Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Page 28
28 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 sérstæð sakamál Þegar Christine Ellerington vakn- aði þennan miðvikudagsmorgun í mars 1983 var hún alls ekki með sjálfri sér. Hana hafði dreymt óvenjulega raunverulegan draum. í honum hafði hún séð syni sína tvo, John og Michael, frávita af örvænt- ingu. Hún gat ekki greint ástæðuna en þeir grétu án afláts og kölluðu á hana. En af einhverri ástæðu gat hún ekki náð til þeirra og huggað þá. Christine fann að draumurinn hafði fengið mikið á hana og það var sem hún hefði enn margt af því sem gerst hafði í honum fyrir augunum. Eiginmaður Christine, Alfred, fór ætíð snemma til vinnu og var því ekki í húsi þeirra hjóna í Beverly Park í North Humberside en sagan gerðist á Englandi. Hann vann í verksmiðju í grenndinni svo Christ- ine gat ekki rætt drauminn við hann. Er hún hafði setið á rúminu um hríð og reynt aö gera sér grein fyrir hvað hann táknaði setti að henni grát. En eftir nokkra stund tók hún sig taki og gekk inn til drengjanna til að sjá hvernig þeim liöi. Þá voru þeir báðir enn steinsofandi. Sagði hann veikan Það var fost venja Christine að fara með drengina í leikskóla um tíuleytið á morgnana á hveijum virkum degi. Síðan hélt hún heim til að sinna heimilinu. En á miðviku- dögum brá hún ætíð frá þeirri venju. Þá heimsótti hún foreldra sína, Beatrice og Alan Smith, en þau bjuggu á sveitabæ í um tuttugu og fimm kílómetra fjarlægð, í Mill Lane í Elstronwick. Þar bjó einnig eldri systir hennar, Jean. Þar sem Christine stóð og virti fyrir sér drengina sína tvo sofandi ákvað hún að hringja í foreldra sína og aflýsa heimsókninni þennan dag. Draumurinn hafði enn svo sterk tök á henni að henni fannst hún ekki geta vikið frá sonum sínum. Hún myndi ekki fara með þá á leikskól- ann heldur leika við þá heima í stofu fram undir kvöld. Christine gat ekki fengið sig til að segja móður sinni hver væri hin raunverulega ástæða til að hún kæmi ekki í heimsókn þennan dag. Þess vegna sagði hún aðeins að John hefði verið lasinn um nóttina. „Það kemur sér eiginlega mjög vel aö þú kemur ekki,“ sagði móðir hennar. „Hann faðir þinn er óvenju- lega niðurdreginn í dag. Hann fékkst ekki einu sinni til að borga morgunmat." Aðvörun? Meðan Christine var að ræða við móður sína heyrði hún fóður sinn spyrja: „Kemur Christine ekki í dag?“ „Nei, John er lasinn svo hún get- ur ekki komið," svaraði kona hans. Heyrðist þá eitthvert óskiljanlegt muldur í honum. Meðan Christine var að sinna sonum sínum, sem hún lét næstum allt eftir þennan dag, ihugaði hún hvað eftir anúað hvað draumurinn gæti táknaö. Var hann aðvörun til hennar? Hvers vegna hafði hana dreymt að drenginrir væru að kalla á hana en hún gæti með engu móti komist til þeirra? Nokkrum klukkustundum síðar fékk hún skýringuna og þá var hún ekki lengur í neinum vafa. Dagurinn á sveitabænum í Elstr- onwick gekk í upphafi sinn vana- gang. Beatrice og Alan Smith voru innandyra en Jean fór út í girðingu nokkuð frá til að sinna grísum sem þar voru hafðir. Beatrice og Alan Smith. Christine. Rannsóknarlögreglumenn sem komu á bæinn síðar þenn- an miðvikudag voru nokkum tíma að gera sér grein fyrir því sem þar hafði gerst. En niður- staða rannsóknar þeirra og tæknimanna var á þá leið að á meðan Jean hefði staðið innan girðingarinnar hefði hún heyrt skothvell heiman af bænum. Hún hefði hlaupið frá grísun- um en legið svo mikið á að hún hefði gleymt að loka hliðinu á girðingunni með þeim afleið- ingum að þeir hefðu farið úr henni. Það sem gerðist heima á bænum hefði byrjað á því að Alan gekk aftan að konu sinni þar sem hún stóð og þvoöi upp leirtau. Hann hefði verið með riffil í hendinni, sett hlaupið við hnakka hennar og hleypt af. Blóðið á veggum yfir vask- inum hefði sýnt það greinilega. Hún hefði ekki gert sér grein fyrir hvað var að gerast og lát- ist samstundis. Þetta hefði ver- ið skothvellurinn sem Jean heyrði þar sem hún stóð mitt á meðal grísanna. Eftir að hafa ráðið konu sinni bana hefði Alan síðan gengið fram á gang og tekið sér stöðu við gluggann í anddyr- inu. Þar hefði hann fylgst með ferðum Jean. Þegar hún hefði komið að húsinu heföi hún dregið áf sér gúmmístígvélin sem hún var í en síðan gengið inn í húsið. Hún hefði þó ekki komist nema rétt inn fyrir dyrnar. Þá heföi faðir hénnar rotað hana með