Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Qupperneq 35
JjV LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 35 Kristbjörg Kjeld leikkona er ís- lendingum að góðu kunn úr leikhús- inu. Hún hefúr nú gefið út ævisögu sína, Kristbjörg Þorkelína - saga Kristbjargar Kjeld leikkonu. Það er Jórunn Sigurðardóttir sem skráir sögu Kristbjargar en bókaútgáfan Bjartur gefur bókina út. Hér á eftir fer brot úr kafla bókarinnar þar sem Kristbjörg lýsir því hvemig örlögin höguðu því þannig að hún gerðist leikkona. Oft er það svo i lífinu að ósk er svo stór og fjarlæg að maður forðast að móta hana í hugsun, hvað þá setja hana í orð. Þegar svo þau straumhvörf verða að slík ósk ræt- ist virðist það ofureðlilegt og eins og maður hafi verið leiddur réttan veg. Unga, glæsilega konan, sem ekur litla syni sínum í kerru frá Lang- holtsveginum upp i Steinahlíð til ídu í bítið á morgnana og skundar síðan að ná í strætisvagninn til að komast í bókhaldið hjá Hreyfli, rennir ekki í grun að þetta lífs- munstur heyri brátt sögunni til. Flosi átti hugmyndina „Flosi Ólafsson lék með mér í Stanz-aðalbraut-stopp og hann var stundum að tala um að hann myndi byrja í Leiklistarskóla Þjóðleikhúss- ins um haustið. Einhvern tíma hitti ég hann á götu held ég bara og hann segir við mig: „Ætlarðu ekki að skella þér í skólann líka?“ Ég hafði aldrei hugsaö um það í alvöru og varð eiginlega hálfskelkuð. Ég var ánægð á Hreyfli og hafði gaman af því sem ég var að gera hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar en ég hafði aldrei farið á nein námskeið. Að- stæður mínar buðu nú heldur ekki upp á það að ég færi að skuldbinda mig tÚ þess að mæta í skóla á hverju kvöldi og á laugardögum líka. En Flosi gaf sig ekki, skjallaði mig heil býsn og sagði að þetta væri ekkert mál. Hann þekkti Ævar Kvaran og skyldi hringja í hann fyr- ir mig. Ég heyri alveg fyrir mér hvernig Flosi hefur sagt við Ævar: „Heyrðu, Ævar minn, það er héma stelpa sem ætlar að reyna að taka próf, geturðu ekki undirbúið hana?“ Ég var hálfpartinn lömuð eftir þetta samtal við Flosa. Að vinna við það að leika, lesa mér til um bak- grann ólíkra persóna, hreyfa mig sem þær á sviði, hella mér út í hlut- verkin. Allt var þetta órafjarlægt en kitlaði mig óumræðilega svo líklega var hugsunin búin að búa með mér lengi. Tjáningardansarnir heima hjá Unnu... Já, því ekki að prófa? Ég hugsaði um þetta alla leiðina heim í vagninum. Hafði vantrú á sjálfri sér Flosi var svo rogginn, ég öfundaði hann hvað hann var öruggur og frjálslegur. Ég var næstum búin að tala sjálfa mig ofan af þessu öllu saman þegar ég var komin heim. Líklega væri ég allt of stór, ég gæti þetta aldrei, Flosi hefði bara verið að grínast og best væri að gleyma þessu. Þeim mun meira undrandi varð ég þegar Flosi hringdi á skrif- stofuna strax daginn eftir og segir að ég megi koma til Ævars sama dag. „Upp á Bergstaðastræti, þú veist hvar Bergstaðastræti er, Bíbí, er það ekki?“ segir hann. Jú, jú, ég þóttist vita allt um það. En eitthvað hef ég verið fálát í símann því Flosi undirstrikar við mig að það skipti miklu máli að ég mæti. Ég hló nú bara en var í rauninni mest hrædd um að einhver hefði heyrt símtalið. Ég vildi ekki að nokkur maður vissi um þetta. En auðvitað fór ég. Á fund fína mannsins Ég var heila eilífð að finna rétta húsið við þessa löngu götu. Það var gengið inn baka til í kjallarann og það leið þó nokkur stund frá þvi ég hringdi dyrabjöllunni þar til Ævar í einu var ég komin á svið -brot úr ævisögu Kristbjargar Kjeld leikkonu Bríet Héðinsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir, forseti ísiands, Guðrún Ásmundsdóttir og Kristbjörg Kjeld. Myndin var tekin árið 1985. Kristbjörg Kjeld ieikkona steig sín fyrstu skref á leiklistarbrautinni fyrir til- viljun. opnaði dyrnar. Ég þekkti ekkert þennan mikla