Þjóðviljinn - 14.02.1981, Side 32
Vélstjóra-
deilan er
í hnút
Svo virðist sem deila vélstjóra
hjá rikisverksmiðjunum sé i al-
gerum hniít.Eftir mjög stuttan og
árangurslausan sáttafund I fyrra-
dag hafa deiluaðiiar ekki talast
við og síðdegis i gær hafði engin.
ákvörðun verið tekin um hvenær
næsti fundur verður boðaður.
Aftur á móti eru menn að i sjó-
mannadeilunni þótt litið gangi og
þar mun raunar ekkert ganga
fyrr en nýtt fiskverð hefur verið
ákveðið. BUist var við þvi að yfir-
nefnd tæki ákvörðun um fisk-
verðið I gærkveldi og þegar það
liggur fyrir má gera ráð fyrir að
skriður komist á samningamál
sjómanna.
— S.dór
Jafnréttisráð ræddi
stöðu veitingarnar
i gœr:
Annar
fundur á
mánudag
Jafnréttisráð hélt i gær fund um
svonefnt Dalvfkurmál og iækna-
deildarmálið og verður annar
fundur haldinn á mánudag.
Bergþóra Sigm u ndsdóttir
framkvæmdastjóri ráðsins sagði i
gær að gögn hefðu ekki borist fyrr
en síðdegis á fimmtudag og menn
þyrftu lengri tima til að kynna sér
þau og komast að sameiginlegri
niðurstöðu.
Jafnréttisráð er lögskipað 5
mönnum og 5 til vara. Núverandi
ráð tók til starfa 1. desember 1979
og í þvi' eru: Guðriður Þorsteins-
döttir, formaður, Gunnar
Gunnarsson (BSRB), Kristin
Guðmundsdóttir (ASt) Einar
Arnason (VVSÍ) og Ásthildur
Ölafsdóttir skipuð af ráðherra.
— AI
Ekkert
fiskverð
enn
Viðræðum sjómanna
og útgerðarmanna
hætt
Búist hafði verið við þvi að fisk-
verð yrði ákveðið i gærkvöldi, en
af þvf varð ekki. Yfimefnd verð-
iagsráðs kom saman til fundar
tvisvar sinnum i gær og voru ekki
horfur á þvi að gengi saman fyrir
helgina. Aðilar i kjaradeilu sjó-
manna og útgerðarmanna slitu
fundi á sjötta timanum i gær að
eigin ósk vegna þess að þunglega
horföi meö fiskverðsákvörðun,
Kváðust deiluaöilar ekki hafa um
neitt að ræöa fyrr en úrslit hefðu
fengist í fiskverðsákvörðuninni.
— ekh
Síðustu fréttir
- Yfirnefnd verðlagaráðs sjávar-
útvegsins hélt tvo fundi um
ákvörðun fiskverös i gær, án þess
að til nokkrar niðurstöðu leiddi.
Til tals mun hafa komið að fundur
verði haldinn með deiluaðilum I
dag. Ennþá mun töluvert bera á
milli þeirra, sem hér eigast við.
-mhg.
Alltaf vekja hrossin sömu hrifninguna hjá unglingunum -Ljósm, -eik-
Fram talsfrestur
Rennur út á
miðvikudag
A miðvikudaginn kemur, 18.
februar rennur út frestur til að
skila skattframtölum. Að sögn
Asgeirs Jónssonar skrifstofu-
stjóra Skattstofunnar er fremur
litið farið að berast af skattfram-
tölum enn sem komið er. Sagði
hann að venjulega væri það svo,
að fólk drægi það fram á siðasta
dag, að skila skýrslunni og sér-
staklega væri þetta áberandi
þegar framtalsfrestur væri
langur eins og nú er.
Asgeir sagði að fólk gæti fengið
aðstoð við að fylla út skattskýrslu
sina á Skattstofunni og væri sú
þjónusta ókeypis. Ekki sagðist
Ásgeir vita hvað lögfræðingar
tækju fyrir framtalsaðstoð, en
laganemar tækju 140 nýkr. fyrir
aðstoðina.
— S.dór
Hækkun F-vísitölu í janúar 1.62%
6% verðbætur 1. mars
Hækkun framfærsluvisitölu frá
áramótum til febrúarbyrjunar
varð 1.62%. Samkvæmt þeim lög-
um sem I gildi eru, frádráttarlið-
um ólafslaga og bráðabirgðalög-
unum frá áramótum, koma til út-
borgunar á timabilinu 1. mars til
31. mai 5.95% verðbætur á laun.
