska verka-
manns en hins bandariska.
áb tók saman.