Þjóðviljinn - 14.02.1981, Side 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Hfelgin 14.— 15. febrúar 1981
Safnahúsið á Sauðárkróki. — Ljósm. —gei—
Sitthvað fémætt
í „Safnamálum”
Ot er komið ritið Safnamál 1980
en það er ársrit Héraðsbóka- og
Héraðsskjalasafns Skagfirðinga.
Umsjónrmenn þess eru Hjalti
Pálsson, Kári Jónsson og Krist-
mundur Bjarnason og er Kári
ábyrgðarmaður.
Ritið hefst á þvi að skýrt er frá
úrslitum visnakeppni 1979. Óskað
var eftir visubotnum við eftirfar-
andi fyrri part:
,,Lækkar sól á sjónarhring,
sumarið brátt er liðið”.
Af þeim botnum, sem bárust,
þtítti þessi bestur:
,,Fellur gras og fölnar lyng,
foklauf hylur sviðið”.
Mun höfundur vera Hjalti Jóns-
son, bóndi i Viöiholti i Seylu-
hreppi.
Óskað var og eftir visum um
orkuvandamálið. Þótti þessi
frambærilegust:
,,Ef að tækniorkan þverr
ógnar vandi mestur.
Körlum mun þó koma verr,
ef kynorkuna brestur.”
Dtímnefndarmenn I visna-
keppninni voru þeir Andrés
Björnsson útvarpsstjóri og Sigur-
jón Björnsson prófessor.
Beðið er nú um visubotna við
eftirfarandi fyrriparta:
„Tefur enginn tlmans skeið,
traustir strengir slakna”.
„Leysist hvorki I lengd né bráð
landbúnaðarmálið”.
„Sæst og rifist sitt á hvað,
sök hjá báðum mikil”.
Rtísberg G. Snædal hefur
undanfarna vetur stundað
kennslu norður i Hjaltadal.
Visnaspjallinu lýkur hann með
þessari hringhendu:
„Gusti svalt um koli og kinn,
kostur valtur talinn,
leitar alltaf andi minn
inn í Hjaltadalinn”.
Mun naumast þurfa að velkjast
i vafa um höfundinn.
Birt er ársskýrsla Héraðsbóka-
safns og Safnahúss Skagfirðinga,
1979 rituð af Hjalta Pálssyni,
bókaverði og greinargerð um
Héraðsskjalasafn Skagfiröinga
1979 eftir Kristmund Bjarnason
skjalavörð. Skrá er yfir þá, sem
fært hafa söfnunum gjafir á árinu
1979 en þeir skipta mörgum
tugum. Kristmundur Bjarnason
hefur tekið saman upphaf bráöa-
birgðaskrár yfir þau skjalagögn
frá hreppunum, sem safninu hafa
borist til ársloka 1979. Tekur
skráin til Akrahrepps, Fells-
hreþps og Haganesshrepps.
Hjalti Pálsson ritar minningar-
grein um Björn Danielsson, fyrr-
verandi sktílastjóra á Sauðár-
króki. Björn var bókavörður
Sýslubtíkasafnsins frá 1956 til
dauðadags 1974 og vann safninu
allt, er hann mátti.
Þá er ekki úr vegi að nefna
„Hvatningarbréf um stofnun
sýslulestrarfélags” i Skagafirði,
er sr. Ztíphtínías Halldórsson,
prestur I Viðvik ritaði sýslunefnd
Skagafjarðarsýslu 18. febr. 1898.
Ærin spöl átti þó þessi skynsam-
lega hugmynd sr. Zóphoniasar i
land en náði samt höfn nokkrum
áratugum siðar.
Og ekki skyldi gleymt þáttum
þeim, sem birtir eru I Safna-
málum og geymdir I Héraðs-
skjalasafninu, ásamt ótal öðrum.
Koma þar fyrst tveir pistlar úr
Árbtík Skagafjarðarsýslu 1940 og
er höfundur Stefán Vagnsson frá
Hjajtastöðum. Segir þar frá komu
breska herliðsins til Skagaf jarðar
en það hafði bækistöðvar á
Sauðárkrtíki og I Varmahlið.
Herliöið tók m.a. á leigu versl-
unarhúsið Bræörabúð á Sauöár-
krtíki, en það var I eigu Kristjáns
Gislasonar, kaupmanns. Geymdi
herinn þar m.a. matvæli,
drykkjarföng og skotfæri.
Aðfarantítt 5. sept. kviknaði i
Bræðrabúð og brann hún til
kaldra kola. Slys urðu þó ekki á
mönnum þótt sprengingar kvæðu
við I sifellu likt og fólkorrusta
stæði yfir I bænum. Ekki náði
eldurinn heldur til næstu húsa og
var þakkað þvi, að stillilogn var,
en timburhús standa þarna
allþétt. Þykknaði I ýmsum yfir
þvi skeytingarleysi Breta að
geyma skotfæri i timburhúshjalli
inni I miðjum bæ. Komst þá á
kreik þessi visa og af ýmsum
eignuð sjálfum sýslumanninum,
Sigurði Sigurðssyni frá Vigur, —
ogekkimjögóliklega til getið: En
ekki mun ýtarleg tilraun hafa
verið gerð til þess að leita fað-
ernis. En visan er þannig:
„Ef eldana þeir auka hér
aftur, — girnist hugur minn
að þeir svfði undan sér
með Ikveikjunni næsta sinn”.
„Bendir seinniparturinn til
þess, að þeir bresku muni hafa
þótt kvenhollir hér sem viða
annarsstaðar”, segir Stefán
Vagnsson.
Þegar ólina skáldkona Jónas-
dóttir heyrði þessa visu sagði
hún:
„Þó að allt sé öfugt nú,
enn er samúð til í heim.