Ef ekki hefði komið til viðskipta-
kjarabati sem mældur er inn i út-
reikning kaupgjaldsvisitölur,
sem mun hafa verið ca. 0.9%
hefðu verðbætur orðið 5%.
Eins og skýrt var frá i ianúar-
Viðskiptavísitalan
gaf 0.9% til
hækkunar
byrjun hækkaði framfærsluvisi-
tala um 12.5% í nóvember og
desember. Með janúarviðbótinni
1.62% hefur hækkunin samtals
orðið 14.12% á framfærslu-
kostnaði. Við útreikning verðbóta
dragast frá skerðingarákvæði
Ólafslaga, áfengi og tóbak og bú-
vöruliður, og 7% sem rikis-
stjórnin ákvað með efnahags-
áætlun sinni um áramót að fella
niður gegn afnámi skerðingar-
ákvæða ölafslaga út þetta ár,
skattalækkunum og fleiri ráðstöf-
unum. Því koma 5.95% verðbætur
til útborgunar 1. mars þegar tillit
hefur verið tekið til bata i við-
skiptakjörum frá siðasta reglu-
legum verðbótaútreikningi.
1. júni, 1. september og 1.
desember i ár verða verðbætur á
laun hinsvegar greiddar i fullu
samræmi við hækkun fram-
færslukostnaðar án nokkurrar
skerðingar samkvæmt bráða-
birgðalögum rikisstjórnarinnar
frá áramótunum.
Hagstofa Islands reiknar út
visitölu framfærslukostnaðar en
kauplagsnefnd verðbætur til
launafólks samkvæmt fyrr-
greindum lögum.
— ekh
Hershimiinmit vantaði
hiá okkar mönnum
tslenska landsliðið I handknatt-
leik tapaði lyrir olymplumeistur-
um Austur-Þjóðverja i skemmti-
legum og spennandi leik I
Laugardalshöll i gærkvöldi, 16-18.
Erammistaða landans var mjög
góð, aðeins herslumun vantaði til
þess að okkur tækist að knýja
fram enn hagstæðari úrslit.
Leikurinn var i járnum lengst
af I fyrri hálfleik, 3-3 og 6-6.
Þjóðver jarnir komust siðan 110-6,
en ísland minnkaði muninn fyrir
leikhlé, 10-9.
Þjóðverjar héldu undirtökum
sinum I seinni hálfleiknum, 15-10
og 18-13. Lokaminúturnar sótti
islenska liðiö mjög i sig veðrið,
skoraði 3 mörk i röð og fékk tvö
gullin tækifæri til að minnka
muninn enn frekar, tækifæri sem
glötuðust á fremur klaufalegan
hátt. Ahorfendur klöppuðu
Islensku leikmönnunum lof I lófa
að leikslokum, enda var frammi-
staða þeirra með miklum ágæt-
um þrátt fyrir ósigurinn, 16-18.
Það þarf ekki að fara mörgum
oröum um austur-þýska liðið. Hér
eru á ferðinni frábærir hand-
knattleiksmenn, þeir bestu I
heimi.
Mörkin fyrir tsland skoruðu:
Þorbergur 5/3, Stefán 3, Páll 2,
Steindór 2, Sigurður 1,
Guðmundur 1, Bjarni 1 og Ólafur
1.
— IngH
„Við erum á
réttri leið”
„Ég átti alveg eins von á þvi að
við myndum tapa stórt fyrir
þessu frábæra austur-þýska liði,
þannig að ég er ánægður með
úrslitin. Þau sýna glögglega að
við erum á réttri leið, liðsheildin
er að myndast,” sagði islenski
la ndsliðsþjálfarinn, Hilmar
Björnsson, að leikslokum I
gærkvöldi.
„Strákarnir voru oft á tlðum
fullbráðir i' leiknum og eins nýttu
þeir illa marktækifærin. Ég vona
að okkur takist að laga þessi
atriði fyrir leikinn á sunnudags-
kvöldið. Við eigum að geta velgt
Austur-Þjóöverjunum enn betur
undir uggum.” — IngH
UMFN Islandsmeistari
L"
t,
:
Ungmennafélag Njarðvikur
tryggði sér tslandsmeistara-
titilinn I körfuknattleik i
gærkvöldi þegar félagið lagði
Armann að velli með 120 stig-
um gegn 79. Staðan i hálfleik
var 86-53 fyrir UMFN.
— IngH
Stefá Halldórsson sýndi oft góö tilþrif I leiknum i gærkvöldi. Hér skorar
hann eitt þriggja marka sinna á einkar glæsilegan hátt. Mynd — eik —
PWÐviuim
Helgin 14.— 15. febrúar 1981
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiöslu blaösins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663