byssuskeftinu. Síðan hefði hann dregið af sér slifsið, brugðið því um háls hennar og kyrkt hana. Þá hefði hann sett slifsið aftur á sig. Trefjar í farinu um háls Jean reyndust vera úr slifsinu, og var því ljóst til hvers það hafði verið notað. Sjálfsvígið Rannsóknarlögreglumenn segja að þegar Alan hafi banað bæði konu sinni og dóttur hafi hann farið fram í eldhúsið, tek- ið lík konu sinnar og borið fram I anddyrið. Þar hafi hann lagt það við hliðina á líki dótt- ur sinnar. Siðan hafi hann sest á gólfið, stungið hlaupi rifiils- ins upp i sig og tekið í gikkinn. Nokkru síðar um daginn sá nágranni, frú Irene Placket, að grísirnir á bæ Smithshjónanna hlupu út um allan völl án þess að nokkur reyndi að koma þeim aftur í girðinguna. Hún fór heim á bæ til að sjá hverju þetta sætti. Að venju barði hún að dyrum en enginn svaraði. Þá gekk hún inn fyrir. Frú Placket brá mjög þegar hún sá líkin þrjú en á tvö þeirra vantaði höfuðið að mestu. Hún hljóp heim til sín og gerði lögreglunni aðvart. Kom hún á vettvang eftir um tuttugu mínútur. Síðan bættust fleiri lögreglumenn í hópinn, og brátt varð vart þverfótað á bænum fyrir þeim. Það var fregnin um atburð- inn voðalega á æskuheimilinu sem gerði Christine ljóst að draumurinn hafði verið sterk aðvörun. Henni varð ljóst að hefði hún ekki talið hann vísbendingu um að hún ætti að sitja heima hjá sonum sínum væri hún ekki lengur í lifenda tölu. Faðir hennar hefði vafalaust skotið hana líka. En hvað lá að baki þess- um óvæntu morðum? Það kom brátt i ljós. Fimm árum fyrir þessi voðaverk hafði Alan Smith selt skuldabréf sem hann átti og keypt fyrir það landbúnaðarvélar sem hann hugðist leigja bændunum í nágrenninu. Af útleigunni hugðist hann síðan hafa tekjur. En brátt kom í ljós að áhugi á að leigja þessi tæki, sem höfðu kostað hann jafnvirði um niu millj- óna króna, var næstum enginn. Hann horfði því á þau standa að mestu ónotuð ár eftir ár. Þetta olli honum í fyrstu áhyggjum en síðar gerðist hann þunglyndur. Að lokum hefur þessi misheppnaða fjárfesting leitt Alan Smith inn á þá braut sem hann gat ekki snúið af. í stað þess að selja vélarnar, sem hann hefði getað, og þannig vinna upp stóran hluta af tapinu sá hann ekkert nema tapið af fjárfestingunni og virðist ekki einu sinni hafa munaö lengur að hann var alls ekki eignalaus maður heldur í raun allvel stæður, og hefði þess vegna getaö lifað sóma- samlegu lífi. Langvinn rannsókn Ýmsum þótti með ólíkindum að Alan Smith skyldi hafa bundið enda á líf konu sinnar, dóttur og sjálfs sin á þann hátt sem raun bar vitni af fjárhagsáhyggjum sem hefðu ekki átt að hafa afgerandi áhrif á líf hans. Kom sumum til hugár að óvenjulega slyngur morðingi hefði verið á ferð- inni. En nákvæm rannsókn tækni- manna leiddi ekki I'ljós neina um- ferð óviðkomandi. Þá voru aðeins fingrafór eftir Alan á rifílinum. Beatrice, Jean og Alan voru jarð- sett hlið við hlið í kirkjugarðinum í Beverly. f mörg ár hugsaði Christine mik- ið um það sem gerðist á heimili for- eldra hennar og systur þennan mið- vikudag. Hún leiddi ekki síst hug- ann að því hvað hefði orðið um hana sjálfa hefði hún haldið venju sinni og farið í heimsókn til foreldra sinna. Niðurstaðan varð ætíð sú sama. Hún hefði vafalaust látið lífið. Atburðurinn hafði gerst á þeim tíma dags að hún hefði verið komin en ekki farin heim aftur. Hún hefði því orðið fórnardýr þeirra brjálsemi sem náð hafði tökum á föður henn- ar eftir þunglyndi sem hefur vafa- laust mátt rekja til áralangrar þrá- hyggju út af ímynduðu íjárhags- hruni. En hver var það sem hafði viljað vara hana við? Og hafði draumur- inn verið aðvörun, eða tilviljun? Christine komst, eins og áður segir, að þeirri niðurstöðu að um aðvörun hefði verið að ræða. Hefði hún farið í heimsókn til foreldra sinna og systur þennan dag hefðu drengimir grátið á þann hátt sem hún sá fyrir sér í draumnum og hún ekki getað náð til þeirra. Að sjálfsögðu liggur engin skýr- ing fyrir á draumi Christine. Sumir gefa þá skýringu að undirvitundin hafi skynjað yfirvofandi hættu og komið boðum sínum til meðvitund- arinnar í draumi en aðrir að Christine og synir hennar hafi átt sér ósýnilegan vemdara sem hafi vitað hvert stefndi og viljað hlífa þeim viö þeim örlögum sem þeirra hefði beðið hefði hún haldið venju sinni þennan örlagaríka miðviku- dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.