Þjóðviljinn - 14.02.1981, Side 29
Hdgin 14,— 15. febrúar lDSl ÞJÖÐVIL'JINíi — SIOA 2D
um hclgina
Úr Galdralandi: Skralli (Aöalsteinn Bergdai), Malli (Þórir
Steingrimsson) og Tralli (Randver Þorláksson).
Galdraland í Bæjarbíói
Eins og sagt var frá hér i
blaðinu i gær tekur nýtt ieikhús til
starfa nú um helgina: Garða-
leikhúsið, með aðsetur i Garða-
bæ. Fyrsta frumsýningin verður i
dag, laugardag, kl. 15 í Bæjarbíói
i Hafnarfirði. Verður þá sýnt
leikritið Galdraland eftir hinn
góðkunna skcmmtikraft Baldur
Georgs.
Galdraland er sannkölluð
fjölskyldusýning, sem bæði börn
og fullorðnir ættu að hafa ánægju
af. Leikstjóri er Erlingur Gisla-
son og leikendur eru þrir:
Aðalsteinn Bergdal, Randver
Þorláksson og Þórir Steingrims-
son. Maria Hauksdóttir hannaði
leiktjöldin og Nikulás Þórðarson
sér um leikhljóð. Sýningarstjóri
er örn Gunnarsson.
önnur sýning er kl. 15 á morgun
i Hlégarði, og hefst miðasala
þar kl. 13. Um næstu helgi er svo
ráðgert að sýna i Félagsheimili
Kópavogs bæði laugardag og
sunnudag kl. 15.
— ih
Talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir, Halla Bjarnadóttir i hlutverki
Markólfu, Páll Jóhannsson sitjandi, Sigurjón Kristinsson og Björn
Bjarndal.
Markólfa eftir Dario Fo
Ungmennafélag Biskupstungna
frumsýnir gamanleikinn
Markólfu eftir Dario Fo sunnu-
daginn 15. febrúar i Aratungu.
Þýðandi er Signý Pálsdóttir og
leikstjóri er Halla Guðmunds-
dóttir i Asum. Leikmynd og smiði
annast Pétur Guðmundsson.
Aðalhlutverkið, Markólfu, leik-
ur Halla Bjarnadóttir frá Vatns-
leysu en alls eru hlutverkin sjö.
Upphaflega hafði verið ráðgert
að frumsýna á Miðsvetrarvöku
sem félagið stóð fyrir i lok janúar,
en sökum ófærðar hefur frumsýn-
ing dregist þar til nú. Æfingar
hófust fyrir jól.
Ætlunin er að sýna verkið sem
viðast á Suðurlandi og jafnt fyrir
unga sem aldna,enda er leikritið
með afbrigðum skemmtilegt og
fjörugt. óhætt er að segja að það
sé eitt af allra bestu verkum
Dario Fo.
Formaður leiknefndar félags-
ins er Halla Bjarnadóttir. S.K.
Þrem sýningum lýk-
ur að Kjarvalsstöðum
Nú um helgina lýkur þremur erlendum listsýningum að
Kjarvalsstöðum. Þær eru: Teikningar sænska listmálarans
Carl Frederik Hill, Grafik frá landi Mondriaans og Hollenskt
skart.
Hiller hópi serstæðustu listamanna Svia. Hann var uppi um
aldamótin, og þjáðist af geðsjúkdómi siðustu 30 ár ævinnar.
Varðveist hefur mikill fjöldi teikninga frá sjúkdómsárunum,
sem hvarvetna hefur vakið mikla athygli. A Kjarvalsstöðum
eru 76 teikningar, allar i eigu listasafnsins i Malmö
,,Grafik frá landi Mondriaans” er sýning á grafikverkum
eftir 10 hollenska listamenn, sem allir vinna i geómetriskum
stil, samtals 37 myndir, gerðar á árunum 1970—75. „Hollenskt
skart” er sýning á mjög nútimalegu'm skartgripum eftir 19 hol-
lenska listamenn. Gripirnir eru úr áli, silfri, plasti, leðri og
viðartegundum ýmiskonar.
Ókeypis aðgangur er að þessum þremur sýningum, en vegleg
skrá er til sölu fyrir hverja sýningu.
1 Vestursal var um siðustu helgi opnuð sýning sem nefnist
„Vinnan, fólkið, landið”... sýna þar listamennirnir Sigurður
Þórir og Guðmundur Armann málverk, teikningar og graffk-
myndir. Sýning þeirra verður opin til 22. þ.m.
Þess má geta að allir sýningarsalir Kjarvalsstaða eru opnir
daglega kl. 14 til 22.
Fallinn engill í MIR
Laugardaginn 14. febrúar kl. 15 verður i MÍR-salnum sýnd 20 ára
gömul leikin mynd. Nefnist hún „Fallinn engill”. Leikstjóri er Gennadi
Kazanski. Enskt tal. — S.K.
Enn sungið
á Hlíðarenda
A veitingastaðnum Hlíöarenda
við Nóatún er sigildri tónlist gert
hátt undir höfði, þar neyta menn
matar i menningarlegu andrúms-
lofti hinna Ijúfu tóna.
Hjónin Hjálmtýr E. Hjálmtýs-
son og Margrét Eggertsdóttir
sungu þar s.l. sunnudag, og
syngja aftur annað kvöld, frá kl.
20. Þau syngja lög úr söngleikj-
um, óperuariur og ýmis lög af ný-
útkominni plötu sinni.
— ih
Hugmynd ’81
Sunnudaginn 15.2 '81 kl. 15.00
verður haldinn á Hótel Loftleið-
um kynningarfundur nýstofnaðs
Ijósmyndaklúbbs sem ber heitið
Hugmynd '81.