leikara og fannst hann frekar gamall. Ég var nýorðin tuttugu og eins árs og Ævar hefur staðið á fertugu en fínn var hann. Hann býður mér að ganga með sér inn í herbergi og setjast á móti sér við lítið borð. Á þvi stendur segul- bandstæki, það var það eina sem ég sá að svo stöddu. Svo byrjaði hann að spyrja mig út úr um reynslu mina af leiklist. Ég stamaði ein- hverju upp um þessi hlutverk sem ég hafði verið að leika í Hafnarfirði. Ég var svo óörugg, titraði öll og hélt svo fast í handtöskuna að mig verkj- aði í fingurna. Svo var mér svo heitt. Ég var alveg viss um að það myndi líða yfir mig. Almáttugur, mér fannst ég svo fá- fróð, kannaðist ekki við nema örfá nöfn sem hann nefndi á leikritum og hlutverkum. Jú, Steinunni í Galdra- Lofti, hana þekkti ég, en ég þekkti ekkert það sem átti að vera fyndið. Ég man ekki einu sinni hvað þaö var. En ég lét ekki á neinu bera. Svo þurfti ég að velja ljóð. Ég var mjög hrifin af Tómasi Guðmunds- syni á þessum tíma og nefndi það. Ég valdi ljóðið hans um smámeyna sem hélt að hún væri til... Þá var ég nú eitthvað farin að slaka á. Ævar talaði eitthvað um íslenska tungu, um fegurð hennar og hinn rétta hv- framburð. Mér fannst hann pínulít- ið tilgerðarlegur og það jók mér ein- hvem veginn öryggi að mér skyldi þó finnast eitthvað. Alveg hræðileg rödd Svo byrjaði ég að lesa og Ævar setti segulbandið í gang. Ég reyndi að láta eins og ég vissi ekki af þessu segulbandi, einbeitti mér bara að lestrinum og reyndi að lesa fallega með hv-framburði. Svo lét hann mig hlusta. Það var engrar undankomu auðið, alveg hræðilegt. Ég þekkti ekki röddina, bara þagnirnar og einhver örlítil mis- mæli á einum stað eða tveimur. Mér fannst herbergið allt í einu svo lítið og maðurinn hinum megin við borð- ið svo stór. Og einhvers staðar í fjarska heyri ég hann segja að þetta hafi verið prýðilegt. Nú skuli ég fara heim, læra rullumar og koma svo aftur. Ég held að Ævar hafi séð hvað mér leið óendanlega illa því hann spurði mig hvort þetta hefði verið svona erfitt. Ég brosti nú bara og fannst þetta alls ekki svo slæmt, svona þegar það var búið. Textana lærði ég einhvers staðar í pukri, ein inni í herberginu mínu, þuldi þá yfir Jens sofandi og með sjálfri sér í strætisvagninum á morgnana. Ég fór einum tvisvar sinnum til viðbótar til Ævars og þá gekk allt miklu betur, meira að segja röddin á segulbandinu hætti að hrella mig. §teinunn og hræðileg örlög hennar urðu mér strax mjög hjartfólgin. Einhvern veginn vissi ég hvemig henni leið og átti auðvelt með að samsama mig henni. Stein- unn eygir enga leið út úr ógöngum sínum þegar Loftur snýr við henni baki og hún er ófrísk. Próf í ballettsal Sjálf hafði ég átt góða foreldra sem hjálpuðu mér þegar aðstæður mínar vora kannski ekki ólíkar að- stæðum Steinunnar. Ég fór að vinna á skrifstofu Loft- leiða í kóngsins Kaupmannahöfn í stað þess að ganga í ána og nú var ég allt í einu að búa mig undir aö þreyta inntökupróf inn í Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins. Þetta var næstum því fyndið. Ég gaf Stein- unni allan þann skilning og samúð sem ég átti til og reyndi að leika eins vel og ég gat og hafði öðlast svolitla æfmgu í. Prófið var haldið í Þjóðleikhús- inu, uppi á ballettsal, þar sat dóm- nefndin, einhverjir karlar við borð. Svo kom að inntökuprófinu sjálfu. Ég var eiginlega hissa á sjálfri mér hvað ég var taugaspennt. Ég var búin að ákveða að þetta væri svo sem ekki neitt, bara eitthvað sem ég ætlaði að prófa. Veðrið var mjög gott þennan dag, næstum því heitt, þótt kominn væri október. Ég man að ég reyndi að passa mig á því að skunda ekki of mikið svo ég yrði ekki kófsveitt í prófinu. Mátaði sig við leikhúsið Ég átti að koma bakdyramegin og varð óskaplega fegin þegar ég sá að það voru bara einar dyr á bakhlið hússins. Miðað við glæsileikann í framsölunum