Ef að rætist óskin sú,
einhver finnur til með þeim”.
Hinn 8. nóv. 1897 fórust tveir
bátar I Skefilsstaöahreppi með 11
mönnum. Var þeirra á meðal
hrepps tjórinn, Sigurður
Viglundsson. ísleifur Einarsson
ritaði Eggert Briem, sýslumanni
á Reynistað og bar fram þá ósk að
hann ,,....hið bráðasta hlutist til
um aö hið nauðsynlega sé gjört I
þvi, að bæta Ur hreppstjóraleys-
inu”, og bendir jafnframt á þá, er
hann taldi helst koma til greina.
Er bréf ísleifs ritað i Hvammi i
Laxárdal, 13. nóv. 1879 og birtist
nú I Safnamálum.
Þá er að finna þarna orðsend-
ingu frá bæjarfógetanum i
Reykjavik, E. Th. Jónassen til
sýslumanns Skagfirðinga, dags.
19. mars 1881. Kvartar bæjar-
fógeti yfir þvi að oftsinnis séu
fangar sendir i hegningarhúsið
svo illa búnir að fötum ,,....að það
verður að kaupa hér föt handa
þeim, þegar þeir eiga aö fara
heim aftur....” Mælist bæjar-
fógeti til þess, að fangar verði eft-
irleiðis betur að heiman búnir.
Enn er I Safnamálum bréf frá
Einari Jónssyni i Felli til sýslu-
manns, dags 23. nóv. 1881. Hafði
sýslumaður mælst til þess að
sveitarsjóöur Fellshrepps....léti
Sölva Helgason fá nauðsynlegan
fatnað eða verð fyrir hann af
Sveitarsjóði”, en Sölvi var sveit-
fastur i Fellshreppi. Hrepps-
nefndin ákvað ,„....að láta Sölva
fá nærföt fyrir nýár....” og verði
þeim komið að Reynistað ef ferð
félli en annars vitji hann þeirra
að Felli. Til vara er sýslumanni
heimilað „...,að fá 10 kr. úr reikn-
ing Fellshrepps i Hofsósi, svo sem
meðlag með honum...” (Sölva).
„Að öðru leyti”, segir Einar i
Felli, „sýnist það furðulegt, að
maður, sem kveðst fá jafn mikið
fyrir málverk sitt og honum seg-
ist frá, skuli þurfa að fá sér lögð
föt af fæðingarhrepp sinum”.
Nú er sameining sveitarfélaga
töluvert á dagskrá. Aður fyrr var
öldin önnur. Þá var fremur um
það rætt, að skipta stærri sveitar-
félögum. Akrahreppur er óra-
langur og var á köflum mjög erf-
iður yfirferðar á meðan sam-
göngur voru enn á fornaldarstigi,
en svo var I rauninni allt fram á
þessa öld. Komu þvi oftar en einu
sinni upp raddir um að skipta
hreppnum I tvö sveitarfélög. I
Safnamálum er bréf, sem Þorkell
Pálsson, hreppsstjóri á Frosta-
stöðum, ritaði sýslumanni fyrir
hreppsnefndar hönd, 29. mai 1879.
Leggur hreppsnefndin þar til, að
Akrahreppi verði skipt um
Helluá. Haldi úthluti hreppsins
Akrahreppsnafninu er framhlut-
inn nefnist Siifrastaðahreppur. í
bréfinu segist hreppsnefndin
leyfa sér „...að færa þvi a flot,
að Akrahreppur I Skagafjarðar-
sýslu verði af viðkomandi úr-
skurðarvaldi deildur i tvær sveit-
ir, (hreppa), samt æskilegt
Stokkhtílmi, Hringey og Mikley
lagt til Seyluhrepps”. Þessar
þrjár jarðir eru vestan
Héraðsvatna.
Ekki varð hreppsnefndinni að
ósk sinni. Aftur bar málið á góma
snemma á þessari öld. Lyktir
urðu þær sömu og áður, en þá
komst málið ekki það langt, að
fara fyrir sýslunefnd. Enn hefur
þvi Gamli Langur, (heimatilbúið
gælunafn á Akrahreppi), ekki
verið bútaður sundur og ósenni-
legt að af þvi verði Ur þessu.
Mikill fjöldi mynda er
varðveittur í Héraðsskjalasafn-
inu. Ýmsar þeirra hefur enn ekki
tekist að nafngreina. í Safna-
mlum nU eru myndir af 36 ein-
staklingum. Þekki lesendur ein-
hverja i hópnum eru þeir beðnir
að hafa samband við
Héraðsskjalasafnið.
— mhg
• Þetta er þaö nýjasta og vafalaust það besta i smáauglýsingum.
• Þú kemur með það sem þú þarft að auglýsa og við myndum það,
þér að kostnaðarlausu.
• Einnig getur þú komið með mynd af t.d. húsinu, bátnum, bilnum
eða húsgögnunum.
• Auk þess bjóðum við að sjálfsögðu: Húsaleigusamninga. Afsöl og
tilkynningar, einnig bæklinginn frá Bilgreinasambandinu
..Hvernig kaupir maður notaðan bil”.
• Fólk er beðiö um að Homa á auglýsingadeild Vísis Siðumúla 8—
milli kl. 12—15 mánudaga til föstudaga, og birtist þá auglýsingin
með myndinni daginn eftir.
('ortina árt; 1978. Þessi gullfalleRi
bfll er til siilu.
Billinn er i toppstandi. Skoðaður
1980. (íóð kjör. L’ppl. i sima
8‘,8‘,8‘>
\f sérstökum ástæðum er þetta
glæsilega 1 árs gantla sófasett til
sölu. 3 sæta. 2 sæta og húsbónda-
stóll. Allar nánari uppl. i sima