Þjóðviljinn - 14.02.1981, Síða 24
iS AGIfí - KV?IIJIV«Í»,.'Í 'V, . . ri-MÍ
24 SÍÐA — ÞJöDVlLjÍNN He*g«n 14 — 15- febrúar 1981
22
erlendar
bækur
Marchen der Welt
[—III.
SDdeuropa — Mittel und Nord-
europa — Amerika. Deutscher
Taschenbuch Verlag 1978—79.
Felix Karlinger, kunnur fræði-
maður um þjóösögur og ævintýri
hefur valið og geíið út þessi þrjú
bindi ævintýra og þjóðsagna,
væntanleg eru fleiri bindi.
Vmsir telja aö þjóösögur og ævin-
týri lýsi betur en þurrar skýrslur
smekk, viðhorfum og heimsmynd
þjóöanna sem heiminn byggðu og
byggja. Blómatimi þjóðsögunnar
var á þeim timum aður en maö-
urinn braust undan ofurvaldi
náttúrlegs umhverfis, sem hann
lifði við meginhluta þess tima-
skeiðs, sem hann heíur hjaraö á
þessari jörð. Sá timi sem siðan er
liöinn er ekki nema smábrot til-
veru mannsins. Og þótt hann nú á
dögum teljisig herra jaröarinnar
er fjarri þvi aö útséö sé um þau
yfirráð, þegar allt kemur til alls.
En hugarheimur mannsins hefur
breyst,hann telur sig ekki lengur
bundinn hinum náttúrlega cyklus,
en fyrri tiöar menn litu öðrum
augum á tilveru sina i náttúrunni.
Náttúran var hin mikla móöir og
það varö að umgangast hana af
viröingu og varfærni. Það er
sameiginlegt þjóðsögum allra
landa að þetta viöhorf er ráðandi.
Þjóðsögurnar breytast með sam-
félagsgerðinni og þvi er fjöl-
breytileiki þeirra mikiil eins og
glöggt má sjá i þessum bindum.
Óttinn, virðingin og hið yíirskil-
vitlega ræður rikjum i þjóösögum
allra þjóða; hybris hefnir sin allt-
af i þjóösögunni, oílætið er merki
um yfirvofandi hrun.
Þessi bindi eru úrval úr viða-
meira verki, sem Eugen Diede-
richs Verlag hefur geíið Ut undir
heitinu „Die MSrchen der Welt-
literatur”. Þessi dtv. útgáfa er
smekklega unnin og prentun
ágæt; bókaskrár og athugasemdir
fylgja hverju bindi.
The Pelican History of
Music I—III.
Edited by Alec Robertson and
llenis Stevens. Penguin Books
1978—80.
Rit þetta kom lyrst út á árunum
1960—68 og hefur veriö endur-
prentað nokkrum sinnum og þýtt
ma. á þýsku. Útgefendurnir hafa
ritað greinar og bækur um hljóm-
list, unniö viö BBC og kennt og
flutt fyrirlestra um hljómlist við
enska og bandariska háskóla.
Ýmsir lræðimenn skrila hina
ýmsu þætti ritsins asamt út-
gefendum. Fyrsta bindiö fjallar
um hljómlist fornþjóðanna og sið-
an upphaí vestrænnar hljómlist-
ar. Annaö bindiö spannar endur-
reisnartimabilið og barokkina og
það siðasta kiassikina og róman-
tikina. Það er eftirtektarvert aö
sú list, sem nefnd hefur veriö
„æðst lista” skuli fyrst og fremst
vera evrópskt íyrirbrigöi. Vita-
skuld eiga þjóðir utan Evrópu
sina hljómlist, en þvi fer f jarri að
þar hafi þróast nokkuð i likingu
við fjölbreytileika vestrænnar
hljómlistar. Hljómlist er jafn-
gömul mannkyninu og vitað er að
hún var iðkuð meðal Kinverja,
Indverja, Japana og fleiri og
fleiri þjóða áður en hún náði þeim
hæðum þegar á miööldum i
Evrópu, sem erfitt er aö skýra, og
þar meö hófst sá tónn, sem ýmsir
vilja telja að nái fullkomnun í
fúgum Bachs.
Höfundarnir kvarta i formála,
undan áhugaleysi Engiendinga
um hljómlistog telja að hljómiist
hafi verið afrækt á Englandi, sem
einn þáttur sæmilegrar menntun-
ar; sú kvörtun hæfir viðar, nema
þá ef vera skyldi á Þýskalandi og
i Austurriska keisaradæminu, en
þar var hljómlist einn þáttur
nauösynlegrar og sjálfsagörar
menntunar.
Þessi þrjú bindi eru greinargóö
og skýr inngangur að frekari
lesningu varöandi þessi elni, sem
má finna i bókaskrám i lok hvers
bindis.
VERÐLAUN AKROSSGÁT A Nr- 258
/ 2 3 V- <r í 7— V- T~ T~ 1D V II 12 7 7T~ V
w~ /3 V /<T ih> 17 /<7 7 7? !(í> ZD 13 13 18 17 ZJ~
y 10 <? >8 1Z 20 i ZD 22 22 20 S 7? 9 w~
21 1? S' 9 rr; /9 ZÐ 1$ J 7 S' 22 7 V V 13 T~ 7
20 3 7 ié 20 5" w 18 20 21 (p ? (o 21 7 lc V 7
21 W 3 ? h Zo y 2Ý Zl y 7 (p 2S 12 20 7 V
20 V hr 20 3 7 S~ !c ? 13 20 10 5? 1(7 2(p li
V y g V (? ? 3 <F 27 (? 28 9 V (p 23- 13 /V y>
*j $ 18 ‘7 ZO 5? l(t> 2S~ J(p 20 29 22 7 3 á /0
30 /i <P ‘V /3 10 Zo 10 7 25- 22 20 y S~ V 7 >z
/s 7 /3 K V 7 (c Zl 18 20 S £2 <r w~ 7 7T~ 52 2o
12 7- b 21 20 23 7
Stafirnir mynda íslenskt orð eða
mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og
galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er
gefiðog á þvi að vera næg hjálp, þvi
að með þvi eru gefnir stafir í
allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja
þessa staf i hvern i sinn reit eftir því
sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr
greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei
komið i stað á og öfugt.
Setjið rétta stafi í reitina hér til
hliðar. Þeir mynda þá nafn á ríki í
Afríku. Sendiðþetta nafn sem lausn
á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu-
múla 6, Reykjavík, merkt: ,,Kross-
gáta nr. 258". Skilafrestur er þrjár
vikur. Verðlaunin verða send til
vinningshafa.
Verðlaunin að þessu sinni er bókin
Stillist úf inn sær eftir Jóhann J. E.
Kúld, sem lesendur Þjóðviljans
þekkja að mörgum ágætum skrif-
um. Þetta eru endurminningar Jó-
hanns frá byrjun siðustu heims-
styrjaldar og fram á síðustu ár og
er þar komið víða við sögu — skal á
það fyrst minnt að Jóhann var í þrjú
ár í björgunarliði breska sjóhersins
við Island. Útgefandi er Ægisút-
gáfan.
n^T-ÍYT W*
O X XX-rfX-XO X
Ofinn sær
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
Sérðu? Þetta heitir aö drepa tittlinga.
Ef ég væri fullur einsog þiö haldiö fram mundi ég sjá fjóra
lögreglumenn i staöinn fyrir ykkur tvo.