fannst mér stigagang- urinn sem blasti við mér óttalega tilkomulítill. En það ríkti eitthvert andrúmsloft þarna sem ég kunni strax ansi vel við. Dyravörðurinn sat í litilli kompu uppi á stigapallinum og það mátti ekki miklu muna að ég gæti setið á mér að kíkja ekki inn eftir gangin- um fyrir innan. Dyravörðurinn var mjög elskulegur og vísaði mér áfram upp stigann og upp á ballett- sal. Dymar inn í salinn stóðu opnar og ég gekk bara inn. Karlamir við borðið inni í salnum heilsuðu og spurðu hvað ég héti. Skyndilega varð allt óskaplega kalt og óper- sónulegt og taugaóstyrkur minn jókst. En svo brosti einn þeirra, frekar fíngerður maður, svo upp- örvandi, jafnvel svolítið kankvíslega til mín. Þá létti mér nú svolítið og spurði bara beint hvort ég ætti ekki að byrja. Jú, jú, þeir kinkuðu kolli. Ég setti allt af stað, hellti mér í hlutverkin, hvert á fætur öðru. Ég var svo ör og allt í einu svo örugg, skemmti mér í rauninni óumræði- lega vel. Svo var allt búið og ég mátti fara en bíða augnablik frammi. Mér fannst þetta svo gaman að ég held að ég hafi ekki staðist freistinguna að máta mig aðeins við þetta hús. Aldeilis væri það skemmtilegt að læra að leika, þá fengi ég líka ein- hveija menntun. Fyrir utan salinn var ungur piltur greinilega líka að bíða og skömmu síðar var okkur báðum tilkynnt að við hefðum stað- ist prófið. Vondur draumur Viö hálfsvifum út úr húsinu og gengum saman niður eftir Hverfis- götunni. Ég var nokkuð sæl með mig en þó ekki öruggari en svo að þegar ungi maðurinn fer að segja mér frá hræðilegum draumi sem sig hafi dreymt þá setti að mér ugg. Ég var ekkert farin að segja foreldrum mínum frá þessu og þótt þau tækju þessu vel þá var ljóst að ég yrði líka að fá að fara svolitlu fyrr af skrif- stofunni á næstunni til þess að geta verið mætt í skólann klukkan fimm. Ég varð í rauninni ofsalega hissa að ég skyldi fá inngöngu í skólann. Ég hafði ekki tekið þetta próf mjög hátíðlega, þetta var bara eitthvað sem ég ætlaði að prófa og þótt það gengi ekki þá var mér það ekki svo mikið mál. Alls ekki þannig að allt hefði hrunið. Náttúrlega hefði ég orðið leið en ég bjóst ekkert frekar við því. Sá ekki frægð og frama Þetta var svo ótrúleg tilviljun því svo er ég bara strax farin að vinna við leiklist og hef ekki gert annað síðan. Þegar mér var sagt að ég hefði staðist prófið hugsaði ég enn ekkert um leiklist sem lífsstarf, sá ekki frægð og frama í hillingum. Ónei, en mér fannst ég strax eiga svolítið heima í leikhúsinu. Það er dásamlegt að vinna við það sem manni finnst skemmtilegast. Foreldrum mínum þótti ekki neitt sérstaklega til þess koma að ég færi í leiklistarskóla en þeim fannst það ekki heldur ómerkilegt og þau studdu mig vel og pössuðu Jens minn. Almenningsálitið var auðvitað að allir gætu gert þetta, leikið. En mað- ur sér það á leiklistinni í dag hvað menntunin gerir. Þegar ég var að leika í Hafnarfirði í Stanz-aðalbraut- stopp fann ég að frú Mörtu Bjöms- son fannst það merkilegt að leika og þá fannst mér það merkilegt líka, úr því að henni þótti þetta svona stór list. Pilturinn sem ég hafði verið sam- ferða niður Hverfisgötuna þegar við fengum að vita að við hefðum stað- ist prófið var ekki á meðal nemend- anna. Það var leiðinlegt mál, það hafði komist í hámæli að hann væri hómósexúal og einhverjir leikarar í húsinu tóku sig víst saman og skrif- uðu undir plagg gegn honum, vildu ekki fá svoleiðis lýð inn í leikhúsið. Ég gerði mér enga grein fyrir um hvað málið snerist, hugsaði meira um drauminn sem hann hafði sagt mér um svört ský. Það er ótrúlegt að hugsa til þess núna að þetta skyldi hafa komið í veg fyrir að hann gæti lært. En tíðarandinn var gjörólikur og sjónarmiðin hafa svo mikið breyst siðan þetta var. (Ath; miUifyrirsagnir eru blaðsins)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.