Þjóðviljinn - 14.02.1981, Blaðsíða 23
Helgin 14 — 15. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINÍM — SIDA 23
Magnús Jóhannsson frá Hafnamesi:
Snorri Hjartarson og
Hauströkkrið yfir mér
Þaö voru gleöileg tiöindi er þaö
spuröist út á öldum ljósvakanns
aö Snorri Hjartarson heföi hlotiö
bókmennta verölaun Noröur-
landaráðs fyrir ljöðabók sina
Hauströkkriö yfir mér. Mér hlýn-
aði um hjartaræturnar og mitt i
bölsýni skammdegisins fannst
mér og finnst vorið vera komiö á
ný með angan sina og fuglasöng.
Þaö er þvi ekki úr vegi aö óska
hinum aldna snillingi og fagur-
kera, og þjóðinni allri, til ham-
ingju.
Þjóðarskútan aflaöi vel þennan
dag, þó ekki væri þaö þorskur og
ýsa sem fylltu lestar hennar,
heldur gjaldeyrir sem hvorki
mölur né ryö fá grandað. Nú ættu
bókaverslunareigendur aö taka á
sig rögg og hætta að fela Haust-
rökkrið yfir mér bak við alls
konar léttmeti og reyfararusl eins
og ég varð vitni að siðastliöin jól.
Nú ættu þeir að finna sóma sinn i
þvi aö stilla Hauströkkrinu yfir
mér fram fyrir reyfaraskranið,
sem virðist ganga eins og heitar
lummur i suma lesendur.
Snorri Hjartarson
Einhversstaðar las ég það að
Snorri Hjartarson væri torskilinn
höfundur. Að minum dómi er
hann það ekki. Hann er mjög að-
gengilegur og auöskilinn að
minnsta kosti fyrir þá sem góðri
ljóðlist unna. Það sem einkennir
skáldskap hans er afburða glögg
náttúruskynjun samfara mann-
legri, ljóðrænni tjáningu og
hjartahlýju. Þaö er ekki of-
mælt — Snorri Hjartarson er
mikið skáld, þó ekki liggi eftir
hann staflar af bókum, sem ekki
er mælikvarði á listfengi, en
bækur hans Lauf og stjörnur og
Hauströkkrið yfir mér, vitna svo
ekki verður um villst um snilld
hans eins og nú er komið fram.
Hann er skáld skáldanna, skáld af
guðsnáö.
Snorri Hjartarson mun ekki
hafa átt ýkjastóran lesendahóp,
en nú mun hópurinn væntanlega
stækka. Margir munu hafa komið
af fjöllum og spurt: Hver er
eiginlega þessi Snorri Hjartar-
son?
Snorra hefur ekki veriö mikið
hampað. Ljóðlist hans hefur
streymt hljóðlátlega aö þeim far-
■>'8gi sem nú er sýnt, án glanna-
legra auglýsinga i fjölmiðlum.
Þetta er einkenni mikilla skálda
og listamanna, engin köll, engin
hróp. Og nú hefur þetta sannast
en einu sinni eins og með Ólaf Jó-
hann Sigurðsson, sem ekki var
svo mikið hampað utan góöra
umsagna. Þessi verðskuldaði
sigurSnorra Hjartarsonar veröur
ljóðlistinni til mikils framdráttar.
Fólk mun fara að lesa ljóð
meira en það hefur gert. Ung
skáld munu fara_ að gaumgæfa
hug sinn, gefa lifinu, náttúrunni i
kringum sig meiri gaum. Fólk
mun leita aö Laufi og stjörnum og
Hauströkkrinu yfir mér að baki
reifara og léttmetis og það mun
finna perlur, sem þaö veröur ekki
fyrir vonbrigðum með. Þó margt
sé afburöa góöra ljóða i Haust-
rökkrinu yfir mér, finnst mér
persónulega Haustmyndir bera
af. Myndirnar eru svo ferskar og
skirar og svo mikil angan af þeim
að þó að vetur sé verður hann
ósjálfrátt að sumri.
Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi.
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra hjá Reykjavikur-
deild RKÍ er laust til umsóknar. Stúdents-
próf eða hliðstæð menntun er nauðsynleg.
Einnig er góð vélritunarkunnátta æskileg
ásamt nokkurri reynslu i bókhaldi og
stjórnun. Laun eru samkvæmt launaskrá
VR, þ.e. gamli flokkur A13 (nýi fl. 28).
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist skrifstofu Reykja-
vikurdeildar RKÍ fyrir 1. mars n.k.
Reykjavikurdeild RKt,
öldugötu 4.
Pósthólf 872, Rvik.
Laust starf
Reykingavarnarnefnd óskar eftir starfs-
manni til n.k. áramóta. Starfið er einkum
fólgið i skrifstofustjórn, útgáfustarfsemi
o.fl. er að reykingavörnum lýtur. Um er
að ræða a.m.k. hálft starf, sem æskilegt
væri að unnið yrði eftir hádegi alla virka
daga. Starfið mundi einkum henta þeim,
er hafa menntun eða reynslu á sviði
félags- eða heilbrigðismála.
Starfið er laust nú þegar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og störf sendist reykingavarna-
nefnd, Lágmúla 9, Reykjavik, fyrir 23.
febrúar n.k..
Upplýsingar um starfið eru veittar i sima
82531 alla virka daga milli kl. 13:30 og
16:00.
Reykingavarnanefnd
12. febrúar 1981
F ramtalsaðstoð
Annast skattframtöl, skattkærur, beiðnir
um skattivilnanir og aðra skattþjónustu
fyril launþega.
Sæki um viðbótarskilafrest fyrir við-
skiptavini sem ekki hafa tök á að skila inn
framtölum sinum fyrir lok framtalsfrests
þann 18. febrúar nk..
SKATTAÐSTOÐIN
SÍMI 110 70
Atli Gislason hdl.
ATH. nýtt heimilisfang,
Hverfisgötu 42,101 Reykjavik.
Hafnarskrifstofan
í Reykjavík
óskar eftir að ráða skrifstofumann.
Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir
28. feb. n.k..
Hafnarstjórinn i Reykjavik
Sparivelta Samvinnubankans:
Aukið fé til ráðstöfunarw
LÁNSTÍMA, sem getur verið allt frá 3
mánuðum til 5 ára.
Hvort sem þú hyggur á fasteignakaup eða
húsbyggingu, dreymir um nýjan bíl eða
þarfnast hvíldar og afslöppunar í suðrænni
sól, þá mun Spariveltulán létta þér róðurinn
að settu marki.
Spariveltuhjólið snýst og snýst.
Stöðugt fjölgar þeim, sem sjá sér hag í að
æra með og geta þannig gengið að hlutunum
dsum. Nú er það þitt að ákveða:
LÁNSUPPHÆÐ, sem fer stighækkandi í
illt að 200% því lengur sem sparað er.
Upplýsingabæklingar liggja frammi
í öllum afgreiðslum bankans.
1
Minnstu hins fornkveðna „Að ekki er ráð
nema í tíma sé tekið.“ Kynntu þér hinar fjöl-
mörgu sparnaðar- og lántökuleiðir Sparivelt-
unnar. Gerðu samanburð. Það eru hyggindi,
sem í hag koma.
Samvinnubankinn
og útibú um land allt.