Markmið félagsins er m.a. að
kynna félagsmenn innbyrðis,
halda námskeið og fyrirlestra um
hina ýmsu þætti ljósmyndunar-
innar, standa fyrir ferðalögum,
myndasýningum o.fl.
Einnig er fyrirhugað að koma
upp aðstöðu fyrir félagsmenn þar
sem þeir geta komið saman. —
S.K.
Morgunkaffi
Rauðsokka:
Hvað er
kvennaréttur?
Morgunkaffi Rauðsokka verður
að þessu sinni helgaö kvennarétti.
Það er grein innan lögfræðinnar
sem er að stiga sin fyrstu skref.
Kvennarétturinn fjallar um þau
lög sem gilda um konur sérstak-
lega t.d. þegar um er að ræða
nauðganir, rétt gagnvart börn-
um o.fl. og ekki er sist fjallað um
það hvort konum sé mismunað þó
að jafnrétti eigi aö rikja i reynd.
1 morgunkaffinu mæta tvær
stúlkur sem stunda laganám i
Osló, en túlkur verður Ingibjorg
Hafstað. Þær norsku segja sinar
farir ekki sléttar, þvi innan lög-
fræðinnar hefur kvennarétturinn
verið litinn hornauga og þykir
sumum sem vegið sé að gamal-
gróinni lagatúlkun. Um allt þetta
er hægt að fræðast um leið og
dreypt er á kaffi og nartað i með-
læti. Morgunkaffið er i Stokkholti,
Skólavörðustig 12 og hefst kl. 12.
—ká
Bindindis-
menn á fjöl-
skyldumessu
Þingstúka Reykjavikur IOGT
og tslenskir ungtemplarar vinna
nú að bindindisboðun rneðal
skólanema undir kjörorðinu Ver-
öld án vimu.
Reynt verður að kynna þetta
starf með ýmsum hætti, en á
morgun, sunnudaginn 15.
febrúar, kl. 14 verða þessi samtök
þátttakendur i fjölskyldumessu i
Hallgrimskirkju.
Þar talar Helgi Hannesson for-
maður Ábyrgðar h.f. og auk þess
verður upplestur á vegum sam-
takanna.
Áhugamenn um þetta starf eru
hvattir til að kynna sér það sem
fyrst og best.
(Fréttatilkynning).
Hraðskákmót
Reykjavíkur
Hraöskákm ót Reykjavikur
verður haldið á morgun, sunnu-
dag, kl. 14 i Félagsheimili Tafl-
félags Reykjavikur að Grensás-
vegi 44.
Strax að loknu hraðskákmót-
inu fer fram verðlaunaafhending
fyrir Skákþing Reykjavikur,
Jólahraðskákmótið 1980 og
Firmakeppnina 1980.
Yalgerður Bergsdóttir á sýningu sinni i Galleri Langbrók.
Sýning Valgerðar
Valgerður Bergsdóttir sýnir um
þessar mundir 15 teikningar i
Gallcri Langbrók i Landlæknis-
húsinu. Galleriið er venjulega
aðeins opið á virkum dögum, en
sýning Valgerðar verður opin kl.
12—18 i dag, laugardag, og á
inorgun.
Að sögn Valgerðar hefur að-
sókn verið ágæt, og er mikið um
að fólk liti inn þegar það á leið um
miðbæinn. I fyrradag höfðu fjórar
myndanna selst. Myndirnar eru
allar teiknaðar með blýanti, og
sagðist Valgerður hafa gaman af
að vinna blýantsteikningar, en
annars hefur hún mest fengist við
grafik, og þá aðallega dúkristu.
Valgerður stundaði nám við
MHt og siðar i Osló. Hún hefur
sýnt oft og viða, bæði hér heima
og erlendis, og verk eftir hana eru
til á ýmsum söfnum, hér og á
Norðurlöndunum. Auk þess hefur
hún kennt myndlist, og kennir nú
dúkristu i framhaldsdeild Mynd-
listaskólans i Reykjavik.
Sýningin verður opin til 20.
febrúar, kl. 12—18 daglega.
— ih
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
Tveir AÐSTOÐARLÆKNAR óskast að
Barnaspitala Hringsins i 6 mánuði frá 1.
júni n.k. Umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 30. mars. Upplýsingar veitir
forstöðumaður Barnaspitala Hringsins i
sima 29000.
RAFM AGNSTÆKNIFRÆÐINGUR
óskast á eðlisfræði- og tæknideild Land-
spitalans.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist Skriistofu rikisspitalanna fyrir 16.
mars n.k. Upplýsingar veitir deildar-
tæknifræðingur eðlisfræði- og tæknideild-
ar i sima 29000.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast
strax eða eftir samkomulagi að Geðdeild
Landspitalans, deild 32C og 33C. Einnig
óskast hjúkrunarfræðingar á ýmsar deild-
ir Kleppsspitalans. Upplýsingar veitir
hjúkrunaríorstjóri Kleppsspitalans i sima
38160.
FÓSTRA óskast á Barnaspitala Hrings-
ins. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
i sima 29000.
KLEPPSSPÍTALINN
FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast við Klepps-
spitalann. Umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 15. april n.k. Upplýsingar veitir
yfirfélagsráðgjafi i sima 38160.
BLÓÐBANKINN
MEINATÆKNIR óskast i Blóðbankann
sem fyrst. Upplýsingar veitir yfirlæknir
Blóðbankans i sima 29000.
Reykjavik, 15. febrúar 1981
Skrifstofa rikisspitalanna,
Eiriksgötu 5, simi 29000.